Morgunblaðið - 03.12.1981, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981
Fræðslufundur
veröur í félagsheimili Fáks fimmtudaginn 3. des.
kl. 20.30.
Fundarefni: Evrópumót íslenskra hesta.
Myndasýning: Frá Evrópumótinu í Larvík í sumar.
Umræöur: Eiga íslendingar erindi á Evrópumót
íslenskra hesta? Ragnar Tómasson
stýrir óformlegum umræöum.
Þátttakendur í Evrópumótum sérstaklega vel-
komnir á fundinn.
Fákur.
Þakka innilega öllum þeim sem glöddu mig með heimsóknum,
kveðjum og gjöfum á níræðisafmœli mínu 1S. nóvember sl
Einkum vil ég þakka þeim sem'létu skólana á Eyrarbakka og
Flúðum njóta afmælisins með bókagjöfum ojl
Guð blessi ykkur ölL
Ingimar H. Jóhannesson.
ORIGINAL HANAU
■méMééÉÍIiéAibmhh
Nóatúni 4, sími 28300.
Smith & Norland hf.
veitir
aukinn þrótt
og vellíöan
í skammdeginu
Bifreiðaútboð
Tilboö óskast í eftirtaldar bifreiöar:
Volkswagen 1200 L árgerð 1975.
Ford Pick-up árgerö 1974.
Austin Mini árgerö 1974.
Ford Transit árgerð 1971.
Bifreiöarnar veröa til sýnis í Faxaporti mánudaginn
30. nóv. til föstudagsins 4. des. nk. Tilboöum sé
skilaö til Innkaupadeildar félagsins fyrir föstudaginn
4. desember 1981.
Hf. Eimskipafélag íslands.
Nýr og betri
svipur á Stefni
Bókmenntir
Hannes H. Gissurarson
Hreinn Loftsson (ritstjóri):
Stefnir, 3. tölublað 1981.
Stefnir, tímarit ungra sjálf-
stæðismanna, hóf göngu sína
1950 undir ritstjórn þeirra Sig-
urðar Bjarnasonar og Magnús-
ar Jónssonar, en áður, 1929—
1934, hafði Magnús Jónsson
prófessor gefið út tímarit með
sama nafni. Tímaritið var efn-
ismikið og skrifað af þrótti
fyrstu árin og í nokkur ár und-
ir ritstjórn Matthíasar Jo-
hannessens skálds, þeirrar
hamhleypu. En því miður hefur
Stefnir ekki verið mjög athygl-
isvert rit síðan, stundum hefur
jafnvel sá grunur læðst að les-
endum, að ungir Sjálfstæðis-
menn hafðu fáar stjórnmála-
hugmyndir og að efnið i Stefni
væri til þess eins að leyfa aug-
lýsingunum að njóta sín. Nokk-
ur síðustu heftin voru þó sýnu
verst, hvort sem því olli sú
deyfð, sem var í starfi ungra
Sjálfstæðismanna 1977—1981,
eða eitthvað annað.
Hreinn Loftsson tók við rit-
stjorn Stefnis, eftir að ungir
sjálfstæðismenn endurskipu-
lögðu starf sitt á Isafirði í ág-
úst sl. og kusu nýja forystu-
menn Sambandsins. 1. hefti
Stefnis undir forystu Hreins er
komið út, og það lofar góðu um
framhaldið. Við nýjan tón
kveður, strengir eru stilltir
saman, heftið er skrifað um
stjórnmál, en í því er ekki
sama masið og stundum áður
um sjálfsögð sannindi og ekki
heldur nöldrið, sem ekkert
gagn er að, en hefur því miður
verið algengt í Sjálfstæðis-
flokknum.
Þetta hefti er helgað nýrri
bók Jónasar Haralz banka-
stjóra, Velferðarríki á villi-
götum, en hún hefur vakið
ómælda athygli sem vonlégt er.
Fróðlegt viðtal ritstjórans er
við Jónas, sem lýsir m.a. starfi
sínu í þróunarlöndunum, en um
fátt segja jafnfáfróðir menn
jafnmikið og þau, svo að fengur
er að upplýsingum hans. Hann
rifjar upp viðreisnina 1960 og
ræðir um vanda Sjálfstæðis-
flokksins í núverandi kreppu,
sem hann telur kreppu velferð-
arríkisins. Ritstjórinn spyr
hann m.a. um þá hugmynd
mína að reyna að leysa nýt-
ingarvandann á fiskmiðunum
með því að koma þar á eignar-
rétti fremur en að láta nægja
að selja veiðileyfi. Jónas segir,
að sú hugmynd kunni að leysa
vandann, en sé óraunhæf í
þeim skilningi, að menn sam-
þykki hana aldrei.
Sannleikurinn er þó sá, að ég
fékk þessa hugmynd ekki, fyrr
en ég sannfærðist um, að hin
hugmyndin — sala veiðileyfa
— væri óraunhæf af stjórn-
málaástæðum. Sala veiðileyfa
felur í sér þjóðnýtingu fiski-
miðanna, sem núverandi nýt-
endur þeirra samþykkja aldrei.
