Morgunblaðið - 01.12.1981, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 01.12.1981, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981 Loftin blá Litla góða Lilli Bókmenntir Erlendur Jónsson Jóhannos R. Snorrason: Skrifað í skýin. 266 bls. Alm. bókafélagið. Keykjavík, 1981. Jóhannes R. Snorrason lifði sín fyrstu bernskuár á Flateyri vestra, fluttist þaðan norður til Akureyrar þar sem hann átti síð- an heima þar til hann hvarf til flugnáms í Kanada, en þar lauk hann atvinnuflugmannsprófi vor- ið 1942 hjá kanadísku flugmála- stjórninni. Bók þessi nær til árs- loka 1946 þegar Jóhannes hafði starfað sem flugstjóri hjá Flugfé- lagi Islands í þrjú ár. Arin, sem á eftir koma, segir höfundur í eftir- mála, verða »að bíða um stund«. Jóhannes tekur fram í formálan- um að bókin sé »ekki hugsuð sem heimildarrit að sögu Flugfélags Islands.« Það er hógværlega mælt því vissulega varð Jóhannes einn af brautryðjendum flugsins á Is- landi og þar með hlýtur nafn hans á ýmsan hátt að verða tengt upp- hafsárum Flugfélagsins. Hitt er að vísu rétt að þetta er engin almenn flugsaga heldur persónuleg sjálfsævisaga. Höf- undur byrjar t.d. að segja allýtar- lega frá bernskubrekum sínum vestra. Hvorki þykir mér sá hlut- inn merkilegur né skemmtilegur. Flest börn fremja hitt og annað af ævintýraþrá og óvitaskap sem fullorðnum mislíkar. Að rifja slíkt upp þegar bernskan er horfin í bláma fjarlægðar kann að vera skemmtun fyrir mann sjálfan en nauðaiítil skemmtun fyrir aðra. Nema því aðeins að okkur fýsi að stúdera hvers konar manngerðir það voru sem í fyrstunni gerðust flugmenn á íslandi en það er auð- vitað annar handleggur. Jóhannes var mjög ungur þegar hann sá flugvél í fyrsta sinni. Og sam- kvæmt sögu sinni heillaðist hann strax af fluginu. A Akureyri tók hann að iðka svifflug af ærnum áhuga. Einnig fékk hann sér mót- orhjól og lætur nærri að hann hafi — einnig á því — farið eins konar flugferðir! Samborgurunum þótti hann nokkuð glannafenginn. Eitt sinn brotlenti hann svifflugu í Kirkjugarðinum á Akureyri og var þá verið að taka gröf þar skammt frá. »Til hræðslu fann ég ekki, til þess var enginn tími,« segir Jóhannes, »en svo heyrði ég eins og í fjarska að talað var um blóð og sjúkrahús, og þá loks varð ég hræddur.* Og ekki alllöngu síð- ar heyrði Jóhannes — þegar hann lá hálfrotaður á götunni eftir mót- orhjólsflugferð »að einhver var að tala um blóð og spítala.« Ekki fer á milii mála að höfund- ur hefur snemma verið sólginn í hraða. Og uppátæki hans voru mörg þess eðlis að ýmsir hlutu að kenna við glannaskap. En hvort sem nú uppákomur Jóhannesar voru glannaskapur eða ekki er svo mikið víst að forsjónin hlífði hon- um við stórmeiðslum. Væri honum hálfvegis þröngvað inn á spítala var hann fljótur að koma sér það- an út. Það hefur verið hreyfing á þessum unglingi, vægast sagt, allt sem fór hratt heillaði hann, kyrrstöðu hefur hann hreint ekki unað. , A æskuárum Jóhannesar var flugnám geysidýrt (eins og það er vafalaust enn). Sagan af því hvernig hann fór að fjármagna nám sitt er að mörgu leyti athygl- isverð. Kristján Kristjánsson bíla- kóngur kom þar verulega við sögu. En fyrirtæki Kristjáns, sem