Morgunblaðið - 01.12.1981, Side 18

Morgunblaðið - 01.12.1981, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981 Báturinn, sem Natalie Wood var í, dreginn í land á eynni Santa ('atalina. „Féll eða stökk fyrir borð“ — segir lögreglan um lát leikkonunnar Natalie Wood Santa ( aialina-eyium, Kalifttrníu, 30. nóv. Al*. LÍK leikkonunnar Natalie Wood fannst í sjónum rétt undan strönd St. ('atalina-eyja sl. sunnudag og var banameinid drukknun að sögn lögreglumanna. Natalie Wood var mjög mikilhæf leikkona og hafði oft verið tilnefnd til Óskarsverð- launa fyrir leik sinn í ýmsum myndum. Hún var 43 ára að aldri og gift leikaranum Robert Wagn- er. Að sögn lögreglunnar hvarf frú Wood frá borði snekkjunnar, sem þau hjónin höfðu til um- ráða, skömmu fyrir miðnætti að- faranótt sunnudagsins og mun hún hafa farið ein á litlum gúmmíbáti með utanborðsmótor. Þegar hún var ekki komin aftur eftir tíu til fimmtán mínútur tók Wagner, maður hennar, annan bát og svipaðist um eftir henni og þegar það bar ekki árangur lét hann lögregluna vita. Lík hennar fannst svo í sjónum um morguninn skammt frá gúmmí- bátnum. Natalie Wood var alklædd þegar hún fannst og hafa lög- reglumenn látið hafa það eftir sér, að hún hafi annaðhvort fall- ið eða stokkið fyrir borð. Maður hennar sagði í yfirheyrslum hjá lögreglunni, að hún hefði ekki verið vel synd og stangast þau ummæli á við yfirlýsingu blaða- fulltrúa hennar, sem sagði, að hún hefði verið mjög góður sundmaður. Natalie Wood fæddist 20. júlí 1938 og hét réttu nafni Natasha Gurdin. Foreldrar hennar voru af rússneskum og frönskum ætt- um og voru farin að fara með hana í bíó áður en hún var farin að ganga. Þegar hún var aðeins fjögurra ára fluttust foreldrar hennar til Santa Rosa og þar kom leikstjórinn Irving Pichel auga á hana þegar hann vann að töku myndarinnar „Happy Land“. Hann varð svo hrifinn af litlu stúlkunni, að hann fékk for- eldra hennar til að leyfa henni að koma fram í myndinni „To- morrow is Forever" þar sem hún lék dóttur þeirra Claudette Col- bert og Orson Welles. Þá var nafni hennar einnig breytt. „Frammistaða hennar var með ólíkindum," sagði Orson Welles mörgum árum síðar. „Hún var fæddur leikari." Natalie Wood vann það sér til frægðar, sem fáum hefur tekist, að vera ekki bara barnastjarna heldur einnig mikilhæfur og dáður leikari allt sitt líf. Hún virtist eiga einstaklega auðvelt með leik og ekki vera haldin þeim taugaveiklunarkennda ákafa, sem einkennir marga þá, sem berjast á toppnum. Hún var heldur ekkert hrædd við að leggja leikinn á hilluna um tveggja eða þriggja ára skeið, sem hún gerði oftar en einu sinni þegar aðstæður hennar og fjöl- skyldunnar kröfðust þess, og lét þá engin gylliboð um glæsileg hlutverk hafa áhrif á sig. Natalie Wood var oft tilnefnd til Óskarsverðlauna, sem féllu henni þó aldrei í skaut, en hvað kunnust er hún líklega fyrir leik sinn í „West Side Story". Ástir þeirra Natalie Wood og eftirlifandi manns hennar, Ro- berts Wagners, voru mikið fréttaefni á sínum tíma og þóttu um margt forvitnilegri en mörg ástarævintýrin á hvíta tjaldinu. Þau gengu í hjónaband árið 1956 en slitu samvistum 1965. Natalie giftist þá enska kvikmynda- framleiðandanum Richard Greg- son og átti með honum eina dótt- ur, Natasha, og Wagner kvænt- ist dansmeynni Marian Marshall og átti með henni dótturina Katharine. Þessi hjónabönd þeirra stóðu stutt og árið 1972 komu þau svo öllum á óvart með að ganga í það heilaga i annað sinn. Þau eiga eina dóttur sam- an. „Starfið hefur verið óaðskilj- anlegur hluti af lífi mínu alla tíð en það, sem hefur fært mér mestu hamingjuna, eru börnin mín og fjölskylda," sagði Natalie Wood í viðtali fyrr á þessu ári. Natalie Wood hefur víða verið minnst með söknuði og er mikill harmur kveðinn að starfsbræðr- um hennar í Hollywood, sem á skömmum tíma hafa mátt sjá á bak tveimur kollegum sínum auk Natalie, þeim Jack Albertson og William Holden. Holden fannst fyrir nokkru látinn í íbúð sinni og er talið að hann hafi legið þar andvana í þrjá sólarhringa. Svo virðist sem hann hafi fallið drukkinn á náttborðshorn með þeim afleiðingum, að honum blæddi út. Þess má að lokum geta, að Robert