Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 48
TUDOR
rafgeymar
„já þessir með 9 líf”
SKORRIHF
Laugavegi 180, sími 84160
Síminn á afgreiðslunni er
83033
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981
21
dagur
til jóla
Loðnuveidar bann-
aðar frá og með
næsta sunnudegi
Bátar sem ekki eru búnir með
50% kvótans fá að veiða áfram
Ljósm. MbL: KAX
Stcini;rímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra kemur til fundarins |>ar sem hann tilkynnti stöðvun loðnu-
veiðanna.
Dr. Jakob Magnússon fiskifræðingur:
anna.
LOÐNUVEIÐAR hafa verið bannað-
ar frá og með hádegi 6. desember
nk., en þó fá bátar þeir, sem ekki
hafa fengið 50% af afla þeim, sem
þeim var úthlutað fyrir upphaf
loðnuvertíðar sl. sumar, að halda
áfram veiðum uns þeir hafa fengið
50% af úthlutuðu aflamagni, en þó
ekki lengur en til hádegis 20. des-
ember nk. Steingrímur Hermanns-
son skýrði frá þessari ákvörðun í
gærmorgun á fundi með hagsmuna-
aðilum loðnuveiða og -vinnslu, en
hann tók þessa ákvörðun, þar sem
niðurstöður skýrslu leiðangurs-
manna á Rjarna Sæmundssyni
sýndu, að ekki eru nema 225 þús.
tonn eftir til veiða.
Jafnframt banninu, hefur sjáv-
arútvegsráðuneytið, að tillögu
Hafrannsóknastofnunar, bannað
loðnuveiðar austan 14 gráðu v.
milli 66 gr. og 67 gr. n. vegna smá-
loðnu, sem heldur sig á þessu
svæði út af Langanesi. Þá er
ákveðið að stærð loðnustofnsins
verði aftur mæld í byrjun janúar
og út frá þeim mælingum verður
tekin ákvörðun um framhald veið-
„Dregið verði verulega úr
karfaveiðum á næsta ári"
Fasteignagjöld
hækka um 55%
Vinnulaun hafa á sama tíma hækkað um 41,6%
FASTEIGNAGJÖLD í Reykjavík
munu, miðað við sömu álagningu og á
þessu ári, hækka að meðaltali um
55% á næsta ári í kjölfar sömu hækk-
unar fasteignamats. Því má reikna
með því að fasteignagjöld á meðal-
íbúðir hækki um 1.000 til 2.000 krón-
ur á næsta ári. Á sama tíma hafa
vinnulaun starfsfólks í fiskvinnslu
hækkað um 41,6% og byggingarkostn-
aður um 50,5%.
Samkvæmt áðurnefndum for-
sendum má því reikna með að fast-
eignagjöld á 90 fermetra íbúð í
Breiðholti hækki úr 2.414 krónum í
3.742 eða um rúmar 1.300 krór.ur;
gjöld á íbúð sömu stærðar í Foss-
vogi hækki úr 2.439 krónum í 3.780;
gjöld á 107 fermetra íbúð við Mím-
isveg hækki úr 2.297 krónum í 3.560
og gjöld á 184 fermetra timburhúsi
við Njálsgötu hækki úr 2.671 krónu
í 4.140 krónur eða um 1.469 krónur.
„ÞAÐ ER Ijóst að Alþjóðahafrannsóknaráðið mun
leggja til að verulega verði dregið úr karfaveiðum við
ísland, A-Grænland og Færeyjar á næsta ári, frá því
sem ráðið lagði til að á þessum svæðum yrðu veiddar
85 þúsund lestir á þessu ári, en mér þykir Ijóst að
veiðin fari í 125 þúsund lestir og aðeins við ísland er
búið að veiða um 85 þús. lestir. Svona lagað gengur
ekki til langframa, en ég er þó ekki að hrella menn
með einhverju hruni karfastofnsins. Það tekur tölu-
verðan tíma að murrka lífið úr þessum stofni, en það
tekur líka langan tíma að byggja hann upp,“ sagði
Jakob Magnússon fiskifræðingur í samtali við Morg-
unblaðið, en hann flutti erindi um karfastofninn á 30.
þingi Farmanna- og fiskimannasamhandsins.
Jakob sagði þegar Morgunblaðið
ræddi við hann, að á síðustu árum
hefði karfaaflinn á svæðinu
A-Grænland, Island og Færeyjar
farið langt fram yfir þau mörk,
sem Alþjóöahafrannsóknaráðið
hefði lagt til.
