Morgunblaðið - 14.11.1981, Side 4
4
Haukur Morthens og Jóhann
Helgason eru báðir með nýjar
plötur á leiðinni á vegum Steina.
Jólaplöt-
urnar að
koma út hjá
Steinum
l*At) KK stutt til jóla og þar
sem mesti anna- og verslunar-
tími ársins er nú framundan,
verdur mikió að gerast í út-
gáfumálum erlendra og inn-
lendra platna hjá Steinum hf.
I>að sem af er árinu hafa fram-
leiðslupiöturnar haft sín áhrif
á verð hljómplatna almennt.
I’lötuverð hefur verið mjög
stöðugt allt þetta ár þrátt fyrir
sífelldar verðhækkanir á öðr-
um vörum. I>etta hefur haft sín
áhrif því plötusala hefur aðeins
glæðst og greinilegt er að fólk
kann að meta þetta hagstæða
verð. Að sjálfsögðu mun reynt
að halda þessari verðþróun
áfram.
Að undanförnu hafa komið
út eftirtaldar plötur:
Mezzoforte — Þvílíkt og
annað eins, Peter Sarstedt
syngur, Björgvin Gíslason —
Grettur, Utangarðsmenn — I
upphafi skyldi endinn skoða,
Madness — 7, Ultravox —
Rage in Eden, Debbie Harry
— Koo Koo.
Viðtökurnar hafa verið
ágætar á þessum plötum.
I þessari viku og á næstu
vikum eru væntanlegar eftir-
taldar íslenskar plötur:
Start — ... en hún snýst
nú samt, Guðmundur Arna-
son — Mannspil, Jóhann
Helgason — Tass, Haukur
Morthens — Haukur Morth-
ens, Ýmsir — Skallapopp.
Vætanlegar erlendar plöt-
ur eru:
Blondie — Best of, Human
League — Dare, Orchestral
Manouevres in the Dark —
Architecture & Morality,
Tenpole Tudor — nafnlaus.
Þetta eru plötur sem koma
út á vegum Steina hf.
Þá eru ótaldar þrjár plötur
sem koma munu út á vegum
nýstofnaðs útgáfufyrirtækis
sem starfa mun samhliða
Steinum hf. Þetta fyrirtæki
hefur hlotið nafnið Spor og
kemur til með að einbeita sér
að útgáfu á innlendum og
erlendum plötum. Nú fyrir
jólin koma eftirtaldar plötur
út á vegum Spors:
Bad Manners — Gosh
it’s ..., Matchbox — Flying
Colours, Grýlurnar — 4 lög.
Grýlurnar eru fyrstu lista-
mennirnir sem gert hafa
samning við Spor, en viðræð-
ur standa yfir við fleiri aðila.
(Fréll írá Sieinum)
Madness, ein þeirra erlendu
hljómsveita, sem Steinar gefa út
plötu með.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1981
Hljóðvarp kl. 19.35:
Laugardagsmyndin kl. 21.35:
Sumarið ’42
bandarísk bíómynd
Á dagskrá kl. 21.35 er banda-
rísk bíómynd, Sumarið 42, frá
1971. Leikstjóri er Robert Mull-
igan, en í aðalhlutverkum Jenn-
ifer O’Neill, Gary Grimes og
Hljóðvarp kl. 16.20:
Bókahornið
í umsjá Sigríðar
Eyþórsdóttur
Á dagskar hljóðvarps kl.
16.20 er Bókahornið í umsjá
Sigríðar Eyþórsdóttur.
— Sigurbjörn Svansson mun
segja okkur frá dvöl sinni í
sumarbúðum í Danmörku,
sagði Sigríður, — en þar var
hann á norrænu unglingamóti.
Svo leikur hann á klarinettu
lagið „Det var en lördagaften".
