Morgunblaðið - 01.12.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981 3 1
Þórarinn Helgason
rafverktaki Minning
Fæddur 18. desember 1929.
Dáinn 9. nóvember 1981.
„Eitt sinn skal hver deyja." Það
er staðreynd sem ekki verður um-
flúin hvort sem okkur líkar betur
eða verr, eða erum tilbúin að taka
á móti dauðanum eða ekki, og
þannig var mér innanbrjósts er
mér barst andlátsfregn bróður
míns, Þórarins Helgasonar, að
morgni 9. nóvember sl., en degin-
um áður hafði hann verið að koma
úr ferðalagi frá æskustöðvum sín-
um, ísafirði, og virtist hress og
kátur.
Doddi frændi dáinn, sagði yngri
sonur minn, og þar með besti
frændinn, og það var orð að sönnu.
Þórarinn Helgason fæddist á
ísafirði 18. desember 1929, eitt af
sjö börnum foreldra okkar, Sigríð-
ar Jónasdóttur og Helga Þor-
bergssonar.
Við systkinin ólumst upp í ást-
ríki foreldra okkar og umhyggju,
Póst- og símamála-
stofnun gefur út:
2 jólamerki
og merki í til-
efni kristni-
boðsársins
POST- og símamálastofnunin gaf
út ný frímerki hinn 24. nóvember
sl. Eru það annars vegar tvö jóla-
merki og hins vegar merki í tilefni
þess að í ár hefur verið minnst þús-
und ára kristniboðs á íslandi.
Jólamerkin eru tvö og kosta'5"
og 2,50 krónur og bera þau mynd
af laufabrauði, sem Þröstur
Magnússon teiknaði. Laufa-
brauðsgerð hefur verið mjög út-
breidd á Norður- og Norðaustur-
landi, en hefur nú borist víða um
land. Á síðari tímum hefur laufa-
brauðsgerð einkum miðast við
jólin, en fyrr á tímum var iðulega
skorið laufabrauð við aðrar
stórhátíðir ársins og brúðkaup,
segir m.a. í samantekt Pósts og
síma um útgáfuna.
Merkið um kristniboðsárið er
að verðgildi 2 krónur og hefur
Þröstur Magnússon einnig teikn-
að það. Er á því mynd af róðu-
krossi frá kirkjunni að Álftamýri
við Arnarfjörð. Er hann nú í
Þjóðminjasafninu og er talinn frá
miðöldum.
þrátt fyrir að oft þyrfti í þá daga
að leggja dag við nótt til að afla
heimili með stóran barnahóp
tekna, fundum við aldrei fyrir
öðru en þvi góða og það sat í fyrir-
rúmi og fyrir það ber að þakka.
Gestkvæmt var með afbrigðum
á þessu stóra heimili og er mér
óhætt að segja, að þar hafi for-
eldrar okkar verið samrýndir í að
veita af rausn háum sem lágum.
Það þarf því engan að undra
þótt Doddi, eins og við kölluðum
hann, hafi hlotið ýmsa góða kosti í
vöggugjöf.
Mér er sérlega ljúft að minnast
hans sem lítils snáða, trítlandi við
hlið stóru systur er við vorum að
sækja mjólk á morgnana niður á
kúabúið, en í fleiri sumur dvöldum
við í sumarhúsi er foreldrar okkar
áttu á Dagverðardal og þar held
ég að móðir okkar hafi átt sínar
betri stundir með börnum sínum í
kyrrð og ró sveitalífsins heldur en
á mölinni á ísafirði eins og það
var í þá daga.
Snemma gerðist Doddi skáti
eins og títt er með drengi, og fór
hann í mörg ferðalög og Jamb-
oreemót bæði utanlands sem inn-
an, og alltaf hafa þessir skáta-
strákar og vinir frá þessum árum
haldið sérlega vel hópinn þótt leið-
ir hafi skilið.
Eftir nám í gagnfræðaskólanum
fór hann í rafvirkjanám á ísafirði
og einnig fór hann til Ameríku til
frekari menntunar í þeirri grein.
3. nóvember 1956 giftist Doddi
eftirlifandi konu sinni, Þóru
Rannveigu Sigurðardóttur, hinni
mestu indælisstúlku, og í tilefni 25
ára hjúskaparafmælis voru þau
fyrir skömmu komin heim frá
London þar sem þau dvöldu um
tíma, bæði voru hress og glöð eftir
ferðalagið og engan grunaði að
sláttumaður væri á ferð.
