Morgunblaðið - 03.12.1981, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981
I»að kemur berlega í Ijós á þessari mynd, að eldsneytisgeymir geimskutlu Bandarfkjamanna er engin smásmíði,
en hér er hægt að virða fyrir sér stserð tanksins í samanburði við mennina sem þarna eru að flytja hann í
samsetningarskýli geimferjunnar á Kennedy-geimvísindastöðinni á Flórída fyrir skömmu. Þessi geymir verður
notaður í þriðju ferð geimskutlunnar. Eldsneytið, sem er fljótandi súrefni og vetni, nægir aðeins til að koma
skutlunni nokkra tugi kflómetra út í geiminn, eða í nokkrar mínútur, þótt magnið kunni að þykja mikið.
Flugslysið á Korsíku:
Skuldinni skellt á ónóg
flugleiðsögutæki
Belgrad, Ajaccio, 2. dcst'nilMT. Al*.
FJÖLMIÐLAR og fréttastofur í Júgóslavíu fullyrtu í dag, að rekja mætti
orsakir flugslyssins mikla á Korsíku í gær til ónógra og ófullkominna
ilugleiðsögutækja í grennd við Ajaccio-flugvöll. Flugslysið er hið mesta á
þessu ári, alls fórust 174 með flugvélinni, sem var í eigu Inex-Adria-flugfé-
lagsins.
Embættismenn sögðust álíta,
að veðurfar í grennd flugvallar-
ins ætti trúlega hlut að máli, því
hvassviðri og þoka var á og San
Pietro, fjallið sem þotan skall
utan í, var hulið óveðursskýjum.
Hermenn úr frönsku útlend-
ingaherdeildinni fundu í dag
Sovézkir njósnarar
teknir í V-Berlín
Berlín, 2. desember. AP.
BANDARÍSKIR og vesturþýzkir
lögreglumenn handtóku í dag þrjá
sovézka hermenn og sovézkan dipló-
Kona með
tvö móður-
líf ól
tvíbura
Tapei, 30. nóvember. Al*.
26 ÁRA gömul kona á Form-
ósu ól fyrir nokkrum dögum
tvíbura, sem ekki væri í frá-
sögur færandi nema vegna
þess að þeir komu hvor úr
sínu móðurlífinu. Afar fátítt
er að konur hafi nema eitt
móðurlíf og er einungis vitað
um 10 slík tilvik í sögu
læknavísindanna. Móður og
börnum heilsast ágætlega.
mat ásamt AusturÞjóðverja þar sem
þeir voru að reyna að hafa hernað-
arleyndarmál út úr bandarískum
hermanni sem staðsettur er í Vest-
urBerlín.
Handtaka austantjaldsmann-
anna fimm fór fram í Grúnewald-
skógi í V-Berlín. Bandaríski her-
maðurinn skýrði yfirmönnum sín-
um frá tilboði Sovétmanna og
féllst á að vera tálbeita svo hægt
yrði að klófesta þá.
í samræmi við fjórveldasam-
komulagið um Berlín voru Sovét-
mennirnir fjórir afhentir sendi-
ráðsmönnum í A-Berlín, en
A-Þjóðverjinn, sem er 41 árs, er
hins vegar hafður í haldi í V-Berl-
ín meðan rannsókn fer fram í máli
hans.
Framferði Sovétmannanna
fjögurra hefur verið formlega
mótmælt við yfirvöld í Moskvu.
Talsmaður bandarísku herstjórn-
arinnar í V-Berlín neitaði hvorki
né játaði, að Sovétmennirnir
hefðu verið að falast eftir upplýs-
ingum um hernaðarleg mannvirki
í V-Berlín.
svarta kassa flugvélarinnar, en
með rannsóknum á stálþræði
kassans eiga sérfróðir menn auð-
veldara með að segja fyrir um
tildrög og orsakir slyssins. Ekk-
ert hefur verið látið uppi um flug
vélarinnar síðustu mínúturnar
fyrir slysið, annað en það að
flugstjórinn sendi út neyðarkall i
þann mund sem þotan rakst í
fjallshlíðina, fáeinum mínútum
áður en áætlað var að flugvélin
lenti í Ajaccio.
