Morgunblaðið - 14.11.1981, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1981
Færeyska lands-
stjórnin andvíg
ferjusamstarfi
Hafskip og Eimskip undirrita leigusamn-
ing á pólsku skipi í næstu viku
Ydrlöglreglu- og aðstoöaryfirlögregluþjónar á fundinum, sem haldinn var í Borgartúni 6, ásamt Hjalta /óphóníassyni,
sitjandi lengst til hægri. Mynd Mbl. Kristján.
Yfirlögregluþjónar funda
Yfirlögregluþjónar og adstoóar
yrtrlögregluþjónar hafa tvo síðustu
daga verið á fundi til að bera sam-
an bækur sínar. Það er dómsmála-
ráðuneytið sem gengst fyrir fund-
inum og hafa ýmis mál borið á
góma, svo sem stjórnunarstörf,
ávana- og fíkniefnamál, verndun
brotavettvangs, fjarskiptamál og
umferðarmál.
Þá var á fundinum fjallað um
væntanlegar breytingar á reglu-
gerð Lögregluskólans auk fleiri
mála. Fundurinn hófst á
fimmtudagsmorgun með ávarpi
Friðjóns Þórðarsonar, dóms-
málaráðherra.
Þetta er í þriðja sinn, að
dómsmálaráðuneytið kallar yfir-
lögregluþjóna og aðstoðaryfir-
lögregluþjóna til fundar. Fyrsti
fundurinn var haldinn árið 1976,
sá næsti 1979 og hinn þriðji er
nú á döfinni. „Menn hafa verið
að bera saman bækur sínar,
samræma hlutina og auka upp-
lýsingastreymi og eru þessir
fundir ákaflega gagnlegir," sagði
Hjalti Zóphóníasson, deildar-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu, í
samtali við Mbl.
Atvinnugreinunum haldið gang-
andi með stórfelldri skuldasöfnun
„40. Fiskiþing gagnrýnir harðlega
þau starfsskilyrði, sem fyrirtæki í
sjávarútvegi búa við. Þrátt fyrir góð
aflabrögð og tiltölulega hagstæð
kjör á erlendum mörkuðum fyrir
flestar fiskafurðir á undanfornum
árum, er um slíkan taprekstur að
ræða að stöðvun blasir við hjá fjölda
aðila.“ Þetta getur að sjá í samþykkt
Fiskiþings { gær, er fjallað var um
lánamál og afkomu sjávarútvegsins.
í samþykkt Fiskiþings segir, að
atvinnugreinum sé haldið gang-
andi með stórfelldri skuldasöfnun
og tilheyrandi aukinni vaxtabyrði,
- segir í ályktun
Fiskiþings
og síðan er bætt við, að auk lag-
færinga í gengisskráningu, sem
jafnan hafi verið of litlar og komið
of seint, hafði aðgerðir stjórn-
valda verið ófullnægjandi.
Skammtímalausnir, sem m.a. hafi
falist í óréttmætum millifærslum
milli einstakra rekstursgreina og
tæmingu á illa stöddum varasjóð-
um sjávarútvegsins.
„40. Fiskiþing telur vaxta- og
fjármagnskostnað fyrirtækja vera
óhóflega háan, sem kemur m.a.
fram í óeðlilegri fjársöfnun
bankakerfisins. Því mótmælir
þingið þeim áróðri, sem uppi er
hafður um að sjávarútvegurinn
njóti betri lánskjara og annarra
fríðinda en aðrir atvinnuvegir
landsmanna."
Þá gerir Fiskiþing þá kröfu til
stjórnvalda, að nú þegar verði rof-
inn sá hringur vísitölu- og verð-
bótakerfa, sem ásamt óeðlilegri
l»órshöfn, 13. nóvember, frá frétUritara Morg-
unhladsins, Jogvan Arge.
