Morgunblaðið - 07.11.1981, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981
47
r
málnírtg,
málning J m
málninm
málning
málning,
'tnálningt' /
nrtálning
Evrópukeppninni
KFUM Osló mætir úrvalsliöi:
Uppistaðan úr ÍS
íslandsmei.starar hróttar í blaki
leika í dag gegn norsku meisturun-
um KFUM Osló í Kvrópukcppni
meistaralida. Er þetta í fvrsla skiptið
sem íslenskl lið tekur þátt í Evrópu-
keppni í þessari íþróttagrein. Leikur-
inn fer fram í íþróttahúsi Ilaga-
skólans og hefst hann klukkan
14.00.
Norska liðið hlýtur að vera sig-
urstranglegri aðilinn í þessari við-
ureign, en aldrei er að vita nema
Þróttarar standi í þeim, sérstak-
lega hér á heimaslóðum. Útileik-
urinn verður líklega mun erfiðari.
Það sem kannski er markverðast
við þetta norska lið, er að fyrirlið-
inn er Islendingur í húð og hár,
meira að segja ein styrkasta stoð
íslenska landsliðsins síðustu árin.
Er það Tómas Jónsson sem leikið
hefur 20 landsleiki fyrir Island.
Hann er ekki eini maður liðsins
með reynslu sem landsliðsmaður,
því fjórir af lykilmönnum KFUM
eru fastir menn í norska landslið-
inu og hafa fjölda leikja að baki.
Einn leikmanna Þróttar hefur
leikið í Evrópukeppni. Er það
Leifur Harðarson, sem dvaldi um
tíma í Noregi og lék þá með
KFIJM Volde. Tómas Jónsson var
þá einnig leikmaður með Volde, en
liðið komst í 2. umferð Evrópu-
keppni bikarhafa með íslend-
inganna í broddi fylkingar.
NORSKA blakliðið KFUM Osló
mætir úrvalsliði úr íslenskum blak-
liðum að Þrótti undanskildum í sýn-
ingarleik á sunnudaginn, leikurinn
fer fram í Hagaskólanum og hefst
klukkan 14.00. Þrótturum var falið
að velja umrætt úrvalslið og er það
þannig skipað:
Friðbert Traustason, Indriði
Arnórsson, Friðjón Bjarnason,
Haukur Valtýsson og Sigurður
Þráinsson, allir ÍS, Sigurður Guð-
mundsson, Jóhann Sigurjónsson
og Páll Ólafsson úr Víkingi, Aðal-
steinn Bernharðsson og Stefán
Magnússon frá UMSE og loks
Haraldur G. Hlöðversson frá ÍBV.
Svo sem sjá má, er uppistaðan frá
ÍS.
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik fékk stóran skell gegn Ungverjum í
gærkvöldi. Liðið tapaði með 25 mörkum gegn 35. Tíu marka tap. Staðan í
hálfleik var 12—9 fyrir Ungverja. Hilmar Bjömsson, landsliðsþjálfari, sagði
eftir leikinn að þetta hefði verið dæmigerður fjórði leikur íslensks liðs í
keppni erlendis. Stórt tap.
„Ef ég hefði svar við því hvað
gerðist þá hefðum við unnið leik-
inn,“ sagði Hilmar.
Gangur leiksins var sá að ung-
verska liðið tók strax forystuna í
leiknum og á 15. minutu var stað-
an 8—6 fyrir Ungverja. Þegar 23
mínútur voru liðnar af hálfleikn-
um var staðan 13—8 og í hálfleik
var staðan 19—12.
Sami kraftur var í leik Ung-
verja í síðari hálfleik og íslenska
liðið réði ekki neitt við neitt. Þeg-
ar 40 mínútur voru liðnar af leikn-
um var staðan 26—15. Varnarleik-
ur íslenska liðsins var mjög slak-
ur, að sögn Hilmars. Sóknarnýting
íslenska liðsins var 45%. íslenska
liðið skoraði 25 mörk í 55 upp-
hlaupum sem liðið átti.
