Morgunblaðið - 03.12.1981, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981
3
Arnarflug:
Tvær Boeing 707-þotur
í ár til viðbótar í Líbýu
Karl Friðrik Kristjánsson afhendir Sigmund Jóhannssyni heidursskjal ásamt
25.000 kr. heiðursverðlaunum frá Verðlaunasjóði iðnaðarins.
Verðlaunasjóður iðnaðarins:
Sigmund Jóhannssyni
veitt heiðursverðlaun
VERÐLAUNASJÓÐUR iðnaðarins
hefur veitt Sigmund Jóhannssyni,
teiknara og uppfindingamanni, í Vest-
mannaeyjura viðurkenningu ásamt
heiðursverðlaunum að upphæð 25.000
kr. fyrir ýmsar hagnýtar uppfindingar,
er Sigmund hefur gert. Karl Friðrik
Kristjánsson, formaður stjórnar sjóðs-
ins, afhenti Sigmund heiðursskjal
ásamt heiðursverðlaununum, að við-
stöddum forseta fslands, Vigdísi
Finnbogadóttur, stjórn sjóðsins og
fjölda gesta í kaffistofu Iðnaðarbank-
ans í gær.
Sigmund er fæddur 22. apríl 1931 í
Noregi. Foreldrar hans eru Jóhann
Daníel Baldvinsson vélstjóri og kona
hans, Cora Sofis Poulsen. Á þriðja
ári fluttist Sigmund með foreldrum
sínum til íslands. Hann fór á vél-
stjóranámskeið á ísafirði, en kvænt-
ist svo til Vestmannaeyja, Helgu
Olafsdóttur. Þar vann hann lengi
sem verkstjóri í frystihúsum en síð-
astliðin 20 ár hefur hann unnið
sjálfstætt við teikningar og uppfind-
ingar.
I ávarpi sem Karl Friðrik Krist-
jánsson flutti við þetta tækifæri
fyrir hönd Verðlaunasjóðs iðnaðar-
ins sagði hann, að tilgangur sjóðsins
væri að örva til dáða á sviði iðnað-
armála og jafnframt að vekja at-
hygli á þeim afrekum, sem unnin
hafa verið á þessu sviði. Þessum til-
gangi væri leitast við að ná m.a. með
því að veita verðlaun, helzt árlega,
manni eða fyrirtæki, er unnið hefði
eitthvað í þágu íslenzks iðnaðar, er
verðlaunavert þætti að dómi sjóðs-
stjórnar. Væri þetta í fimmta skipti
sem verðlaun væru veitt úr sjóðnum.
Heiðursverðlaunin sagði Karl að
Sigmund hefði fyrst og fremst hlotið
fyrir þrennt, þ.e. ýmsar uppfind-
ingar sem hagnýttar hefðu verið í
þágu atvinnulífs landsmanna, örygg-
isbúnað fyrir línu- og netaspil, og
fyrir sjósetningar og losunarbúnað
fyrir gúmmíbjörgunarbáta.
Fundur rík-
is og BSRB
á morgun
SAMNINGANEFNDIR ríkisins og
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
hittast á fundi í húsi BSRB við Grett-
isgötu klukkan 10 í fyrramálið.
Verður þetta annar fundur aðila
um kjarasamninga opinberra
starfsmanna, en á fyrsta fundinum
fyrir 10 dögum lagði BSRB fram
kröfugerð sína. Lögum samkvæmt á
meðferð kjaradeilu ríkisins og BSRB
að flytjast sjálfkrafa til sáttasemj-
ara tveimur mánuðum eftir uppsögn
samninga, þ.e. 1. desember í þessu
tilviki. Meðan deiluaðilar ræðast við
telur sáttasemjari hins vegar
ástæðulaust að viðræður fari fram
undir hans stjórn. Sáttasemjari
fylgist hins vegar með framvindu
mála.
Stjórn Verðlaunasjóðs iðnaðarins
skipa: Frá Últímu hf. Karl Friðrik
Kristjánsson, frá Félagi ísl. iðnrek-
enda Davíð Sch. Thorsteinsson, frá
Iðnaðarbanka Islands Haukur Egg-
ertsson og frá Landssambandi iðn-
aðarmanna Sigurður Kristinsson.
SAMNINGAR Arnarnugs
við flugfélagið Libyan Arab
Airlines um leigu á tveimur
vöruflugvélum hafa nýlega
verið framlengdir um eitt ár.
Gildir samningurinn fyrir
aðra vélina til 20. marz 1983
og hinn til 4. júlí 1983.
Vélarnar eru báðar af gerðinni
Boeing 707-320C og bera skrán-
ingarstafina TF VLJ og TF VLL.
Þær geta flutt rúmlega 40 tonn af
vörum í ferð og er aðallega um að
ræða kjötflutninga frá írlandi og
Tyrklandi til Líbýu og áætlunar-
vöruflug frá ýmsum borgum Evr-
ópu, þar á meðal London, París,
Róm og Frankfurt.
Við þetta verkefni starfa að
meðaltali 15—20 íslendingar,
flugmenn, flugvélstjórar og um-
sjónarmenn á jörðu niðri.
Stefán Halldórsson hjá Arnar-
flugi sagði, að fyrir félagið væru
þessir samningar mjög mikils
virði. Það hefði ekki fyrr verið
með svo langa samninga í einu,
þ.e. tvo eins árs samninga, sem nú
hafa verið endurnýjaðir til eins
árs til viðbótar. — „Það gerir alla
áætlanagerð fyrirtækisins örugg-
ari og reksturinn verður mun
ÖNNUR tveggja Fokker
Friendship-skrúfuþota Flug-
leiða, sem er í leigu í Líbýu,
skemmdist nokkuð í lend-
ingu í innanlandsflugi í Lí-
býu í fyrradag.
