Morgunblaðið - 14.11.1981, Page 28

Morgunblaðið - 14.11.1981, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1981 28 Boðar fjárlagafrumvarp ríkis- stjórnarinnar algjöra upp- gjöf — eða efnahagsbyltingu? eftir Lárus Jónsson, alþm. í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar innar, þjóóhagsáætlun, fjárfestingar og lánsfjáráætlun fyrir árið 1982, sem liggja fyrir Alþingi er engin til- raun gerð til þess ad meta hver lík- leg framvinda verólags verður á því ári sem þessar áætlanir eiga að gilda, þ.e.a.s. á næsta ári. ]>etta er auðvitað andstætt grundvallarhug- myndum um áætlunargerð af þessu tagi. Svo alger virðist uppgjóf ríkis- stjórnarinnar í þessu efni að í athug- asemdum við fjárlagafrumvarpið segir: „Reiknitala fjárlagafrum- varpsins varðandi hugsanlega hækk- un verðlags og launa er miðuð við 33% milli áranna 1981 og ’82.“ Á þessa túlkun lagði fjármálaráðherra Kagnar Arnalds sérstaka áherzlu við 1. umræðu um frumvarpið á Alþingi í síðustu viku. I>au tíðindi gerðust við umræð- una, að Tómas Árnason viðskipta- ráðherra, fullyrti þveröfugt við fjár málaráðherra að í þessari tölu fælist markmið ríkisstjórnarinnar. Hann sagði: „Ríkisstjórnin leggur höfuð- áherzlu á að þrýsta verðbólgunni niður og ná hlutfallslega svipuðum árangri og í ár.“ Hann miklaðist yfir „árangrinum” sem ríkisstjórnin hefði náð á yfirstandandi ári og augljóst er að hann taldi að 33% verðlagshækkun milli áranna 1981 og '82, enga „hugsanlega" reikni- tölu, heldur þvert á móti stefnumark ríkisstjórnarinnar. Trúarhiti Tómasar Árnasonar Tómas Árnason þurfti engar áþreifingar til að trúa eins og nafni hans forðum. Hann talaði af miklum trúarhita um að telja þyrfti niður verðbólguna á næsta ári þar á meðal verðbætur á laun og þá næðist þetta markmið. Nú eru kjarasamningar framundan. Forráðamenn launþega hafa lagt „Sú skrýtna staða er því komin upp að for ystulið Alþýðubanda- lagsins í launþegastétt, ASÍ, BSRB og sjó- manna þarf að sætta sig við að biðja Svavar Gestsson og félaga um að uppfylla sömu kaup- máttarkröfur og Geir Hallgrímsson átti að gera á árinu 1978.“ þunga áherzlu á aukningu kaup- máttar þannig að gildi sólstöðu- samninganna 1977 náist. Jafnvel Guðmundur J. Guðmundsson sem krafðist þess af ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar 1978, telur að í stöðunni sé ekki rétt að vera með meiri kröfur eftir þriggja ára stjórnartíð Alþýðubandalagsins, en að kaupmáttur sólstöðusamn- inganna náist í gildi. Hvað þýðir þessi „hófsama" krafa? Hún þýðir allt frá 9 til 20% kauphækkun þegar í stað, að sögn forystu- manna launþega sjálfra. Ákvörð- un fiskverðs um áramót bíður úr- lausnar, og ráðstafanir þarf til að rekstrargrundvöllur útflutnings- atvinnuveganna sé tryggður eftir þær ákvarðanir. Það hlýtur því að vera sérstök himinljómandi bjartsýni hjá Tómasi Árnasyni að verðlag muni ekki hækka nema um 25% frá byrjun næsta árs til enda