oftast var skammstafað BSA, gegndi á æskuárum Jóhannesar sams kon- ar hlutverki fyrir innanlands- samgöngur og Flugleiðir gegna nú. Að námi loknu gerðist Jóhannes atvinnuflugmaður og tók að flytja norður og suður þá sem áður höfðu ferðast með rútunni. Engum blöðum er um að fletta að flugið hefur þá verið bæði erfitt og áhættusamt, enda varð það fyrir stórum áföllum. »Dali og fjalla- skörð urðu flugmenn að gjör- þekkja, áður en vogandi var að stinga flugvélum þar niður í slæmu skyggni, ef snúa þyrfti frá.« Telst það nú allt til liðinnar tíðar sem betur fer. En hver er svo maðurinn á bak við þessa persónulegu flugsögu? Um það er allt vandara að dæma. Þó Jóhannes segi stundum greini- lega frá ýmsu sem fyrir hann hef- ur borið er hann í raun og veru dulur höfundur. Enginn veit hvað innst í sefa býr — Jóhannes temur sér hálfkæring og gamansemi og spaugar heilmikið með sjálfan sig, en allt er það einhvern veginn yf- irborðskennt og þess eðlis að les- andinn þekkir þennan mann — Jóhannes Snorrason þegar bókinni er lokað og lestur- inn á enda — ósköp lítið. Jóhannes talar til lesandans eins og maður talar gjarnan í stórum hóp, segir ekkert nema það sem allir mega vita, hleypir lesandanum aldrei mjög nærri sér. Stundum skrifar hann dálítið upphafinn stíl, t.d.: »Það var sannarlega hamingju- samur hópur ungmenna, sem gekk til hvílu þetta bjarta vorkvöld, með brennandi þrá i brjósti til þess að mega aftur fljúga eins og fuglinn frjáls.« Athugasemdir af þessu tagi eru svo almenns eðlis að þær geta næstum átt við hvaða ungmenni sem er, hvar sem er og hvenær sem er — með þeim fyrir- vara að hin »brennandi þrá« getur auðvitað beinst að fleira en flugi. Svo mjög sem höfundurinn er kenndur við hraða finnst mér saga hans fullhæg og langdregin. Einn- ig þykja mér lýsingar Jóhannesar á samferðamönnum sínum á lífs- leiðinni helst til einhæfar (lofsamlegar mestan part) sem ég útskýri svo að hinn forðum áræðni unglingur sé nú orðinn næsta orð- var maður. Merkilegust er þessi bók vegna þess stórmerkilega efnis sem höf- undur hefur ráð á að miðla. Með dálítilli alhæfingu má lesa út úr henni hvernig flugáhugi vaknaði með Islendingum. Fyrstu ár ís- lensks flugs kostuðu ekki aðeins mikið fé heldur líka miklar fórnir og þar af leiðandi — ærinn kjark. Og það held ég að fari ekki á milli mála að Jóhannes Snorrason sé kjarkmikill maður, þótt hann raunar hæli sér ekki af því — enda þarflaust. Erlendur Jónsson Bókmenntlr Jóhanna Kristjónsdóttir Lilli Falmer: Minningar. Vilborg ísleifsdóttirBickel þýddi. Útg. Iðunn 1981. Einkennilegt hve það virðist fram eftir árum hafa háð mörgum konum, að þurfa að vera góðu og sætu stúlkurnar sem engan vilja styggja og brjóta sig jafnvel í mola til að þóknast öllum svo að þær öðlist hylli og vinsældir. Ég man eftir að þetta skipti miklu í bók Liv Ullman „Breytingin" og það er ekki fyrr en hún er orðin fræg að hún hefur nægilega sjálfs- trú til að „vera hún sjálf". Sama máli gegnir með Lilli Palmer, höf- und Minninga, sem hér verður vik- ið að. Hún segir: „Þessi árátta að vilja alltaf vera góða barnið hefur verið mér til trafala alla mína ævi og reyrt mig í þrönga spenni- treyju. Það