Morgunblaðið - 03.12.1981, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981 :/
Spástefna
um þróun efnahags-
mála árið 1982
Stjórnunarfélag íslands efnir til spástefnu um þróun
efnahagsmála áriö 1982 og verður hún haldin í Krist-
alssal Hótels Loftleiöa fimmtudaginn 10. desember
1981 og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
14:00 Spástefnan sett
— Tryggvi Pálsson, Stjórnunarfélagi íslands.
14:20 Spá um þróun efnahagsmála áriö 1982
— Ólafur Davíðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar.
14:40 Spá um þróun peningamála árið 1982
— Bjarni Bragi Jónsson, hagfræöingur Seölabanka íslands.
15:00 Álit á þróun efnahagsmála árið 1982
— Valur Valsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðn-
rekenda.
15:15 Álit á þróun efnahagsmála árið 1982
— Björn Björnsson, viðskiptafræðingur, Alþýöusambandi
islands.
15:30 Kaffi
16:00 Álafoss hf.
— Pétur Eiríksson, forstjóri Álafoss hf.
16:10 Samband íslenskra samvinnufélaga
— Eggert Ágúst Sverrisson, fulltrúi Sambandi íslenskra
samvinnufélaga.
16:20 Flugleiðir hf.
— Valgeröur Bjarnadóttir, forstöðumaður hagdeildar Flug-
leiða hf.
16:30 Eimskipafélag íslands hf.
— Þórður Magnússon, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Eimskipafélags islands hf.
16:40 Reykjavikurborg
— Björn Friðfinnsson, framkvæmdastjóri fjármáladeildar
Reykjavíkurborgar.
16:50 Almennar umræöur.
Spástefnan er ætluö framkvæmdastjórum, fjármála-
stjórum, starfsmönnum hagdeilda og öörum sem
hafa meö höndum áætlanagerö í fyrirtækjum og
stofnunum.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma
82930.
STIÓRNUNARFÉIAG fSIANDS
SÍDUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930
MALNINGAR*
TIL60G
frá JL byggingavönim
Nú geta allir faríð að mála.
Komið og kynnið ykkur málningartilboðið.
Otrúlegur afsláttur.
Greiðsluskibnálar við allra hæfi.
Opið mánud. - miðvikud. 8-18
Opið fimmtudaga 8-20
Opið föstudaga 8-22
Opið laugardaga 9-12
Muníd adkeyrsluna
frá Framnesvegi.
iTl BYCGINGAVÓRUR
HRINGBRAUT 119, SIMI 10600
Er ár aldraðra ákvörðun
Sameinuðu þjóðanna
Svavars Gestssonar
eða Alþingis?
Eftir Pétur
Sigurðsson, alþm.
Ráðuneytisstjóri heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytisins hefur sent
frá sér greinargerð um nefndar-
störf vegna málefna aldraðra, en í
þeirri nefnd er hann formaður.
Þar sem greinargerð þessi var
samin og send til fjölmiðla og Al-
þingis án þess að hún væri rædd
fyrst í nefndinni, þykir undirrit-
uðum, sem þar á sæti og er jafn-
framt 1. flm. þáltill. um ár aldr-
aðra, rétt að leiðrétta misskilning
sem kemur fram í umræddum
skrifum og víðar.
I grg. ráðuneytisstjórans er
ítrekað minnst á ár aldraðra.
Virðist svo sem hann og fleiri hafi
talið að vegna þess að heilbrigð-
isráðherra hafi skipað í framan-
greinda nefnd til þess eins og segir
í skipunarbréfi hans:
„að annast undirbúning alþjóða-
árs aldraðra 1982 í samræmi við
ályktun þings Sameinuðu þjóð-
anna (A/Res/35/129) 11. des-
ember 1980 —
og hins vegar að gera tillögur til
ráðherra um samræmingu á
skipulagi í heilbrigðisþjónustu
fyrir aídraða með tilliti til fé-
lagslegra og heilsufarslegra
sjónarmiða, sbr. þingsályktun
hér að lútandi, sem vísað var til
ríkisstjórnarinnar frá samein-
uðu Alþingi í maí sl. (þingskjöl
23 og 936),“
hafí ár aldraðra á íslandi þar með
verið ákveðið!