Þá talar Ari Trausti Guð-
mundsson um veturinn. Berg-
Ijót Arnalds valdi bækurnar
um drenginn hann Patrick til
umfjöllunar, og þýðandi bók-
anna, Silja Aðalsteinsdóttir,
talar um þær og les kafla úr
einni þeirra. Tónlistin: Sigur-
björn valdi til flutnings kafla
úr Örlagasinfóníu Beethovens.
Megas syngur „Það er leikur að
læra“ og Pink Floyd flytja lagið
„We don’t need no education".
„Söngur í Suð-
urárbotnum"
Erlingur Davíðsson flytur frásöguþátt
Jerry House. Þýðandi er Krist-
rún Þórðardóttir.
Þrír fimmtán ára drengir
dvelja að sumri til við ströndina,
og einn þeirra verður skotinn í
„eldri konu“, sem raunar er að-
eins 22ja ára gömul.
Kvikmyndahandbókin: ★★
I hljóðvarpi kl. 19.35 er
dagskrárliður er nefnist „Söngur
í Suðurárbotnum". Erlingur
Davíðsson flytur frumsaminn
frásöguþátt.
- Þetta er eftir frásögn Jóns
Eðvarðs Jónssonar, sem er aldr-
aður borgari hér á Akureyri,
sagði Erlingur. - Jón er rakari
að iðn, fæddur og uppalinn á
Húsavík. Hann fór Ungur sveinn
í sveitadvöl og var mörg sumur á
sama bænum hjá Jóni bónda
Kristjánscyni í Glaumbæ i
Reykjadal. Jón rakari rifjar hér
upp tvö atvik frá því að hann var
í sveit.
Annars vegar segir frá því er
strákurinn sat kvíær og hafði
ekkert skjól, frekar en aðrir
smalar, þegar rigndi. En einn
morguninn þegar hann kemur
með ærnar upp í heiði, þ.e.
Fljótsheiði, gengur hann fram á
lítinn smalakofa, ákaflega fal-
legan, sem er eins og sniðinn
fyrir hans þarfir. Og strákur
hélt fyrst að Guð mundi hafa bú-
ið til þennan kofa um nóttina,
því að ekki hafði hann verið
Ari Trausti Guðmundsson talar um
veturinn í þættinum Kókahornið,
sem er á dagskrá kl. 16.20.
Erlingur Davíðsson
þarna daginn áður. En þegar
hann fór nú að skoða bygging-
una betur þekkti hann spýtur
sem voru í árefti. Það hafði
nefnilega verið bóndinn á bæn-
um sem gert hafði sér það ómak,
eftir erfiðan dag, að draga efni
og amboð upp á heiðina til að
byggja yfir smalann sinn.
Hins vegar segir frá því er
stráknum hafði vaxið fiskur um
hrygg og hann var orðinn svona
11—12 ára gamall, að húsbóni
hans bað hann að reka með sér á
fjall, suður í Suðurárbotna, sem
er afrétt langt framan við alla
byggð. Eftir þriggja dægra
rekstur komu þeir í Suðurár-
botna með féð. Það var fyrri part
nætur og sólin að koma upp.
Logn var á og veður eins fagurt
og hugsast gat. Jón bóndi stóð
uppi á þúfu og horfði á sólar-
upprásina, allt baðað í geisla-
dýrð. Og þá söng hann; kannski í
þetta eina sinn, því að hann var
bæði raddlaus og laglaus, og bar
aldrei við að syngja. En þarna
var hann svo hugfanginn að
hann söng og á þetta hlustaði
strákurinn.
Útvarp Reykjavfk
L4UG4RD4GUR
14. nóvember
MORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.20 Leikfimi.
7.30 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.00 Frcttir. Dagskrá. Morgun-
orð. Daníel Oskarsson talar.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Tónleikar.
8.50 Leikfimi
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
9.30 Oskalög sjúklinga. Kristín
Sveinbjörnsdóttir kynnir. (10.00
Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.)
