Morgunblaðið - 07.11.1981, Síða 41

Morgunblaðið - 07.11.1981, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981 41 félk í fréttum L. RICHARD BURTON LEIKUR WAGNER + Richard Burton mun fara með hlutverk tónskáldsins fræga Richard Wagners í átta klukkustunda sjónvarpsmynd sem breskir menn ætla að róðast í aö framleiða. Van- essa Redgrave fer meö hlutverk Cosimu Wagner, seinni konu tónskáldsins og lang- afabarn Wagners, Daphne, leikur Metter- nich prinsessu. — Þetta fyrirtæki hefur staöiö til í þrjú ár, sagði Jo Lustig, talsmaöur framleiöend- anna í spjalli við blm., og við munum semsé fara af stað af fullum krafti í janú- arbyrjun næsta árs. Við erum glaðir mjög að hafa krækt í Richard Burton og hann hefur mikínn áhuga á verkefninu. Sem bet- ur fer er hann góður til heilsunnar. Þaö mun vekja athygli í þessari mynd að Wagner deyr ekki sæll, hlýðandi á tónlist sína á heimili sínu í Feneyjum, heldur lætur handritahöfundurinn, Charles Wood, hann fara yfir um eftir hnútukast viö konu sína Cosimu, um hina ensku hjákonu sína, Carrie Pringle. Handritiö hefur fengið blessun afkomenda Wagners ... + Með nútímatækni gerist sífellt örðugra aö ræna banka, og hefur þaö nú aldrei veriö neinn barnaleikur. Nú eru sjónvörp í hverjum banka, og ef bankaræninginn hylur ekki andlit sitt, er lögreglunni léttur eftirleikurinn. Þessar myndir voru teknar af bankaráni í Lundúnum. Skyndilega birtist maður með geysimikla byssu í bankaútibúi nokkru og miðaöi á gjaldkerann, sem átti sér einskis ills von. Bankaræninginn komst undan meö þúsundir punda, en þess veröur eflaust ekki langt að bíða, að hann lendi bak viö lás og slá, þessí... SJÓ- SKAÐI + Á myndinni sést lögreglumaður í Hollsboro skoða lítinn bát, sem lenti í ofsaveðri milli Haiti og Flor- ida. Fleiri en sextíu Haiti-búar voru um borð í þessum litla bát, en aöeins um helmingur þeirra lifði af þessa sjó- ferð. Hinn helm- ingurinn drukkn- aði skammt undan ströndu Florida, og hefur 31 lík þegar borið að landi... Lindarbær Gömlu dansarnir í kvöld frá kl. 21.00 til kl. 02.00. Rútur Kr. Hannesson og félagar leika, söngkona Val- geröur Þórisdóttir. Aögöngumiöasala í Lindarbæ frá kl. 20.00, sími 21971. Gömludansaklúbburinn Lindarbæ. Söngskglinn í Reykjavik Glæsilegur Flóamarkaður og kökusala í lönskólanum Reykavík Vitastígsmegin á morgun sunnudag 8. nóvember kl. 14.00. Húsgögn. Leikföng. Raftæki. Leirtau. Fatnaöur. Lukkupokar. Heimabakaðar kökur. Happdrætti. Stórkostlegt úrval og ótrúlega lágt verö. Söngskólinn í Reykjavík. Matseðill dagsins: Sherrylöguð sveppasúpa Gljáður hamborgarhryggur Bordelaise Vanilluis m/heitri súkkulaðisósu Verð kr. 98.- Sunnudagur Rjómalöguð spergilsúpa Glóðarsteikt lambalæri Bemaise Vanilluís m/heitri súkkulaðisósu Verð kr. 98.- Verið velkomin í <isssmi^ Hagamel 67, sími 26070. Heildsölubirgðir: AGNAR LUDVIGSSON HF., Nýlendugötu 21, sími 12134.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.