MEIRIHLUTl færeysku lands-
stjornarínnar er á móti því, að Fær
eyingar leggi fram 50% hlutafjár í
samvinnu við Hafskip og Eimskip
um rekstur farþega- og bflaferju.
Fulltrúar íslenzku fyrirtækj-
anna áttu í dag og í gær fundi með
landsstjórn Færeyja og var rætt
um áætlanir íslenzku fyrirtækj-
anna við r»kstur pólsku ferjunnar
Rogalin. íslendingarnir segja, að
fundurinn hafi verið jákvæður og
þeir vænti svars frá landsstjórn-
inni eftir nokkra daga. Ætlunin er
að hefja rekstur skipsins næsta
sumar og að leigusamningurinn
verði undirritaður í næstu viku.
Verði svar Færeyinga ekki já-
kvætt verður ferjan eigi að síður
ieigð og rekin á leiðum á N-Atl-
antshafi, en þá væntanlega með
öðrum aðilum en færeysku lands-
stjórninni.
. I máli Islendinganna kom fram,
að þeir eru tilbúnir að hafa heim-
ili og varnarþing fyrirtækisins
í Færeyjum og að þeir
þenslu bæði í opinberu stjórnkerfi
og víðar viðheldur þeirri óðaverð-
bólgu, sem geysað hefur á íslandi
árum saman. Raunverulegri lækk-
un verðbólgunnar fylgi síðan
lækkun vaxta — og fjármagns-
kostnaðar til samræmis við það
sem gerist í helstu samkeppnis-
löndum okkar. Þá er þess krafist
að horfið verði alfarið frá þeirri
núll-stefnu, sem fylgt hefur verið
og fyrirtækjum í sjávarútvegi
tryggður sá rekstrargrundvöllur
sem þarf til öflugrar starfsemi og
uppbyggingar.
buðu Færeyingum aðild að fyrir-
tækinu með 50% hlutafjár. Mál
þetta hefur valdið deilum í Fær-
eyjum og var síðdegis í dag rætt á
fundi landsstjórnarinnar. Áreið-
anlegar upplýsingar herma, að
meirihlutinn sé andvígur því að
færeysk stjórnvöld sem slík gangi
til þessa samstarfs með þeim
skilmálum, sem settir voru af
hálfu íslendinga. Rætt hefur verið
um hvort einkafyrirtæki gætu
tekið þátt í þessu samstarfi, en
þau munu varla hafa bolmagn til
þess.
Hausthappdrætti
Sjálfstædisflokksins
Dregið
eftir viku
Hausthappdrætti Sjálfstæðis-
flokksins er nú í fullum gangi,
enda verður dregið eftir adeins 7
daga. Þeir, sem enn eiga ógerð
skil á heimsendum miðum eru
hvattir til að gera það hið
fyrsta.
Skrifstofa Happdrættisins er
í Valhöll, Háaleitisbraut 1, og
verður hún opin í dag og á morg-
un kl. 13—18 og síðan alla næstu
viku kl. 9—22. Skrifstofan sér
um að senda miða og sækja
greiðslur, ef óskað er — og sím-
inn er 82900.
Fullveldisfagnað-
ur 4. des.
Fl ILLV ELDISFAGN AÐUR Stúd-
entafélags Reykjavíkur verður að
Hótel Sögu, Átthagasal, laugardag-
inn 4. desember.
Ræðu kvöldsins flytur Agnar
Kl. Jónsson, en siðamaður verður
Árni Björnsson, þjóðháttafræð-
ingur.
Framleiðniaukning í iðnaði
7% á tímabilinu 1977—1980
Kaupmáttur kauptaxta hækkaði um 5,5% á sama tíma
f fréttatíðindum Vinnuveitendasam-
bands segir, að á tímabilinu
1977—1980 hafi framleiðni í iðnaði,
þar með talið Oskiðnaði aukist um ríf-
lega 7%. Á sama tíma hafi kaupmáttur
kauptaxta í iðnaði hækkað um 5,5% og
því hafi raunverulegur launakostnaður
á framleidda einingu, einungis lækkað
um 1,5%.
