Morgunblaðið - 14.11.1981, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1981
5
Nú flýgur Samvinnuferöir-Landsýn i beinu leiguflugi án
þreytandi millilendinga i skíöaparadís Austurrísku alpanna,
- og opnar um leiö nýja og stórkostlega möguleika á hóp-
afslætti, barnaafslætti, greiösluskilmálum, verðtilboðum
og fyrirgreiðslu sem illmöguleg er í áætlunarflugi. íslenskir
fararstjórar eru öllum hópum innan handar frá upphafi til
loka feröarinnar
Við látum vfirhlaðna ferðamannastaði með allri sinni örtröð
liggja milli hluta og ökum beintfrá Munchen til þriggja vina-
legra og ósvikinna Austurrískra skiðabæja. Þar fara saman
einstaklega fjölbreyttir skíðamöguleikar, fullkomin hvíldar-
aðstaða, notaleg gistiheimili og síðast en ekki síst góðir
veitinga- og skemmtistaðir með hinni annáluðu Tíróla- og
fjallastemmning allsráðandi.
Adeins það allra besta!
Við lögðum okkur sérstaklega fram við val á skiðasvæð-
unum í Austurríki „Aðeins það allra besta" þótti nógu gott
og við vónum að farþegarnir verði sammála þeim skiðasér-
fræðingum okkar sem að lokum völdu Sölden, Zillertal og
Niederau vegna fullkominnar skíðaaðstöðu fyrir börn og
fullorðna, byrjendursem „fullfæra". Þarfinna sérallir
brekkur við hæfi, skíðalyftur skipta mörgum tugum og fjöl-
margirskíðakennarareruávalltreiðubúnirtilaðstoðarþeim
sem vilja auka við þekkinguna og fikra sig um leið hærra upp
ífjöllin.
Og fyrir náttúrunnendur eru skíðalöndin einstök í sinni röð.
Annáluð fegurð Alpafjallanna, veðurblíða og friðsæld - allt
gleður þetta augað og fullkomnar velliðan fjallalífsins.
Spennandi „frístundir”
Þegar skíðabrekkunum sleppir er alls staðar nóg við að vera
í „frístundunum". Þú ferð t.d. á gönguskíði og nýtur sam-
vista við náttúruna á tugkílómetra löngum göngubrautum
heimamanna, skellir þér í æsispennandi bobsleðaferðir,
leikur þér á skautasvellunum eða bregður þér í hestasleða-
ferð um nágrennið. Að því loknu ertilvalið að láta þreytuna
liða úr í sundlaugum og saunaböðum og hvernig væri síðan
að lita inn á Tírólakvöld eða sérstakar kvöldvökur sem
haldnar verða með íslensku farþegunum?
Kallaðu í kunningjana
Um leið og við vekjum athygli á hagstæðu verði bendum við
sérstaklega á verulegan afslátt sem veittur er hópum, 10
manns eða fleirum. Nú er þvi tilvalið að hóa saman vinum
og kunningjum og láta drauminn um skíðalönd Alpa-
fjallanna rætast í góðra vina hópi.
Brottfarardagar
Desember: 19. (jólaferð, heimkoma 2. jan.)
Januar: 16,30.
Febrúar: 13,27. (heimkoma 13. mars).
Verd frá kr. 5.880
Innifalið: Flug til og frá Munchen, flutningurtil og frá
áfangastað, gisting með hálfu fæði i tvær vikur og íslensk
fararstjórn.
Hópafsláttur: kr. 500
Barnaafsláttur: kr. 1.000
Sölden
Stærsta skíðasvæði Austurrikis er Oetzdalurinn, en einmitt
i honum kúrir bærinn Sölden Þarerskiðað í 1.377 - 3.050 m
hæð og auðvelt er að bruna niður brekkumar yfir i önnur
nálæg skíðasvæði.
Gisting: Gasthof Der Grauer Bár
Zillertal
Eitt allra skemmtilegasta skiðasvæði Austurrikis, - „líflegasti
dalur veraldar" segja heimamenn reyndar. Cist er í bænum
Aschau og einkum skíðað í 1.600 - 2.300 m hæð.
Gisting: Aschauer Hof.
Niederau
Bærinn Niederau liggur i hinum óviðjafnanlega fagra
Wildschönaudal, þar sem er eitt snjóöruggasta svæði
Kitzbúhel-alpanna, frábærskíðaaðstaða og einstakt bæjarlíf.
Skíðað er i 828 -1.900 m hæð.
Gisting: Gasthaus Sonne (jólaferð: V.I.P. Club Hotel).
Bæklingur á skrífstofunni í Reykjavík og hjá umboðsmönnum
víöa um land
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899