Wagner, eiginmaður Natalie, fer með aðalhlutverkið í sjónvarpsmyndaflokknum „Hart á móti hörðu", sem að undan- förnu hafa verið sýndir í ís- lenska sjónvarpinu. Nalalie Wood og eiginmaður hennar, kvikmyndaleikarinn Robert Wagn- er, við afhendingu Osears-verðlaunanna í Los Angeles 1979. Allen lætur af embætti — meðan rannsókn fer fram á máli hans Washington, 30. nóvember. AP. RK'HARI) V. Allen, ráðgjafi Reagans Bandaríkjaforseta í þjóðaröryggismál- um, skýrði frá því í gær, sunnudag, að hann hefði beðið forsetann um „leyfi frá störfum" þar til dómsmálaráðuneytið hefði lokið rannsókn sinni á gjöf- um eða meintu mútufé, sem Allen þáði frá japönskum fréttamönnum. „Það er kominn tími til að þetta mál verði rannsakað á óhlutlægan hátt og með því bundinn endi á gróusögurnar," sagði Allen í við- tali við NBC-sjónvarpsstöðina og bætti því við, að hann væri þess fullviss, að hann tæki aftur við starfi sínu. Allen er sakaður um að hafa þegið 1000 dollara frá tveimur japönskum fréttamönnum, sem höfðu viðtal við forsetafrúna, Nancy Reagan, 21. janúar sl., deg- inum eftir að maður hennar tók við embætti. Allen segist hafa ætl- að að afhenda peningana embætt- ismönnum stjórnarinnar og sett þá til bráðabirgða í peningaskáp í skrifstofu sinni. Síðan hafi hann einfaldlega gleymt þeim. Allen hefur einnig Viðurkennt að hafa þegið að gjöf tvö armbandsúr, sem metin eru á um 1300 kr. ísl. hvort, en segir, að það hafi verið áður en hann tók við embætti. Richard V. Allen 800 fyrir rétt í Tyrklandi Krzerum, Tyrklandi, 30. nóvember. Al*. RÉTTARHÖLD hófust í dag yfir átta hundruð mönnum, sem aliir eru sakaðir um að vera vinstrisinnaðir. Margir þeirra eru sakaðir um hryðjuverk, en aðrir um samsæri Karpov fagnað í Sovét Moskvu, 30. nóvember. Al*. KLYFJAÐUR rauðum og bleikum rósum birtist heimsmeistarinn í skák, Anatólí Karpov, í sovéska sjónvarpinu á sunnudagskvöld, en við heimkomuna var honum fagnað sem þjóðhetju. „Mest var gleðin þann daginn í Merano sem okkur barst skeytið frá Leoníd Illyich Brésneff, og við erum þakklátir honum fyrir hve annt hann lætur sér um okkur skákmenn. Það er mikil ánægja að koma aftur heim með heimsmeist- aratitilinn. Það kostaði okkur mikla vinnu og var ekki einfalt mál,“ sagði Karpov í viðtali við fréttamenn við heimkomuna. Framámenn í skák og fjöldi að- dáenda biðu Karpovs á flugvellin- um. Sovézkir fjölmiðlar létu sér títt um heimsmeistarann við heimkomuna en minntust ekki orði á áskorandann, Victor Korchnoi. Gekk af brúði sinni dauðri Tel Aviv, 30. nóvember. Al*. SEXTUGUR brúðgumi barði 71 árs tilvonandi brúði sína til bana og kveikti því næst í pen- ingaseðlunum sem deilt var um. Forsagan var sú að brúð- guminn hafði sent brúðinni peninga að andvirði 12 þús. ísl. krónur og skyldi þeim varið til innkaupa fyrir brúðkaupsveizl- una. Þar kom að, að hann iðr- aðist þess að hafa látið féð af hendi rakna og krafðist þess að fá það aftur. Þegar brúðurin féllst ekki á það var málið út- kljáð með fyrrgreindum hætti. gegn stjórnvöldum landsins. Flestir sakborninga eru sagðir meðlimir í hinum ólöglegu samtökum Dev-Yol og segir saksóknari herdómstólsins þar sem málin eru til umfjöllunar að allt að 150 þeirra eigi yfir höfði sér dauðarefsingu. Þetta eru mestu fjöldaréttarhöld scm fram hafa farið í Tyrklandi síð- an í ágúst í fyrra, en þá voru 830 manns ákærðir fyrir að hafa komið illu af stað í suðausturhluta lands- ins. Á síðustu tveimur árum hefur saksóknari krafizt dauðadóms yfir rúmlega 1200 manns í Tyrklandi, en einungis tíu hafa verið teknir af lífi á þessum tíma. Faithful dæmd í sekt Söngkonan Marianne Faithful og eiginmaður hennar voru í dag dæmd í 175 sterlingspunda sekt fyrir að hafa hass í fórum sínum, auk þess sem þeim var gert að greiða máls- kostnað. Hjónin voru handtekin í október í fyrra eftir að lögregiumað- ur, sem gægzt hafði á glugga á húsi þeirra, taldi sig hafa séð þau vera að vefja hassvindlinga. Lögreglumaður- inn varð sér úti um handtökuheimild og var síðan gerð aðför að hjónun- um. Þau neituðu að Ijúka upp fyrir vörðum laganna, sem á endanum komust inn í húsið með því að beita kúbeini.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.