Morgunblaðið - 07.11.1981, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Orð í tíma töluð
Kristinn Magnússon skrifar:
„Erindi Arndísar Björnsdótt-
ur, sem hún flutti í útvarps-
þættinum „Um daginn og veg-
inn“ hinn 2. þ.m., var með því
allra besta og fróðlegasta, sem
ég hef iengi heyrt undir þeim
dagskrárlið. Þar var talað tæpi-
tungulaust um ýmsar mein-
semdir sem blómgast hafa í
þjóðfélagi okkar undanfarið og
stefna okkur upp á flæðisker
skatta og hafta. Þar sér ekki
fyrir endann á. Nokkrir
kommakarlar ráða ferðinni og
halda áfram að blekkja lág-
launaþræla, sem í sinni barna-
trú gerðu sér vonir um betri af-
komu og minni þrælkun til að
ná endum saman, ef þessir
blekkingameistarar fengju að
ráða.
Ég ætla ekki að tína til allt
það sem fram kom í erindi
Arndísar, en þar voru orð í tíma
töluð, sem vert væri að hver
íhugaði með sjálfum sér og í
samræðum við náungann. Hafi
hún verðskuldaða þökk fyrir.
Og ég skora á útvarpsmenn að
sjá til þess að erindið verði
endurflutt, því að það á ekki
síður tilkall til þess en önnur
erindi sem flutt hafa verið í
þessum þáttum og síðan endur-
flutt síðar.
Ég vona að Velvakandi sjái
sér fært að koma þessari ósk
minni á framfæri við þá út-
varpsmenn. Þeir mega vissulega
vel við una, það er ekki svo
ýkjaoft, sem þeim er hælt fyrir
eftirtektarverða dagskrárliði.
Sé þetta erfiðleikum bundið, t.d.
vegna fjárveltis stofnunarinnar
eða ókyrrðar kommakarla, þá
Arndís Björnsdóttir
mætti svo sem bjarga þessu við
með því að birta erindið á
prenti — þökk sé því frelsi sem
við þó enn njótum."
Iðnaðarrokk:
Er þetta færibandið -
ein breiðskífa á ári?
Ilerra Klinkur skrifar:
„Kæri Ub 40.
I bréfi þínu, fimmtudaginn 20.
okt., gerir þú veröldinni ljóst hvað
orðið iðnaðarrokkari þýðir. Bubbi
syngur ekki inn á plötur til þess að
meika peninga. En til hVers þá? Jú,
til að fullnægja listþörfinni o.s.frv.
(segir þú). Hvar væri Bubbi nú ef
hann hefði ekki slegið í gegn? Ef-
laust á eyrinni eða einhverjum tog-
ara (sem hann var víst áður). En
um leið og Bubbi kallinn hefur
fundið peningalyktina hefur hann
séð að þessi bransi væri betri en
ist veita af, þegar við hér fáum
ekki einu sinni símatæki. Það er
mjög áríðandi fyrir mig vegna at-
vinnu minnar að láta vekja mig,
en nú sé ég ekki annað en að ég
verði að sofa úti í bæ, þar sem ég
get fengið aðgang að síma. En ég
er að velta því fyrir mér, hvort
þetta ríkisfyrirtæki, Póstur og
sími, sem hefur einokun á allri
símaþjónustu, muni ekki vera
skaðabótaskylt í þessu tilviki.
Held ad þeir séu
að spila med fólk
Anna Einarsdóttir, Kiðafelli,
Kjós, hringdi, og hafði eftirfar-
andi að segja: — Ég er svo undr-
andi á útvarpsdagskránni í
gærkvöldi (fimmtudagskvöld), að
ég á vart nógu sterk orð til að
lýsa því: Fyrst þetta leikrit,
hundleiðinleg þvæla, eintómar
nauðganir, bölv og ragn; síðan
þessi makalausi þáttur „Án
ábyrgðar". Best er að hafa sem
fæst orð um hann. Maður sest
niður á fimmtudagskvöldi og ætl-
ar að njóta þess að fá leiklist og
Iétt hjal inn í stofu til sín, og þá
kemur þessi hremming. Ég held
að þeir séu að spila með fólk, svei
mér þá.
verkamannavinna alla ævi. í bréfi
þínu talar þú um færiband iðnað-
arrokkara sem minnir mig á
Bubba/ Utangarðsmannafæri-
bandið fræga. ísbjarnarblús/
Rækjureggae/ Geislavirkir/ 45
rpm/ Plágan — allt þetta á rúmu
ári. Þetta er það sem ég o.fl. köllum
færiband — (að ekki sé talað um
síðustu Utangarðsmannaplötuna
og Dirty Dan Project, sem hvort
tveggja kom út fyrir skömmu). Ég
held að öllum þeim sem fylgdust
með íslensku tónlistarlífi væri
kunnugt um að Steinar hf. er fyrir-
tæki sem grípur gæsina meðan hún
er volg og gefur ekkert út án þess
að vera öruggt um sölumöguleika
viðkomandi skífu. Enda ætti öllum
að vera ljóst að um leið og fréttist
um aðskilnað Utangarðsmanna var
nokkrum óútgefnum upptökum +
„Greatest Hits“ lögum þrykkt á
plast í einum grænum og gefið út.
Ef Ub 40 vill tala um færiband í
sambandi við Rollers þá er mér al-
veg sama, en fyrst ætti hann að
bera eftirfarandi saman við
Utangarðsmenn/ Bubba.