Júgóslavneskir fjölmiðlar
sögðu í dag, að tækjabúnaður á
flugvellinum í Ajaccio og ná-
grenni hans væri ekki eins full-
kominn og gera mætti kröfur til
með tilliti til veðurfars og fjall-
lendis við flugvöllinn. Franskir
sérfræðingar lýstu því yfir, að
ekkert mætti út af bregða og
ekkert svigrúm væri fyrir mis-
skilning í fjarskiptum flug-
manna og flugumferðarstjóra
síðustu mínúturnar fyrir lend-
ingu í Ajaccio, ef illt ætti ekki að
hljótast af.
Fyrirskipuð hefur verið þjóð-
arsorg í Júgóslavíu 4. desember
vegna slyssins. Flaggað verður í
hálfa stöng og öllum samkomum
hefur verið aflýst þann dag.
Tvær júgóslavneskar íþrótta-
stjörnur voru meðal þeirra er
fórust með þotunni, Dare Bernot,
er vann silfurverðlaun á heims-
meistaramóti í siglingum 1963,
og ein efnilegasta sundkona
Júgóslava í dag, hin 14 ára gamla
Spela Regolj. Ásamt Bernot fór-
ust kona hans og tvö börn. Ein
skærasta íþróttastjarna Júgó-
slava fyrr og síðar, fimleikamað-
urinn Miro Cerar hætti við för á
síðustu stundu.
Afganskar þyrlur gerðu
skotárás á Pakistan
Isiamabad, 2. desembiT. Al*.
FIMM manns fórust og þrír særðust alvarlega er tvær afganskar árásarþyrl-
ur gerðu loftárásir á langferðabifreiðir og þorp í Pakistan.
Að sögn formælenda utanríkis-
ráðuneytisins í Islamabad gerðu
þyrlurnar árás á stöðvar í Baluk-
istan-héraði og er hér um alvar-
legasta landamærabrot að ræða
frá því Rússar gerðu innrás sína í
Afganistan fyrir tæpum tveimur
árum.
Atburðunum hefur verið harð-
lega mótmælt við yfirvöld í Kabúl
og í skilaboðum sem afganska
sendifulltrúanum í Islamabad
voru afhent í dag áskildu Pakist-
anar sér rétt til að grípa til viðeig-
andi gagnráðstafana.
„Brjálaði Mike“
ákærður fyrir mannrán
Pretoría, 2. desember. AP.
LEIGULIÐAFORINGINN „Brjálaði
Mike“ er stjórnaði leiguliðum í
Kongó, nú Zaire, á sínum tíma og
aðild átti að misheppnaðri bylt-
ingartilraun á Seychelles-eyjum í
síðustu viku, var ákærður í dag fyrir
mannrán ásamt fimm félögum sín-
um og látinn laus úr haldi gegn
tryggingu.
Þrjátíu og niu menn aðrir er
sakaðir höfðu verið um að eiga að-
ild að byltingartilrauninni og rán-
inu á flugvél Air India-flugfélags-
ins, var sleppt úr haldi án ákæru.
Brjálaði Mike og fjórmenn-
ingarnir eiga yfir höfði sér rétt-
arhöld er hefjast 7. janúar næst-
komandi. Var þeim gert að skila
vegabréfum sínum og tilkynna sig
vikulega á lögreglustöð næst
heimili þeirra. Tryggingin, sem
hverjum og einum var gert að
greiða, var að upphæð 10.500 doll-
arar.
France Albert Rene, forseti
Seychelles-eyja, sagði í dag að sú
ákvörðun dómstóla í Pretoríu, að
láta 39 aðildarmenn að byltingar-
tilrauninni lausa, væri vísbending
um að stjórnvöld í Suður-Afríku
hefðu staðið á bak við hina mis-
heppnuðu byltingartilraun.
Fjórmenningarnir, sem látnir
voru lausir gegn tryggingu og gef-
ið að sök að hafa verið í vitorði
með „Brjálaða Mike“, voru Peter
Bruce Gay Duffy, 40 ára brezkur
ljósmyndari er býr í Durban og
var foringi sveitar leiguliða Mikes,
Tullio Moneta, 42 ára suður-
afrískur leikari, Kenneth Hugh
Dalgliesh, 32 ára Breti er býr í
Durban, og Charles Glen Goatley,
27 ára Rhódesíumaður er var
orrustuflugmaður í herjum
stjórnar Ian Smiths áður en land-
ið varð Zimbabwe.
