Morgunblaðið - 07.11.1981, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAliUR 7. NÓVEMBER 1981
34
SP ER3Y VÍCKERS
POWER ANO MOTKDN
CONTROL SYSTEMS |
Háþrýstidælur, mótorar,
ventlar og stjórntæki í
vökvakerfi til sjós og
lands.
Einkaumboö á íslandi.
Atlas hf
GRÓFINNI 1 - SÍMI 26755
LAUGAVEGI47 SIM117575
Frá viðskiptaþingi - Framtíð einkarekstrar:
Ríkisaískipti
og
einkarekstur
eftir Sigurð R.
Helgason, fram-
kvœmdastjóra
Hér fer á eftir kafli úr erindi,
sem Sigurður R. Heigaaon, fram-
kvæmdastjóri, flutti á Viðskipta-
þingi Verzlunarráðs íslands fyrir
skömmu:
Mikil ríkisafskipti
Afskipti ríkisvalds á Islandi af
atvinnurekstri — einstökum
fyrirtækjum og heilum atvinnu-
vegum — í formi verðstöðvana,
styrkja, „rangrar gengisskrán-
ingar, sjóða- og kvótakerfa er
kunnari en frá þurfi að greina.
Aimenn áhrif þeirra hvað at-
vinnureksturinn snertir er aukin
rekstraráhætta — samanber
hinar ýmsu útflutningsgreinar
nú þegar íhugað var hvort fella
eigi gengi eða færa fé frá eigend-
um saltfisks og sparifjár, til
þeirra sem veiða síld og loðnu.
Markaðurinn er sviptur hlut-
verki sínu til að tryggja bezta
nýtingu framleiðsluþátta þjóð-
félagsins — en meira um það
síðar.
Fjármagnsleysi
Við aðstæður óðaverðbólgu er
sívaxandi fjármagnsþörf sjálf-
gerður fylgikvilli. Greiða þarf
aðföng sífellt hærra verði með
fjármagni sem grundvallast á
tiltölulega eldra verði. Ef fyrir-
tækið á að halda eiginfjárhlut
við óbreytta veltu er ekki nóg að
hækka verð jafnóðum heldur
verður að leggja á fyrir væntan-
legum hækkunum. I verðstöðvun
er afgreiðsla hækkanabeiðna
dregin á langinn og fyrirtækið
rekið til frekari lántöku sé hún
þá fáanleg. Atvinnulíf, sem býr
við slíkar aðstæður er ekki lík-
legt til atvinnulegrar uppbygg-
ingar — það streitist mest við að
lifa af.
Valdaleysi
Víða um Vesturlönd er talað um
atvinnurekendavald af sannfær-
ingu. Benda má á í því sambandi
að náið samspil ríkisvalds og at-
vinnurekstrar i Japan. Hérlendis
standa fyrirtækin höllum fæti í
sífelldri baráttu við verðlags-,
fjármagns- og leyfaveitinga-
stofnanir um að geta lifað.
Atvinnugreinar eru aðskildar
hagsmunalega með sérrsjóðum,
styrkjum og öðrum aðgerðum.
Verðbólgan knýr ríkisstjórn nær
daglega að velja milli skyndi-
hagsmuna launþega og hags-
muna atvinnurekstrarins í land-
inu. Kerfið eitt sér — við tiltölu-
lega stöðugt verðlag væri mögu-
lega viðunandi, — en við
40—60% verðbólgu eru fraln-
leiðsluatvinnuvegirnir reknir í
mislyndan faðm kerfisins oft á
ári. Tilbúinn vandi verður jafn-
vel höfuðviðfangsefni stjórn-
valda. Þetta samspil kerfis og
verðbólgu kann að gera illviljuðu
ríkisvaldi eða miður gefnum
ráðherra mögulegt að knésetja
heilar atvinnugreinar á skömm-
'um tíma. Vert er að benda á að
harðar verðstöðvanir og íhald í
gengismálum — stefna er sögð
er rekin með hagsmuni launþega
fyrir brjósti, — hefur að sjálf-
sögðu haft í för með sér sam-
drátt í atvinnu íslenzkra borg-
ara, en ýtt undir kaup útlendrar
vöru og útlendrar vinnu.
Sundrung
Sundrung einkarekstrar birt-
ist í því að svo virðist sem ein-
stakar atvinnugreinar ástundi
hagsmunabaráttu einar sér og
ekki i náinni samstöðu við aðrar
atvinnugreinar. Vera má að
glæsilegur árangur landbúnaðar
neð því laginu hafi villt
mönnum sýn. Sú bið hefur hins
vegar gefizt illa — orðið mest til
að veikja atvinnureksturinn og
afskræma hagkerfið að auki.