Þá segir, að af þessu sjáist, að
framleiðsluaukningin hafi að lang-
stærstum hluta komið starfsfólki
iðnaðarins til góða. Verulegur þátt-
ur í aukinni framleiðni sé að sjálf-
sögðu aukin tæknivæðing, sem
fyrirtækin hafi þurft að leggja fé í.
Vegna þessa hafi um 18% meira
fjármagn verið bundið að baki
hverrar framleiddrar einingar á ár-
inu 1980, en árið 1977. Ljóst sé því,
að afköst hafi einungs skilað sér að
litlum hluta til fyrirtækjanna, en
launafólk fyrst og fremst notið góðs
af.
Ennfremur segir í fréttatíðindum
VSÍ, að frá 1977 hafi laun hækkað
um nálega 250%, en raunverulegar
lífskjarabætur séu á sama tíma um
10%.
I.jósm. Kmilía Bj. Björnsd.
KRAKKARNIR á Skóladagheimilinu í Heiðargerði halda hlutaveltu og baz-
ar í dag, að Heiðargerði 38, þar sem ýmislegt góðra muna verður selt í
fjáröflunarskyni fyrir heimilið. Hér eru krakkarnir að undirbúa hlutaveltuna
í gær, en hún hefst klukkan 14 í dag, laugardag.
Rekstri Smyrils stafar ekki
hætta af fslenzku farþegaskipi
- segir Jónas Hallgrímsson bæjarstjóri á Seyðisfirði
3,6% hækkun á láns-
kjaravísitölunni
SEÐLABANKINN hefur reikn-
að út lánskjaravísitölu fyrir
desembermánuð 1981 og er hún
292. Er það 3,6% hækkun frá
fyrra mánuði er hún var 282. Á
tólf mánaða tímabili verður
hækkunin 52% sé reiknað með
sama verðbólguhraða.
Leiðrétting
í TILKYNNINGU í Mbl. í gær um
andlát Lárusar F. Björnssonar,
fyrrverandi kaupmanns féll út að
eiginkona hins látna auglýsti andlát-
ið. Rétt yfirskrift er: „Eiginmaður
minn, faðir okkar og tengdafaðir, afi
og langafi." Mbl. biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
ÞAÐ er ekki nema gott eitt um það
að segja ef menn telja að það sé
rekstrargrundvöllur fyrir fleira en
eitt farþegaskip í förum milli íslands
og Evrópu, sagði Jónas Hallgríms-
son bæjarstjóri á Seyðisfirði er Mbl.
innti hann eftir hvernig honum litist
á þá hugmynd að Eimskip og Haf-
skip hæfu rekstur farþegaskips.
Eg hef ekki kynnt mér þetta
mál neitt sérstaklega og veit eig-
inlega ekkert um það. Áætlun
Smyrils verður óbreytt næsta
sumar að því er ég veit bezt —
hann gat ekki annað þessu í sumar
og væri þess vegna hægt að hafa
stærra skip í förum.
Þó alvara verði gerð úr hug-
myndinni með þetta íslenzka far-
þegaskip held ég að það breyti
litlu fyrir okkur hér á Seyðisfirði.
íslendingar hafa alltaf verið í
miklum minnihluta meðal farþega
Smyrils — alltaf innanvið 20 pró-
sent. Það verður áreiðanlega hægt
að reka Smyril áfram þó veruleg
fækkun verði á íslenzkum farþeg-
um. Mér skilst líka að þetta ís-
lenzka farþegaskip eigi að vera
lúxusskip. Þeir íslendingar sem
farið hafa með Smyrli hafa mest
verið námsfólk og fólk sem farið
hefur út á eigin bíl. Ég hef því
ekki trú á að íslenzka farþegaskip-
ið komi til með að keppa verulega
við Smyril um farþega.