og að framfærsluvísitala hækki ekki meira en 5 til 7% á komandi ári á þriggja mánaða fresti, eins og markmið hans um 33% verðhækkun milli áranna 1981 og ’82 þýðir í raun, þegar þannig er ástatt í þjóðar- búskapnum eins og raun ber vitni, nema á döfinni sé gerbreytt stefna i efnahagsmálum — ný efna- hagsbylting sem leiftursóknar- menn gætu verið stoltir af! Ef vél- rænn vítahringur verðlags, fisk- verðs, landbúnaðarafurða og launa gildir óbreyttur, þ.e.a.s. óbreytt stjórnarstefna ríkir í meg- indráttum hljóta jafnvel sanntrú- aðir menn eins og Tómas Árnason að efast um að það göfuga mark- mið sé raunhæft að ná verðbólgu niður í 25% á næsta ári við ríkj- andi aðstæður. Uppgjöf Ragnars og Alþýðu bandalagsins Samtök vinstri sósíalista og kommúnista — Alþýðubandalagið á við óþægilegar innantökur að stríða um þessar mundir. Þar troða menn marvaðann í ólgusjó fyrri gífuryrða forystumanna Lárus Jónsson launþega í flokknum og fagurgala hinnar nýju stéttar gáfumanna sem hefur tögl og hagldir í forystu flokksins. Þeir hafa sum sé ekkert legið á þeirri skoðun sinni að stefna Alþýðubandalagsins í efna- hagsmálum hafi orðið ofan á í nú- verandi ríkistjórn. Samt hefur kaupmáttur „sigið" á valdatíma þeirra, að sögn Guðmundar J. Guðmundssonar og þjóðarfram- leiðsla staðnað þrátt fyrir tugþús- unda tonna aflaaukningu af þorski á ári og ytra góðæri, a.m.k. í ár. Sú skrýtna staða er því komin upp að forystulið Alþýðubandalagsins í launþegastétt, ASÍ, BSRB og sjó- manna þarf að sætta sig við að biðja Svavar Gestsson og félaga um að uppfylla sömu kaupmátt- arkröfur og Geir Hallgrímsson átti að gera á árinu 1978. Fjármálaráðherra virðist hafa nokkurn skilning á því að jafnvel þetta hlutskipti sé erfitt fyrir for- ystumenn vinstri sósíalista að leika miðað við fyrri afstöðu og hann hefur því vaðið fyrir neðan sig. í stað markmiðs um hjöðnun verðbólgu á næsta ári setur hann „hugsanlega reiknitölu" verð- hækkana í fjárlagafrumvarp sitt. í þessu felst uppgjöf hans fyrir hönd Alþýðubandalagsins í að spá í spil framþróunar efnahagsmála næstu mánuði, einkanlega hvað muni gerast í kaupgjaldsmálum. Hvort verður ofan á? Boðar fjárlagafrumvarp ríkis- stjórnarinnar algjöra uppgjöf eða nýja byltingu í stjórn efnahags- mála? Hvort sjónarmiðið verður ofan á? Alkunna er að innan Framsóknarflokksins ríkir megn óánægja með ástand atvinnumála. Þegar gengisfellingin um 6,5% var ákveðin fyrir nokkrum dögum var hart deilt á ráðherra flokksins fyrir andvaraleysi í því að leysa sárasta vandann. Engar sögur fara þó af því hvort framsóknar- menn hafi gert sér grein fyrir að viðskiptaráðherra Tómas Árnason hefur í sinni hendi þá þætti efna- hagsmálanna sem erfiðastir hafa orðið atvinnuvegunum, þ.e.a.s. vaxta- gengis- og verðlagsmál. Á hinn bóginn hæla alþýðubanda- lagsmenn sér fyrir að ráða stefn- unni á þessum sviðum. Vart er við öðru að búast en að hvorki Tómas né Steingrímur