Morgunblaðið - 03.12.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981
Danmörk:
Nýjar þjóðfélagsaðstæð-
ur kalla á nýjar lausnir
Kristjánsborgarhöll — aðsetur danska þjóðþingsins.
eftir Ib Bjornbak,
fréttaritara Morgun-
blaðsins í Danmörku
Enn stendur danska
þjóðin andspænis þrettán
stjórnmálafiokkum og
stjórnmálamönnunum, sem
allir keppast um að sann-
færa sem flesta um það
hvað sé svart og hvað sé
hvítt, og hvernig eigi að
stjórna landinu svo komizt
verði hjá efnahagslegu
hruni og tryggja megi sem
flestum sem mest réttlæti.
Danir eru ein auðugasta þjóð
veraldar, en þrátt fyrir það eiga
þeir við að etja alvarlegan efna-
hagsvanda, atvinnuleysi, vaxandi
afskipti ríkisvaldsins og erfið
skilyrði atvinnuveganna.
I umraeðum um þau vandræði,
sem við blasa, gleymist oft hver
orðið hefur þróun þjóðfélagsins og
fjölskyldunnar á síðari árum. Frá
því um 1950 hefur Danmörk
óðfluga færzt frá því að vera
dæmigert landbúnaðarland til
þess að verða iðnaðar- og þjón-
ustuþjóðfélag þar sem sveitafólk
hefur flykkzt í borgir og bæi og
tekið sér bóifestu þar. Afleiðingin
af þessu hefur orðið nokkuð sem
stundum er nefnt „hljóðláta bylt-
ingin".
Konurá
vinnumarkaði
Á árunum 1962—1972 fóru kon-
ur fyrir alvöru að rjúfa þá hefð að
heimilið eitt væri starfsvettvang-
ur þeirra. Við upphaf sjöunda
áratugsins störfuðu einungis 22%
giftra kvenna á aldrinum 25—34
ára utan heimilis, en nú eru 82%
þessara kvenna útivinnandi.
Orsakir þessara breytinga eru
fyrst og fremst betri menntun
kvenna og efnahagslegar framfar-
ir í þjóðfélaginu. Afleiðingin hef-
ur m.a. orðið sú, að þar sem tekjur
giftra kvenna voru áður einskonar
uppbót á laun mannsins eru tekj-
ur þeirra nú nauðsynlegar til að
reka heimili — þ.e.a.s. tvenn laun
þarf til að standa undir því líferni
sem flestar fjölskyldur hafa með
aukinni velmegun vanizt. Önnur
afleiðing er sú, að konur yfirleitt
sætta sig ekki lengur við að
grundvalla lífsafkomu sína á
„fyrirvinnu".
Hjónaskiln-
uðum fjölgar
Um leið og þetta hefur átt sér
stað hefur fjölskyldumótið
breytzt. Nú er alsiða — eða þykir
að minnsta kosti ekki tiltökumál
— að ungt fólk búi saman án þess
að ganga í hjónaband, og rann-
sóknir benda til þess að 93% allra
ungmenna séu í fyrstu í slíkri
sambúð. Fleiri og fleiri börn fæð-
ast utan hjónabands og önnur
hver kona fæðir sitt fyrsta barn
án þess að vera gift. Þegar frá
líður er algengt að það fólk sem í
fyrstu er í óvígðri sambúð gangi í
hjónaband — iðulega um það bil
sem annað barnið er að koma í
heiminn. Á sama tíma hefur
hjónaskilnuðum fjölgað um helm-
ing. I % hlutum hjónabanda sem
enda með skilnaði eru börn undir
sextán ára aldri.
Fæðingum fækkar
Barnsfæðingum hefur mjög
farið fækkandi. Ástæðan er m.a.
sú að konur eru ófúsar að sleppa
stöðum sínum í atvinnulífinu, auk
þess sem tími og orka til að sinna
börnum virðist ekki fyrir hendi,
þrátt fyrir aukna þátttöku karl-
manna í heimilisstörfum, og virð-
ist það ekki skipta verulegu máli
að þessu leyti hvort framboð á
dagvistarplássum er nóg eða ekki.
I 80% barnafjölskyldna vinna
báðir foreldrar utan heimilis.
Helmingur mæðranna er í hálfs-
dagsstarfi, en þrátt fyrir slíka
verkaskiptingu, sem að sjálfsögðu
er umdeild frá sjónarmiði jafn-
réttissinna, eru börn til hindrun-
ar. Iðnþjóðfélagið og batnandi
lífskjör hafa kostað sitt. í þeirri
kosningabaráttu sem nú er háð í
Danmörku er fjölskyldupólitíkin
mjög til umræðu, en efnahagsleg
ótíð veitir ekki svigrúm til mikilla
umbóta á þessu sviði.