Ekki bætir úr skák að hinn
frjálsi atvinnurekstur í landinu
er tvískiptur eftir eignarformi
— einkarekstur og samvinnu-
rekstur. Svo virðist sem sú skipt-
ing sé mun meiri og afdrifarík-
ari en víðast annars staðar.
Óhagstætt
almenningsálit
Áður var minnzt á tilbúna
árekstra launþega og atvinnu-
rekenda vegna afgreiðslu nauð-
synlegra verðhækkana. Sú um-
ræða, sem því fylgir, hefur haft
sín áhrif á almenningsálitið. —
Mögulega vegna lélegrar al-
mennrar kynningar á málstað
atyinnulífsins.
íslenzkum atvinnurekendum
hefur lengi verið lagið að upp-
hefja grátkór sem höfðar lítt til
hins almenna kjósanda — nema
síður væri.
Sundurlyndi einkarekstrar- og
samvinnumanna með tilheyr-
andi skætingi hefur einnig án
efa haft sitt að segja.
Hvað getur einkareksturinn
gert til að styrkja stöðu sína?
Höfuðatriðið er að samstaða
náist með hinum frjálsa at-
vinnurekstri í landinu um
grundvallarhagsmuni — í því
skyni að hefja sameiginlega
hagsmunabaráttu t.d.
I öðru lagi er nauðsynlegt að
leggja höfuðáherzlu á að kveða
niður verðbólguna, helzt með
samstöðu með launþegum, en
ekki síður að ná fram breyting-
um á kerfi verðlagsmála.
í þriðja lagi að beina upplýs-
ingum til almennings í því skyni
að undirstrika að frjálst og
blómlegt atvinnulíf er lykillinn
að bættri afkomu landsmanna.
Tröllateikningar í
Gallerí Lækjartorgi
HAUKUR Halldórsson opnar 7. nóv.
myndlistarsýningu í Gallerí Lækjar
torgi, þar sem hann sýnir 39 verk,
kol og blýantsteikningar ásamt einu
„skúlptúrverki" — Tröllalúku.
Viðfangsefni Hauks er einkum ísl.
þjóðsögur og sér í lagi ísl. tröilasög-
ur.
Haukur Halldórsson er fæddur í
Reykjavík 4.7.37. Hann nam við
Myndlistar- og handíðaskólann og
síðar við Du Point Tegneskola í
Kaupmannahöfn á sviði auglýs-
inga, umbúðahönnunar, frí-
merkjateikninga o.fl.
Haukur hannaði „Útvegsspilið"
og „Rallyspilið" 1977—79. Hann
tók þátt í sýningu í Núrnberg 1979
og Reykjavík 1981. Haukur er
meðlimur í Fél. ísl. teiknara, FÍT.
Þetta er fyrsta einkasýning
Hauks og eru öll verkin til sölu.
Á sýningunni verða einnig til
sölu eftirmyndir af nokkrum verk-
um Hauks og er takmarkað upplag
tölusett og áritað af höf. (37 ein-
tök af hverri mynd).
Sýningin stendur frá 7. nóv. til
22. nóv. og er opin frá kl. 14—22
alla daga.
(Krétlatilkynning.)
Listamaðurinn við eitt verka sinna.
Heilsugæslustöðin,
Asparfelli 12
Breiöholti III
Tilkynning til íbúa
Breiðholts III
(Fell, Hólar og Berg)
Nýlega hefur veriö fjölgaö læknum viö heilsugæslustööina í Asparfelli 12, þannig
að þar starfa nú 4 læknar. Því er kleift aö veita fleiri íbúum í hverfinu þjónustu
heilsugæslustöövar, þ. á m. heimilislæknis-, heilsuverndar- og vaktþjónustu, svo
og heimahjúkrun.
íbúum sem þess óska er bent á aö hafa samband viö stööina í síma 75100 og láta
skrá sig.
Heilbrigðisráö Reykjavíkurborgar
Snigildælur, henta vel til aö
dæla fiskúrgangi, sem lensi-
daelur fyrir skip og báta o.fl.
Snigill úr ryöfríu stáli. Þessar
dælur eru kjörnar fyrir frysti-
hús og vinnslustöðvar. Vest-
ur-þýsk úrvalstæki.
Atlas hf
GROFINNI 1 - SIMI 26755