Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAOUR 3. DESEMBER 1981 t Faðir okkar, tengdafaöir og afi, GEORG KARLSSON, Austurbyggö 12, Akureyri, lézt 24. nóvember sl. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Þökkum auösýnda samúö. Sverrir Georgsson, Soffia Georgsdóttir, Tryggvi Georgsson, Guömundur Georgsson, Guórún Georgsdóttir, tengdabörn og barnabörn. + Bróöir okkar og mágur, SIGURÐUR EIRfKSSON frá Löngumýri, Laugalæk 17, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju i dag, fimmtudag 3. des- ember, kl. 13.30. Ágúst Eiríksson, Emma Guðnadóttir, Elín Eiríksdóttir, Eiríkur Guónason, Solveig Hjörvar, Páll Eiríksson, Svanfríóur Gísladóttir, Ingigeröur Eiríksdóttir, Jón Ingvarsson, Baldvin Árnason, Þuríður Bjarnadóttir. t Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU VIGDÍSAR SÆMUNDSDÓTTUR,' Barónsstíg 21, veröur gerö frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 4. desember kl. 3 e.h. Blóm afþökkuö, en þeir, sem vildu minnast hennar, láti vinsamleg- ast líknarstofnanir njóta þess. Sigrióur Th. Erlendsdóttir, Hjalti Geir Kristjónsson, Guöríöur Ó. Erlendsdóttir, Gísli Guómundsson, Guörún Erlendsdóttir, Örn Clausen og barnabörn. t Minningarathöfn um FRÚ HALLDÓRU BJARNADÓTTUR fer fram í Baöstofu héraöshælisins á Blönduósi föstudaginn 4. desember kl. 13.00. Útförin veröur gerö frá Akureyrarkirkju laugardaginn 5. desember kl. 13.30. Samkvæmt ósk hinnar látnu eru blóm og kransar afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hennar, er bent á aö láta Halldórustofu á Heimilisiönaöarsafninu á Blönduósi njóta þess. Gjöfum er veitt móttaka á Héraöshælinu á Blönduósi og i Prent- verki Odds Björnssonar, Akureyri. Vinir og vandamenn. t Hjartkær eiginkona mín, móöir okkar og tengdamóðir, LjLJA KRISTJÁNSDÓTTIR, Álfaskeiöi 64, Hafnarfiröi, sem andaöist 29. nóvember, veröur jarösungin frá Hafnarfjaröar- kirkju föstudaginn 4. desember kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Ágúst Jóhannsson, Sigurlín Ágústsdóttir, Guómundur A. Guömundsson, Aöalbjörg Ágústsdóttir, Árni Jónasson, Bjarni Ágústsson, Sóley Brynjólfsdóttir, Kristján Ágústsson, Sigrún Guómundsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir. t Hjartkær móöir okkar, tengdamóöir, amma og vinur, KRISTÍN EYJÓLFSDÓTTIR, Noröurbraut 23, Hafnarfirði, veröur jarösungin frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi föstudaginn 4. desember kl. 15.00. Ingveldur Húbertsdóttir, Jóhannes Magnússon, Sigursteinn Húbertsson, Anna Pálsdóttir, Ágúst Húbertsson, Hrafnhildur Þórarinsdóttir, Svavar Þórhallsson, Sígríöur Arnórsdóttir, Eiríkur Hávarösson og barnabörn. t Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, GUÐRÍÐAR GUNNL AUGSDÓTTUR, Sunnuhvoli, Hveragerói. Hulda Ragnarsdóttir, Stefán S. Sigurjónsson, Engílbert Eggertsson, Þórunn Böövarsdóttir, Guðrún B. Eggertsdóttir, Tryggvi Kristjánsson, Jón H. Eggertsson, Inga Dóra Jóhannesdóttir og barnabörn. Minning: Álfhildur Runólfs- dóttir frá Kornsá Fædd 21. maí 1915 Dáin 21.nóvember 1981 Þegar ég fékk þá sorgarfregn aö vinkona mín Álfhildur Runólfs- dóttir væri dáin, fékk þaö mikið á mig. Hún andaðist á heimili sínu laugardaginn 21. nóvember. Álf- hildur var ættuð frá Kornsá í Vatnsdal, einu mesta myndar- og menningarheimili í Austur- Húnavatnssýslu, dóttir merkis- hjónanna Runólfs Björnssonar og Ölmu Jóhannsdóttur Möller. Þar ólst hún upp í stórum systkinahóp. Ég heyrði mikið talað um glæsi- leik þessara systkina, og aldrei gleymdi ég þegar ég sá Alfhildi í fyrsta sinn. Þá vorum við báðar ungar, það geislaði af henni æsku- fegurðin, persónuleikinn og glæsi- leg var hún, satt var það. Þá myndaðist að ég held vináttuþráð- ur á milli okkar, sem alltaf varð sterkari eftir því sem árin liðu. Álfhildur var mjög vel gefin, dugleg og allt lék í höndum henn- ar, sérstaklega matreiðsla. Hún hafði yndi af að gefa og