Morgunblaðið - 01.12.1981, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 01.12.1981, Qupperneq 48
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981 Manchester Utd. 'heídur efsta sætinu eftir góðan sigur gegn Brighton - Liverpool fékk óvæntan skell á heimavelli - hallar enn undan fæti hjá Sunderland Manchester Utd. sigraði Krighton örugglega í 1. deild ensku deildarkeppn- innar í knattspyrnu á laug- ardag og heldur því foryst- unni í deildinni. Sú forysta er þó afar naum, aðeins þrjú stig, auk þess sem Un- ited hefur leikið 2 leikjum fleira heldur en skæðustu keppinautarnir. Brighton mætti til leiks á Old Traf- ford með aðeins 2 töp úr 15 leikjum, en liðið átti aldrei möguleika gegn United, sem náði sér á strik á ný eftir ósigurinn gegn Tott- enham í umferðinni á und- an. Gary Birtles er óstöðv- andi um þessar myndir, hann skoraði glæsilegt mark fyrir United á 36. mínútu og Frank Stapleton bætti öðru við með lagleg- um skalla á 66. mínútu. Besti maður vallarins þótti vera Graham Mosely, markvörður Brighton, sem varði hvað eftir annað snilldarlega. En lítum á úr- slit leikja áður en lengra er haldið: Arsenal — Everlon 1—0 Aslon Villa — N. Eorest 3—I (’oventry — Middleshrough I—I Ipswieh — Manch. (’ity 2—0 Leeds — West llam 3—3 Liverpool — Southampton 0—I Manch. lltd. — Brighton 2—0 Notts County — Tottenham 2—2 Sunderland — WBA 1—2 Wolverhampton — Stoke 2—0 1. DEILD ManchPNter lUd. 17 9 5 3 26:12 32 Ipswirh 15 9 2 4 27:19 29 Todcnham 15 9 1 5 25:17 28 Soulhamplon 16 8 3 5 29:23 27 Swansea 15 8 3 4 25:22 27 W«rt llam 15 6 8 1 32:20 26 Nottinf'ham For. 16 7 5 4 21:20 26 Arsenal 15 7 3 5 13:11 24 Manchesler ('íly 15 6 4 5 20:17 22 Liverp<H>l 15 5 6 4 21:16 21 Brighton 16 4 9 3 20:17 21 Stoke 17 6 2 9 22:26 20 Aston Villa 15 4 7 4 21:18 19 (’oventry 16 5 4 7 24:24 19 Kverton 16 5 4 7 19:22 19 Wolverhampton 15 5 4 7 11:20 19 Wesl Brorawich 16 4 6 6 18:19 1« Notts (’ounty 16 4 5 7 23:29 17 Leeds 16 4 4 8 16:31 16 Birmingham 14 3 6 5 21:21 15 Midrflesbrough 17 2 6 9 15:28 12 Sunderland 17 2 5 10 12:29 11 2. DEILD Luton Watford (lueeiw Parh Oldham Sheffield Wed. Barnskv Blarkhurn Oteltiea l^eire.Hter Newrastle ( rystal Paiare Norwirh ShrewMbury ílerby ( amhridge ( harlton (’ardiff Kotherham Orient (trímMhy Wrexham Bolton 17 13 1 Ifi 10 2 17 9 3 17 h a 9 3 8 3 7 4 7 4 a 5 7 2 7 0 6 3 6 3 3 39:17 40 4 25:17 32 5 26:16 30 3 25:16 30 ð 21:20 30 6 28:20 27 6 19:17 25 6 23:25 25 5 23:18 23 8 23:19 23 7 14:12 23 8 21:27 23 7 17:22 22 7 23:29 22 10 23:26 21 8 25:29 21 8 21:28 21 8 24:25 18 9 12:19 18 6 16:24 17 10 17:24 15 12 12:27 13 • Þessi glæsilega mynd er frá viðureign West Ham og Everton fyrr í vetur. Hörkuskalli Alvin Martins er á leið í netið. Liðum þiessum gekk ekkert sérstaklega vel um helgina, Everton tapaði fyrir Arsenal og hefur hallað mikið undan fæti hjá Liverpool-liðinu fræga síðustu vikurnar. West Ham krækti þó í stig. ÍHfksc?' Rán á Anfield Leikmenn Liverpool geta að- eins sjálfum sér um kennt hvernig leikar fóru á laugardag- inn. Heimaliðið sótti látlaust í leiknum og fjöldi góðra færa leit dagsins ljós. Þeim var hins vegar öllum sóað bæði fyrir klaufaskap framherja Liverpool, heppni þeirra Southampton-manna, svo og stórgóða markvörslu South- ampton-markvarðarins. Á síð- ustu mínútu ieiksins gerðist það síðan, að Steve Moran geystist með knöttinn inn fyrir vörn Liv- erpool og á meðan varnarmenn liðsins boruðu í nefin og biðu eft- ir rangstöðuflautunni, lék Moran á Bruce Grobbelaar og skoraði örugglega. En dómarinn hafði ekkert við mark Morans að at- huga og leikmenn Liverpool sátu eftir með sárt ennið. Liverpool má heldur betur muna sinn fífil fegri, en eftir 15 leiki situr liðið niðri í miðri deild og virðist ekki líklegt til stórræðanna, að minnsta kosti ekki eins og málin ganga þessa dagana. • Cirel Regis skoraði sigurmark WBA gegn Sunderland. Topplið sigruðu Bæði Swansea og Ipswich unnu leiki sína á laugardaginn og fylgja Manchester Utd. því eins og skuggar. Ipswich lagði Man. City örugglega að velli í annars slökum leik og daufum. Ipswich lék án Franz Thijssen, sem á nú við þrálát meiðsli að stríða. Varamaður