Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981
33
Minning:
Kristín J. Sölva-
dóttir Minmngarorö
Það var gaman að vera í hópi
frumbyggja í Vogahverfi á fyrstu
árum eftir síðari heimsstyrjöld.
Vitanlega voru erfiðleikarnir
margir, efni flestra ekki mikil, en
viljinn, vinnusemin og bjartsýnin
lyftu grettistökum. I fyrstu var
fólkið fátt og fæstir þekktust áður.
Það skipti ekki máli, menn heils-
uðust eins og gamlir kunningjar,
tóku hver annan tali hvort sem
menn mættust á götutroðningum,
við hálfbyggð hús eða í þröngum
og ófullkomnum verslunum.
Hvert húsið reis af öðru, byggð
þéttist, og iðandi mannlíf barna,
miðaldra og roskinna skóp hér á
hálfum áratug nýlendu, fyrsta eig-
inlega úthverfi Reykjavíkur. Efni
sín og atorku hafði hver og einn
lagt af mörkum til myndunar
þessa byggðarlags, en sameiginleg
viðfangsefni og vandamál frum-
býlinga tengdu þá ósjálfrátt sam-
an. Við slíkar aðstæður verður
granninn svo mikils virði og sam-
félagið því fegurra og betra sem
mannkostir hans eru meiri. Slíkt
fólk skapar alltaf birtu og frið
hvar sem það kemur nærri.
Þann svip bar frú Kristín Sölva-
dóttir með sér og setti á heimili
sitt, umhverfi og félagsstarf frá
fyrstu tíð í Vogahverfi. Við veitt-
um strax athygli þessari fíngerðu
konu, sem alltaf var svo glaðleg á
svipinn. Þegar persónulegu kynn-
in mynduðust svo við uppbyggingu
kirkjulega starfsins í Lang-
holtsprestakalli, þá lærðist okkur
sem öðrum að virða hana og þykja
vænt um hana. Að þeim málefnum
vann hún ásamt eiginmanni sín-
um meðan kraftar leyfðu af ein-
lægni og trú og ætíð í forystusveit.
Kristín kvartaði aldrei um tíma-
leysi, þegar kvenfélag kirkjunnar
þurfti á henni að halda. Þeir voru
ófáir basararnir sem hún vann að.
Hún var svo vel fallin til að tala
við fólk og fá það til liðs við okkur.
Hún beitti ekki hávaða heldur
sinni fáguðu framkomu og létt-
leika. Fáir munu þvi hafa getað
neitað henni, er hún kom í þessar
fj áröflunarferðir.
Kristín var aufúsugestur á öll-
um samkomum, þar var hún hrók-
ur alls fagnaðar. En bak við gleð-
ina var mikil alvara. Henni lét
mjög vel að skilja aðra, lifa sig inn
í kjör fólks, geta glaðst með því en
ekki síður að styðja þá sem bágt
áttu eða erfiðleikar steðjuðu að.
Það var yndislegt að koma á hið
vistlega heimili þeirra hjóna í
Karfavogi. Kristínu var svo annt
um að öllum gæti liðið vel, heima
og heiman. Börn þeirra og barna-
börn áttu flest göngu sína í Voga-
skóla og þaðan var stutt heim í
hlýjuna hjá mömmu og pabba eða
afa og ömmu. Fyrir barnahópnum
sínum bar Kristín einlæga um-
hyggju og ræddi oft um þau með
ríkri gleði og þakklátum orðum og
huga. Þess bera þau og gott vitni.
Frú Kristín Sölvadóttir var ein-
læg trúkona. Þess vegna fann hún
ætíð hið fagra og góða í lífinu og
gat glaðst eins og barn. Við kom-
um til hennar á sjúkrabeð
skömmu áður en hún lést. Enn var
sami hlýjuglampinn i augum og
bros hennar fyllti okkur friði og
ró. Við fórum að rifja upp gamla
daga frá kirkjustarfinu, minnast
strits og erfiðleika en eigi síst ein-
lægs samstarfs og jafnvel glett-
inna atvika. Gleðibros færðist yfir
allan svip hennar við slíkar ljúfar
endurminningar. Þessi kveðju-
stund var fögur. Stillingu og ró
hafði hún sýnt í löngum og
ógnþrungnum veikindum sínum,
en hún gat enn veitt öðrum hlut í
gleði sinni eins og alltaf áður.
Guðsgjafir hafði hún þegið í rík-
um mæli, ávaxtað þær vel og lét
ætíð aðra njóta þeirra með sér.
Eiginmaður Kristínar, Garðar
Þórhallsson, dvaldi einnig við beð
hennar þessar síðustu stundir sem
við áttum með henni. Herbergið
fylltist þeim friði, fegurð og ró
sem við munum aldrei gleyma.
