Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 19gl 15 Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður Úí: Óumflýjanlegt að loka nokkrum saumastofum Á SÍÐASTLIÐNUM árum hefur orðið gífurleg fjölgun saumastofa á landinu, þannig að á árunum 1979 og 1980 fjölgaði þeim um a.m.k. 20. Á sama tíma hafa margar sauma- stofur stóraukið afköst sín með sérstökum framleiðniaukandi aðgerðum og aukið afköst sín með auknum vélakosti og stærra húsnæði. Við þetta allt hafa afköst greinarinnar meira en tvöfaldast á rúmlega einu ári. Þessar upplýsingar komu fram í ræðu Víglundar Þorsteinssonar, stjórnarformanns Útflutnings- miðstöðvar iðnaðarins, á Haust- fundi ullariðnaðarins, sem hald- inn var fyrir skömmu. — Það er alveg ljóst að ekki verða til næg verkefni á næstu árum handa öll- um þeim nýju saumastofum, sem settar hafa verið á laggirnar á síð- ustu misserum, sumar hverjar af ótrúlegu fyrirhyggjuleysi. I dag eru á milli 10—15 saumastofur verkefnalitlar eða verkefnalausar, og hafa sumar þessara sauma- stofa þegar hætt rekstri. Það er óumflýjanlegt fyrir enn fleiri að fylgja fordæmi þeirra sem þegar hafa hætt rekstri og loka þegar í stað. Það er engin lausn i þessu sam- bandi að grípa til þess ráðs að beita fyrir sig þingmönnum og öðrum áhrifamönnum, til að reyna að fá verkefni úr höndum útflutn- ingsfyrirtækjanna. Slíkt leiðir að- eins til þess, að allt of margar saumastofur verða starfræktar með ófullnægjandi afköstum og fleiri en ella fara á hausinn að lokum, sagði Víglundur Þorsteins- son, stjórnarformaður Útflutn- ingsmiðstöðvar iðnaðarins enn- fremur. Beint símasam- band við Trinidad og fleiri lönd PÓSTUR & sími benda símnot- endum á með fréttatilkynningu að framvegis geti þeir sjálfir valið númer í Guyana (592), Trini- dad/Tobago (809), Uruguay (598), Burnei (673), Jórdaníu (962), Quat- ar (974), Singapore (65), Suður- Kóreu (82), Botswana (267), Eþí- ópíu (251), Sierre Leone (232), Nauru (674) og Papúa Nýja- Guinea (675). Númerin í sviga aft- an við landanöfnin eru landsnúm- er viðkomandi lands. Gjald fyrir hverja talaða mínútu er 38 krónur til allra landanna, nema til tveggja hinna síðastnefndu, þar er verðið 44 krónur fyrir hverja mín- útu. Frá afhendingu gjafarinnar til Styrktarfélagsins, talið f.v.: Óttar Kjartansson formaður, Ingibjörg Bjarnadóttir, Þórdís Ásgeirsdóttir, Ásthildur Magnúsdóttir, Þorgerður Gísladóttir, Jónína Guðmundsdóttir, forstöðukona Endur hæfingastöðvarinnar að Háaleitisbraut 13, og Sigurður Magnússon, framkvæmdastjóri Styrktarfélagsins. Hringurinn í Hafnarfirði gaf Styrktar- félagi lamaðra og fatlaðra peningagjöf NÝLEGA komu konur í stjórn Kven- félagsins Hringurinn í Hafnarfirði á fund forráðamanna Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og færðu félag- inu að gjöf 10.000 krónur. í fréttatilkynningu, sem Mbl. hefur borizt, segir, að Ásthildur Magnúsdóttir, formaður Hrings- ins, hafi m.a. sagt eftirfarandi um starf félagsins: „Hringurinn í Hafnarfirði var stofnaður 1912 og var tilgangur félagsins að koma fátækum börn- um til sumardvalar í sveit. Á þeim tíma hefði atvinna verið stopul og þetta því þótt mikill stuðningur. Síðar hefði félagið snúið sér að því að styrkja ýmiskonar velferðar- mál og rétta þeim hjálparhönd, sem í nauðum voru staddir. Marg- ir hefðu lagt „Hringnum" liðsinni og m.a. hefði félagið verið arfleitt að dánarbúi. Hún sagði starfsemi félagsins binda félagskonur traustum böndum og veitti ekki af því á tímum hraða og upplausn- ar.“ Meðal verkefna kvennanna í „Hringnum“ í Hafnarfirði til fjár- öflunar, er árleg merkjasala síð- asta vetrardag svo og jólabasar, þar sem m.a. er selt laufabrauð er þær baka sjálfar. GUÐRÚN Á.SÍMONAR ÞURÍÐUR PÁLSDÓTTIR ENDURMINNINGAR ÚR ÓPERUM ENDURMINNINGAR GUÐRÚN Á. SÍMONAR ÞURÍÐUR PÁUSDÓTTIR Flytjendur Guðrún Á. Símonar og Þuríður Pálsdóttir, meðsöngvarar: Guðmundur Guðjónsson, Guðmundur Jónsson, Magnús Jónsson og Kristinn Hallsson. Atriði úr m.a: La Bohéme, Carmen, Aida og Töfraflautunni. Það má heita mikið lán, að varðveist hafa þessi sýnishom af ópem- söng á íslandi frá þeim tíma, sem óperan var að stíga sín fyrstu skref hérlendis. Flestar upptökumar vom gerðar á sviði eða í hljómleikasal meðan á opinbemm flutningi stóð, en fmmupptökumar hafa flestar glat- ast. Stór hluti þess, sem varðveitt er á þessum plötum, er að þakka áhugamönnum, sem hljóðritað hafa útvarpssendingar við misjöfn skilyrði. FÁLKINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.