11.20 Fiss og Fuss. Nýtt íslenskt
barnaleikrit eftir Valdísi
Oskarsdóttur. Leikstjóri:
Brynja Bcnediktsdóttir. Leik-
endur: Borgar Garðarsson og
Kristín Bjarnadóttir. Þriðji og
síðasti þáttur.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar.Tónleikar.
13.30 A ferð. Óli H. Þórðarson
spjallar við vegfarendur.
13.35 íþróttaþáttur. Umsjón: Her-
mann Gunnarsson.
13.50 l^ugardagssyrpa. — Þor-
geir Ástvaldsson og Páll Þor
steinsson.
SÍDDEGID_________________________
15.40 íslenskt mál. Guðrún Kvar
an sér um þáttinn.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Bókahornið. Umsjón: Sigríð-
ur Eyþórsdóttir. Ari Trausti
Guðmundsson talar um vetur
inn. Sigurbjörn Svansson segir
LAUGARDAGUK
14. nóvember
16.30 íþróttir.
Umsjón: Bjarni Felixson.
18.30 Krcppuárin.
Ellefti þáttur. Þetta er síðari
þátturinn frá finnska sjón-
varpinu í þessum flokki og
fjailar um þrjá pilta frá litlum
bæ í suðurhluta Finnlands.
Þýðandi: Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Þulur: Ingi Karl Jó-
hannesson.
(Nordvision — Finnska sjón-
varpið).
19.00 Enska knattspyrnan.
Umsjón: Bjarnr Felixson.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
,20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 /Ettarsetrið.
Breskur gamanmyndaflokkur.
Sjötli þáttur.
frá dvöl sinni í sumarbúðum í
Danmörku og leikur á klarin-
ettu. Bergljót Arnalds velur bók
til lestrar og umfjöllunar.
17.00 Síðdegistónleikar:
a. „Excursion“ op. 20 eftir Sam-
uel Barber; Eva Knardahl leik-
ur á píanó.
b. Sónata eftir Béla Bartók; Eva
Knardahl leikur á píanó.
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson.
21.05 Spurt og spurt og spurl.
Spurningakcppni í sjónvarps-
sal. Þriðji þáttur. Spyrjcndur:
Trausti Jónsson og Guðni
Kolbeinsson. Dómarar: Sig-
urður H. Kichter og Örnólfur
Thorlarius.
21.35 Sumarið 42. (Summer of
’42). Bandan'sk bíómvnd frá
1971. Leikstjóri: Kobert Mull-
igan. Aðalhlutverk: Jennifer
O’Neill, Gary Grimes og Jerry
House.
Þrír 15 ára drengir dvelja að
sumri til við ströndina, og
einn þeirra verður skotinn í
„eldri konu“, sem raunar er
aðeins 22ja ára gömul.
Þýðandi: Kristrún Þórðardótt-
ir.
23.05 Dagskrárlok.
c. Tríó í d-moll op. 49 eftir
Mendelssohn; Borodin-tríóið
leikur.
(Hljóðritun frá tónlistarhátíð-
inni í Björgvin í vor.)
KVÓLDID
18.00 Söngvar í léttum dúr. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 „Söngur í Suðurárbotnum".
Erlingur Davíðsson flytur frum-
saminn frásöguþátt.
20.00 Þættir úr óperum eftir
Niclai, Lortzin og Weber. Arn-
old van Mill syngur með kór og
hljómsveit undir stjórn Koberts
Wagner.
20.30 Jónas Jónasson ræðir við
Kristmann Guðmundsson rit-
höfund — síðari hluti. Áður út-
varpað í september 1970.
21.15 Töfrandi tónar. Jón Gröndal
kynnir tónlist stóru danshljóm-
sveitanna (The Big Bands) á ár
unum 1936—1945. III. þáttur:
Dorsey-bræður.
22.00 John Godtfredsen og Bent
Vigg leika á tvær harmonikur.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 „Orð skulu standa” eftir
Jón Helgason. Gunnar Stef-
ánsson les (5).
23.00 Danslög.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.