Morgunblaðið - 01.12.1981, Side 30

Morgunblaðið - 01.12.1981, Side 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981 Aron Guðbrandsson forstjóri - Minning Fæddur 24. september 1905 Dáinn 21. nóvember 1981 Aðfaranótt iaugardagsins 21. nóvember sl. lést í Landspítalan- um Aron Guðbrandsson, forstjóri Kauphallarinnar, eftir stutta en erfiða legu. Við læknisrannsókn í ágústmánuði kom í ljós að hann var með alvarlegan blóðsjúkdóm sem, þrátt fyrir aðgerðir okkar færustu lækna, varð honum að aldurtila. Guðmundur Aron Guðbrands- son, eins og hann hét fullu nafni, fæddist á Eyrarbakka 24. sept- ember árið 1905. Var hann þvi rúmlega 76 ára gamali er hann lést. Hann var sonur hjónanna Guðlaugar Aronsdóttur og Guð- brands Guðbrandssonar, verka- manns. Guðlaug var talin gáfuð kona og skapmikil, en ekki allra. Líktist Aron móður sinni. A þeim árum, er Aron var að alast upp á Eyrarbakka, var þar mikið um að vera. Bændur á Suð- urlandi komu þangað vor og haust með afurðir sínar og keyptu sínar nauðsynjar. Þá var þar og mikil útgerð, á þess tíma mælikvarða. Höfðu Aron og jafnaldrar hans því nokkuð fjölbreytt atvinnulíf fyrir augum á sínum uppvaxtarár- um. Aroni þótti mjög vænt um æskustöðvar sínar og æskufélaga. Eins minntist hann alltaf dvalar sinnar á sumrum að Hrafnkels- stöðum í Hrunamannahreppi með mikilli ánægju. Þótti honum þar vera fyrirmynd sveitalífs. Eins og títt var um verkafólk í sjávarþorpum fyrst á þessari öld voru foreldrar Arons fátæk. Kom sér því vel þegar börnin gátu farið að hjálpa til. Snemma bar á spar- semi og ráðdeildarsemi hjá Aroni, einkenni sem hann bar alla sína æfi. M.a. var til þess tekið á Bakk- anum þegar hann, þá aðeins fimmtán ára, keypti kú til heimil- isins, því í þá daga voru þeir færri verkamennirnir, sem gátu lagt í slíka fjárfestingu. Ekki stóð hugur Arons til sjó- mennsku né búskapar. Því flutti hann átján ára gamall til Reykja- víkur og hóf nám í rakaraiðn hjá Eyjólfi rakarameistara Jóhanns- syni í Bankastræti 12. Vel líkaði Aroni vistin hjá Eyjólfi og að námi loknu vann hann áfram hjá honum. Hann varð fyrir því óláni að veikjast af berklum og fór til Ðanmerkur á heilsuhæli. Þar dvaldist hann í rúm tvö ár, 1931-1933. Þessi Danmerkurdvöl olli straumhvörfum í lífi Arons, því þar kynntist hann hámenntuðum manni, sem fræddi hann um fjár- mál og viðskipti. Það varð til þess að hann varði mestum hluta þess- arar dvalar til lestrar fræðibóka, aðallega hagfræði. Ari eftir heimkomu sína frá Danmörku, en þar hafði hann náð allgóðri heilsu, keypti hann hlut í ársgömlu fyrirtæki, Kauphöllinni, fyrstu verðbréfaversiun landsins. I nær tuttugu ár rak hann það fyrirtæki í félagi við Stefán Bjarnason, Jónssonar frá Galta- felli, eða þar til Stefán lést. 1. janúar 1953 varð Aron einkaeig- andi þess og rak til dauðadags. I ársbyrjun 1960 varð Aron einn af aðaieigendum og stjórnarfor- maður í Hótel Borg hf. Var hann það alla tíð síðan. Hér að framan hafa verið rakin helstu atriðin í lífshlaupi Arons. Þó er eftir að telja það, sem hann taldi vera sitt mesta gæfuspor á lífsleiðinni, en það var þegar hann, 24. september 1943, eignað- ist fyrir eiginkonu Ásrúnu Ein- arsdóttur, stórkaupmanns Guð- mundssonar. Aldrei gat Aron full- þakkað forsjóninni fyrir að færa sér slíka konu. Lét hann vini sína heyra það við hvert tækifæri, þótt það væri í sjálfu sér óþarfi, því við urðum vel vör við þá hamingju, er þau Ásrún og Aron færðu hvort öðru. Mér er það ljóst, að þessi orð, sem ég rita til minningar um Aron Guðbrandsson, ná ekki að lýsa þeim stórbrotna persónuleika, sem hann var og sem var ógleym- anlegur öllum, sem kynntust hon- um. Áhugamál hans voru ekki að- eins á fjármálasviðinu, heldur hafði hann einnig áhuga á fjöl- mörgum öðrum málum, eins og að nokkru hefur komið fram á opin- berum vettvangi. Skoðanir sínar setti Aron fram hreint og beint og umbúðalaust. Hann kom ávallt til dyranna eins og hann var klædd- ur, og hafði sínar