Morgunblaðið - 03.12.1981, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981
27
verða meira en sjálfstæðismenn
spáðu.
Þá sagði Páll að Sjálfstæðisflokk-
urinn hefði ekki verið á móti þétt-
ingu byggðar, heldur því að það væri
eina lausnin, að ekkert annað væri
gert. Þá benti Páll á það að með
ákvörðun um Rauðavatnssvæðið
væri meirihlutinn að ákveða fram-
kvæmdir sem vörðuðu miklu um
framtíð borgarinnar.
Afla borginni
eignarnámsheimilda
Þá talaði Davíð Oddsson (S). Sagði
hann að forsvarsmönnum bygging-
ariðnaðarins þættu þau orð Sigurðar
Tómassonar borgarfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins fróðleg, að sjálfstæð-
ismenn vildu úthluta lóðum til
braskara.
Varðandi ummæli Sigurjóns og
Kristjáns sagði Davíð að þeir vissu
það vel að ef Keldnamenn vildu ekki
selja land Keldna, þá væri ekkert
annað að gera en að afla borginni
eignarnámsheimilda. Það væri ein-
falt mál. Hins vegar væru það tugir
aðila sem borgin þyrfti að semja við
á Rauðavatnssvæðinu og slíkt væri
ekki auðvelt viðfangs.
3 viðræðunefndir í gangi
Þá kom Sigurjón Pétursson (Abl.)
í ræðustól. Hóf hann mál sitt á því
að í ræðu sinni ætlaði hann að halda
sig við staðreyndir. Sagði hann að
kostnaður af eignarnámi á land-
svæði Keldna myndi verða 2- eða
3-faIdur á við kostnað samfara bygg-
ingu Rauðavatnssvæðisins. Sigurjón
sagði, að á þessu kjörtímabili hefðu
3 viðræðunefndir verið í gangi vegna
,Jánds Keldna, og þegar sagt væri að
ekkert hefði verið gert, þá töluðu
menn þvert um hug sinn. Skoraði
Sigurjón á minnihluta Sjálfstæðis-
flokksins að sýna pappíra sem lagðir
hefðu verið fram varðandi viðræð-
urnar við Keldur. Þá sagði Sigurjón
að það eina sem vekti fyrir meiri-
hlutanum í þessu máli væri það, að
nú þyrfti að fara að ganga frá undir-
búningsvinnu vegna Rauðavatns-
svæðisins. Þá flutti Sigurjón svo-
hljóðandi frávísunartillögu á tillögu
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
„Þar sem borgarstjórn hefur þeg-
ar samþykkt, að næstu byggingar-
svæði borgarinnar verði norðan
Rauðavatns og ákvörðun um deili-
skipulagningu svæðisins er í eðlilegu
framhaldi af því, samþykkir borgar-
stjórn að vísa tillögu borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins frá.“
Minnihlutinn hefur
varað meirihlutann við
Ólafur B. Thors (S) kvaðst ekki
vita hvernig upplýsingastreymi væri
innan Alþýðubandalagsins í borgar-
stjórn, og benti hann á að fulltrúar
allra flokka hefðu átt sæti í nefnd
sem fylgdist með samningu aðal-
skipulagsins frá 1977. Sagði Ólafur
að aldrei hefði verið talið að flytja
þyrfti alla starfsemi tilraunastöðv-
arinnar að Keldum burtu frá svæð-
inu. Kvaðst hann ekki muna betur en
borgarstjóri hefði talið að ganga
ætti í eignarnám á svæðinu. Sagði
Ólafur síðan að ekki yrði um minni-
hlutann sagt að hann hefði ekki var-
að meirihluta borgarstjórnar við
Rauðavatnsskipulaginu.
Þá talaði Kristján Benediktsson
(F). Hann varpaði fram þeirri
spurningu af hverju aðalskipulagið
frá 1977 hefði ekki verið staðfest í
meirihlutatíð Sjálfstæðisflokksins,
en 14 mánuðir hefðu liðið frá því
skipulagið hefði verið samþykkt í
borgarstjórn og þar til meirihluta-
skipti hefðu orðið í borginni. Eitt-
hvað hlyti að hafa verið að, fyrst
málinu hefði ekki verið fylgt eftir.
Átti að prenta kort af svæðinu
Síðastur talaði Birgir ísl. Gunn-
arsson (S). Sagði hann að Kristján
Benediktsson vissi betur en hann
segði, varðandi staðfestingu á aðal-
skipulaginu frá 1977. Birgir sagði að
einungis hefði verið gerð athuga-
semd við eitt atriði skipulagsins, að
gert yrði kort í ákveðnu upplagi af
svæðinu til þess að hægt væri að
afhenda fólki prentað eintak. Það
hefði verið eina atriðið sem á hefði
staðið. Síðan hefði borgarverkfræð-
ingur lagt til að gengið yrði í prent-
un þessa korts, á einum fyrstá fund-
inum eftir meirihlutaskipti í borg-
inni. Því hefði verið hafnað í skipu-
lagsnefnd. Sagði Birgir að eitt og
hálft ár hefði liðið í nefndinni þar til
aftur hefði verið minnst á aðalskipu-
lagið frá 1977. Þetta væru stað-
reyndir málsins, en ekkert hefði ver-
ið athugavert við skipulagið.