Sönn vinátta hefur ávallt ríkt á
milli heimila okkar, allt frá sumr-
inu 1956 er bróðir minn kom í
fyrsta sinn með unnustu sína í
heimsókn til Akureyrar til að
kynna hana fyrir fjölskyldunni.
Síðan höfum við farið mörgum
sinnum saman í sumarleyfi utan-
lands sem innan, og aldrei borið
skugga á.
Síðasta ferð þeirra hjóna til Ak-
ureyrar var á hvítasunnu sl. vor er
Doddi var svaramaður Páls sonar
míns við giftingu þeirra Önnu
Margrétar og hans, og það þótti
okkur afar vænt um.
Börn þeirra hjóna eru þrjú,
mestu efnisbörn. Sigrún, elst,
starfar sem kennari, Sigurður, við
nám í Tækniskóla íslands, og
Helga Sigríður, sem er yngst, er
við nám í Verslunarskólanum, og
ekki má gleyma Óla, tengdasynin-
um, og litla barnabarninu, henni
Eddu.
Ég veit að það er mikill söknuð-
ur á heimilinu að missa svo snögg-
lega góðan eiginmann og föður, og
ég og mín fjölskylda biðjum þeim
blessunar í þeirra þungu sorg og
með þessum fátæklegu orðum vil
ég þakka bróður mínum allt það
sem hann var mér og mínum börn-
um, sérstaklega eftir fráfall
Kristjáns, og veit ég að hann mun
fá góða heimkomu, svo góður
drengur sem hann var. Þegar
þetta er ritað er óljóst hvort Jónas
bróðir okkar sem er búsettur í
Ameríku mun verða viðstaddur
útförina, en hann var hér sl. vor
fyrir réttum 7 mánuðum vegna
fráfalls móður okkar.
Far þú í friði
fridur guús þij; biessi
hafdu þökk fyrir allt og allt.
Ása Helgadóttir
P0LAR0ID 1000
SUPERCOLOR
Verð frá kr. 494 með filmu.
Ein mest selda
myndavél í heimi
Með öðrum myndavélum tekur þú bara
og tekur, en með POLAROID færðu
myndirnar á augabragði!
POLAROID er ekki aöeins hrókur alls
fagnaöar, því POLAROID býöur einnig
mikiö úrval fullkominna myndavela sem
einfalda verkefnin í atvinnulífinu.
POLAROID filmur og vélar færöu í flest-
um Ijósmyndavöruverslunum og mörgum
öörum verslunum um land allt.
Einkaumboö fyrir POLAROID:
LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178 REYKJAVÍK SÍMI85811
Fríða Á. Sigurðardóttir:
SÓLIN OG SKUGGINN
SKUGGSJÁ
Fyrsta bók Fríðu, smásagnasafniö
„Þetta er ekkert alvarlegt“, sem út kom
í fyrra, vakti almenna athygli og umtal
bókamanna. Sólin og skugginn er fyrsta
skáldsaga hennar og munu bókamenn
ekki síöur fagna útgáfu hennar. Sagan
er þrungin áhrifamagni, snertir og eggj-
ar og er rituö á óvenju fögru og auöugu
máli. Þetta er saga um frelsi og helsi
mannsins, lífsástina og dauöann, saga
af fólki, grímum þess, brynjum og vopn-
um, — hún er saga mín og þin. Sólin og
skugginn er bókmenntavióburóur.
BÓKABÚD OUVERS STEINS SE
JökullJakobsson: SKILABOÐ TIL SÖNDRU
SklLABOP
TIL SÖNDRU
s*
SKUGGSJÁ
Jökull Jakobsson haföi gengió frá hand-
riti þessarar bókar aóeins fáum mánuö-
um fyrir lát sitt. Sagan speglar alla
beztu eiginleika hans sem rithöfundar,
frásögnin er lipur og lifandi, stór-
skemmtileg og bráófyndin, en undir
nióri skynjar lesandinn alvöru lífsins,
vandamál samtímans.
Meinfyndnari og háðskari bók er ekki á
bókamarkaói i ár. Aðdáendur Jökuls
Jakobssonar eru svo sannarlega ekki
sviknir af þessari síöustu bók hans. Hún
leiftrar af frásagnargleói og fjöri.
BÓKABÚD OUVERS STEINS SE