Morgunblaðið - 07.11.1981, Side 48

Morgunblaðið - 07.11.1981, Side 48
----------------------------------- Síminná QQHQQ afgreiðslunni er OOUOO Sími á ritstjórn H H i fifl og skrifstofu: ■ U IUU |TlorxjxmliTní>tt> 4 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1981 Bankaráð og bankastjórn Seðlabanka íslands: Ekki efnahagslegar forsendur til að veikja gjaldeyrisstöðuna KNDl RMATSREIKNINGUR vegna gengisbreytinga er til kominn vegna hækkana á bókfærðu verði gjaldeyrisforóa Seðlabankans, sem orðið hafa vegna gengislækkunar krónunnar á undanförnum árum. I»að fé, sem á móti endurmatsreikningi stendur, er bundið í gjaldeyrisforða bankans og er ekki til ráðstöfunar, nema gengið verði á gjaldeyriseignina. l*etta segir m.a. í ályktun, sem var-samþykkt á fundi bankaráðs og bankastjórnar Seðlabanka ís- lands 29. október sl., með vísun til hugmynda, sem fram hafa komið um það að verja hluta af endur- matsreikningi Seðlabankans vegna gengisbreytinga til uppbóta á frarnleiðslu tiltekinna atvinnu- vega. Þá segir ennfremur í samþykkt- inni: - Hvort leysa skuli tiltekinn efnahagsvanda með greiðslum úr Seðlabanka verður umfram allt að skoða frá því sjónarmiði, hvaða áhrif það hefur á efnahagslegt jafnvægi. Aðstæður í efnahags- málum eru nú þær hér á landi, að nauðsynlegt er að beita fyllsta að- haldi í peningamálum, jafnframt því sem gjaldeyrisstaða þjóðar- búsins er sízt betri en þörf er á til efnahagslegs öryggis, sérstaklega ef litið er til hinna miklu erlendu skulda þjóðarbúsins. Með tilliti til þessa eru nú ekki aðstæður til að auka á þenslu eða veikja gjaldeyr- isstöðu með ráðstöfun sjóða Seðla- bankans. Loks skal vakin athygli á því, að Seðlabankinn hefur engar lagaleg- ar heimildir til að verja eigin- fjársjóðum utan rekstrar og al- mennra viðskipta í þágu tiltek- inna aðila í þjóðfélaginu. Til slíkr- ar ráðstöfunar hlýtur að þurfa að koma til skýlaus heimild Alþingis í formi lagasetningar. Stofnlínuskatturinn: Allt að 20% hækk- un raforkuverðs - segir Adalsteinn Gudjónsen rafmagnsveitustjóri „ÞAÐ er mjög óljóst enn, hve mikil hækkun mun verða á raforkuverði þegar hið nýja stofnlínugjald eða kostnaður vegna línanna verður inn- heimtur. Við höfum engar upplýs- ingar enn fengið um það hvernig hann verður lagður á, en mér reikn- ast til, að komi hann allur á heild- söluvcrð raforku, gæti það þýtt um 10 til 20% hækkun,“ sagði Aðal- steinn Guðjohnsen, rafmagnsstjóri Reykjavfkur í samtali við Morgun- blaðið. „Þetta fer eftir því hvort kostn- aðurinn kemur alfarið inní verðið, eða hvort samið verður á einhvern hátt við Landsvirkjun, um að að- eins hluti kostnaðarins fari inn í verðið. Það er einnig spurning um það hvort þetta verður beinn skattur eða hvort fyrirtækið, sem tckur við línunum á að fá hækkað verð út á það að standa undir kostnaðinum. Við höfum haft lít- inn aðgang að upplýsingum um þetta mál, svo það er nánast ekk- ert frekar, sem ég get sagt um það,“ sagði Aðalsteinn. Hjá iðnaðarráðuneytinu fengust þær upplýsingar, að enn væri óráðið með tilhögun skattsins og því alveg óvíst hvort og hvernig hann kæmi fram í hækkuðu raf- orkuverði. MIKIÐ HEFUR orðið vart við tófur og minka á þessu ári hér í Austur Skaftafellssýslu, og hefur J>eim fjölgað ískyggilega í sýslunni. Til marks um það má nefna að Tryggvi Arnason, sveitarstjóri Nesjahrepps, hefur nú þegar tekið á móti um 30 minkum, sem veiðimenn hafa komið með til hans, og taldi hann að mun fleiri minkar hefðu verið unnir, þó ekki hafi þeir borist til hans. Tófan virðist nú orðin ískyggilega nærgöngul og til marks um það má nefna að síðstliðinn miðvikudag er Jón Óskarsson frá Höfn var að fara til rjúpna í Laxárdal í Nesjum, Hornafirði, þá gekk hann fram á mjög illa útleikið lamb fremst í dalnum. Virtist sem tófan eða tófurnar, því eftir slóðum að dæma telja menn að um fullorðið dýr og annað yngra sé að ræða, hafi verið nýbúnar að yfirgefa lambið þegar Jón gekk fram á það. Lambið var með lífsmarki er að var komið og hafði Jón snör handtök við að lina þjáningar þess og aflífa það. Strax daginn eftir var farið í leiðangur um Laxárdalinn en ekki urðu menn varir við tófuna, en mikið var um tófuslóðir fremst í dalnum. Að sögn Tryggva Árnasonar, sveitarstjóra í Nesjum, er sveitarstjórnin nú að vinna að víðtækri áætlun um skipulagða grenjaleit á næsta ári, en að sjálfsögðu myndi nú þegar reynt að fá menn til að vinna á vágesti þessum