gleðja vini og var mikill veitandi. Aðal at- vinna hennar var matargerð með- an heilsan leyfði. Ég held að eng- inn gleymi þeim mat, sem hún bjó til, hann var svo góður og smekk- legur, ég held hún hafi haft sitt sérstaka bragð, sem ég hefi aldrei fundið betra hjá neinum öðrum, og ekki má gleyma kökunum, sér- staklega smákökunum svo falleg- um og góðum. Álfhildur var í mörg ár ráðskona hjá fyrrverandi forsetahjónum okkar, Ásgeiri Ásgeirssyni og frú Dóru. Veit ég frá fyrstu hendi að þeim líkaði sérstaklega vel við hana og þótti vænt um hana. Til marks um það traust, sem þau merkishjón höfðu á Áifhildi, þá veit ég að hún Dóra tók hana með sér þegar þau voru boðin til útlanda. Þá var Álfhildur hennar aðstoðarstúlka, skautaði frúnni og hjálpaði henni með ann- an búnað. Éinnig man ég að eftir að Álfhildur hætti á Bessastöðum, vegna lasleika, þá kom Friðrik Danakonungur í heimsókn. Bað þá forsetinn Álfhildi, sem þá var stödd á Seyðisfirði, að koma og sjá um veisluhöld á Bessastöðum. Það má næstum segja að Álf- hildur blessuð hafi átt við heilsu- leysi að stríða frá því hún var ung stúlka, en þó sérstaklega síðustu árin. Alltaf fór hún samt til vinnu ef hún aðeins gat komist á fætur. Dugnaðurinn og harkan við sjálfa sig var takmarkalaus. Oft þegar ég sagði við hana að nú gæti hún alls ekki farið í vinnuna, hún væri svo lasin, þá var alltaf sama svar- ið: „Jú, jú, ætli ég reyni ekki að fara, ég vil reyna að vinna meðan ég lifi,“ og það fékk hún líka. 2. nóv. 1957 giftist Álfhildur Páli Einarssyni. Því miður stóð það hjónaband stutt. Hann varð bráðkvaddur á nýársdag 1958. Páll var maðurinn í lífi Álfhildar og ég held að hún hafi aldrei fullkom- lega komist yfir þá miklu sorg að þurfa að sjá á bak honum. Álfhild- ur var trygglynd og vinaföst og bar ekki erfiðleika sína á torg, bætti heldur á sig annarra áhyggjum. Ég votta systkinum og vinum einlæga samúð mína. Skarðið eftir hana verður vandfyllt. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt.“ Árdís Pálsdóttir Á föátudagskvöld þann 21. nóv. sl., átti ég langt og ánægjulegt samtal við Öllu systur mína. Alla var hún alltaf kölluð af þeim, sem þekktu hana. Hún var glöð og létt í lund og horfði björtum augum til framtíðarinnar. Á mánudaginn var svo helfregn- in flutt. Alla var dáin. Alla var elst af okkur systkin- unum frá Kornsá í A-Húnavatns- sýslu. Við vorum 7 talsins alsyst- kinin og auk þess tvær hálfsystur, en nú erum við aðeins 3 á lífi. For- eldrar okkar voru hjónin Runólfur Björnsson og Alma Jóhannsdóttir Möller. Alla var 9 ára þegar ég fæddist og það var hennar hlutskipti að annast um mig. Milli okkar urðu alla tíð óvenjulega traust systra- bönd. Eiginlega var Alla mér á margan hátt bæði móðir og systir, og oft fann ég það hve mjög hún bar minn hag fyrir brjósti á allan hátt. Margs konar mótlæti mætti Aila á sinni ævileið. Árið 1947 fór hún til Kaupmannahafnar til að læra þar matreiðslu. Þar veiktist hún af berklum en tókst eftir langvinnt stríð að yfirstíga þá. Eftir að hún kom heim gerðist hún ráðskona á Bessastöðum hjá Ásgeiri Ásgeirssyni þáverandi forseta. Þar starfaði hún við góð- an orðstír um árabil. Þegar Alla var 45 ára giftist hún Páli Einarssyni starfsmanni hjá Rafveitunni. Þá virtist fram- tíðin björt og fögur. En eftir að- eins tveggja mánaða hjónaband varð Páll bráðkvaddur. Því áfalli tók Alla af þeim sálarstyrk og þeim hetjuskap, sem einkenndi hana alla tíð. Og nú er hún sjálf horfin sjón- um okkar, svo skjótt og óvænt, að við höfum naumast gert okkur þess fulla grein, sem orðið er. En á skilnaðarstundinni er mér þakk- lætið efst í huga, þakklætið til minnar elskuðu systur, sem ávallt vildi vera mér bæði móðir og syst- ir. Guð blessi hana og leiði hana inn í eilífan jólafögnuð og jóla- dýrð. Gerða Ég man það eins og það hefði gerst i gær. Það var vor, ég var tvítug og var að koma í fyrsta sinn + Litti