hans, Suður Afríkumaðurinn Mick D’Avery gerði sér hins vegar lítið fyrir og skoraði mjög glæsilegt mark, síðara mark Ipswich, eftir að John Wark hafði náð forystunni fyrir Ipswich úr vítaspyrnu nokkrum mínútum áður. Swansea fékk Birmingham í heimsókn og sigraði með eina marki leiksins. Markið var fal- legt, hörkuskalli Robbie James eftir hornspyrnu Leighton Jam- es (Robbie James aldeiiis ekki fótbrotinn eins og kom fram í síðdegisblaði í síðustu viku). Þessi ósigur setti Birmingham í fallsæti í fyrsta skiptið á þessu keppnistímabili. Meiðsl lykil- manna haf sett óvenjulega slæmt strik í reikninginn hjá Birmingham og slíkt kann auð- vitað ekki góðri lukku að stýra. Tottenham — klaufar Tottenham náði tvívegis for- ystunni gegn Notts County og lék talsvert betur. En það dugði ekki til, tvö gullin augnablik hjá leikmönnum County færðu lið- inu annað stigið. Garth Crookes skoraði bæði mörk Tottenham, á 7. og 58. mínútu. Ray O’Brien, írski landsliðsbakvörðurinn, skoraði glæsilega beint úr auka- spyrnu á 26. mínútu og jafnaði þá fyrra mark Crookes. Og það var svo á síðustu mínútu leiks- ins, að Brian Kilcline, hinn há- vaxni miðvörður County, hljóp fram í sóknina og skallaði knött- inn í netið. Aðrir leikir Nokkrir leikir voru fjörugir, til dæmis viðureign Leeds og West Ham. Leeds leiddi um tíma 3—1, en leikmenn West Ham gáfu sig ekki. Trevor Brooking þótti leika snilldarlega að þessu sinni og hann setti punktinn yfir i-ið með því að skora tvívegis, þ.á m. jöfnunarmark West Ham undir lok leiksins. Þriðja mark WH var sjálfsmark Pauls Hart, en þeir Arthur Graham, Kevin Hird og Trevor Cherry skoruðu mörk Leeds. Staðan í hálfleik var 1—0 fyrir Leeds. Aston Villa sýndi nokkra neista sem gerðu liðið að meist- ara á síðasta keppnistímabili, er Enska * 6?/ knatt- spyrnan liðið fékk Nottingham Forest í heimsókn og gersigraði gestina. Des Bremner, sem að öllu jöfnu skorar ekki nema einu sinni til tvisvar á ári, gerði sér dagamun að þessu sinni og skoraði tvíveg- is, á 6. og 38. mínútu leiksins. Colin Walsh minnkaði muninn með góðu marki á 51. mínútu, en iokaorðið átti Peter Withe, er hann skoraði þriðja mark Villa á 76. mínútu. Peter Shilton sýndi hvað eftir annað snilldartakta í marki Forest og hann bjargaði liði sinu frá enn háðulegra tapi. Arsenal vann sinn sjötta leik í röð og að þessu sinni var það Everton sem varð fyrir barðinu á liðinu. Varamaðurinn Brian McDermott skoraði sigurmark Arsenal með skalla á 55. mínútu. McDermott kom inn á fyrir John Devine, sem slasaðist. Ekkert gengur Sunderland í haginn og á laugardaginn mátti liðið þola enn einn ósigurinn. Leikurinn byrjaði þó gæfulega fyrir botnliðið, því Rob Hind- march náði forystunni fyrir Sunderland á 22. mínútu leiks- ins. Ally Brown jafnaði á 55. mínútu og tuttugu mínútum síð- ar skoraði Cirel Regis eftir slæm mistök í vörn heimaliðsins. Úlfarnir skríða hægt og bít- andi af mesta hættusvæðinu og liðið vann góðan sigur gegn Stoke á laugardaginn. Eric McManus lék sinn fyrsta leik fyrir Stoke og teikurinn var hon- um ekki til sannrar gleði, því hann átti sinn þátt í báðum mörkum Úlfanna. Hann felldi John Richards innan vftateigs á 22. mínútu og Geoff Palmer skoraði úr vítinu. Mike Matt- hews bætti síðara markinu við í síðari hálfleik. Coventry lék vel framan af gegn Boro og Mark Hately skor- aði gott mark á 9. mínútu. En svo fór kæruleysis að gæta hjá leikmönnum og Bill Woof náði að jafna á 67. mínútu, á nánast sama augnablikinu og þjálfarinn var að kalla til hans að það ætti að skipta honum út af. 2. deild: Blackburn 3 (Garner 2, Millar) — Norwich 0. Charlton 2 (Smith, Madden) — Barnsley 1 (Áylott). Cr. Palace 1 (Jones sj.m.) — Bolton 0. Derby 1 (Osgood) — Chelsea 1 (Walker) Grimsby 1 (Mitchell) — New- castle 1 (Wharton). Iæicester 4 (Lynes, Hebberd, Peake, Lineker) — Cambridge 1 (Christie). Luton 3 (White, Donaghy, Stein) — Rotherham 1 (Forrest). Orient 2 (Godfrey 2) — Shrews- bury 0. QPR 2 (Stainrod 2) — Cardiff 0. Sheffield Wed. 3 (Pearson, Bannister, Taylor) — Watford 1 (Armstrong). Wrexham 0 — Oldham 3 (Wylde 3).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.