Morgunblaðið - 14.11.1981, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1981
„Sölugallery"
Þá hefur Knútur Bruun gert
Listmunahúsið að því er hann
sjálfur kallar almennt- „sölu-
gallery" og skil ég þetta sem svo
að nú eigi að reka staðinn eins og
gert er erlendis með slíkar stofn-
anir. Það er að segja: Fólk getur
fengið keyptar myndir á staðnum,
en fyllt verður jafnóðum í skarðið,
þannig að um hreyfanlegar sýn-
ingar er að ræða. Og er þá ætíð til
taks viss fjöldi mynda, sem á
boðstólum er. Þannig er það er-
lendis, að slík gallery haft oft á
Bruni B.B.
með tónleika
ÞRIÐJUDAG, 17. nóv., kl. 21.00
heldur listamannahópurinn Bruni
BB tónleika í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b (bak við Alþýðu-
bankann við Laugaveg). Bruni BB
•var stofnaður síðastliðið vor.
Stuttu seinna komu þeir fram á
Hótel Borg og nokkrum öðrum
stöðum, m.a. Hafnarbíói.
Innan tíðar er væntanleg
snælda frá Bruna BB.
Myndlist
Valtýr Pétursson
tíðum einkarétt á sölu listaverka
eftir vissan hóp listamanna. Ekki
veit ég hvort þannig er um hnút-
ana búið há Listmunahúsinu, en
slíkra tilrauna hefur lítið orðið
vart hér á landi, enn sem komið
er.
Þarna í hinum ágætu húsakynn-
um Listmunahússins hefur nú
verið opnuð mjög svo aðlaðandi
kaffistofa, og þannig er hægt að
sameina það að fá sér sopa og
kynnast við góða málaralist. Það
eru verk eftir Jón Engilberts
þarna á veggjum, og síðan kemur
skemmtilegur hópur listafólks,
sem lagt hefur staðnum til fram-
leiðslu sína. Þarna er vefnaður
eftir Óskar Magnússon og konu
hans, Blómeyju Stefánsdóttur,
sem bæði eru eftirtektarverð
hvort á sínu sviði. Sviði, sem af-
markast fyrst og fremst af lita-
meðferð og efnisvali. Alfreð Flóki
er þarna með teikningar, sem
sverja sig í föðurætt. Þorbjörg
Höskuldsdóttir sýnir nokkrar
vatnslitamyndir, sem eru dæmi-
gerðar ' fyrir þessa ágætu lista-
.konu. Þorbjörg virðist vinna á við
hverja sýningu er hún tekur þátt í,
og er það sannarlega gleðiefni.
Gunnar Örn á þungamiðjuna í
þessu samansafni og er stórtækur.
Tvær stórar myndir eru á enda-
vegg, og finnst mér þær merki-
legustu verk er ég hef séð frá hans
hendi um langan tíma. Hann virð-
ist blómstra þessa dagana, ef svo
mætti segja.
Það er ekki erfitt að átta sig á
þessari sýningu og samsetningu
hennar. Þetta eru ólíkir lista-
menn, en samt verður heildin
ágæt og skemmtileg, ekki hvað
minnst fyrir það hve ólíkir höf-
undar eru. Það eru um fjörutíu
verk á þessari sýningu, og nú er
spennandi að vita, hvort „sölugall-
ery“ getur gengið fjárhagslega eða
ekki hér í borg. Ef þessi tilraun
gefur góða raun, verður það til
miklla bóta fyrir listamenn hér á
landi, sem annars þurfa að gera
verkin, koma þeim á framfæri,
selja þau og jafnvel koma þeim
heim til kaupenda. Að vísu eru
iistamenn okkar lausir við lista-
verkakaupmenn og milliliðinn,
fyrir bragðið, en sumum þætti
notalegt að þurfa aðeins að skapa
myndir sínar, enda ærin vinna.
Sjáum hvernig gengur.
FATNAÐUR
GJAFAVÖRUR
EFNI — VEGGFÓÐUR
Allt vörur frá LAURA ASHLEY
Nú veljum við saman efni, veggfóður, teppi og smá-
hluti, höfum allt í stíl.
Allt eru þetta vörur frá LAIJRA ASHLEY.
Erum einnig með fatnað t.d. blússur, pils, náttkjóla
o.fl. Komið og skoðið nýjar vörur frá hinu heimsþekkta
LAURA ASHLEY-fyrirtæki.
Nkólavörðustíg 4. Ními 16646.
Sameining
flokksins
verður aldrei
eins manns
verk
Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins hefur vakið mikla
athygli og umtal, eins og
vænta mátti, þar sem lengi
hafði verið beðið eftir þess-
um fundi og niðurstöðum
hans.
Eitt af því, sem athygli
manna beindist að var kjör
varaformanns Sjálfstæðis-
flokksins. Varaformaður var
kjörinn yngsti þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, Friðrik
Sophusson, og hefur Morg-
unblaðið átt við hann viðtal
það sem hér fer á eftir um
stöðu mála í Sjálfstæðis-
flokknum að landsfundinum
loknum og landsmálin al-
mennt.
— Mitt mat er það, að á fundin-
um hafi komið fram greinilegur
vilji til þess að sameina flokkinn,
segir Friðrik Sophusson. Mér er
ljóst, að landsfundurinn leysti
ekki úr ágreiningsefnum, en skildi
hins vegar dyrnar eftir opnar
fyrir samkomulag.