eigin fastmót- uðu skoðanir á hlutunum. Segja má, að í sambandi við rekstur Kauphallarinnar í nær 50 ár hafi Aron verið fjárhaldsmaður ótal fjölskyldna. Hafði á hendi vörslu eigna þeirra og ráðlagði í fjármálum. Sumum þótti stundum nóg um forvitni hans og afskipta- semi, en sáu síðan að upplýsingar þær, sem hann sóttist eftir, voru honum nauðsynlegar til að geta ráðið heilt. Aroni fannst mikið til um það traust, sem fólk sýndi honum, með því að afhenda honum eigur sínar til varðveislu. Því trausti brást hann aldrei. Enda var það fyrsta heilræðið, sem hann gaf ungum mönnum, að bregðast aldrei trausti annarra, því ef það væri gert, lokuðust ótrúlega margar dyr, sem annars stæðu opnar. Eft- ir þessu heilræði lifði hann sjálf- ur, því orð hans stóðu eins og staf- ur á bók. Ein mesta ánægja Arons í viðskiptum sínum var að standa við bakið á ungum, efnilegum mönnum, sem voru að byrja með atvinnurekstur, þ.e.a.s. þegar hon- um leist á manninn og fyrirtækið. Það voru ótrúlega margir menn, sem nutu aðstoðar hans og ráð- legginga. Viðskiptavinir Arons voru úr öllum stéttum, úr öllum flokkum, ungir og gamlir. Flestir urðu nokkurskonar heimilisvinir, sem hann deildi með gleði og sorg. Og ófáir eru þeir, sem Aron hjálpaði með ráðum og dáð án þess að nokkur annar fengi um það að vita, hvað þá að önnur greiðsla en þakklæti kæmi fyrir. Það er því skarð fyrir skildi, þegar ekki er lengur hægt til hans að leita. Þegar nú er komið að kveðju- stund eru mörg fleiri atriði, sem vert væri að minnast á, t.d. skáldskap hans, sem hann flíkaði ekki. Þá var frásagnargáfa hans alveg sérstæð. Hann gat haldið ungum sem gömlum hugföngnum með frásögnum sínum. Kom þar og til frábært minni. Ég vil að lokum þakka Aroni af heilum hug alla hans miklu vin- áttu og tryggð sem hann sýndi mér og minni fjölskyldu. Vottum við Ásrúnu dýpstu samúð. Undan- farnir þrír mánuðir hafa verið henni mjög erfiðir, en þá var hún hjá manni sínum öllum stundum og tók þátt í hjúkrun hans. Aron vissi hvað hann sagði, er hann orti þessa vísu til hennar: Korsjónin i fjörur mínar fordum M ndi.þi^. Iljartad bædi og hendur þínar huf(sa best um mig. Halldór V. Sigurðsson Aron og kauphöllin voru svo samofin að aldrei var nafn annars nefnt án hins. Tvítugur að aldri með nýstofnað fyrirtæki átti ég mín fyrstu við- skipti við Aron. Þar var gengið hreint til verks, eins og ávallt er Aron átti í hlut. Þeir voru ófáir sem Aron veitti ráð og fyrirgreiða við upphaf ferils athafna og við- skipta í þessu landi. Aron var skáld peninganna. Kauphöllin var hans líf og starf. Kauphöllin var staður mann- legra samskipta þar sem hjartað sló í takt við þá starfsemi er þar fór fram. Aron var trúnaðar- og fjárhaldsmaður ótalins fjölda fólks, er lagði aleigu sína í hendur hans en því trausti brást hann aldrei. Hann gat endalaust brýnt fyrir fólki gagnsemi þess að peningun- um væri vel varið. Umgengni hans við peninga var eins og sáðmanns- ins sem fer varfærnum höndum um hið smæsta líf, er síðan verður stofn er gefur af sér ávöxt um ókomna tíð. Ótaldir eru þeir er nutu hjálp- semi hans við að eignast þak yfir höfuð sér. Fróðleikur hans um menn og málefni var einstakur enda var hann eftirsóttur fyrirles- ari. Málfar og framsögn einstak- lega skemmtilegt. Áron var íhaldsmaður í merkingunni að vilja viðhalda góðum dyggðum og siðum. Hann var sjálfmenntaður fésýslumaður, töluglöggur, með ómældan vilja, sívakandi yfir vel- ferð viðskiptamanna sinna. Eyrarbakki millistriðsáranna var sá tími, er mótaði skaphöfn Arons. Sjávarþorp við hafnlausa strönd þar sem skipskaðar voru tíðari en annars staðar. Þar óx list og menning sem hver Evrópuborg gat verið stolt af. Verzlun og viðskipti voru mikil. í miðri hring- iðu þessara viðskipta kynntist Ar- on mörgu fólki er hafði varanleg áhrif á feril hans. Dugnaður þessa fólks við að skapa sér framtíð var takmarkalaus. Þess má geta að þegar togaraút- gerð stóð hér með sem mestum blóma, var helmingur