Þegar vélin kom inn til lend-
ingar gaf nefhjólið sig, að sögn
markvissari," sagði Stefán Hall-
dórsson.
Auk þessara tveggja Boeing-véla
er Arnarflug með Boeing 720-far-
þegaþotu í rekstri og fjórar minni
vélar, sem notaðar eru í innan-
landsflugi félagsins.
Sveins Sæmundssonar, blaðafull-
trúa Flugleiða, en hins vegar urðu
engin slys á áhöfn eða farþegum.
Sveinn Sæmundsson sagði, að
ekki væri fullljóst hversu miklar
skemmdir hefðu orðið á vélinni, en
væntanlega yrði framkvæmd
bráðabirgðaviðgerð á henni, og
síðan flogið til Trípóli í Líbýu, eða
til Kýpur til fullnaðarviðgerðar.
jólagjafirnar frá
eimilistæki hf
Hárblásarasett
frá Philips
er 700 W, meö fj&rum fylgihlutum.
Fáanlegt í þremur geröum.
Sunbeam -raf magnsponn ur
meö hitastilli, og meö og án
teflonhúöar. AuÖveldar í notkun
og ódýrar í rekstri
Þú berö matinnfram í Sunbeam
rafmagnspönnu og prýöir meö
þv't boröiö og sparar uppþvottinn.
Dömurakvél
frá Philips
er tilvalin jólagjðf.
Hún er létt og þœgileg og í
faUegum gjafaumbúöum.
Fæst fyiir 220 og 210 V straum
og einnig fyrir rafhlfíöur.
ár
Dósahnífar frá
Philips
opna dósir af öllum
__ stæröum og geröum,
áfljótlegan og auöveldan hátt
DÓ8ahn\fana máfesta á vegg.
Straujárn frá Philips
eru afar létt og meöfærilcg.
Þau eru meö opnu haldi, hitastiUi
og langri gormasnúru.
Brauðristir frá Philips
eru meö H mismunandi stiUingum,
eftir þvi hvort þú viU hafa
brauöiö mikiö eöa lítiö ristaö.
ómissandi viö morgunveröar-
boröiö. -
Rafmagnsrakvélar
frá Philips
Þessi rafmaffnsrakvél
er tilvalinn fulltrúi
fyrir hinar velþekktu
Philips rakvélar.
Hún er þriggja kamba mei
bartskera og stiUanlegum
kömbum. Hún er nett og fer vel
i hendi. Kynnib ykkur abrar
gerbir Philips rafmaffnsrakvéla.
Útvarpstæki
frá Philips
fyrir rafhlödur, 220 volt eða
hvort tveggja. Úrvalid
er mikid, allt frá einföldum
vasataekjum til fullkomnustu
stofutœkja.
Ryksuga frá Philips.
Lipur, þróttmikil Philips gaöa-
ryksuga með 850W mólor,
sjálfvirkri snúruvindu og 36CP
snúningshaus.
Kassettutæki
frá Philips
bœbi fyrir rafhlöbur oy straum.
Fáanleg i tveimur litum.
Innbyggöur hljóbnomi
60 min. kassetta fylgir tækinu.
Kaffivélar frá Philips
hella upp á 2-12 bolla
I einu og halda kaffinu
heitu. Þœrfást
í nokkrum gerðum,
sem allar eiga það
sameiginlegt að lag,
úrvals kaffi.
Teinagrill frá
Philips býöur
upp á skemmtilega
nýjung í matargerÖ.
Átta teinar /
snúast /
um element,
sem grillar
matinn fljótt og
vel GriUiö er auövelt i hreinsun
og fer vel á matboröi.
Hitabursti
frá Philips
laufléttur og þtegilegur
í notkun, með þremur
hitastillingum.
Grillofnar frá Philips gem
hversdagsmatinn að veislumat.
t þeim er einnig hœgt að baka.
Þeir eru sjálfhreinsandi
og fyrirferðarlitlir.
Hárblásarar
frá Philips
fyrir alla fjölskylduna.
Jólagjöf sem aUtaf er i gildi
L Ilandþeytarar
k frá Philips
með og án stands.
Þriggja og fimm hraða.
Afar handhœgt og
fyrirferðarlítið eldhústæki
Þeytir, hrcerir og hnoðar.
Veggfest ingarfylgja.
Sam-
byggt
útvarps og kassettu-
tæki frá Philips.
Möguleiki á stereoupptöku beint
eða með hljóðnema. Fullkomið
útvarp með FM, stutt og mið bylgju.
(Jtvarpsklukkur frá Philips
Morgunhanannfrá Philips þekkja
flestir. Hann er bæöi útvarp og
vekjaraklukka f einu tœki
. Hann getur bœöi vakiö þig á
morgnana meÖ léttri hringingu og
músik og síöan svæfl þig meÖ
útvarpinu á kvöldin.
Morgunhaninn er faUegt tœki og
gengur auk þess alveg hljóölaust.
» Philips
solariumlampinn
til heimilisnota.
Fyrirferðalítill og þtegilegur
i notkun.
heimilistæki hf
Hafnarstræti 3 — 20455 Sætúni 8 — 15655-
Önnur Fokkervél
Flugleiða í Líbýu
skemmist í lendingu