En óskynsamlegasta lausnin er
skömmtun stjórnmálamanna
(eða embættismanna), því að
þeir hafa ekki og geta ekki haft
nein eðlileg viðmið, þegar þeir
skemmta. Ég ætlaði þessari
hygmynd minni að vera raun-
hæf í þeim skilningi, að hags-
munasamtök gætu samþykkt
hana þ.e. önnur hagsmunasam-
tök en Alþingi, sem er stéttar-
félag atvinnustjórnmála-
manna, og Stjórnarráðið, sem
er varnargarður utan um emb-
ættismenn), og skynsamleg í
þeim skilningi, að hæfilegt
magn væri nýtt og af þeim ein-
um, sem rækju fyrirtæki sín af
hagsýni. Ég játa, að þetta er
flókið mál og á því engin alls-
herjarlausn, enda lítill kostur á
töfralyfum í þessari tilveru.
Þeir Einar K. Guðfinnsson
stjórnfræðingur, Ólafur ís-
leifsson hagfræðingur og
Þorsteinn Pálsson fram-
Undir riLstjórn Hreins Loftssonar er
Stefnir orðinn að nýju og betra
tímariti en áður.
Davíð Oddsson, leiðtogi Sjálfstæð-
ismanna í borgarstjórn Reykavíkur,
skrifar um sjálfseignarstefnu Sjálf-
stæðismanna í húsnæðismálum og
leiguliðastefnu „vinstri" flokkanna.
kvæmdastjóri skrifa um bók
Jónasar. Þeir segja sitt hvað
fróðlegt um velferðarríkið.
Einar bendir á, að velferðar-
ríkið sætti varla menn og hópa
svo mjög sem af sé látið, enda
megi ósátt þeirra stundum
rekja til ríkisafskipta og kostn-
aðarins af þeim. Olafur segir,
að þau ráð Keyness lávarðar að
draga úr atvinnuleysi með
eyðslu almannafjár hafi ekki
gefist vel. Þorsteinn telur, að
Jónas sé ekki í bók sinni að
hafna markmiðum velferðar-
ríkisins — afkomuöryggi og at-
vinnuöryggi — heldur að
marka nýja leið að þeim, eftir
að reynslan hafi sýnt, að leið
ríkisafskipta liggur ekki að
þeim, heldur frá. Undir þetta
get ég allt tekið.
Sagt er frá þingi SUS á ísa-
firði. Rætt er við formann
Heimdallar, Árna Sigfússon,
en undir forystui hans hefur
nýtt líf færst í það gamla félag,
sem verður 55 ára á næsta ári.
Þetta hefti er einkum helgað bók
Jónasar Haralz, Velferðarríki á villi-
götum, viðtal er við Jónas, og þeir
Einar K. Guðfinnsson, Olafur Is-
leifsson og Þorsteinn Pálsson skrifa
um bókina.
Og grein er eftir Geir Haarde,
nýjan formann SUS, um
starfsreglur Sjálfstæðisflokks-
ins. Davíð Oddsson, leiðtogi
sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn Reykjavíkur og einn af
þeim stjórnmálamönnum
okkar, sem mestar vonir eru
bundnar við, skrifar um hús-
næðismál á höfuðborgarsvæð-
inu og varar við þeirri stór-
háskalegu stefnu „vinstri"
flokkanna að gera sem flesta
að leiguliðum, en auðvelda
þeim ekki heldur að eignast
eigið húsnæði. Guðmundur
Heiðar Frímannsson ritar um
þróunarlöndin, en hann er í
hópi pennafærustu mennta-
manna okkar. Jón Ormur Hall-
dórsson segir frá stjórmála-
viðhorfinu á Norðurlöndum,
sem hann þekkir vel, með því
að hann var lengi fram-
kvæmdastjóri æskulýðssam-
taka íhalds- og hægriflokka í
Norðurálfu (en leggja verður
áherslu á, að þeir eru flestir
miklu þrengri flokkar og
tengdari einstökum stéttum en
Sjálfstæðisflokkurinn, enda er
Jón Ormur í íhaldssamari armi
Sjálfstæðisflokksins ásamt
þeim Pálma Jónssyni og Gunn-
ari Thoroddsen).
Hreinn Loftsson skrifar um
bandaríska stjórnmálamann-
inn Barry Goldwater, sem var
fórnarlamb fjölmiðlunga á sín-
um tíma, þótt stefnu hans —
frelsi í atvinnumálum — ein-
beitni í alþjóðamálum — fylgi
fleiri Bandaríkjamenn nú en
áður. Ég veit ekki um 'nema tvo
íslendinga, sem lýstu yfir
stuðningi við Goldwater í for-
setakosningunum 1964, þá
Ragnar Jónsson í Smára og
Styrmi Gunnarsson. En hver
segir nú, að Lyndon Johnson,
sem var þá kosinn, hafi verið
góður forseti? Það er reyndar
efni í heila bók að bera saman
andann á sjöunda áratugnum,
þegar flestir héldu, að allt
mætti gera með því að nota
ríkisvaldið hæfilega, og treystu
á tæknina, og andann á hinum
níunda, þegar menn skilja, að
menningin er gróður, sem hlúa
verður að og leyfa að vaxa í
friði, en ekki vél, sem þeir geta
skipt um hluta í og ekið síðan í
allar áttir.
Þetta hefti Stefnis er vonandi
hið fyrsta í langri röð. Ungir
sjálfstæðismenn eru bersýni-
lega að verða markvissari en
áður. Þeir leggja áherslu á arf
flokks síns, atvinnufrelsi,
einkaframtak og samvinnu
stéttanna. Margt er undir því
komið, að þeir ávaxti þennan
arf vel.
Oxford, 7. nóvember 1981.