FIMLEIKAFÉLAGIÐ Gerpla í
Kópavogi er 10 ára á þessu ári og í
tilefni afmælisins efnir félagið til
kynningar á starfsemi sinni á laug-
ardaginn. Kynningin verður að
sjálfsögðu í salarkynnum félagsins
að Skemmuvegi í Kópavogi og allar
dcildir munu koma þar fram með
sýnishorn af starfsemi sinni. Alls
starfa 5 deildir innan Gerplu, fim-
leikadeild, hadmintondeild, borð-
tennisdcild, júdódeild og karate-
deild.
ÍR SIGRAÐI KR í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í gærkvöldi með 73
stigum gegn 68. í hálfleik var staðan
36—29 fyrir ÍR. Þó leikurinn hafi
ekki verið neitt sérstakt augnayndi,
þá verður að segjast eins og er, að
hann var æsispennandi og lengst af
sáralítill munur á liðunum. Næstum
allan síðari hálfleikinn skiptust liðin
til dæmis á um 1—2 stiga forystu.
Undir lokin náði ÍR góðum spretti
sem greint verður frá síðar, en sá
sprettur tryggði bæði stigin, sem
voru liðinu afar kærkomin og festa
lið ÍS enn frekar við botn deildar
innar.
Góður varnarleikur samfara
frekar slakri hittni hélt skorinu
niðri í þessum leik, sérstaklega
hittu KR-ingar illa ef Ágúst Lín-
dal, eða „Gús“ , eins og Kanarnir
• íslandsmeistarar Þróttar 1981. Þær brcytingar hal'a orðið helstar síðan, að Valdimar Jónasson, sem er krjúpandi
lengst til ha'gri, er nú þjálfari liðsins. Þá hafa 4 nýir leikmenn ba'st í hópinn.
Frumraun Þróttar í
Lið ÍR:
Kristinn Jörundsson 5
Jón Jörundsson 6
Benedikt Ingþórsson 7
Hjörtur Oddsson 7
Ragnar Torfason 5
Óskar Baldursson 4
Lið KR:
Jón Sigurðsson 6
Ágúst Líndal 8
Kristján Rafnsson 4
Garðar Jóhannsson 5
Bjarni Jóhannesson 4
Geir Þorsteinsson 4
Birgir Mikaelsson 4
Páll Kolbeinsson 4
Gerpla 10 ára
Mörk íslenska liðsins skoruðu
þessir: Sigurður Sveinsson 9, Sig-
urður Gunnarsson 4, Kristján
Arason 4, Ólafur Jónsson 4, Alfreð
Gíslason 2, Steindór Gunnarsson
1, Þorgils Ottar 1. — ÞR.
Sigurður Sveinsson skoraði 9 mörk á móti Ungverjum.
krækti í dýrmæt stig
kalla hann, er undanskilinn. Hann
bar af í liði KR, en fékk menn ekki
með sér. ÍR-ingarnir voru mun
samhentari og baráttan í þeirra
herbúðum var betri. Sem sagt, ÍR
hafði frumkvæðið næstum allan
fyrri hálfleikinn, utan einu sinni,
er KR komst einu stigi yfir þegar
tæpar þrjár mínútur voru til
leikhlés. Þá stóð 29—28, en ÍR-
ingar skoruðu síðustu 8 stigin.
KR skoraði tíu fyrstu stigin í
síðari hálfleik, en ÍR jafnaði
fljótlega og hófst þá hinn mesti
barningur sem stóð allt fram á
síðustu mínútuna. En þá skoruðu
þeir Jón Jörundsson og Bob Stan-
ley hvor sína körfuna af mikilu
harðfylgi og fengu vítaköst að
auki sem einnig rötuðu ofan í net-
ið. Breytti ÍR þarna stöðunni úr
65—66 i 71—66 og tíminn var of
naumur fyrir KR. Fögnuðu ÍR-
ingar gífurlega í leikslok, enda
styrktist staða liðsins í botnbar-
áttunni geysilega mikið.
