Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 30
30
'-.lAmm.,--------
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981
Demantshringar —
Draumaskart
Kjartan Ásmundsson,
gullsmíðav.
Aðalstræti 8.
Ny sending
—'
Dönsk og ítölsk herraföt. Stakir jakkar og
buxur í miklu úrvali.
Hagstætt verö.
Gunnlaugur Claessen
læknir - Aldarminning
Gunnlaugur Claessen fæddist á
Sauðárkróki 3. des. 1881. Foreldr-
ar hans voru Kristín Eggertsdótt-
ir Briem og Jean Valgard van
Deurs Claessen kaupmaður og síð-
ar landsféhirðir. Var hann 4. barn
þeirra hjóna en hin voru Eggert
fæddur 16. 8. 1877, Ingibjörg f. 13.
12. 1878 og María f. 25. 4. 1880.
Móðir Gunnlaugs dó viku eftir
að hann fæddist.
Gunnlaugur varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík vor-
ið 1901. Hann lauk læknisprófi frá
Hafnarháskóla í janúar 1910.
Hann vann á ýmsum sjúkrahúsum
erlendis að námi loknu og sér-
hæfði sig í röntgenlækningum.
Varði hann doktorsritgerð um það
efni í Stokkhólmi 13. okt. 1928.
Gunnlaugur varð yfirlæknir
röntgendeildar Landspítalans 13.
jan. 1931 og gengdi því starfi til
dauðadags. Jafnframt starfi sínu
kenndi Gunnlaugur við lækna-
deild Háskóla Islands og var
prófdómari við þá stofnun. Gunn-
laugur lét félagsmál mikið til sín
taka. Hann sat í bæjarstjórn
Reykjavikur 1920—1926, hann átti
sæti í stjórnum ýmissa félaga svo
sem Læknafélags Islands, Rauða
kross Islands en formaður þess fé-
lags var hann 1926—1929 og
1934—1938, Norræna félagsins og
Báifarafélagsins, en formaður
þess var hann frá stofnun til ævi-
loka. Fyrir störf sín hlaut hann
stórriddarakross fálkaorðunnar
en hann hafnaði honum.
Gunnlaugur ritaði fjölda greina
um læknisfræðileg efni og hélt er-
indi í útvarp um heilbrigðismál og
hliðstæð málefni.
Gunnlaugur kvæntist 16. okt.
1914 Þórdísi Björnsdóttur
adjunkts Jenssonar. Eignuðust
þau tvær dætur; Önnu, sem gift er
Peder la Cour bankafulltrúa og
Þórdísi gifta Folmer Hofdahl
verkfræðingi.
í minningargrein um Gunnlaug
ritar Björn Ólafsson m.a. um sam-
starf þeirra í bæjarstjórn:
„Hann var þá þroskaður maður
á besta skeiði og átti mörg áhuga-
mál. Gengu þau flest í þá átt að
gera líf borgaranna bjartara og
heilsusamlegra. Þá beaindist at-
hygli mín fyrst að þeim sjaldgæfu
mannkostum, sem hann hafði til
að bera. Hann var manna hæglát-
astur en hélt fast á sínu máli þeg-
ar þess þurfti með og flutti það
með skörungsskap og rökvísi.
Málfiutningur hans var jafnan
hófsamur og mótaður af þeirri
háttprýði sem einkenndi hann í
öllu dagfari svo að af bar.
Þegar ég lít yfir þann aldar-
fjórðung, sem ég hefi haft kynni
af Gunnlaugi Claessen, stendur
mér skýrast fyrir sjónum það sem
ég tel að hafi prýtt hann mest. En
það var hin óvenjulega fágaða og
drengilega framkoma hans við
hvern sem í hlut átti og hvernig
NÝLEGA var haldið þing Al-
þjóðabréfskáksambandsins
(ICCF) í London. Af íslands hálfu
sátu þingið Jón Pálsson og Þór-
hallur B. Ólafsson. Á þinginu var
Jón Pálsson útnefndur alþjóðlegur
meistari í bréfskák, og er hann
sem á stóð. Hann var hreinskilinn
án þess að skapa andúð og hann
gat lofað menn án þess að
smjaðra.
Eg hefi fáa þekkt sem honum
voru líkir."
Gunnlaugur Claessen var
ógleymanlegur öllum þeim sem
honum kynntust og hann hafði
meiri áhrif á heilbrigðismál þjóð-
arinnar en flestir aðrir á þeim
tíma sem starfskraftar hans ent-
ust.
Blessuð veri minning hans.
Valgarð Briem
fyrsti íslendingurinn, sem hlýtur
þá nafnbót. Islenzkir bréfskák-
menn hafa mjög látið að sér kveða
undanfarið, og eru margar viður-
eignir á næstu grösum, m.a. lands-
keppni við Dani á 25 borðum, og
hefst sú keppni 1. jan nk.
Jón Pálsson alþjóð-
legur bréfskákmeistari
Sneisafull
verzlun af vönduöum
fallegum og ódýrum
húsgögnum
HÚSGÖGN
Tókum heim í gær sænsk albólstruð rúm og hollensk
eikarrúm. Margar gerðir
mnm
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK
BÖLLIN
SÍMAR: 91-81199 -81410