skipstjór- anna ættaður frá Eyrarbakka eða úr Árnessýslu. „Orð skulu standa," segir í ágætri bók. Ef hægt er að heim- færa siík orð yfir á ævistarf ein- hvers manns, þá tel ég Aron þar fremstan. Allt hans líf var mótað þeirri vissu að við orð skyldi stað- ið. Eftirlifandi eiginkonu, Ásrúnu Einarsdóttur, votta ég innilegustu samúð. Þórir Jónsson + Eiginmaöur minn, ALFREÐ CLAUSEN, lést aö heimili sínu 26. nóvember. Hulda Stefánsdóttir Clausen. + Systir okkar, ÞÓRUNN SIGURGEIRSDÓTTIR, kaupkona, Austurbrún 2, er lá,in Katrín B. Sigurgeirsdóttir, Þórarinn Sigurgeirsson, Ingibjörg Sigurgeirsdóttir, Kristján Sigurgeirsson. t Eiginmaður minn, EINAR ÁSMUNDSSON, forstjóri, Háuhlíö 20, andaöist aöfaranótt laugardagsins 28. nóvember. Jakobína H. Þórðardóttir. + Maöurinn minn og faöir, ÍSLEIFUR VIGFÚSSON, Grettisgötu 56b, lést í Borgarspítalanum 29. nóvember. Fyrir hönd vandamanna, Sigriöur Siguröardóttir, Siguröur A. isleifsson. + Móöir okkar, fósturmóöir, tengdamóöir og amma, JOHANNA LOVÍSA JÓNSDÓTTIR, Sólvallagötu 36, lést i Landakotsspítala 30. nóvember. Kolbrún Guömundsdóttir, Viggó M. Sigurösson, Auöur Guömundsdóttir, Þuríöur Guðmundsdóttír, Henning Jensen, Guðmundur Björnsson, Ósk Hilmarsdóttir og barnabörn. + Faöir minn, tengdafaöir okkar, afi og langafi, INGI HALLDORSSON, bakarameistari, lést á sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 28. nóvember. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna, Anna Ingadóttir, Ólafur Sverrisson, Gunnmar Nielsen, barnabörn og barnabarnabörn. + Minningarathöfn um eiginkonu mína og móöur okkar, SIGURJÓNUÓLAFSDÓTTUR frá Göróum í Vestmannaeyjum, er lézt aöfaranótt þriðjudagsins 24. nóvember sl. fer fram í Foss- vogskirkju þriöjudaginn 1. desember og hefst kl. 15. Jarösett verður frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 5. desember kl. 14.00. Björn Guömundsson, Kristin Björnsdóttir, Aslaug Björnsdóttir, Guömundur Björnsson. + Konan min, móöir okkar, tengdamóöir og amma, GUÐFINNA GÍSLADOTTIR, andaöist 30 nóvember Guömundur Jakobsson, Arnar Guómundsson, Sólveig Kristjánsdóttir, Valgerður Bára Guömundsdóttir, Jón Oddsson, Theódór Guómundsson, Halldóra Guðmundsdóttir, Soffia Guömundsdóttir, Ásgeir Eliasson, Gíslína Guörnundsdóttir, og barnabörn. Aron Guðbrandsson forstjóri lézt í Reykjavík, laugardaginn 21. nóvember. Aron var kominn á efri ár, þegar hann féll frá. Hann varð 76 ára gamall. Aron var fyrir löngu orðinn þjóðkunnur fyrir margvísleg störf. Hann var kenndur við fyrirtæki sitt og oftast kallaður Aron í Kauphöllinni. Ég kynntist Aroni fyrir tveimur áratugum, en hafði áður heyrt hans getið sem duglegs kaupsýslu- manns, sem þekktur var fyrir rekstur á fyrirtæki sínu. Sérstak- lega var reglusemi hans við brugð- ið. Aron hafði margar hliðar og honum var margt til lista lagt. Þetta kom vel fram, þegar Aron átti frístundir og gladdist með vinum sínum. Þá var Aron hrókur alls fagnaðar. Hann sagði frá mönnum og málefnum, svo að un- un var á að hlýða. Hann var fróð- ur um liðna tíð. Alla frásögn sína klæddi hann skáldlegum búningi og varð hún með þessum hætti sem lifandi af vörum hans. Það hljómar undarlega í margra eyrum, sem þekktu fyrst og fremst kaupsýslumanninn Aron Guð- brandsson, þegar fullyrt er, að Ar- on hafi verið þó nokkurt skáld. Kvæði ort af Aroni eru vel fram- bærileg og betri en margt sem birt er í þeim efnum. Það var einmitt þessi skáldgáfa og sanna frásagnarlist, sem gerði Aron svo einstakan. Hann sagði viðskiptavinum Kauphallarinnar oft stuttar sögur. Hann mætti á fundum félaga eða á samkomum þeirra og hélt snjallar ræður. Þá náði Aron svo athygli manna, að heyra mátti saumnál detta. Var þetta maðurinn sem kom til Reykjavíkur og lærði iðn sem rak- ari? Var þetta sami maðurinn sem missti heilsuna og hélt til Dan- merkur sér til lækninga? Þessari spurningu verður að svara neit- andi. Þetta var annar og nýr mað-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.