Morgunblaðið - 01.12.1981, Side 27

Morgunblaðið - 01.12.1981, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981 35 „Menn og minningar“ Ný bók eftir Gylfa Gröndal SETBERG hefur sent frá bókina „Menn og minningar“ eftir Gylfa Gröndal. I fréttatilkynningu frá út- gefanda segir m.a.: „f bókinni lítur blaðamaður um öxl og bregður upp myndum af ógleymanlegum mönn um, sem hann hefur rætt við. Sagt er með aðstoð Árna Óla frá landfógeta- húsinu gamla, þar sem veitingahúsið Torfan er núna; það er sagan af vinnukonunni sem varð landfógeta- frú í fínasta húsi bæjarins, en var að lokum borin út úr því með valdi.“ Björn Stefánsson segir á skemmtilegan hátt frá ferðinni sem aldrei var farin, og birtir bréf frá Jónasi á Hriflu, en hann kem- ur reyndar víða við í þessari bók. Ragnar Pétursson rifjar upp minningar sínar að austan og seg- ir frá því hvernig þremenningarn- ir svokölluðu, Lúðvík Jósefsson, Bjarni Þórðarson og Jóhannes Stefánsson, fóru að því að ná öll- um völdum í Neskaupstað. Þá er ítarlegur þáttur um Magnús Magnússon, ritstjóra Storms, þar sem hann bregður upp heillandi svipmynd af Ólafi Thors — hinum hjartahlýja höfðingja. Kunnir listamenn koma fram, svo sem Ólafur Jóhann Sigurðs- son, Jökull Jakobsson, Helgi Sæ- mundsson og Jón Helgason, rit- stjóri, sem rekur all ítarlega ævi sína og störf, og mun það vera eina viðtalið sem til er við hann. Margir fleiri merkismenn segja frá, en bókinni lýkur á afar óvenjulegri frásögn Jóns Ólafs- sonar, hæstaréttarlögmanns um ótrúlegt skákævintýri Björns Kalmans — snillingsins, sem ekki gat gleymt skákum sínum. Bókin „Menn og minningar" er tæpar 200 blaðsíður og kostar 266 krónur. Prentberg hf. prentaði, en bókbandsvinnu annaðist Bókfell hf. Bridge Arnór Ragnarsson Bridgefélag Reykjavíkur Tíu umferðum er lokið í aðal- sveitakeppni BR en alls verða spilaðar 15 umferðir. Spilaðir eru tveir 16 spila leikir á kvöldi. Staðan: Sævar Þorbjörnsson 139 Jakob R. Möller 138 Egill Guðjohnsen 131 Sigurður B. Þorsteinsson 126 Aðalsteinn Jörgensen 117 Örn Arnþórsson 116 Karl Sigurhjartarson 115 Þórarinn Sigþórsson 108 Næst verður spilað á miðviku- daginn í Domus Medica og í fyrri umferðinni eigast við tvær efstu sveitirnar. Hjónaklúbburinn í Rvík Nýhafin er hraðsveitakeppni hjá klúbbnum með þátttöku 17 sveita og er staðan eftir fyrstu umferð þessi: Dóra Friðleifsdóttir 654 Svava Ásgeirsdóttir 647 Erla Sigurjónsdóttir 647 Dröfn Guðmundsdóttir 627 Jónína Halldórsdóttir 615 Kristín Þórðardóttir 605 Meðalskor 576. Tafl- og bridge- klúbburinn Fimmtudaginn 26. nóv. lauk Hraðsveitakeppni hjá félaginu. Sveit Páls Valdimarssonar sigr- aði að þessu sinni. Sveitina skipa: Páll Valdimarsson, Guðmundur P. Arnarson, Jón Baldursson, Óli M. Guðmundsson, Valur Sig- urðsson og Þórarinn Sigþórsson. Sveitir Páls og Gests höfðu nokkra yfirburði í keppninni. Lokastaða er þessi: Sveit Páls Valdimarssonar 1947 Sveit Gests Jónssonar 1922 Sveit Júlíusar Guðmundss. 