Morgunblaðið - 01.12.1981, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981
41
De Niro
leikur Tito
+ Bandaríski leikarinn Robert De Niro mun fara með
hlutverk Josip Broz Titos Júgóslavíuforseta í kvik-
mynd sem á að gera um forsetann látna, að því er
fregnir herma i Belgrad. Segir að Bandaríkjamaður-
inn Brad Dexter, sem er af júgóslavneskum ættum,
muni framleiða myndina, sem verði mestan part
byggð á bók um Tito sem Fitzroy nokkur McLean
skrifaði um manninn. McLean þessi var persónulegur
vinur Titos, og var fyrir hersveit Breta, sem barðist
með skæruliðum Titos í seinni heimsstyrjöldinni.
McLean sagði í samtali við júgóslavneskt tímarit, að
myndin byrjaði í bænum Kumrovec, þar sem Tito
fæddist og endaði í kringum 1960. Og það er semsé
Robert De Niro, Óskarsverðlaunahafi, sem mun fara
með hlutverk Titos — en í júgóslavneskri kvikmynd
um Tito í seinna stríði var það Richard Burton sem
lék Júgóslavíuforseta ...
Tito í stríðinu — þeir sem sáu De Niro í verðlaunamynd-
inni The Deer Hunter minnast hans í svipuðum bún-
ingi...
Kekkonen í faðmi fjölskyldunnar.
Kekkonen stjórnaði
aftöku „rauðliða“
+ llhro Kekkonen, Finnlandsforseti í mörg ár, sem nú
hefur sagt af sér embætti sökum heilsubrests, sendi
nýverið frá sér fyrsta bindi endurminninga sinna. l>ar
er meðal annars minnst á aftöku rauðliða sem Kekkon-
en „stjórnaði“ vorið 1918 í bænum Hamina.
Kekkonen var í hersveit sem var skipað að hand-
taka 10 menn í bænum Hamina og reka þá skammt
út fyrir bæinn, þar sem átti að aflífa þá. Kekkonen
skildist þá, að þessir menn væru teknir af lífi ein-
ungis vegna þess, að þeir studdu þá „rauðu“. Foringi
hersveitarinnar skipaði hinum 17 ára Kekkonen að
stjórna aftökunni. „Miðið ... skjótið,“ eru orðin sem
Kekkonen minnir hann hafi notað. „Ég var svo
taugaóstyrkur," segir hann, „að ég vissi varla hvort
ég hélt á riffli eða ekki.“ Þessi minning hefur lifað
með honum æ siðan, og segir svo í endurminningun-
um: „Þessi dagur í Hamina er undirrót ýmissa stað-
hæfinga sem ég seinna gaf og voru sumar hverjar
býsna vinstrisinnaðar í augum fólks."
Barry Manilow hefur
selt 40 millj. plötur
+ Barry Manilow, popp-
söngvari, hefur ekki hlotið
náð fyrir augum gagnrýn-
enda, en hann hefur nú
samt selt 40 milljónir ein-
taka af hljómplötum sínum
síðustu tíu árin, og kveðst
vera hjartans sama, hvað
gagnrýnendur segja.
„Þessir gagnrýnendur
fullyrða að ég sé gersam-
lega hæfileikalaus og líkja
tónlist minni við hamborg-
ara! A einkunnaskala fæ
ég einkunnina 0. Þetta allt
saman hefur verið hálf-
leiðinlegt fyrir mig, en nú
orðið stendur mér sem
sagt hjartanlega á sama.
Fólkið kaupir verk mín
og það er mér meira en
nóg. En fyrst almenningur
kann að meta það sem ég
er að gera, segja gagnrýn-
endur, að fólkið hafi slæm-
an smekk. Það er gáfulegt
eða hitt þó heldur, segir
Barry Manilow. Hann er
nú orðinn 35 ára gamall og
býr í Los Angeles með
vinkonu sinni, Lindu.
Hann vill dvelja sem mest
á heimili sínu og segir að
vinkonan Linda standi
fyrir „öryggi, raunveru-
leikann og heimili" ...
fclk í
fréttum
Mitterand
heilsutæpur?
+ Mitterand, Frakklandsforseti, er hálfsjö-
tugur orðinn og þegar menn komast á þann
aldur fer ýmislegt að bila í skrokknum. Með-
an á prentaraverkfallinu hér á íslandi stóð
fór Mitterand í mikla rannsókn á Val De
Grace herspítalanum í París. Tvö blöð stjórn-
arandstöðunnar í Frakklandi birtu þá fréttir
um slæma heilsu forsetans og bættu við, að
það væri alls ekki ætlunin að nota „ósannan
orðróm til að koma höggi á forsetann“, en
engu að síður væri það „skylda þeirra að
grein frá þessum orðrómi sem gengi nú
manna á milli í Frakklandi“. Segja blöðin að
Mitterand hafi síðustu sjö árin verið í með-
ferð hjá þekktum krabbameinslækni og með-
al annars legið á viðurkenndasta krabba-
meinsspítala Frakka, og að eftir að Mitter-
and hafi verið kjörinn forseti hafi öll skjöl
varðandi heilsu hans verið fjarlægð úr því
sjúkrahúsi. Mitterand hefur sjálfur ítrekað
neitað því, að eiga við alvarlega sjúkdóma að
stríða, en fréttaskýrendur segja það háttu
Frakka að þegja um heilsufar forseta sinna
og benda á Pompidou. Hann lést í embætti
sínu árið 1974 eftir langt stríð við alvarlegan
sjúkdóm, en öllum sögnum um sjúkleika hans
var ævinlega vísað á bug, þar til daginn sem
hann lést. Frönsku blöðin tvö sögðu að leyni-
leg koma Mitterands á Val De Grace spítal-
ann í nóvember, hafi ekki verið regluleg skoð-
un og vitnuðu í ótilgreinda sjónarvotta sem
sögðu að litaraft forsetans hafi verið „sítr-
ónu gult“ og hann hafi átt erfitt með gang.
Þá skýra blöðin frá því, að starfsfólki sjúkra-
hússins hafi verið skipað að „gleyma öllu sem
hafði skeð“ varðandi þessa komu forsetans.
Frönsk stjórnvöld segja ekkert hæft í þessu
og að skýrsla un; heilsufar forsetans verði
birt opinberlega einhvern tímann í desem-
bermánuði ...
& MORALITY
by
Orchestral
Manœuvres
InTheDark
^KARNABÆR
laugavegi 66 — Giæsib* — Auslurstrsli ??
Sim. Ira skipt.boröi 85055
sfcdAorhf
Hljómsveit OMD er þekktust hér á landi fyrir lagiö Enola Day sem út kom í
fyrra og hafa þeir sent frá sér þriðju plötu sína, „Architecture and Morality" og
hefur þessi plata aö geyma lögin Souvenir og Joan of Arc. Vinsældir
þessara laga og viröing sú sem OMD nýtur um allan heim ætti aö vera þeim
nægileg hvatning til aö tryggja sér eintak.