sem nú hefur minnt illþyrmilega á sig. — Einar FIP: Verkbann samþykkt VERKBANN á bókagerðarmenn og blaðamcnn var samþykkt í atkvæða- greiðslu Félags íslenzka prentiðnað- arins í gærkvöldi með 166 atkvæð- um gegn 22, og 21 atkvæðaseðill var auður. Verkbannið kemur til framkvæmda á miðnætti aðfaranæt- ur hins 17. þessa mánaðar, sam- þykki meirihluti framkvæmdastjórn- ar VSÍ verkbannsboðunina. Verkbannið tekur ekki til allra félaga í Félagi bókagerðarmanna og Blaðamannafélagi Islands, því dagblöðin Þjóðviljinn, Tíminn og Alþýðublaðið eru ekki aðilar að Félagi íslenzka prentiðnaðarins. Hins vegar hefur verið boðað verkfall hjá þeim bókagerðar- mönnum, sem vinna við öll dag- blöðin og þá einnig blöð í Blaða- prenti. Verkbannið verður því að- eins á blaðamenn og bókagerðar- menn á Morgunblaðinu, Dagblað- inu og Vísi, en útgáfufélag Vísis, Reykjaprent, er aðili að Félagi ís- lenzka prentiðnaðarins. Þá er Rík- isprentsmiðjan Gutenberg ekki aðili að þessum samtökum, en sér- stakir samningar voru gerðir við það fyrirtæki. Fyrr á þessu ári gengu útgáfu- félög Þjóðviljans, Alþýðublaðsins og Tímans úr Félagi íslenzka prentiðnaðarins. Gagnkvæmur réttur er í samningum FÍP og Fé- lags bókagerðarmanna, þannig að fyrirtæki innan FÍP mega ekki ráða aðra í störf bókagerðar- manna en félagsmenn þess félags, en aftur á móti mega bókagerð- armenn ekki vinna hjá öðrum fyrirtækjum, en þeim sem eru inn- an Félags íslenzka prentiðnaðar- ins. Samkvæmt þessu ákvæði mega félagar í FBM ekki vinna í Blaðaprenti. Félag bókagerðar- manna hefur farið fram á viðræð- ur við stjórn Blaðaprents, en af þeim hefur ekki orðið. Grétar Nikulásson hjá FÍP sagði að ef þessi gagnkvæmnisréttur væri ekki virtur, hefði það áhrif á samningsgerð. Páll Andreasson, framkvæmdastjóri Meitilsins: Fiskiþing: Tillögur um togarakvóta MORGUNBLAÐINU er kunnugt um að allmargir fulltrúar Fiski- félagsdeilda muni leggja fram til- lögur á Fiskiþingi, sem hefst á mánudag, um að aflakvótar verði settir á togarana. Það munu einkum vera full- trúar Austfjarða, Suður- og Vesturlands, sem leggja áherzlu á þetta mál, en hins vegar er talið að fulltrúar Vest- fjarða og Norðurlands hafi ekki eins mikinn áhuga á kvótakerfinu. Frystihúsin þurfa 20% gengisfellingu - Meitillinn þarf 10 milljónir. Greiðsluerfiðleikar hjá BÚR „SÚ UPPHÆÐ sem við þurfum, er ekki langt frá tíu milljónum króna. Við höfum sótt um fyrirgreiðslu hjá byggðasjóði og víðar, en engin svör fengið,“ sagði Páll Andreasson, framkvæmdastjóri Meitilsins í Þor lákshöfn, í samtali við Mbl. í gær. „Það sem þarf að gera til þess að koma einhverjum rekstrar- grundvelli undir frystihúsin er 20% gengisfelling. Það er dæmalaust af stjórnvöldum hvernig þau eru að fara með þennan atvinnuveg. Það er allt- af verið að reyna að binda sig við eitthvert verðbólgustig, en verðbólgan er 60%, annað er blekking. Fjármagnskostnaður frystihúsanna er orðinn gífur- legur, enda er vaxtastefnan úr algjörum tengslum við atvinnu- lífið. Það er svo komið að þessi fyrirtæki borga aðeins lán og vexti og ekkert er eftir til að byggja þau upp,“ sagði Páll. „Við áttum í verulegum erfið- leikum með að greiða okkar fólki kaupið í dag, en hjá Meitl- inum vinna um 250 manns," sagði Páll ennfremur. „Það er nokkurn veginn ljóst að næst- komandi föstdag getum við ekki greitt fólkinu kaup og förum við því að segja því upp.“ Björgvin Guðmundsson, for- maður Útgerðarráðs Bæjarút- gerðar, Reykjavíkur sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að rekstrarstaða BÚR væri mjög erfið um þessar mundir. „Það hafa orðið algjör umskipti til hins verra í vinnslunni síðustu vikurnar, og gagnstætt því sem áður var, er frystihúsið rekið með tapi, og er því bæði tap á rekstri togaranna og frysting- unni.“ Björgvin sagði að allir togarar útgerðarinnar væru nú reknir með tapi, þeir væru með tvö ný skip, greiðslur af Jóni Bald- vinssyni myndu íþyngja fyrir- tækinu fljótlega, og Ottó N. Þorláksson yrði örugglega þung- ur á fóðrum næsta ár, þrátt fyrir að skipinu hefði gengið af- burðavel á veiðum. Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri Bæjarút- gerðarinnar, sagði þegar rætt var við hann, að ef hægt væri að tala um viðunandi afkomu ein- hverrar vinnslugreinar, þá væri það vinnsla ferskra karfaflaka, sem hefðu verið flutt flugleiðis til Bandaríkjanna að undan- förnu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.