Bay City Rollers/It’s a Game
(maí 77), BCR/ Strangers in the
Wind (ágúst 78), The Rollers/
Elevator (sept. 79), The Rollers/
Voxx (ágúst 80), The Rollers/ Ric-
ochet (júní 81). Er þetta iðnaðar-
rokkarafæribandið sem þú talar
um — ein lp-plata á ári? Ég held
þú ættir fyrst að líta þér nær áður
en þú ferð að tala um pottþétta
sölutónlist af færiböndum.
Að lokum ætla ég að benda Ub 40
á að hlusta örlítið betur á „Rico-
chet“, sérstaklega 3 síðustu lögin á
hlið B: „That’s Where the Boys
Are“, (ég vona að þú sért ágætis
enskumaður, því það fer ekkert á
milli mála), „Set the Fashion" og
„This Is Your Life“, því þá hlýturðu
að fatta það að „Ricochet" er víst
þrælgóð plata. Og eitt enn Ub 40:
Pældu soldið betur í hlutunum áð-
ur en þú stingur niður penna
næst.“
Atviimurekend-
um verði gert
skylt að auglýsa
undir nafni
Sár borgari skrifar:
„Velvakandi góður.
I dálkum þínum hafa öðru
hvoru birst réttlátar og tíma-
bærar kvartanir um þann dóna-
skap atvinnurekenda að svara
ekki skriflegum umsóknum um
störf sem fólk leggur inn á af-
greiðslu dagblaðanna. Ég hef í
alllangan tíma leitað fyrir mér
um starf, farið eftir auglýsing-
um og sent inn ótal umsóknir,
þar sem svari er jafnvel lofað.
Því miður hef ég þurft að bíða
árangurslaust ásamt fjölda
annarra sem um störfin sækja.
Verður ekki annað sagt en hér
sé um fádæma ósvífni atvinnu-
rekenda að ræða, en mjög hæp-
ið er að þeir geti krafist per-
sónulegra upplýsinga um um-
sækjendur atvinnu á þennan
hátt, sem þeir svo geta flaggað
með eins og þeim sýnist.
Framkoma sem þessi þekkist
hvergi erlendis, en þar telja at-
vinnurekendur það sjálfsagða
skyldu ad svara og þakka fyrir
innsenda umsókn. Það er sem
sagt talin sjálfsögð kurteisi og
tillitssemi við áhugasama um-
sækjendur að láta heyra frá sér.
Þessa tillitssemi þekkja íslenzk-
ir atvinnurekendur ekki, enda
vita þeir margir hverjir ekki
hve erfitt er fyrir fólk að bíða í
óvissu eftir svari sem aldrei
kemur. Því verður að gera þá
kröfu að atvinnurekendum
verði af löggjafans hálfu, gert
skylt að auglýsa undir nafni, í
stað þess að hunza og lítilsvirða
kurteislega skrifaðar umsóknir
fólks um auglýst störf. Tel ég
víst að hér mæli ég fyrir hönd
allra þeirra mprgu sem at-
vinnurekendur hafa sært með
þögn sinni. Væri fróðlegt að
heyra álit fólks á þessu leiðinda
máli.
Með þökk fyrir birtinguna.”
Enn um
geirstýft
l'rammar áfrarn þra'lalid
þyrnum .stráda vcginn.
Áform lifsins undir kvid,
audnan snýr þ<*im baki við.
(■crist flcst mcð gcirstýft báðum mcgin.
(G. Halld. — Húsavík).
Frá Geðdeild
Borgarspítalans
Arnarholti
Á morgun, sunnudag 8.
nóv. frá kl. 10—18, verður
haldin sölusýning á
handavinnu vistmanna
Arnarholts. Sýningin verð-
ur á Hallveigarstööum.
Margt fallegra og góöra
muna, t.d. gólfteppi, mál-
verk, útsaumur, leikföng
og margt fleira.
Borgarspítalinn.
Basar
Basar Blindrafélagsins er í dag aö
Hamrahlíð 17 kl. 2. Vöruúrval aö
vanda svo sem: Prjónles, jólavörur,
fatnaöur, kökur og blóm.
Okkar vinsæla skyndihappdrætti.
Styrktarfélagar.
LÚÐRASVEITIN SVANUR
Unglingadeildin er tekin til starfa og býöur
alla unglinga velkomna sem starfaö hafa í
skólalúðrasveitum og/eöa hafa fengiö undir-
stööutilsögn í hljóöfæraleik og nótnalestri.
Þroskandi tómstundastarf. Skemmtilegt
hópstarf. Veriö meö frá byrjun.
Lúörasveitin Svanur getur jafnframt bætt
viö sig áhugasömum og vönum hljóöfæraleik-
urum.
Nánari upplýsingar gefa Sæbjörn Jónsson,
sími 72228, Valur Páll Þórðarson, sími 74790
eöa á æfingatímum í Vonarstræti 1, mánu-
daga og miðvikudaga frá kl. 20.30, unglinga-
deildin þriöjudaga og föstudaga frá kl. 20.00.
LÚÐRASVEITIN SVANUR
r
DTS
afgreiðslutölvur og
birgðaskráningarkerfi
SKRIFSTOFUTÆKNI HF
ARMULÁ 38.105 REYKJAVIK.
SlMI 85455. PO. BOX 272.