Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESBMBER 1981——
HNNSKIR
KULDAJAKKAR
Þykk vatt-einangrun úr holofile efni.
Ytrabyrði-olíuborin bómull.
Getum vio feng-
ið gufuna, takk?
Eftir Hjördísi
Þorsteinsdóttur
„Bati og betri lídan eins manns í
einn dag er stórt spor í rétta átt“
Heitur saltur sjór við Svarts-
engi á Reykjanesi hefur allt í einu
orðið til þess að ekki færri en sjö
hæstvirtir alþingismenn hafa
hlaupið til og flutt tillögu til
þingsályktunar um það að fram
fari rannsóknir á lækningamætti
þess vatns eða sjávar, sem úr iðr-
um jarðar rennur við Svartsengi á
Reykjanesi.
Komið hefur fram, að a.m.k.
einn maður hefur fengið bata á
mjög hvimleiðum sjúkdómi, psori-
asis, við að baða sig við frumstæð-
ar aðstæður við Svartsengi á
Reykjanesi.
Bati og betri líðan eins manns í
einn dag er stórt spor í rétta átt.
Það vita þeir sem daglega árum
saman þurfa að bera hvimleiða og
erfiða sjúkdóma. Og nú skal stuðla
að rannsóknum, vísindamenn og
læknar verða að fá styrk frá rík-
inu til rannsókna. Ut verður gerð-
ur flokkur fríður og þúsundir
króna munu velta. En það er að
sjálfsögðu allt óvíst um framhald-
ið. Vonandi verður árangurinn
jákvæður. En kannski verður bara
veittur styrkur og svo gleymast
niðurstöðurnar í skúffum kóng-
anna.
Og á meðan munu sjúklingarnir
sennilegast halda áfram að af-
klæðast úti á berangri og baða sig
eins og við Læragjá í Skerjafirði.
Hins vegar virðist hafa farið
framhjá þessum annars ágætu til-
lögumönnum frétt sem birtist í
Morgunblaðinu fyrir nokkrum
dögum.
Sú frétt var þess efnis að annar
maður með þennan sama hvim-
leiða sjúkdóm hafi líka fengið
nokkurn bata, en á annan hátt,
með gamalli austurlenskri lækn-
ingaaðferð, þ.e. nálastungum.
Ekki var a.m.k. að þessu sinni
lögð fram tillaga um rannsóknir á
gildi svoleiðis lækningaaðferða
hér á landi. Enda sennilega lítill
eða enginn áhugi fyrir þess hátt-
ar. En það kemur í ljós.
Senn er komið að lokum þessa
árs, 1981, sem Sameinuðu þjóðirn-
ar hafa nefnt alþjóðaár fatlaðra.
Árangur af starfi hinna fjöl-
mörgu, sem við ýmiss konar
krankleika eiga að stríða og að-
standenda þeirra, mun örugglega
skila sér þótt síðar verði.
Þeim, sem síðastir eru í röðinni
af krónískum, ólæknandi sjúkling-
um, asmasjúklingum, hefur lítið
sem ekkert verið sinnt nú fremur
en fyrr hvað varðar þjónustu og
ýmis félagsleg réttindi.
Við höfum helst úr lestinni á
þessu ári fatlaðra.
Móð og másandi horfum við í
humátt á eftir hinum reykjandi
alkóhólistum, hjólastólafólki og
öllum hinum sem við jafnréttið
búa.
Við bítum á jaxlinn eins og und-
anfarin ár, þreyjum þorrann og
góuna, en kannski getum við feng-
ið gufuna, TAKK ...
Skrifað á Vífilsstöðum 27/9 1981.
Fleygir þú
peningum daglega
óaf vitandi ?
= HÉÐINN S
DANFOSS ráögjafaþjónusta
Seljavegi 2, sími 24260
Nýr Danfoss meö minnispunkti
Enn er fjöldi fólks hér á landi sem
gerir sér ekki grein fyrir hve mikil
hitaorka fer til spillis í húsnæði
þess, sem kostar þaö ómæld pen-
ingaútlát.
Verkefni Danfoss ofnhitastillanna
er einmitt að nýta hitaorkuna og
auka þægindin til hins ýtrasta í
hverju herbergi.
Dragðu það ekki að kynna þér
kosti nýju Danfoss ofnhitastillanna,
þaö kostar ekkert. En þú getur
sparað þér fúlguna sem þú fleygir.