Morgunblaðið - 14.11.1981, Page 1
96 SÍÐUR
257. tbl. 68. árg.
Tillögur
Samstöðu
„ótrúlegar“
Varsjá, 13. nóvember. AP.
FULLTRÚI pólsku stjórnarinn-
ar sagði í dag að tillögur sem Sam-
staða ætlar að leggja fram í form-
legum viðræðum við stjórnvöld á
þriðjudag væru „ótrúlegar". Hann
sagði að samvinna við Samstöðu
um lausn efnahagsvanda landsins
„myndi jafnast á við að leiða borg-
arastyrjöld eða eitthvað álíka al-
varlegt yfir landið". Yfirmaður
pólska útvarpsins og sjónvarpsins
sagði að aukinn aðgangur Sam-
stöðu að fjölmiðlunum kæmi ekki
til greina. Tillögur Samstöðu snú-
ast aðallega um samstarf samtak-
anna og stjórnvalda í efnahags-
málum og aukinn aðgang samtak-
anna að fjölmiðlum.
Verkamenn í héraðinu Zielona
Gora og kolanámubænum Sosno-
viec mættu aftur til starfa í dag
eftir tvö lengstu verkföllin í Pól-
landi. Námuverkamenn í Sosno-
viec enduðu 18 daga verkfallsað-
gerðir eftir að þeir fengu að skýra
frá vandamálum sínum í 75 mín-
útna langri sjónvarpsútsendingu.
Yfir 2500 verkamenn lögðu
niður störf í Sosnoviec eftir að 60
manns slösuðust þegar efna-
blöndu var kastað að verkamönn-
um skammt frá kolanámu. Reikn-
að er með að framleiðslutapið af
völdum verkfallsins sé um 17.000
tonn.
Sovéska dagblaðið Pravda
sagði í dag að pólitískt starf
kaþólikka og múhameðstrúar-
manna gæti stofnað sósíalisman-
um í hættu og gaf í skyn að erfið-
leikar stjórnvalda í Póllandi stöf-
uðu af því að ekki var spornað
gegn „trúarlegu ofstæki" í land-
inu í tæka tíð.
Vextir lækka,
dollar lækkar
New York, 12. nóvember. AP.
HELZTU bankar í New York og Chic-
ago hafa lækkad vexti á lánum til
viðskiptavina um í 16,5% og
hankavextir hafa ekki verið eins lágir
í tæpt ár.
Hagfræðingar hafa spáð því að
bankavextir muni lækka, þar sem
yfirstandandi samdráttur dregur úr
eftirspurn eftir lánum. Því hefur
verið spáð að vextirnir lækki niður
fyrir 16% fyrir árslok og jafnvel
meir.
Bankavextir voru 20,5% í septem-
ber. Þeir hafa lækkað um 2% á ein-
um mánuði og hafa ekki verið eins
lágir og nú síðan þeir voru 16,25%
seint í nóvember 1980.
Dollarinn lækkaði gagnvart
helztu gjaldmiðlum eftir vaxtalækk-
unina.
Jafntefli
í Meranó
Merano, 13. nóvember. AP.
FIMMTÁNDU skákinni í heims-
meistaraeinvíginu í skák lyktaði
með jafntefli i dag. Áskorandinn
Viktor Korchnoi lagði til að sæst
yrði á jafntefli tveimur tímum áð-
ur en skákin átti að hefjast. Ana-
toly Karpov hefur unnið fimm
skákir en Korchnoi tvær.
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Geimferjan lendir í
eftir 54 tíma
Kanaveralhöfda, 13. nóv. AP.
NASA, bandaríska geimvísindastofnunin, sagði í dag að geimferjan Col-
umbia hefði náð fram mikilvægustu markmiðum sínum og mundi snúa aftur
til jarðar á morgun, laugardag, eftir 54 tíma í geimnum.
Á sama tíma og þetta var til-
kynnt gerðu geimfararnir í Col-
umbia, Joe Engle og Richard
Truly, fyrstu tilraun sína með
svokallaðan geimarm, fimmtán
metra vélkrana sem verður notað-
ur til að koma fyrir gervihnöttum
í geimnum og sækja gervihnetti
sem þarfnast viðgerða. Þessi til-
raun, sem hefur mikla þýðingu
fyrir geimferjuferðir framtíðar-
innar og árangur þessarar ferðar,
tókst vel í alla staði. Truly til-
kynnti að kraninn hefði verið
mjög auðveldur í meðförum.
„Geimferjan lendir í Edwards-
flugstöðinni í Kaliforníu eftir
tveggja daga, sex tíma og 12 mín-
útna ferð,“ sagði John McLeaish,
talsmaður stjórnstöðvarinnar.