drengurinn okkar, ÞÓROUR DAVÍÐ KRISTJÁNSSON, til heimilis aö Súluhólum 6, Reykjavík, sem lést föstudaginn 27. nóvember, verður jarðsunginn frá Garöa- kirkju föstudaginn 4. desember kl. 1.30. Anna Lydia Hallgrímsdóttir, Kristján Þóróarson. Útför móður okkar, ÞÓRUNNAR BENEDIKTSDÓTTUR, sem lézt 29. nóvember, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, fimmtudaginn 3. desember, kl. 10.30. Ása Björgúlfsdóttir, Þórunn Björgúlfsdóttir, Egill Björgúlfsson, Ólafur Björgúlfsson. að Kornsá í Vatnsdal. Ég ætlaði að vera þar kaupakona um sumar- ið. Faðir minn Runólfur Björnsson bjó þar, en ég var fædd og uppalin á Suðurlandi. Systir mín Ásgerður sótti mig út í Hóla — Vatnsdals- hóla. Hún var 12 ára og kom ak- andi í léttivagni, og hestur spennt- ur fyrir, en sætið var úr svörtu leðri. Veðrið var yndislegt. Við ókum fram Vatnsdalinn. Móðir mín hafði lýst honum rétt. Hún kom þangað um vor, seint um kvöld. Hafði riðið um daginn frá Hvítárvöllum í Borgarfirði. Þar hafði hún verið um veturinn á mjólkurskólanum og var nú ráðin rjómabústýra að rjómabúinu við Kornsá. Hún var þreytt þegar kom á áfangastað og sofnaði strax. Um morguninn kom hún út, leit í kringum sig og fannst hún vera komin í einn af þessum útilegu- raanna- eða huldufólksdölum, sem sagt er frá í þjóðsögum og ævin- týrum. Ég kom að Kornsá og Alma, kona föður mins, tók á móti mér eins og dóttur sinni. Hún bauð mér í bæinn. Ung stúlka kom að utan. Hún var í bláum kjól og með fangið fullt af hvítum þvotti og það var eins og sólin skini á hárið á henni. „Ég heiti Álfhildur og ég er systir þín,“ sagði hún. Ég horfði á hana og sá að hún gat ekki heitið annað en Álfhildur. Sumarið sem ég átti á Kornsá var yndislegt. Fegurð Vatnsdals- ins heillaði mig. Við Álfhildur vorum mjög jafnaldra og urðum fljótt mjög handgengnar hvor annarri. Fljótt fann ég, að Álf- hildur var forsjá sinna systkina, enda elst. Til hennar var alltaf hægt að leita. Mér fannst hún bera ábyrgð á okkur öllum. Ekki gat hún alltaf farið með okkur þegar við fórum á böll fram á Mó- hellu, eða út að Gilsstöðum, því ýmsu þurfti að ljúka heima. En þegar leið á kvöldið kom hún allt- af, því nóg var af ungum sveinum, sem ekki töldu eftir sér að skreppa heim að Kornsá og sækja Álfhildi, enda minnast margir þess, hvað hún var björt og glæsileg í dansin- um. Eftir réttir var kaupavinnunni lokið og ég bjóst til heimferðar. Álfhildur hafði ákveðið að fara suður um haustið en hún hafði aldrei komið til Reykjavíkur. Einn dag sagði faðir okkar við Álfhildi: „Farðu með Huldu systur þinni hérna um dalinn að kveðja. Þið takið bestu hestana." Þessum degi gleymum við aldrei. Ég man hvað Álfhildi var innilega fagnað af öll- um, hvar sem við komum. Það var auðfundið, að enginn vildi missa hana úr dalnum og hlýjar kveðjur fylgdu henni frá hverjum bæ. Þannig leið þessi bjarti haustdag- ur, grös voru sölnuð, og Álfhildur kvaddi dalinn sinn fagra. Árin liðu. Skin og skúrir skipt- ust á. Tengsl og vinátta okkar systra urðu styrkari með hverju ári sem leið. Vegferð Álfhildar var orðin ströng, en ekkert virtist geta bugað þrek hennar og kjark. Þó virtist okkur vinum hennar og systkinum hún óttast, nú í seinni tíð, að þrekið til starfa yrði brátt frá sér tekið. Við því var henni hlíft. Og nú er komin kveðjustund. Ég gekk inn í stofuna til hennar um daginn. Hún hvíldi á sófanum eins og hún svæfi. En yfir andliti henn- ar var íölvi og friður dauðans. Inni var allt bjart og hlýtt, allt var búið undir hátíð, enda fór að- venta í hönd. Við hlið Álfhildar lá mynd, sem hún hafði verið að ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðst- ætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendi- bréfsformi. Þess skal einnig get- ið, af marggefnu tilefni, að frum- ort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á rainningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.