„Brjálaði Mike“, Michael Hoare,
málaliðinn frægi, sem tók þátt í
árásinni á Seychelles-eyjum, sést hér
yfirgefa réttarsal í Pretoríu í Suður
Afríku, eftir að hann hafði verið lát-
inn laus gegn tryggingu.
Metfjöldi
pólskra
flóttamanna
Vínarborg, 2. desember. AP.
EMBÆTTISMENN skýrðu frá því í
dag, að á 24 klukkustunda tímabili,
frá mánudegi til þriðjudags, hefðu
342 Pólverjar sótt um hæli sem póli-
tískir flóttamenn í Austurríki, en
það er met fyrir einn dag.
Talið er að nú séu um 60 þúsund
pólskir flóttamenn í Austurríki.
Embættismenn segja greinilega
aukningu á þeim fjölda Pólverja
sem sækjast eftir því að flytjast
til Vesturlanda.
Óviss úrslit á
Nýja Sjálandi
Wellington, 1. des. AP.
FLOKKUR Robert Muldoons, for
sætisráðherra Nýja Sjálands, hlaut
hreinan meirihluta í þingkosningun-
um á laugardaginn vegna endurtaln-
ingar sem leiddi til þess að hann
bætti við sig einu þingsæti.
En meirihluti Muldoons er fall-
valtur þar sem eftir er að telja
utankjörstaðaatkvæði og hugsan-
legt er að endurtalning fari fram í
fleiri kjördæmum.
Samkvæmt hinum nýju niður-
stöðutölum kosninganna fær Þjóð-
arflokkur Muldoons 47 þingsæti,
Verkamannaflokkurinn 43 og
Sósíal-kreditflokkurinn tvö þing-
sæti.
Meirihluti Muldoons-manna er
aðeins 16 atkvæði í einu kjördæmi
og 44 í öðru. Við endurtalninguna
sem breytti úrslitunum fékk
flokkur Muldoons 4 atkvæða
meirihluta, en við fyrri talningu
hafði Verkamannaflokkurinn 96
atkvcæða meirihluta.
Lokaúrslit verða kunn þegar
utankjörstaðaatkvæði verða talin
eftir eina viku. Þau voru um 1.500
í hverju kjördæmi í síðustu kosn-
ingum.
Óvænt endalok
l/ondon, 2. desember. AP.
ÓVÆNTUR endir varð á mat-
arboði forseta brezka þingsins
til hciðurs Karli prins og Díönu
prinsessu skömmu eftir að gestir
höfðu setzt að borðum. Veizlan
var haldin í bústað þingforseta í
Westminster og er verið var að
bera fram matarföng, hringdu
klukkur óvænt og skyndilega til
atkvæðagreiðslu í neðri málstofu
brezka þingsins. Stukku við-
staddir þingmenn frá veizluborð-
inu og hröðuðu sér inn í þingsali
og veizlan fór út um þúfur.
George Thomas þingforseti
bað prinsinn og prinsessuna
afsökunar á hvernig til tókst,
og Margrét Thatcher forsæt-
isráðherra, er sat næst Karli
prins, lýsti gremju sinni.
Prinsinn og prinsessan sýndu
stillingu þegar þingmenn
þustu frá borðum, en voru þó
greinilega ekki ánægð.
Ástæðan fyrir því að klukk-
ur hringdu til kosninga í
Westminster var sú, að þing-
maður Verkamannaflokksins
óskaði eftir því að umræður
um erfiða stöðu atvinnulífsins
yrði slegið á frest, en þær
höfðu nálgast suðumark.
Vegna formsins á frestunar-
beiðni þingmannsins varð
varaforseti þingsins að láta
fara fram um hana atkvæða-
greiðslu, en undir venjulegum
kringumstæðum getur hann
frestað fundi án þess að þurfa
að leita álits þingmanna. Sam-
þykkt var með 72 atkvæðum
gegn 32 að fresta fundi.