í þessu er mikill misskilningur
fólginn. í fyrsta lagi er ekkert al-
þjóðaár aldraðra á vegum Samein-
uðu þjóðanna í undirbúningi, held-
ur alþjóðleg ráðstefna um öldrun
(áður um málefni aldraðra). Verð-
ur þessi ráðstefna haldin í Vín
síðla sumars 1982.
Tillögu um ár aldraðra fyrir
forgöngu Sameinuðu þjóðanna var
hins vegar hafnað og sú leið valin,
sem hér er skýrt frá.
Og hefur heiibrigðisráðherra
orðið við óskum þings SÞ um að
taka þátt í undirbúningi alþjóð-
legrar áætlunar sem miðast á við
að tryggja efnahagslegt og félags-
legt öryggi aldraðs fólks svo og að
skapa tækifæri til framlaga í
þessum efnum af hálfu einstakra
þjóða. Ályktun þessi er samþykkt
í des. 1980 (35/129) og er einmitt
vitnað til þessarar samþykktar SÞ
í skipunarbréfi ráðherra til nefnd-
armanna þ. 24. júlí 1981 (dagsetn-
ing á bréfi til undirritaðs).
Að ráðherra skuli í skipunarbr-
éfi sínu tala um hlutverk nefndar-
innar vera annarsvegar að annast
undirbúning alþjóðaárs aldraðra,
er því komið inn í bréfið fyrir mis-
skilning, sama er að segja um
ályktanir embættismanna sem af
þessum misskilningi eru dregnar.
Það er því skiljanlegt að við flm.
hinnar íslensku þingsályktunar-
tillögu á Alþingi um að tileinka
árið 1982 málefnum aldraðra sé-
um ekki að draga fram í tillögu
okkar þennan misskilning.
Við bendum hinsvegar í grg. því
betur á aðdraganda og efnislega
niðurstöðu samþykkta SÞ og tök-
um skýrt fram að sú nefnd, sem
við leggjum til að kosin verði,
skuli eiga samvinnu við hina
stjórnskipuðu nefnd, sem vinnur
að tillögugerð um heilbrigðis- og
vistunarþjónustu fyrir aldraða.
Að það skuli ekki tekið upp í
tillögugreinina sem byggt er á
misskilningi sbr. það sem hér að
framan segir, hlýtur að skoðast
eðlilegt og raunar skylt.
I grg. er hinsvegar skýrt frá
umræddri ályktun SÞ svo og
dagskrá aðalritarans. Ennfremur
því að ráðherra hafi skipað um-
rædda nefnd til að vinna að fram-
angreindri ályktun SÞ (A/R-
es/35/129) ásamt tillögugerð til
hans um samræmingu á skipulagi
í heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða
HAFSKIP HF.
REYKJAVÍK
Til hluthafa Hafskips hf.
Kynning á starfsemi félagsins.
Þriðja áriö í röð boðar félagið til sérstaks fundar með stækkandi hópi hluthafa
sinna til kynningar á starfsemi félagsins.
Á fundinum munu deildarstjórar félagsins og framkvæmdastjórar sitja fyrir
svörum og taka þátt í umræðum sem Jón Hákon Magnússon mun stýra.
Kynningin fer fram laugardaginn 5. desember n. k. kl. 14.30
í Hliðarsal Hótel Sögu.
(Gengið inn um hóteldyr. Upp stiga til hliðar við lyftu).
Þess er að vænta að á kynningarfundinum verði hinar margvíslegustu
spurningar ræddar, svo sem t. d.:
- Næstu skipaendurnýjunarverkefni.
- Hefur breytt tryggingarstefna félagsins skilað árangri?
- Á ferjurekstur framtíð fyrir sér?
- Endurskipulagningarmöguleikar í kjölfar úttektar á erl. rekstri félagsins
(sbr. verkefni það, sem Björgólfur Guðmundsson stjórnar nú erlendis).
- Á Hafskip hf. að tengjast (vöru)flugrekstri?
- Hvernig verður hin nýja vörugeymsla og hafnarsvæði byggt upp?
- Er rétt að stuðla að því, að Ríkisskip verði gert að hlutafélagi með aðild
skipafélaganna?
Það ereindregin hvatning, að hluthafar komi til kynningarinnar og leggi sitt lið
til að gera kynninguna bæði gagnlega og skemmtilega.