Að umræðum loknum var gengið
til atkvæða. Við tillögu borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins var komin
frávísunartillaga og var hún sam-
þykkt með 8 atkvæðum meirihluta-
manna gegn 7 atkvæðum sjálfstæð-
ismanna. Þá var mál þetta samþykkt
með 8 samhljóða atkvæðum.
Sigurjón
Davíð
Kristján
Sigurður
ekki einu sinni opinber ákærandi,
það er ekki okkar hlutverk í þessu
tilviki að kanna það ofan í kjölinn
hvort um lögbrot er að ræða eða
ekki. Það er upplýst að þeir aðilar
sem brotið — ef það er fyrir hendi
— beinist að, hafa ekki hreyft legg
eða lið til þess að leita réttar síns og
á meðan svo er, finnst mér ekki
ástæða til að við tökum það í okkar
hendur að gerast löggæslumenn á
þessu sviði," sagði Ólafur.
Þá kom það fram hjá Ólafi að
önnur byggðarlög hefðu leyft hlið-
stæða starfsemi, eða hygðust gera
það, og sagðist hann ekki vilja
stuðla að því að önnur lög giltu í
Reykjavík en úti á landsbyggðinni.
Mun sitja hjá
Þá talaði Sigurður E. Guð-
mundsson (Afl.). Varðandi ummæli
Páls Gíslasonar sagði Sigurður að
alþýðuflokksmenn ætluðu sér ekki
að greiða atkvæði gegn leyfi til
handa Video-son, heldur einungis
sitja hjá. Vitnaði hann til ræðu
Sjafnar Sigurbjörnsdóttur þar um.
Ástæðuna fyrir hjásetunni kvað
hann þá að þeir alþýðuflokksmenn
treystust ekki til þess að greiða leyf-
isveitingu atkvæði, vegna þess að
um lagalegt álitamál væri að ræða.
Menn vildu fyrst fá úr því skorið
hvort um lögbrot væri að ræða, á
því byggðist hjáseta alþýðuflokks-
Eigum ekki að
stuðla ad lögbrotum
Síðust talaði Álfheiður Ingadóttir
(Abl.). Sagði hún að starfsemi Vid-
eo-son væri lögbrot og borgin ætti
ekki að stuðla að lögbrotum. Beindi
hún þeirri spurningu til Ólafs B.
Thors, hvort unnt væri að fá leyfi til
að gera jarðgöng undir peninga-
geymslu banka í borginni, til þess að
hægt væri að fremja þar rán. Myndi
borgin veita leyfi til slíkra fram-
kvæmda?
Síðan var umrædd leyfisveiting
til handa Video-son borin undir at-
kvæði og var hún samþykkt með 9
atkvæðum gegn 5. Borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins ásamt borgar-
fulltrúa Framsóknarflokksins og
Sigurði E. Guðmundssyni varaborg-
arfulltrúa Alþýðuflokksins greiddu
atkvæði með leyfisveitingunni.
Borgarfulltrúar Alþýðubandalags-
ins voru á móti, en Sjöfn Sigur-
björnsdóttir (Afl.) sat hjá.
HAGSTÆÐ JÓLAINNKAUP
Hjá okkur getur þú gert mjög hagstæð
jólainnkaup má þar
á meöal nefna:
ULPUR
verö kr. 250.-
%)
V>.; Jólaskraut alls konar,
' ^ jólapappír — gervijólatré
Fímrmmr og margt, margt fleira
+jóladót.
__ Al,_ - ;" Hjá okkur færðu allar
Barnafatnaöur a mjog nýju8tu p|öturnar 8V0 sem: Dnmtatn
hagstæöu veröi.
Leikföng í úrvali.
GOSHIT^...
— for Future Reference
Wnm(T(
Kíktu
við
«*!»8E»K
Bad Manners Gosh It's Blondie Besl of Blondie Matchbox/lying Colours
Human League — Dare Start Shakin’ Stevens -
— En hún snýst nú samt Shake
Kjallaranum í Kjörgaröi,
Laugavegi 59, gengið inn frá Hverfisgötu og Laugavegi
VILHJALMUR HJALMARSSON
Raupaó ór ráðuneyti
INNANDYRA • Á HVERFISGÖTU 6 í FJÖGUR ÁR 0G FJÓRA DAGA ~
Þetta er fyrsta bók höfundarins. Hún er ný-
stárleg, því enginn íslenskur ráðherra hefir
áður sett saman bók um ráðuneytið sitt.
Vilhjálmur kemur víða við og ræðir m.a.
stöðuveitingar, írafár á Alþingi, námsmanna-
hasa og kalda stríðið um peningana.
Gamansemi Vilhjálms gægist víða fram. Og
oft er seilst eftir svipmyndum utan dyra þótt
Hverfisgata 6 sé þungamiðja bókarinnar.
Frásögnin er opinská en laus við alla beiskju.
180 myndir eru í bókinni.
Verð kr. 320.00
ÞJÓÐSAGA
ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SÍMI 13510