1789 Sveit Hróðmars Sigurbjörnss. 1769 Sveit Auðuns Guðmundss. 1763 Sveit Sigurðar Steingrímss. 1761 Fimmtudaginn 3. des. hefst þriggja kvölda Butler-tvímenn- ingskeppni hjá TBK. Keppt verð- ur um vegleg peningaverðlaun. Þátttakendur tilkynni þátttöku sína hjá Auðuni Guðmundssyni í s. 19622 eða Sigfúsi Sigurhjart- arsyni s. 44988, eigi síðar en þriðjudaginn 1. des. Spilað er í Domus Medica. Spilarar mætið kl. 19.30 stundvíslega. Ármann Kr. Einarsson „Þorskastríð“ Ármanns Kr. í danskri þýðingu KOMIN er ú( á dönsku bók Ármanns Kr. Einarssonar „Goggur vinur minn — Saga úr þorskastríðinu" í þýðingu Þorsteins Stefánssonar skálds. Bókin heitir í dönsku útgáfunni „Torske- krigen". I bókinni eru allmargar ljós- myndir úr þorskastríðinu 1976, sem Landhelgisgæslan hefur lánað, einnig kápumynd bókarinnar, sem sýnir ásiglingu breskrar freigátu og íslensks varðskips. Á bókarkápu er getið meðal ann- ars þeirrar sérstöku viðurkenn- ingar, sem Ármann Kr. Einarsson hefur hlotið fyrir barna- og ungl- ingabækur sínar. Það er bókaforlagið BHB’s Ice- landic World Literature í Kaup- mannahöfn, sem gefur „Torskekrig- en“ út með styrk úr Norræna þýð- ingarsjóðnum. • 4 hjóla drif • Fjórsídrif • 4. syl. 86 ha. • Hátt og lágt drif. • 16“ felgur. • Þriggja dyra. • Lituð framrúða. • Hituö afturrúöa. • Hliöarlistar. • Vindskeið. Verö aöeins kr. 111.600 Bifreiðar & Landbúnaðarvéiar hi. SaðnrianMiaiil M - Rrykjavík - Simi 38600 Ævar R. Kvaran: UNDUR ÓFRESKRA 3. Síöan sögur hófust hafa lifaö frásagnir um fólk, sem öðlaðist þekkingu án aö- stoöar skynfæranna. Þessi óvenjulega bók hefur að geyma fjölda sagna af slíku fólki, dularfullar furöusögur, sem allar eru hver annarri ótrúlegri, en einnig allar vottfestar og sannar. Enginn islendingur hefur kynnt sér þessi mál jafn ítarlega og Ævar R. Kvar- an. Þessar óvenjulegu sögur bera því glöggt vitni hve víöa hann hefur leitað fanga og hve þekking hans á þessum málum er yfirgripsmikil. SKUGGSJA BÓKABÚD OL/VERS STE/HS SE Ruth Montgomery: ÓVÆNTIR GESTIR Á JÖRÐU SKUGGSJÁ Ruth Montgomery er vel kunn hér á landi af fyrri bókum sínum: „Framsýni og forspár“, „í leit aö sannleikanum“ og „Lífiö eftir dauöann“. Þessi bók hennar er óvenjulegust þeirra allra. Megin hluti hennar fjallar um þaó, sem höfundur- inn kýs aó kalla „skiptisálir“ og hlutverk þeirra. Tugþúsundir skiptisálna eru meöal okkar, háþróaóar verur, sem hafa tileinkaö sér Ijósa vitund um tilgang lífs- ins. Flestar þeirra starfa i kyrrþei mitt á meðal okkar og leitast við aó hjálpa okkur. Þetta fólk leitast vió aó þroska með okkur lífsskoóun, sem stuðlar aó kjarki og góðleika. BÓKABÚD OL/VERS STEINS SE

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.