Upphaflega átti ferðin að vara í
124 tíma og ferjan átti að fara 83
hringi um jörðu, en ferðin var
stytt vegna bilunar í rafmagns-
kerfi ferjunnar. Ferjan fer því
ekki nema 36 hringferðir um jörðu
— jafnmargar og farnar voru í
jómfrúrferð geimferjunnar í apríl
sl.
Bandaríkjamenn hafa alls stað-
ið fyrir 33 mönnuðum geimferðum
og aðeins tvisvar sinnum áður
hafa þeir þurft að stytta ferð eftir
að hún hófst.
Engle og Truly hafa verið
önnum kafnir í dag við fjölmörg
verkefni sín í geimferjunni, í 252
km fjarlægð frá jörðu, og hugsað
um það eitt að ljúka þeim áður en
ferðinni lýkur. Þar sem ferðin var
stytt verða þeir að ljúka við sér-
stök forgangsverkefni eins og gert
var ráð fyrir í sérstakri áætlun,
sem skyldi vinna eftir ef ferðin
stæði í svokallaðan „lágmarks-
tíma“ í stað „hámarkstíma" eins
og nú hefur verið ákveðið.
Engle var m.a. beðinn um það í
dag að taka ljósmyndir af þrumu-
veðri yfir Ástralíu. Þrátt fyrir bil-
unina í rafmagnskerfinu töldu
starfsmenn stjórnstöðvarinnar að
ferðin gæti staðið í fimm daga
eins og upphaflega var ráðgert, en
að lokum var ákveðið að taka enga
áhættu.
Stockman
hættir ekki
\N ashint'ion, 13. nóvember. AP.
DAVID Stockman, arkitekt niður
skurðar-krossferðar Ronald Reag-
ans, hefur boðizt til að segja af sér,
þar sem hann sagði að svo gæti farið
að efnahagsstefna Reagans bæri
ekki árangur, en segir Reagan hafa
beðið sig að halda áfram.
Stockman kvaðst hafa gert
Reagan og stefnu hans „mikið
ógagn með dómgreindarleysi mínu
og lausmælgi“. Hann ráðfærðist
við Reagan í 45 mínútur vegna
þess pólitíska uppnáms, sem þau
ummæli hans vöktu að hann væri
haldinn efasemdum um niður-
skurð á fjárlögum og sköttum, og
á fundinum bað Reagan hann að
halda áfram störfum.
Stockman fjárlagastjóri kvað
Reagan sannfærðan um að efna-
hagsstefnan mundi auka fram-
leiðni og hefta verðbólgu og sagði
að forsetinn hefði aldrei reynt að
villa um fyrir þinginu, eða sagt
nokkuð sem væri ekki satt.
Hann kvaðst hafa farið rangt
með þegar hann sagði fréttamanni
að skattaniðurskurður Reagans
væri „Trójuhestur", sem ætti að
fela niðurskurð á hæstu sköttum.
f loftbelg yfir Kyrrahafið
San Krancisco, 13. nóvembcr. AP.
BELGFARIÐ Double Eagle fimmti
brotlenti með fjóra belgfara inn-
anborðs tæpa þrjú hundruð kíló-
metra norður af San Francisco eft-
ir tíu þúsund kflómetra ferðalag
yfir Kyrrahafið, en þetta er í fyrsta
sinn að mannað belgfar flýgur yfir
Kyrrahaf.
Double Eagle kom inn yfir
strönd Kaliforníu í rúmlega sex
þúsund feta hæð um 160 kíló-
metra norður af San Francisco,
og var í ráði að halda ferðinni
áfram til austurstrandar Banda-
ríkjanna eða jafnvel til Evrópu,
en illviðri og rifa á belgnum er
helíum lak út um, neyddu belg-
farana niður.
Belgfararnir hófu ferðalag sitt
fyrir fjórum sólarhringum í
borginni Nagashima í Mið-Jap-
an. Gekk ferðalagið áfallalaust
ef undan er skilin ising á belgn-
um síðasta spölinn, og gaslekinn.
Fjórir belgfarar voru um borð
í Double Eagle fimmta. Leiðang-
ursstjóri var Ben Abruzzo, 51
árs, en með honum voru landar
hans Larry Newman, 34 ára og
Ron Clark, 41 árs, og Japaninn
Rocky Acki, en hann fjármagn-
aði ferðalagið, sem kostaði um
250 þúsund dollara. Hinir þrír
fyrstu búa í Albuquerque en
Ácki í Miami.
Abruzzo og Newman eru
þrautgóðir belgfarar, en við
þriðja mann urðu þeir fyrstir til
þess að fara í loftbelg yfir Atl-
antshafið frá Bandaríkjunum til
Evrópu. Belgfarið bar nafnið
Double Eagle annar. Árið áður
en þeir unnu það þrekvirki höfn-
uðu Abruzzo og félagi hans
Maxie Anderson í sjónum ut af
ísafjarðardjúpi eftir misheppn-
að Atlantshafsflug í belgfarinu
Double Eagle.