Bob Stanley var góður njá IR,
bæði í sókn og vörn, en einnig
komust hinir bráðefnilegu Hjört-
ur Oddsson og Benedikt Ingþórs-
Kani
til ÍV
2. DEILDARLIÐ ÍV í körfuknattleik
hefur ráðið sér Bandaríkjamann til
þess að annast þjálfun liðsins, jafn-
framt því sem hann mun leika með
liðinu í vetur. Pilturinn heitir Phil
Howard, er hann 21 árs og hvítur á
hörund. Iloward hefur þjálfað og
leikið í Svíþjóð að undanförnu, en er
væntanlegur hingað til lands í næstu
viku. hkj.
Sí 73-68
son mjög vel frá sínu. „Gömlu
karlarnir" Kristinn og Jón, sem
eru langelstir í kornungu liði ÍR,
voru drjúgir, en Kristinn er ekki
sami yfirburðamaðurinn og áður.
Jón getur einnig leikið betur, en
reynsla þeirra er hinum • yngri
ómetanleg.
Ágúst Líndal bar höfuð og herð-
ar yfir félaga sína hjá KR, lék
frábærlega. Jón var frekar daufur,
að minnsta kosti miðað við það
sem hann er vanur að sýna. Þá er
ástæða til að geta þáttar John
Hudsons. Hann var reyndar með
19 stig í leiknum, en tölvu hefði
þurft til að halda skýrslu yfir
skotafjölda hans. Var nýtingin hjá
kappanum vægast sagt ömurleg,
en aldrei hætti hann að skjóta.
Stig ÍR: Bob Stanley 25, Hjörtur
Oddsson 14, Benedikt Ingþórsson
11, Ragnar Torfason 8, Jón Jör-
undsson 7, Kristinn Jörundsson 5
og Óskar Baldursson 1 stig.
Stig KR: Ágúst Líndal 23, John
Hudson 19, Jón Sigurðsson 11,
Garðar Jóhannsson 8, Geir Þor-
steinsson 4, Bjarni Jóhannesson 3
og Birgir Mikaelsson 2 stig.
Leikinn dæmdu Gunnar Guð-
mundsson og Rafn Benediktsson,
stóðu þeir sig vel. Þess má einnig
geta, að leikurinn í gærkvöldi
hófst nokkurn veginn tímanlega
og er hálf neyðarlegt að vera að
hrósa mönnum fyrir það. En batn-
andi mönnum er best að lifa segir
máltækið. —gg
Erlendur aftur
í Fram
ERLENDUR Ilavíðsson hefur
ákveðið að segja skilið við hand-
knattlcikslið KR, en hann hefur
leikið með félaginu það sem af er
þessu kcppnistímabili, lék áður
með Fram. Erlcndur hefur lítið
fengið að spreyta sig með
meistaraflokksliðinu og er ekki
ólíklegt að það sé ástæðan fyrir
félagaskiptum hans nú.
Erlendur hverfur aftur á forn-
ar slóðir, eða til Fram, en leiðin
sem hann velur er nokkuð sér-
stæð. Hann ætlar nefnilega að
tilkynna félagaskipti yfir í Þór
frá Vestmannaeyjum fyrst, síð-
an strax frá Þór og yfir í Fram.
Þannig er nefnilega mál vexti, að
ef hann hefði skipt úr KR beint
yfir í Fram, hefði hann ekki tal-
ist löglegur leikmaður hjá Fram
fyrr en eftir 3 mánuði. En með
því að skjóta Þór inn í dæmið,
styttist biðtíminn í einn mánuð
þótt ótrúlegt sé.
Einkunnagjðfin
Skellur á móti Ungverjum