Morgunblaðið - 03.12.1981, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981
7
1 X 2 — 1 x 2
16. leikvika
Á getraunaseðli nr. 16 fellur leikurinn
6. Liverpool — Birmingham
út og verða þess vegna ekki nema 11 leikir látnir
gilda, en leikir seðilsins fara fram laugardaginn 12.
desember nk.
GETRAUNIR
Ársskýrsluverðlaun 1981
Stjórnunarfélag íslands efndi til samkeppni um bestu
ársskýrslu sem út kom í ár, og tekur til ársins 1980.
Viðurkenning fyrir bestu ársskýrslu sem barst verður
afhent á fundi sem haldinn veröur í Kristalssal Hótels
Loftleiða mánudaginn 7. desember kl. 16.00.
Öllum félögum Stjórnunarfélagsins er boðið aö
sækja fundinn og eru þeir sem hyggjast mæta beðnir
aö láta vita á skrifstofu félagsins í síma 82930.
STJÓRNUNARFÉLAG fSIANDS
SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SlMI 82930
Hestamenn
Smalaö verður í hagbeitarlöndum okkar á Kjalarnesi
nk. laugardag. Hestar sem eru í Dalsmynni og Arn-
arholti veröa í rétt í Arnarholti kl. 10 fyrir hádegi.
Hestar í Saltvík veröa í rétt kl. 14. Bílar verða til
flutnings á hestunum. Hagbeitargjald og flutningur
greiðist á staðnum. Laugardaginn 12. desember
verður smalað á Ragnheiðarstööum og verður það
nánar auglýst síöar.
Tamningar hefjast um áramótin og verður tamn-
ingastöð hér eins og verið hefur og einnig á Ragn-
heiðarstöðum. Tamningamenn verða Hafliöi Hall-
dórsson og Jóhannes Kjartansson.
Muniö fræðslufundinn í kvöld.
Hestamannafélagið Fákur.
[Viðskiptavinir
athugið
Vegna rangrar vörumerkingar á
London Lambi, var reykt rúllu-
pylsa, selt sem London Lamb, og
eru viöskiptavinir beönir velvirö-
ingar á þessum mistökum. Þetta
átti sér staö þriöjudaginn 1. des.
Þeir sem uröu fyrir þessu eru
vinsamlega beðnir aö koma meö
kjötiö og munu þeir, þá fá nýtt í
staöinn.
KJÖTMIOSTÖDIN Laugalæk l.s.86511
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
Tre KGB-agenter j
vurderes utvist_____________ i
Úrklippan hér að ofan er úr norska blaðinu Aftenposten frá því á
laugardag og hana má þýða þannig: „Sovéskir sendiráðsstarfs-
menn tengdir friðarhreyfingunni?: Brottvísun þriggja KGB-útsend-
ara í athugun." Þessar fréttir frá Noregi og svipaðar uppljóstranir í
Danmörku valda því, að Sovétmönnum er brýnna en áður að láta
sem svo, að engin tengsl séu á milli þeirra og baráttumannanna
fyrir varnarleysi Vesturlanda, sem þjónar aðeins sovéskum hags-
munum. En auðvitað eru Sovétmenn klunnalegir á þessu sviði eins
og flestum öðrum. i Staksteinum í dag er fjallaö um nýjasta dæmið
um það, er tengist íslenskri stjórnmálabaráttu.
Kattarþvottur
lH‘ir, sem mest andmæla
varnarsam.starfi íslendinga
vid aðrar vestrænar þjóðir,
verda yfirleitt hjárænu-
legir, þegar þeir taka sig til
og bera af sér, að í and-
mælum þeirra felist studn-
ingur vid markmid Sovét-
ríkjanna í afstödu þeirra til
íslands og íslendinga.
Glöggt dæmi um þetta
mátti sjá í Þjódviljanum
um miðjan október sídast-
lióinn, þegar einn af rit-
stjórum blaðsins tók sig til
og leitaðist við að færa rök
að eftirfarandi kenningu
sinni: „Varsjárbandalagið
hefur ekki verið og er ekki
sú heiLsteypta blökk undir
óskertu forræði Sovét-
manna sem menn vilja
vera láta.“ l*essi furðu-
kenning er svo rökstudd
með því, að Albanir hafi
sagt sig úr V'arsjárbanda-
laginu og Kúmenar hafi
stundum dregið sig út úr
„sameiginlegum hernaðar
aðgerðum" Varsjárbanda-
lagsins. Og l>jóðviljarit-
stjórinn bætir við: „Til
þessa hefur ekkert land
gengið úr NATO...“ Síð-
an er klykkt út með því,
„að í raun og veru vildu
NATO-vinir ekkert frekar
en slíka innrás (þ.e. í l’ól-
land) — þá væri úti um
allar friðarhreyfingar í
langan tíma.“
l!m þennan kattarþvott
l>jóðviljans fyrir hönd Var
sjárbandalagsins má sogja,
að þeir menn, sem telja sér
sæma að skrifa af slíkri
léttúð um jafn alvarleg
mál, geta varla búist við
því, að á þeim sé tekið
mikið mark. Ilvers vegna
lætur ritstjóri l'jóðviljans
þess ógetið, að Kremlverj-
ar tóku ákvörðun um inn-
rásina i Hngverjaland
1956, þegar fyrir lá. að
landið segði sig úr Varsjár
bandalaginu? I’egar herir
Varsjárbandalagslandanna
voru sendir inn í Tékkó-
slóvakíu 1968, var grípið til
þeirrar tylliástæðu í áróðri
Kremlverja, að öryggi
Tekkóslóvakíu væri ógnað
og þar með sameiginlegu
örvggi hinna sósíalísku
bræðraþjóða. Og hvað um
Pólland? Forystumenn
frelsisbaráttunnar í Pól-
landi gera sér grein fyrir
því, að Kremlverjar munu
senda skriðdreka sína af
stað, um leið og á það yrði
drepið af einhverjum
máísmetandi Pólverja, að
rétt væri að huga að rétt-
mæti aðildarinnar að
Varsjárbandalaginu.