„Eg hef lengi varað við þessu,
því það gengur á stofninn og þá
einkanlega gotstofninn. Ef áfram
verður haldið að ganga á gotstofn-
inn verður það til vandræða við
veiðarnar, þar sem hér er um
mjög hægvaxta fisk að ræða, en
karfinn verður kynþroska 16—18
ára. Ef stofninn fer illa, þá tekur
langan tíma að byggja hann upp,“
sagði dr. Jakob.
Hann sagði ennfremur, að á um-
ræddum svæðum veiddust tvær
tegundir karfa. Önnur tegundin
djúpkarfinn, væri mjög illa farinn
vegna ofveiði, og væri sá stofn nú
13—15% af heildarkarfaveiði
landsmanna. Gotstofn þessarar
karfategundar væri alltaf á niður-
leið og sama mætti reyndar segja
um gotstofn þess karfa sem héldi
sig ofar í sjónum.
„í mínu erindi reyndi ég fyrst og
fremst að benda á það, að það er
ekki alltaf hægt að auka sókn í
karfann, þegar þorskveiðar eru
takmarkaðar," sagði dr. Jakob
Magnússon.
Innréttingar og húsgögn:
35% innborgunar-
gjald á innflutning
í BÍGERÐ er að setja 35%
innborgunargjald á allan inn-
flutning innréttinga og hús-
gagna á næstunni til stuðn-
Flugstöðvarbygging á Keflavíkurflugvelli:
Enginn ráðherra né þingmaður
Alþýðubandalagsins viðstaddur
Knginn þingmaður og enginn
ráðherra Alþýðubandalags var
viðstaddur framsögu né umræðu
frumvarps til laga um flugstöðvar-
byggingu á Keflavíkurflugvelli, ef
undan eru skyldir Hjörleifur Gutt-
ormsson og Garðar Sigurðsson, sem
stönzuðu í þingdeildinni fáeinar
mínútur.
Flutningsmenn frumvarpsins
eru Benedikt Gröndal og Geir
Hallgrímsson. Ólafur Jóhannes-
son, utanríkisráðherra, og Jóhann
Einvarðsson, þingmaður Reyknes-
inga, töldu hér hreyft stóru og
mikilvægu máli, en lögðu áherzlu
á nauðsyn þess að ná pólitískri
samstöðu um framkvæmdina.
Bentu þeir á hvort tveggja: 1) að
nú væri í fyrsta sinni fjárlagatil-
laga um framlag til undirbúnings
framkvæmda og 2) að ríkisstjórn-
in hefði skipað þriggja manna
nefnd stjórnarliða til að finna
póiitíska lausn á málinu.
Stuðningsmenn frumvarpsins
lögðu áherzlu á nauðsyn fram-
kvæmda til að tryggja öryggi far-
þega og starfsfólks flugstöðvar-
innar, en þar gæti gerzt stórslys
hvenær sem væri vegna eldhættu.
Framkvæmdin væri og nauðsyn-
leg til að skilja að varnarliðsstörf
og farþegaflug í þessu anddyri ís-
lands að umheiminum. Kostnað-
arþátttaka varnarliðsins væri
tryggð nú — en enganveginn til
frambúðar, ef framkvæmdum
væri enn slegið á frest. Það væri
hvorki þingræðislegt né lýðræðis-
legt, að minnihlutaflokkur, með
tæpan fimmtung kjörfylgis, gæti
sett meirihluta þings og þjóðar
stólinn fyrir dyrnar í þessu efni í
skjóli „umsamins neitunarvalds"
stjórnarflokkanna. (Sjá nánar á
þingsíðu Mbl. í dag.)
ings innlendri framleiðslu,
sem átt hefur í vök ad verj-
ast.
Hugmyndin er, að þetta inn-
borgunargjald verði í svipuðum
dúr og það innborgunargjald,
sem var við lýði á árunum 1979
og 1980, en þá var innflytjend-
um gert að greiða 35% innborg-
unargjald, sem bundið var í þrjá
mánuði.
Gjaldið árin 1979 og 1980 var í
gildi í átján mánuði, en að þessu
sinni er hugmyndin, að það gildi
í eitt ár, ef það verður samþykkt
af EBE, Efnahagsbandalagi
Evrópu, og EFTA, Fríverzlun-
arsamtökum Evrópu, en málið
verður væntanlega tekið fyrir á
báðum stöðunum á næstunni-
Þegar endanleg viðbrögð
ráðamanna hjá EBE og EFTA
liggja fyrir, mun ríkisstjórnin
taka endanlega ákvörðun í mál-
inu.