Morgunblaðið - 03.12.1981, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 03.12.1981, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981 Arndfs Björnsdóttir skrifar frá V-Þýskalandi Heimsókn Breschnews er talin stjórnmála- sigur fyrir Schmidt „Fridur hræðslunnar. Friður hefði sennilega ekki haldist svo lengi, ef ekki væri um að ræða gagnkvæman ótta aust- urs og vesturs við þau vopn, sem ríkin ráða yf- ir. En hvað er framund- an?“ í dag lauk opinberri heimsókn Leonid Breschnews, aöalritara sovézka Kómmúnistaflokksins, hér í Vestur-Þýskalandi. Hann lenti í stórri sovéskri þotu á flug- vellinum Köln/Bonn, sunnudaginn 22. nóv. sl. og tók kanslari V-Þýskalands, Helmut Schmidt þar á móti honum ásamt fylgdar- liði. Gífurlegar öryggisráðstafanir voru í gangi og var Breschnews gætt eins og væri hann fjöregg þjóðarinnar. Flugvélar hans var gætt af sovéskum öryggisvörðum allan tímann; sömuleiðis var sov- ésk brynvarin bifreið alltaf í hum- átt á eftir honum og við bústað hans, og sögðu fréttamenn, að sennilega væri bifreiðin albúin njósnabúnaði. Breschnew er held- ur kranklegur og gamall að sjá, enda var úthald hans ekki mikið. V-Þjóðverjar höfðu fullkomna sjúkrabifreið með öllum tækjum fyrir utan bústað hans. Talið er, að Sovétmenn séu ekki eins hressir yfir heimsókninni og þeir vilja vera láta. Þrátt fyrir faðmlög og yfirborðstal um ein- lægni og vináttu og friðarvilja er Ijóst, að Sovétmenn ætla ekki að gefa eftir í sambandi við vígbún- að. Það voru því mikil vonbrigði hversu eindregna afstöðu Helmut Schmidt tók með Bandaríkjafor- seta. Schmidt skýrði Sovét- mönnum afdráttarlaust frá því, að Sovétmenn yrðu að fjarlægja eldflaugar sínar þannig að ekki yrði um það að ræða, að þýskar borgir væru í skotmarki, eins og nú er. Sérstaklega er Þjóðverjum tíðrætt um nýjustu kjarnorku- eldflaugar Sovétmanna, SS-20, sem talið er að séu staðsettar þannig, að þær beinist margar beint að stórborgum Evrópu. I fyrstu vildi Breschnew ekki kann- ast við neina eldflaugahættu af sovéskri hálfu, en í kvöldverðar- boði kanslara á 2. degi heimsókn- árinnar lýsti hann því yfir, að Sovétmenn væru reiðubúnir til að flytja eldflaugar (nefnd var talan 100—200) austur fyrir Uralfjöll, því að þeir vildu sýna friðarvilja sinn. Vestantjalds er þetta ekki talið nóg, því að jafnvel frá því svæði gætu SS-20 eldflaugarnar hæft t.d. Hamborg og Köln. Ljóst er, að ákveðin og opinská umræða kanslarans hefur vakið ugg hjá Sovétmönnum. Hann lýsti sig eindregið fylgjandi þeirri stefnu, að Vesturveldin staðsettu eldflaugar í V-Evrópu og meðtalið í Vestur-Þýskalandi, ef ekki hefði náðst samkomuiag fyrir árslok 1983 (sbr. NATO-samþykktina). Lausn Breschnews Breschnew varð tíðrætt um þá lausn, er hann teldi besta: Stór- veldin skyldu hætta allri frekari hervæðingu, en miða við núver- andi ástand. Hann lýsti því yfir, að Bandaríkjamenn væru óábyrg- ir og reyndu að slá ryki í augu almennings í heiminum. Athyglis- vert er að PRA VDA, málgagn sov- éska kommúnistaflokksins, réðst harkalega á Þjóðverja í forystu- greinum bæði á sunnudag og síðar meðan á heimsókninni stóð. En Þjóðverjar bentu á þá staðreynd, að málflutningur Breschnews er nákvæmlega sá sami nú og í síð- ustu heimsókn hans 1979. Eins og kanslarinn sagði sjálfur í ræðu sinni í umræddu kvöldverðarboði, að „hann hefði rætt opinskátt og af drengskap og verið fullvissaður um friðar- og afvopnunarvilja Sovétmanna, en ennþá væru þetta orðin tóm af hálfu Sovétríkjanna. Hann biði eftir því að við töluð orð væri staðið." Það var því vart furða, þótt andrúmsloftið væri stirt og lævi blandið, þegar Sov- étmenn fengu kaldar staðreyndir svo beint framan í sig. Meðan Schmidt og Breschnew ræddust við, voru einnig í gangi umræður milli Gromykos, utanríkisráð- herra Sovétríkjanna og Hans D. Genschers, utanríkisráðherra V-Þýskalands. Að sjálfsögðu er afvopnunin efst á dagskrá, en einnig hefur mikið verið rætt um tregðu Sovétmanna til að hleypa þeim Þjóðverjum úr landi, semma í stríðslok lokuðust inni á land- svæðum, sem urðu sovésk. Undan- farið hafa verið viðtöl við fólk, sem þannig hefur misst samband við fjölskyldumeðlimi og aðra ætt- ingja og vini og er harka og óbil- girni Sovétmanna með eindæm- um. Afstaða Schmidts Sovétmenn verða því að horfast í augu Við, að þeir eiga ekki sam- herja gegn Reagan Bandaríkja- forseta þegar V-Þjóðverjar eiga í hlut. Raunar telja fréttaskýrend- ur hér, að Schmidt hafi í viðræð- um sínum við Breschnew eytt „miklum tíma og margs konar röksemdafærslum" í að gera Breschnew ljósa þá miklu alvöru, sem Reagan leggi í „alvöru samn- inga, en ekki orðagjálfur". Frétta- skýrendur hér telja, að Schmidt hafi tekist að draga úr spennu Sovétmanna í garð Reagans. Schmidt marglýsti því hins vegar yfir að V-Þjóðverjar væru ein- dregið „Vestursins-menn". Bonn hefur hins vegar tekist á hendur það stóra verk að sýna Moskvu fram á alvöru vestrænna ríkja í að hervæðast langdregnum eldflaug- um og staðsetja þær á jafn hern- aðarlega mikilvægum stöðum og Sovétmenn gera nú gagnvart vest- rænum ríkjum, ef ekki verði í framhaldi af ákvörðun NATO frá 1979 búið að ganga frá samning- um fyrir árslok 1983. Sovétmenn verði semsé að fara að gera sér ljóst, að þeir dragi ekki Vestur- veldin á asnaeyrunum lengur. Greinilegt er, að harka er að færast í málin. En hitt ber einnig að líta á, að hinn almenni borgari stendur með stefnu Helmut Schmidts. Hér í V-Þýskalandi er almennt lítil hrifning á austræn- um ríkjum. Hér eru austrænu rík- in hins vegar við húsdyrnar og fólk vill verjast hættunni austan frá. Það vill vera öruggt um að eiga ekki rússnesku skriðdrekana, fallbyssurnar og nú gereyðingar- vopnin yfir höfði sér. Schmidt hef- ur því styrkt mjög pólitíska stöðu sína við þessa heimsókn og gagn- vart Rússum stendur v-þýska þjóðin nær einhuga með kanslar- anum. Umræðuþáttur í sjónvarpi í gærkvöldi (24.11.) var hér í sjónvarpinu einnar klst. umræðu- þáttur um heimsókn Breschnews. Þátttakendur voru auk stjórn- anda: ritstjóri blaðsins „Der Spiegel", fréttaritari V-Þ. sjón- varpsins í Washington, talsmaður sovésku stjórnarinnar og talsmað- ur frá þýskri hálfu. Þátturinn var afar fróðlegur og var varla hægt annað en vorkenna talsmanni Sov- étmanna á stundum, er hann skorti rök til að verja margvísleg- ar aðgerðir stjórnar sinnar. Skipulag Grjótaþorps Eftir Birgi Isl. Gunnarsson Fyrir skömmu var samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkur skipu- lag fyrir Grjótaþorpið. Skipu- lagstillagan var samþykkt sam- hljóða og allir stjórnmálaflokkar urðu um hana sammála. Tillaga þessi byggðist því augljóslega á málamiðlun. Það sem úrslitum