Hermannsson hafi vilja eða þrek til þess að hrinda þessari stefnu. Allt bendir því til að framsóknarráðherrarnir muni í reynd troða marvaðann og láta skeika að sköpuðu eins og ráðherr- ar Alþýðubandalagsins hafa lýst yfir með fjárlagafrumvarpinu að þeir hugsi sér að gera. Þá er hætt við að reiknitölur verði fallvaltar og ýmsar áætlanir fari úr böndum sem nú eru á prjónunum fyrir árið 1982. Það sýna m.a. fullyrðingar ráðherra fyrir nokkrum vikum um að gengisfelling væri ekki á dagskrá vegna ákvörðunar fisk- verðs í október sl., en sú gengis- felling ein veldur a.m.k. 3—4% verðlagshækkun á næsta ári. HEIMSMEiSTARAKEPPNM I KNAnSPYRNU A SMM1982 OG SUMARFRIÁ SIRÖND ESPANA’82 Heimsmeistarkeppnin í knattspyrnu á Spáni — 13. júní — ll.júlí 1982. Leikid verður í 14 borgum í hinum sex riðlum forkeppninnar á Spáni. Argentínumenn leika sinn fyrsta leik í Barcelona en síðan verða leikir liðsins í Alicante. Argentínumenn óskuðu eftir því að fá að leika þar og FIFA varð við ósk þeirra. Spán- verjar leika sína leiki í forkeppninni í Valencia. Riðlaskipanin í borgunum er þannig: 1. riðill leikinn í Vogo og La Coruna. 2. riðill leikinn í Gijon og Ovidio. 3. riðill leikinn í Alicante og Elche. 4. riðill leikinn í Bilbao Valladolid. 5. riðill leikinn í Valencia og Zaragoza. 6. riðill leikinn í Sevilla og Malaga. Nú gefst knattspyrnuunnendum tækifæri á að fylgjast með mesta íþróttaviðburði ársins 1982, jafnframt því að njóta sumarleyfisins á einum veð- ursælasta stað Spánar BENIDORM. Ferðamiðstöðin býður upp á tvær þriggja vikna ferðir til Benidorm sem henta þeim er sameina vilja þetta tvennt þ. e. njóta sólar og sumars yfir daginn og sækja fótboltavellina á kvöldin eða sitja makindalega í góðra vina hópi fyrir framan sjón- varpið og horfa á leikina í beinni útsendingu. — Brottfarir 1. júní og 22. júní — Þið sem veljið ykkur ferðina 1. júní eigið kost á að sjá eftirfarandi leiki: Þriðjud. 15. júní kl. 21 ELCHE Liðnr. 11 og 12 Miðvikud. ló.júníkl. 21 VALENCIA Lið nr. 17ogl8 Föstud. 18. júní kl. 21 ALICANTE Lið nr. 9ogll Laugard 19. júní kl. 21 ELCHE Liðnr. 10ogl2 Sunnd. 20. júní kl. 21 VALENCIA Liðnr. 17ogl9 Þið sem veljið ferðina 22. júní eigið kost á að sjá: Þriðjud. 22. júní kl. 211 ELCHE Lið nr. 10 og 11 Miðvikud. 23. júní kl. 21 ALICANTE Lið nr. 9ogl2 Föstud. 25. júní kl. 21 VALENCIA Lið nr. 17 og 20 laugard. 10. júlí kl. 20 ALICANTE Úrslitaleikur um 3.-4. sætið muriDiE^PAnA '82 Auk ferðanna til Benidorm mun Ferðamiðstöðin efna til sérstakrar ferðar fyrir knattspyrnuunn- endur er vilja sjá alla leikina í 2. umferð og und- anúrslitin í Barcelona, keppnina í Alicante um 3. og 4. sætið og úrslitaleikinn í Madrid samtals 9 leiki. Áætluð brottför 26. júní til 12. júlí ’82, Heimsmeistaramir ARGENTÍNA keppa í Ali- cante og SPÁNVERJAR keppa í Valencia. FERÐAMIDSTÖDIIM AÐALSTRÆTI9 SÍM128133 11255

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.