I öðru lagi voru allar ályktanir
samþykktar með atkvæðum
stjórnarsinna, nema stutt ályktun,
sem fjallar um afstöðu flokksins
til ríkisstjórnarinnar. Þessi af-
greiðsla mála undirstrikar að
ágreiningur í röðum sjálfstæð-
-ismanna er ekki málefnalegur.
I þriðja lagi er ástæða til að
benda á, að á fundinum gáfu for-
ystumenn úr röðum stjórnarsinna
og stjórnarandstæðinga yfirlýs-
ingar, sem verður að túlka þannig,
að allir séu sammála um, að flokk-
urinn eigi að ganga heill og óskipt-
ur til sveitarstjórnarkosninga í
vor.
í fjórða lagi sýnir fundurinn
vilja flokksmanna til að forystu-
sveit flokksins endurnýist eðli-
lega. Menn sætta sig ekki við að sú
spenna, sem er á milli manna, úti-
loki þessa endurnýjun. Fulltrúar
gengu frá þessum landsfundi
bjartsýnni en þeir komu til hans
og í meiri baráttuhug. Landsfund-
urinn hefur haft jákvæð áhrif
fyrir flokkinn sem slíkan.
Það hefur komið fram í mál-
flutningi andstæðinga Sjálfstæð-
isflokksins, að núverandi ríkis-
stjórn var mynduð til að kljúfa
stærsta og merkasta stjórnmála-
afl þjóðarinnar. Þessi landsfundur
er hnefahögg í andlit þessara
niðurrifsafla í þjóðfélaginu.
Þessu til staðfestingar má nefna
ráðvillt skrif Þjóðviljans um fund-
inn, sem var opinn fjölmiðlum í
fyrsta sinn. Þar skynjuðu and-
stæðingar Sjálfstæðisflokksins
hversu gífurlegt afl býr í þessum
flokki.
— Fyrir landsfundinn lagðir þú
áherslu á, að þú vildir vinna að sam-
einingu og samkomulagi í Sjálfstæð-
isflokknum. Hvernig hefur þú hugs-
að þér að vinna að þeim markmiðum
nú, þegar þú hefur verið kjörinn
varaformaður Njálfstæðisflokksins?
— Það fyrsta, sem þarf að gera
er að nýta áhrif landsfundarins til
- en leggist allir
á eitt er það til-
tölulega auðvelt
Vidtal við Friðrik
Sophusson, varafor-
mann Sjálfstæðis-
flokksins
þess að halda áfram að losa um þá
spennu sem persónulegur ágrein-
ingur forystumanna hefur valdið á
undanförnum árum. I annan stað
held ég, að menn verði að átta sig
á, að hægt er að sameina flokkinn
og flokksmenn án þess að einstak-
ir forystumenn sættist heilum
sáttum. Þung orð hafa fallið á
milli manna og þau verða ekki aft-
ur tekin. Það sem skiptir höfuð-
máli er, að fólkið í flokknum og
forystusveitin skilji, að málstað-
urinn er svo mikilvægur, að við
megum ekki kljúfa okkur endan-
lega upp í tvær stríðandi fylk-
ingar.
Eg tel að það þurfi að koma í
veg fyrir að flokkurinn bjóði fram
í tveimur fylkingum í sveitar-
stjórna- og þingkosningum. For-
ystumenn flokksins þurfa að
halda áfram að tala saman og
ræða hugsanlegar lausnir. Og það
er ekki síður mikilvægt, að for-
ystumenn einstakra félaga og hin-
ir almennu sjálfstæðismenn láti
meira til sín taka í þessum efnum.
Við þurfum að venja okkur af
þeim hugsunarhætti að draga fólk
í dilka einstakra forystumanna og
að menn geti ekki talað saman
öðruvísi en í gegnum ímyndaða
foringja. Þessa múra í kringum
einstaka menn þarf að rífa niður.
Og við þurfum að auka samstarf
hinna almennu flokksmanna.
Það er alveg ljóst, að sameining
flokksins verður aldrei eins manns
verk, en leggist allir á eitt er það
tiltölulega auðvelt. Það gerist hins
vegar ekki í einni svipan.
— Að hvaða verkefnum hefur þú
hugsað þér að vinna sérstaklega sem
varaformaður auk þess að vinna að
sameiningu Njálfstæðisflokksins?
— Störf varaformannsins bein-
ast fyrst og fremst inn á við, að
félagsst.arfi flokksmanna og að því
að styrkja innviðinn. Ég mun
vinna með framkvæmdastjórum
flokksins, framkvæmdastjórn, út-
breiðslunefnd og fræðslunefnd og
heimsækja og ræða við forystu-
menn flokksins um allt land og
vera þannig tengiliður á milli for-
ystunnar og þeirra, sem veita
flokksstarfinu forystu á hverjum
stað.
— Hvernig metur þú stöðu ríkis-
stjórnarinnar um þessar mundir?
— Hún átti mikinn hljómgrunn
meðal almennings, þegar til henn-
ar var stofnað. Hún hafði enn
hljómgrunn eftir síðustu áramót,
þegar hún eftir 11 mánaða um-