réð um samþykkt tillögunnar var sú ákvörðun að taka undan skipulagi húsalínuna vestan Aðalstrætis og geyma ákvörðunina um hana til síðari tíma. Hugmyndir manna um skipulag Grjótaþorps hafa mikið breyst í tímanna rás. Allar fyrri tillögur hafa að sjálfsögðu verið börn síns tíma. Menn hafa sett fram hug- myndir fyrr á tímum um að rífa þorpið að meira eða minna leyti og byggja stórt í staðinn. Menn hafa einnig sett fram tillögur um að brjóta miklum umferðaræðum braut í gegnum Grjótaþorp. Allar slíkar hugmyndir hafa þó verið lagðar til hliðar fyrir löngu, enda sjónarmið manna í skipulagsmál- um gjörbreytt frá því þær voru settar fram. Stefnumótunin 1977 í desember 1977 var lögð fram í skipulagsnefnd tillaga um stefnu- mótun varðandi skipulag Grjóta- þorps. Tillaga þessi var sett fram fyrir frumkvæði fulltrúa sjálf- stæðismanna í skipulagsnefnd. í þessari tillögu segir m.a.: „Grjóta- þorp fellur undir skilgreininguna um endurnýjunarsvæði og er því talið æskilegt að verulegar um- bætur á núverandi mannvirkjum og umhverfi eigi sér stað á skipu- lagstímabilinu. Er stefnt að því að skapa hlýlegt umhverfi með blandaðri, en um leið samstæðri byggð íbúða, verslana, skrifstofa, þjónustufyrirtækja og létts iðnað- ar (handverks). Eins er stefnt að því að varðveita hinar skemmti- legu og óvenjulegu götur. Þar sem Grjótaþorp er í hjarta gamla miðbæjarins, en langt frá því að vera í miðjum bænum hvað snert- ir vegalengd til helstu íbúða- hverfa, má gera ráð fyrir að versi- anir og þjónusta verði með mjög sérstæðu sniði. I stað þess að lokka með þægi|egum bílastæðum og rúmgóðum húsakynnum, lokk- ar Grjótaþorpið með vöruúrvali og hlýleika. Vísir að slíkri þjónustu er þegar fyrir hendi í hverfinu." Óbreytt gatnakerfi I tillögunni eru síðan settir fram fjórir punktar til að ná ofangreindum markmiðum. Þar er fjallað um óbreytt gatnakerfi, verndun einstakra húsa, flutning gamalla húsa á auðar lóðir og ný- byggingar. Þessar tillögur voru ekki afgreiddar. Kosningar fóru síðan fram og skipt var um meiri- hluta. Þrátt fyrir það varð sú stefnumörkun ofan á í aðalatrið- um, sem sett var fram fyrir frum- kvæði sjálfstæðismanna í desem- ber 1977. En stefnumörkun varðandi skipulag er eitt — nákvæm út- færsla er annað. Þegar tillagan um útfærslu skipulagsins í Grjótaþorpi var til umræðu í skipulagsnefnd, gerðum við full- trúar Sjálfstæðisflokksins í nefndinni nokkrar athugasemdir við tillöguna. Vinstri meirihlutinn í skipulagsnefnd vildi ekki á okkur hlusta og knúði tillöguna í gegn- um nefndina. Við sjálfstæðismenn greiddum atkvæði gegn tillögunni og bókuðum athugasemdir í sjö töluliðum. Þær athugasemdir lutu að friðun húsa, alræði embætt- ismannanefndar um framkvæmd- ir í Grjótaþorpi, fjármögnun framkvæmda, tengsl Grjótaþorps við miðbæinn, of stífum ákvæðum um húsagerðir við nýbyggingar og brunatæknileg atriði. Síðast en ekki síst gerðum við athugasemdir við götuumferð Aðalstrætis og töldum að milda ætti hinar miklu andstæður, sem nú blasa við vest- an Aðalstrætis. Töldum við það skipulagslega uppgjöf að gera enga grein fyrir því, hvernig það ætti að leysa. A þessi sjónarmið okkar var ekki hlustað í skipulags- nefnd. Tónninn breyttist Síðan kom málið fyrir borgar- ráð og þá breyttist tónninn allt í ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.