Það var allt endurómur lífs og lið-
inna ára frá fyrstu kynnum við
þessi samstilltu og elskulegu hjón
og börn þeirra í Vogum við Sund.
Guð blessi minningu Kristínar
Sölvadóttur og veiti eiginmanni
hennar, börnum og öðrum ástvin-
um styrk við mikinn missi. Við
þökkum kynni sem aðeins er Ijúft
að minnast.
Gunnþóra og Helgi
Mig langar til að færa þér,
Garðar Þórhallsson og börnum
þínum fáein fátækleg þakkarorð á
þessum reynslutíma, sem nú fer í
hönd, því að ég veit af eigin
reynslu, hversu sárt það er að sjá
ástvini sína hverfa á brott.
Ég sagðist færa þér þakkarorð,
sem hljómar nú kannski undar-
lega á þessarri stundu, en þá hefi
ég í huga alla þá miklu hjálp og
styrk, sem þú og fjölskylda þín
sýndi mér í minni sorg, — sem
verður mér ógleymanlegt. Það var
ekki aðeins stundarhjálp, því að
ávallt síðan hafa heimili ykkar
Kristínar, — og heimili Garðars
yngra og Sölvínu staðið mér opin,
eins og væri ég einn af ykkar fjöl-
skyldu. Slik vinátta er meira en
gulls og eðalsteina virði. Nú er það
mín einlæg ósk og von, að þið eigið
eftir að mæta jafn fölskvalausri
vináttu og þið hafið öðrum veitt.
Guð styrki ykkur öll.
Benjamín Einarsson
Þvottavélin ALDA
pvær og purrkar vel
Þetta er þvottavél sem hentar íslenskum heimilum, hefur
innbyggöan þurrkara og tekur inn á sig heitt og kalt vatn.
Veröið er mjög hagkvæmt, hringdu í síma32107 og
kynntu þér veröiö, við borgum símtalið.
Þvottakerfin eru 16 og mjög mismunandi,
með þeim er hægt að sjóða, skola og vinda.
leggja í bleyti, þvo viðkvæman þvott og
blanda mýkingarefni i þvott eða skolun.
Þvottavélin tekur 4-5 kg af þurrum þvotti.
tromlan snýst fram og til baka og hurðin er
með öryggislæsingu. Vinduhraði allt að 800
snúningar ámin. Þurrkaranner hægt aðstilla
á mikinn eða litinn hita og kaldur blástur er á
siðustu mín. til að minnka krumpur Með einu
handtaki er hjólum hleypt undir vélina sem
auðveldar allan flutning.
_______________________■ >-•* i
ÞYNGD 78 kg HÆÐ 85 CM BREIDD60CM DÝPT54 CM ÞVOTTAMAGN 4-5KG
ÞURRKMAGN 2-2.5 KG VATNSMAGN 15/18 I OG 19/25 I VINDA 450- 800
SNÚN. MÍN. RAFMAGN 220 VA. C. 13 AMP. MAX/ELEMENT 1350 VÖTT
ÞURRKMÓTOR 50 VÖTT
ALDA
UMBOÐSAÐILAR:
REYKJAVlK: VÖRUMARKAÐURINN
AKRANES: ÞÓRÐUR HJÁLMSSON
BORGARNES: KF BORGFIÐINGA
ÞATREKSFJ. JÓNAS ÞÓR, RAFVIRKI
ISAFJÖRÐUR: STRAUMUR
BOLUNGARVlK: JÓN FR. EINARSSON
FLATEYRI: GREIPUR GUÐBJÖRNSSON
BLÖNDUÓS: KF. HÚNVETNINGA
SAUÐÁRKRÓKUR: KF. SKAGFIRÐINGA
AKUREYRI: AKURVlK
SIGLUFJÖRÐUR: GESTUR FANNDAL
ÓLAFSFJ.: RAFTÆKJAVINNUSTOFAN
HUSAVlK: GRlMUR OG ÁRNI
ÞÓRSHÖFN:NORÐURRAF
VOPNAFJÖRÐUR: KF. VOPNFIRÐINGA
EGILSSTAÐIR: KF. HÉRÐASBÚA
SEYÐISFJÖRÐUR: STÁLBÚÐIN
NESKAUPST.: KRISTJÁN LUNDBERG
ESKIFJ.: PÖNTUNARFÉL. ESKFIRÐINGA
HÖFN HORNAFIRÐI: K. A. S. K D-302
ÞYKKVIBÆR: FRIÐRIK FRIÐRIKSSON
GRINDAVfK: VERZLUNIN BÁRAN
KEFLAVlK: STAPAFELL
VESTMANNAEYJAR: KJARNI
VlK I MYRDAL: KF. SKAFTFELLINGA
Hringiö
í síma
C3j
35408
Blaðburðarfólk óskast
AUSTURBÆR VESTURBÆR
Laugavegur1—33
Miðbær II
Tjarnargata I og II
Garðastræti