Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, PÍMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981 31 Harðger og lipur TOYOTA DYNA VÖRUBIFREIÐ Diesel 1 ,Vi — 3,1/2 tonna Verö frá kl. 150.000,— m TOYOTA Traust og haröger vörubifreiö meö lágan rekstrarkostnaö. Lipur í akstri og létt íviöhaldi. Allur frágangur í sérflokki 1 UMBOÐIÐ k NÝBÝLAVEGI 8 m KÓPAVOGI SÍMI 44144 UMBOÐIÐ Á AKUREVRI: BLÁFELL S/F ÓSEYRI 5A — SÍMI 96-21090 „Krummi á skíðum“ KOMIN er út hjá Iðunni ný bók í flokknum um Krumma, „Krummi á skíðum", cftir Thöger Birkeland. Áður hafa komið út Krummi, Vesl- ings Krummi og Knimmi og stúlk- urnar. Teikningar eru eftir Kirsten iloffmann, Hanne Fisker þýddi á ís- lenzku. A kápu segir, að móðir Krumma sé svo kraftmikil, að hún fái alla fjölskylduna tit að „trimma“, en þegar ráðist er á hana að kvöldi til, leggjast hlaupin niður. I stað þess byrjar fjölskyldan að þjálfa sig í skíðaleikfimi fyrir væntan- lega skólaferð til Noregs. Þau upp- lifa spennandi skíðaferðalag og mörg skemmtileg atvik gerast, en jafnframt er stundum alvara á ferð. Bókin er 155 bls. Steinholt hf. annaðist setningu og prentun. Krummi á skíðum er gefin út með styrk frá Norræna þýð- ingarsjóðnum. Á röngu sviði VEGNA fréttar í Morgunblaðinu um uppsagnir blaðamanna á Vísi og Dagblaðinu teljum við undirrit- aðir rétt að það komi fram, að við önnuðumst í sameiningu afmark- aðan þátt í Vísi í hlutastarfi. Upp- sagnir hvað okkur varðar voru því fullkomnlega eðlilegar við hinar nýju aðstæður, enda erum við báð- ir önnum kafnir við störf annars staðar. Athugasemd þessi óskast birt'til að fyrirbyggja hugsanleg- an misskilning. Árni Sigfússon, Sveinn Guðjónsson. Ólafur Jóhannesson Höfundur: Evgení Schwarz. Þýðandi: Stefán Baldursson. Leikstjórn: Þórir Steingrímsson. Leikmynd: Hallmundur Kristmundss. Leikfélag Keflavíkur. Utgáfu Leikfélags Keflavíkur á Rauðhettu og úlfinum er ekki þessi gamla góða samin beint upp úr ævintýrinu. Hér er um að ræða útgáfu Evení Schwars sem er nokkuð frjálsleg og er fléttað inní söngvum. Vafalaust eiga þau verka Schwarz sem byggja á göml- um ævintýrum rétt á sér, sérstak- lega útgáfur byggðar á H.C. And- ersen. En það er vandaverk að koma til skila ævintýrablæ þess- ara verka og rómantískri hugsun. Því miður verð ég að játa að sýn- ing Leikfélags Keflavíkur á Rauðhettu Schwars í Alþýðuleik- húsinu síðastliðinn laugardag snart mig ekki á nokkurn hátt. Nema ef vera skildi fyrst eftir hlé þegar úlfurinn át Rauðhettu og ömmu hennar. Dálítið spennandi atriði. En annars fór leikritið að mestu framhjá mér líkt og skuggamyndasýning úr sólar- landaferð. Þetta gerðist þrátt fyrir að ég reyndi eftir bestu getu að lifa mig inní það sem fram fór á sviðinu. Samt sé ég ekki eftir að hafa eytt tíma mínum í að horfa á þessa sýningu. Mér varð nefnilega ljóst eftir sýninguna hvílíkur reg- in misskilningur er hjá áhugahóp- um utan Reykjavíkur að storma þangað með hvaðeina sem sett er á svið heima í héraði. Staðreyndin er nefnilega sú að flestar leiksýn- ingar slíkra áhugamannahópa eiga fyrst og fremst erindi heima í héraði. Þar þekkja allir leikarana og geta því skemmt sér hið besta, þótt tæknin þeirra sé ef til vill ekki í besta lagi. Hér á Reykjavík- Athugasemd vegna uppsagnar blaðamanna ursvæðinu hafa menn stöðugt fyrir augunum þjálfaða atvinnu- menn og geta ómögulega skemmt sér yfir óförum ókunnugs viðvan- ings. Slíkt er hins vegar hægt að gera ef