leið á löngu áðnr en mér varð ljóst að þetta var slæm- ur ávani. Þegar ég hafði öðlast skilning á þessari áráttu minni óx þörf mín á að losa mig við þetta „góða barn“. Lilli Palmer hefur fengizt við kvikmyndaleik bæði í Þýzkalandi, Englandi og Bandaríkjunum í ára- tugi. Hún er þýzkættuð, falleg og mér hefur alltaf fundizt hún góð leikkona og fyrir nokkrum árum uppgötvaði ég að hún væri býsna góður rithöfundur, þegar ég rakst á siðustu bók hennar „A Time to Embrace" og las síðan einnig „The Red River", hvorutveggja ljóm- andi frambærilegar skáldsögur. Minningar hennar valda heldur engum vonbrigðum. Henni er létt um að skrifa, á auðvelt með að tjá sig á viðfelldinn máta og lífshlaup hennar er allrar athygli vert, frá því hún er fátækt gyðingabarn í Þýzkalandi Hitlers og er orðin dáð stjarna í Hollywood. Hún segir hispurslaust frá hjónabandi sínu með leikaranum Rex Harrison, og alvariegu máli sem kom upp í hjónabandi þeirra, þegar ungt leikstirni, Carole Landis, svipti sig lifi að því er virtist af ást til Rex Harrison. Þá er gaman að lesa um kynni hennar af ýmsu frægu glys- fólki og lýsing hennar á hertoga- hjónunum af Windsor verður þó einna dægilegust. Einhverju sinni höfðu þau Harrison boðið hertoga- hjónunum heim: „En hvernig á ða hafa ofan af fyrir hertoga? Það var þrautin þyngri. Nú átti hann það til að vera furðulega opinskár. „Vitið þér,“ sagði hann eitt sinn brosandi við mig, „greindarvísi- Lilli Palmer tala mín er mjög lág.“ Ég maldaði í móinn. „En sir, munið þér eftir bók yðar „A King’s Story". Hún er áhugaverð og greindarlega skrif- uð.“ „Ég skrifaði hana ekki sjálf- ur,“ sagði hann. „Auk þess er þetta það eina sem ég veit.““ Hún segir einnig frá kynnum sínum af Gretu Garbo og eru þær frásagnir stundum nokkuð grát- broslegar, þótt mér finnist Garbo vera eftir sú hin sama gáta og fyrr. Síðustu árin hefur Lilli Palmer lítið leikið, hún hefur fengizt við að mála við allgóðan orðstír og skrifað nokkrar bækur eins og að framan hefur komið. Og hún gæti sannarlega gert margt vitlausara en það. Ég fékk ekki betur séð en þýðing Vilborgar Isleifsdóttur væri iétt og lipur og á ágætu máli. Á vori byrjar nýtt líf Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Einar Kárason: ÞETTA ERU ASNAR GUÐJÓN Skáldsaga. Mál og menning 1981. Eftir lestur skáldsögu Einars Kárasonar „Þetta eru asnar Guð- jón“ er maður þeirrar skoðunar að hér sé vel af stað farið, sagan sé hressilega skrifuð og ágæt æfing fyrir ungan rithöfund sem ætlar sér nokkurn hlut. Einar Kárason hefur áður sent frá sér Ijóðabók. Því ber ekki að neita að „Þetta eru asnar Guðjón" er dálítið sundurlaus saga á köfl- um, en endar ná saman að lokum. Lesandinn hefur fengið heillega mynd af söguhetjunni og ýmsum persónum tengdum henni. Sumar eru jxi veigalitlar, einkum kven- fólkið. Annar kafli hefst á orðunum „Nýtt líf. Á vori byrjar nýtt líf.