Atvinnuleysi
Síðustu tvö ár hefur atvinnu-
leysingjum í Danmörku fjölgað
um 88 þúsund, þannig að nú eru
um 275 þúsund manns í þessum
hópi. Samt sem áður hafa Danir á
vinnumarkaði aldrei verið svo
margir sem nú. Vandamálið er
sem sé það, að ekki hefur tekizt að
sjá nægilega mörgum, sem árlega
flykkjast út í mannlífið, fyrir
vinnu, en ekki að stöðum hafi
fækkað. Eitt mikilvægasta verk-
efni þeirrar ríkisstjórnar, sem
tekur við stjórnartaumunum í
Danmörku eftir kosningarnar 8.
desember, verður að finna verk-
efni handa þeim 50 þúsund ung-
mennum, sem eiga í erfiðleikum
með að fá atvinnu. Vandamál
þessa fólks verða ekki leyst til
langframa með atvinnuleysisbót-
um, sem nú nema 90% af grunn-
launum. Atvinnuleysisbæturnar
kosta Dani á ári hverju um 20
milljarða króna, og eru þá ekki
meðtalin útgjöld vegna þeirra
sem gefinn hefur verið kostur á að
fara á eftirlaun áður en þeir kom-
ast á eftirlaunaaldur og heldur
ekki launakostnaður vegna þeirra
53 þúsund manna sem hið opin-
bera hefur ráðið í sína þjónustu.
Mikilvægur þáttur í atvinnu-
leysinu í Danmörku er sú stað-
reynd, að á fáum árum hefur kon-
um fjölgað svo mjög í atvinnulíf-
inu sem raun ber vitni, en at-
vinnuvegirnir hafa hreinlega ekki
verið við því búnir að taka við svo
mikilli fjölgun á svo skömmum
tíma.
Efnahagslífið
Danir hafa orðið að sníða sér
stakk eftir vexti. Rauntekjur hafa
rýrnað um 12% á síðustu tveimur
árum en samkeppnisaðstaða á er-
lendum markaði hefur batnað um
14%, og þrátt fyrir gengisfell-
ingar og hækkandi orkuverð hefur
tekizt að halda verðbólgu niðri.
Útflutningstölur bera vitni um
batnandi samkeppnisaðstöðu.
Dregið hefur úr halla á viðskipt-
um við útlönd, en skuldir erlendis
hafa á síðustu tveimur árum auk-
izt úr 79 milljörðum í 110 millj-
arða. Vextir af þessum skuldum
nema í ár 13 milljörðum króna.
Þrír Rúmenar
dæmdir til dauða
Húkarest, 2. desember. Al*.
ÞRÍR RÚMENAR hafa verið dæmdir til dauða í Rúmeníu fyrir
glæpi, að sögn málgagns kommúnistaflokksins.
Meðal hinna dæmdu er
Gheorghe Stefanescu sem sagð-
ur var foringi undirheima-
sveita, en hann var sagður hafa
komist yfir mikið fé með svindli
og glæpum af ýmsu tagi. Hann
hafði gert sér dælt við embætt-
ismenn og því þurfti háttsetta
flokksmenn til að undirrita
handtökutilskipun á sínum
tíma, en hann var tekinn fastur
fyrir þremur árum.
Hinir tveir er hlutu dauða-
refsingu voru frá Baku í norð-
austurhéruðum landsins og Olt
í suðri, en þeir voru fundnir
sekir um morð af yfirlögðu ráði.
Yfirvöld í Rúmeníu hófu fyrir
skömmu mikla herferð gegn
glæpum þar í landi og hyggjast
taka hart á öllum misindis-
mönnum.
Sprengiefni
til að fjarlægja
nýrnasteina
Tókýó, 30. nóvember. AP.
VÍSINDAMENN við Kyoto-
læknaháskólann í Japan segj-
ast hafa fundið upp aðferð til
að fjarlægja stóra nýrnasteina
úr þvagblöðru án skurðaðgerð-
ar.
Sprengiefni er notað til að
splundra nýrnasteinunum, en
vísindamennirnir segjast hafa
beitt aðferð þessari með góðum
árangri í tveimur tilfellum.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
Þl Al'GI.YSlR I M AI.1.T I.AXD ÞKGAR
Þl Al'GI.ÝSIR I MORGl'NBI.AÐIXl'
23
Smíðajárns-
lampar
Borðlampar
Hengilampar
Vegglampar
Olíuofnar
Gasluktir
Olíuhandluktir
Olíulampar
10, 15, 20 línu
•
Vlalor
Olíuofnar
meö rafkveikju
ST0RZ-
SLÖNGUTENGI
STORZ-
SLÖNGUSTÚTAR
BRUNASLÖNGUR
REYKSKYNJARAR
BRUNATEPPI
SLÖNGU-
KLEMMUR
nota hinir vandlátu
Stærðir frá 'hu—12“
Einnig ryðfríar
TOPPLYKLAR
sveigjanlegir
fyrir slönguklemmur
DELTA
TANNHJÓLADÆLUR
V2“, 1“, 1V2“, 2“,
2V2“
Siml 28855
Opið laugardaga 9—12.