maður þekkir leikarann. Þá fyrirgefur maður honum og ætlast reyndar ekki til neins sér- staks. Ég held að leikhópar úti á landi ættu að hugsa sig vel um áður en þeir leggja land undir fót hingað suður með sýningar. Ef þeir eru með frumsamin íslensk verk ættu þeir hiklaust að koma. Ef ef þeir eru í vafa hvort sýningin eigi er- indi utan héraðs, er betra heima setið. Ferðalög hingað, oft um langan veg með viðamikil leiktjöld, sýna sannan áhuga og innilega löngun til að skemmta öðrum. Þetta frá- bæra dugnaðarfólk sem heldur uppi leikfélögunum úti á landi á sannarlega ekki skilið að verða fyrir álíka vonbrigðum og þeir Keflvíkingar urðu fyrir síðasta laugardag í Hafnarbíói þar sem aðeins fyrstu bekkirnir voru setn- ir. Munum að listin blómstrar að- eins í réttu umhverfi. Nú en ég vil ekki skilja við þá Keflvíkinga án þess að minnast á frammistöðu Árna Ólafssonar í hlutverki Refsins. Þar fer leikara- Leiklist m E3 © Kauðhetta og úlfurinn efni. Árni sýndist mér óskólaður en í honum býr neistinn og það er mikilvægast að slík glóð sé ekki slökkt. Þess vegna meðal annars er leikstarfsemin úti á landi ekki bara nauðs.vn, hún er lífsnauðsyn. Því manneskjurnar lifa ekki á brauði einu saman. Ætti fjárveit- ingavaldið að gera sér ljósa grein fyrir þessari staðreynd. Við meg- um ekki líta á landsbyggðina sem nytsama framleiðslueiningu. Slíkt sæmir ekki vitibornu fólki. Nefndarformenn á Alþingi: Fimm fastanefndir í Sameinuðu þingi í Sameinudu þingi starfa 5 fasta- nefndir. Þar af eru sýnu veiga- mestar utanríkismálanefnd og fjárveitinganefnd. Geir Hall- grímsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, er formaður utanríkis- málanefndar, Benedikt Gröndal, fyrv. formaður Alþýðuflokksins, varaformaður og Jóhann Ein- varðsson (F) ritari. Geir Gunnars- son (Abl) er formaður fjárveitinga- nefndar, Þórarinn Sigurjónsson (F) varaformaður og Eggert Hauk- dal (S) skrifari. Eggert Haukdal (S) er for- maður atvinnumálanefndar, Jó- hanna Sigurðardóttir (A) for- maður allsherjarnefndar og Ólafur Jóhannesson (F) formað- ur kjörbréfanefndar Sameinaðs þings. I þingdeildum starfa 9 fasta- nefndir. Halldór Ásgrímsson (F) er formaður fjárhags- og við- skiptanefndar í neðri deild en Ólafur Ragnar Grímsson (Abl) í efri. Stefán Valgeirsson (F) er formaður samgöngunefndar í neðri deild, Eiður Guðnason (A) í efri. Stefán Valgeirsson (F) er formaður landbúnaðarnefndar í efri deild en Egill Jónsson (S) í efri. Garðar Sigurðsson (Abl) er formaður sjávarútvegsnefndar í neðri deild en Stefán Guð- mundsson (F) í efri. Skúli Alex- andersson (Abl) er formaður iðnaðarnefndar í neðri deild en Davíð Aðalsteinsson (F) í efri. Alexander Stefánsson (F) er formaður félagsmálanefndar í neðri deild en Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S) í efri. Guðrún Helgadóttir (Abl) er formaður heilbrigðis- og trygginganefndar í neðri deild en Davíð Aðal- steinsson (F) í efri. Ingólfur Guðnason (F) er formaður menntamálanefndar í neðri deild en Ólafur Ragnar Gríms- son (Abl) í efri. Ólafur Þ. Þórð- arson (F) er formaður allsherj- arnefndar í neðri deild en Eiður Guðnason (A) í efri. Allár þingnefndir hafa fasta fundardaga, einn til tvo í viku, og er fundartíminn yfirleitt fyrir hádegi, en fastafundir þingsins eftir hádegi. Fjárveitinganefnd heldur fund hvern virkan dag milli kl. 9 — 11 árdegis og oft einnig frá kl. 5 — 7 síðdegis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.