“ Nýstúdentar, þeirra á meðal Guð- jón, fagna áfanga með tilheyrandi partíum. Brennivínið flýtur. En því miður tekur gleðin enda. Al- vara ber að dyrum ungra manna og kvenna. Hvað á að taka til bragðs? Á að halda áfram að læra eða fara að vinna? Slíkum spurn- ingum leitast sagan við að svara, sýna lesandanum hvað samfélagið býður ungum þegnum uppá. Fólkið sem Einar Kárason lýsir er með fáeinum undantekningum fulltrúar ráðleysisins. Það eru ekki neinar lukkupamfílar sem spranga á blöðum bókarinnar. Vísastir eru þeir til að brjóta allar brýr að baki sér og hafna í óvissu. Svo er um þá Guðjón og Lúlla. Varla er annað framundan hjá þeim en Hraunið eftir að þeir hafa stolið bát og strandað honum. í Þetta eru asnar Guðjón er í senn lýst akademískri tilveru inn- an veggja háskólans (þröngra að mati höfundar) og þátttöku í at- vinnulífinu: saltfiskverkun, sjó- mennsku. Einnig er brugðið upp mynd af sambýli ungs fólks í sveit. Allt er þetta fremur dapurlegt, leiðinlegt er eiginlega rétta orðið. Þótt sumir þessara ungu manna hafi áhuga á að vinna, að minnsta kosti um stundarsakir til að ná sér í auðfenginn pening, njóta þeir sín helst á fylliríi á Borginni. En þar er heldur enginn friður fyrir hyski. Fyrr en varir er gleðin orð- in að átökum við ruddalega dyra- verði. Hér blasir semsagt firrtur heimur við augum. En engan veg- inn er sagan úr sambandi við dag- lega lífið, þrátt fyrir ýktar myndir og fjandsamlegar verkalýð, er höf- undurinn fyrst og fremst að glíma við raunveruleikann. Hann virðist þekkja sögusvið sitt vel. Frystihússvinnunni er lýst svo: „Þú reyndir að kyngja leiðind- unum við saltfiskstæðuna með því að ímynda þér að núna hljóti þetta að fara skánandi. Þrjár vikur ertu búinn að halda þetta út — eru ekki fyrstu þrjár vikurnar allt'af erfiðastar? Það er bara grátlegt að hafa lent í saltfiskinum, það var örugglega leiðinlegasta álman í öllu fiskiðjuverinu. Alltaf sömu handtökin, utangarðs í heimi fólks sem er búið að vinna þarna saman í áratugi." Á sjónum tekur ekki betra við: „Það hefur tekið mig tíu ár að drekka mig hingað niður, sagði bátsmaðurinn. Þetta er göturæsi þjóðfélagsins, vinur. Nýútskrifað- HÖRPUÚTGÁFAN á Akranesi hef- ur sent frá sér bókina „Leiftur frá liðnum árum,“ sem Jón Kr. ísfeld hefur safnað. í frétt frá útgáfunni segir m.a. að í bókinni sé safn sannra frá- sagna af mannraunum, slysförum, dulrænum atburðum og skyggnu fólki. Einnig frásagnir úr hákarla- legum og bjargsigi. Séra Jón Kr. ísfeld hefur safnað þessu efni á löngu árabili. Nöfn eftirtalinna þátta gefa hugmynd um efni bókarinnar: Örlagastund á Eskifjarðarheiði, Páskabylurinn 1917, Manntjónið mikla í Arnar- firði, Sagnir af Eyjólfi skyggna, Haustnótt í kirkju, Stúlkan við ána, Hákarlaveiðar, Ur verinu, Fyrsta bjargferðin, Töfrasýnir tveggja öldunga. Torráðin gáta frá 18. öld. Sagnir frá fyrri tíma eru vin- sælt lesefni íslendinga, en þær eru einnig fjársjóðir, sem komandi kynslóðir munu njóta og meta á ir stúdentar eiga að sitja heima hjá mömmu með blúndusmekk um hálsinn og láta mata sig á volgum hafragraut." Jón Kr. ísfeld ókomnum árum. Mikill fjöldi góðra bóka um þessi efni kemur út árlega. Leiftur frá liðnum árum er verðug bók í þeim flokki. Leiftur frá liðnum árum er 203 blaðsíður. Bókin er prentuð og bundin í Prentverki Akraness hf. Káputeikningu gerði Prisma, Björn H. Jónsson. Hörpuútgáfan á Akranesi: „Leiftur frá liðnum árum“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.