I'jóðviljinn studdi inn-
rásina í Ungverjaland.
Hann snerist í hringi, þeg-
ar ráðlst var inn í Tékkó-
slóvakíu. Skrif blaðsins um
Pólland sýna, að þar átta
menn sig hvorki á því, sem
er að gerast í Póllandi, né
hvenær Kremlverjar munu
alveg örugglega láta vopnin
tala fyrir sig þar í landi.
Kaunar má segja, að gælur
þeirra pjóðviljamanna við
Varsjárbandalagið séu í
senn hjárænulegar og þjóð-
hættulegar.
Samherji
skjaldaður
Fréttir frá Noregi og
Danmörku, þar sem upp-
lýst er með lögreglugögn-
um, að Sovétmenn standi á
bak við baráttu svonefndra
friðarhreyfinga, koma að
sjálfsögðu mjög illa við
Sovétmenn. I>eim er síður
en svo kappsmál, að tengsl
þeirra við þá, sem berjast
fyrir sovéskum málstað,
séu á allra vitorði. Aróð-
ursmeLstarar Kremlverja
eru ekki lengi að laga sig
að nýjum aðstæðum, þótt
málflutningur þeirra sé
klunnalegur. Á Norður
löndunum leggja Sovét-
menn sig nú fram um að
láta líta svo út sem þeir séu
svo sannarlega ekki sam-
mála þeim, sem stefna þó
að sama marki og þeir
sjálfir.
I>að vakti nokkra furðu
á dögunum, hvernig Olafur
K. Grímsson, þingfiokks-
formaður Alþýðubanda-
lagsins, brást við, þegar
sovéskir „friðarnefndar
menn" sögðust hafa átt við
hann „gagnlegar viðræð-
ur“, enda bæri hann merki
samtaka. sem sovéska
„friðarnefndin" styddi af
alhug. Kitaði Olafur K.
Grímsson grein hér í hlað-
ið af þessu tilefni og sagð-
ist vera á móti SS-20 eld-
flaugum Sovétmanna og
hann hefði sagt sovésku
„friðarnefndarmönnun-
um“ það.
Áróðursskrifstofa
Kremlverja á íslandi,
APN-Novosti, hefur sent
frá sér grein eftir einn sov-
ésku „friðarnefndarmann-
anna“, Georgi KúzneLsov,
um Islandsferðina. l*ar
hirtir Kúznetsov Olaf K.
(■rímsson með þessum orð-
um: „Sovétríkin ógna eng-
um. Hernaðarkenningar
okkar eru varnareðlis. Og
það er leitt til þess að vita,
að Olafur Kagnar Gríms-
son, sem við hittum og átt-
um tal við um öryggismál,
þá m. sovésku SS-20 eld-
flaugarnar, skyldi ekki
skilja þetta." Og síðar vís-
ar Kúznetsov til þess, að í
grein í Morgunblaðinu hafi
Olafur K. Grímsson sýnt
„að hann skilur ekki frið-
elskandi utanríkisstefnu
Sovétríkjanna.'*
Fyrr á þessu ári hefur
það komið fram í fréttum
og ummælum í sovéskum
bliiðum, mcðal annars í
málgagni sovéska hersins,
Kauðu stjörnunni, að skoð-
anir Olafs K. Grímssonar
eru verðmætar að mati
sovésku áróðursvélarinnar,
hitt hefur ekki verið Ijóst
fyrr en nú, að þær séu jafn
verðmætar og orð Georgi
Kúznetsovs gefa til kynna.
Grein Olafs K. Grímssonar
í Morgunblaðinu hefur
sem sé þjónað þeim til-
gangi, að Sovétmenn fengu
tækifæri til að afneita sjón-
armiðum hans opinberlega,
svo að hann geti til þess
vitnað framvegis, þegar á
það er bent, að barátta
hans gegn vestrænu varn-
arsamstarfi þjóni aðeins
hagsmunum Sovétríkj-
anna.
Il
Fjölþétti
Nýtt efni sem límir og þéttir í senn.
T ré, plast, stál og steypu, úti og inni,
- allan ársins hring.
Pottþétt og auðvelt í notkun.
GLERBORG HF
DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIROI - SÍMI 53333