Morgunblaðið - 03.12.1981, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, KíMMtUOÁGUR 3. DESEMBER 1981
35
hvern hátt svo nákominn að erfitt
er að sætta sig við brotthvarf
hans. Að hann sé horfinn okkur
um tíma og eilífð verður ekki trú-
að. Það var okkur öllum erfitt
kvöld þriðjudaginn 24. nóv. sl. þeg-
ar sú harmafregn barst að hann
Siggi Eiríks væri dáinn, það er
ekki hægt að sætta sig við það enn
þótt staðreynd sé. Það er skammt
stórra högga á milli hér hjá okkur.
Flutningur stóð til hjá mér,
Summa og Sigga, engu okkar datt
í hug að leið þeirra Summa fyrst
og svo stuttu seinna Sigga yrði
yfir móðuna miklu, líklega er það
vegna þess hve brottför Sigga var
fyrirvaralaus. En staðreyndum
verður að taka, hans hefur efa-
laust verið þörf á vegum þess
lands, sem öllum er fyrirheitið. Og
þegar við komum að mörkum þess
lands í fyllingu tímans, hittum við
hann þar efalaust með framréttan
arm til aðstoðar, hressan og kát-
an, og veltandi vöngum að vanda,
því kveðjum við Sigga Eiríks nú
um stundarsakir með alúðarþökk
fyrir svo margt, að ekki verður í
orðum talið enda öll orð nú fánýt.
Hugur þakklætis og kærleika,
fylgir honum yfir á veg eilífðar-
innar.
Andi þess kærleika blessi minn-
ingu hans.
Tobba, börn, tengdabörn, barna-
börn Laugalæk 17.
I dag kveðjum við hinstu kveðju
vinnufélaga okkar og vin, Sigurð
Eiríksson, Laugalæk 17, Reykja-
vík, en hann lést af slysförum
þriðjudaginn 24. nóv. sl. Er útför
hans gerð í dag frá Fossvogskirkju
kl. 13.30.
Sigurður var fæddur 16. júní
1926 að Löngumýri á Skeiðum,
sonur hjónanna þar, Ragnheiðar
Ágústsdóttur og Eiríks Þorsteins-
sonar. Systkini Sigurðar eru: Ág-
úst bóndi á Löngumýri, kvæntur
Emmu Guðnadóttur, Elín, gift
Eiríki Guðnasyni og búa þau á
Votumýri á Skeiðum, Þorsteinn
yfirkennari í Reykjavík, lést 1.
október 1978, eftirlifandi eigin-
kona hans er SolveigHjörvar, Páll
aðstoðar-yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, kvæntur Svanfríði
Gísladóttur, og yngst er Ingigerð-
ur, gift Jóni Ingvarssyni bónda á
Stokkseyri. Einn uppeldisbróður
átti Sigurður, Baldvin Árnason
bifreiðasmið, kvæntan Þuríði
Bjarnadóttur og búa þau á Sel-
fossi.
Sigurður var ókvæntur og
barnlaus. Ólst hann upp hjá for-
eldrum sínum og vann í fyrstu
ýmis störf, m.a. við vegavinnu á
sumrin, þar til hann fluttist til
Reykjavíkur árið 1947 og hóf störf
hjá Vegagerð ríkisins. Byrjaði
hann að starfa á vinnuvélum, sem
Vegagerðin var á þeim árum að
taka í notkun í auknum mæli, og
starfaði hann alla tíð siðan hjá
Véladeild Vegagerðarinnar. Kom
snemma í Ijós hve laginn hann var
við stjórn og meðferð hinna ýmsu
véla og tækja, og sýnir það best
hæfni hans að hann gat stjórnað
nánast hvaða vél stofnunarinnar
sem var, enda kunnu ráðamenn
hennar vel að meta þessa kosti
Sigurðar því honum var iðulega
falið að fara út á land, oft með
stuttum fyrirvara, til þess að
leysa vélamenn af, eða kenna nýj-
um ffiönnum og þjálfa þá, sem
hann leysti hvort tveggja af sam-
viskusemi og lipurð.
Oft reyndi á þrek og þol manna
er unnið var við erfiðar aðstæður
eins og t.d. snjómokstur á fjallveg-
um þá veður gerðust vond og
byrgðu sýn ökumönnum, og ganga
varð fyrir ökutækjum og vísa veg-
inn. Kom þá ósérhlífni Sigurðar
oft vel í ljós.
Sigurður var drenglyndur og
einarður í allri framgöngu og því
hreinskiptinn. Hann hafði öðlast
mikla reynslu í starfi, og gat
tengst hinum ýmsu verkþáttum
Vegagerðarinnar, enda eftirsóttur
til starfa af brúarsmiðum og vega-
verkstjórum sem kunnu vel að
meta kosti hans. Það er margs að
minnast nú þegar staldrað er við
og litið til baka. Glaðlyndur var
Sigurður að eðlisfari og hafði
jafnan spaugsyrði á hraðbergi, og
fylgdi honum alltaf ferskur blær í
vinnuflokkunum, en þeir eru orð-
nir margir sem hann hefir unnið í
víðast hvar á landinu. Hélt hann
þar jafnan uppi hressilegum um-
ræðum og lagði þar margt til mála
enda minnugur vel.
Sigurður var féla^slyndur og
var m.a. einn af stofnendum
Starfsmannafélags Vegagerðar
ríkisins. Vann hann þar sem ann;
arsstaðar af alúð og ósérhlífni. I
trúnaðarráði Dagsbrúnar var
hann um langt árabil.
Nú nýlega hafði hann fest kaup
á íbúð, og unnið þar að endurbót-
um í frístundum sínum, og vonað-
ist til að flytja þangað nú um
mánaðamótin — en enginn ræður
sínum næturstað.
Nú þegar leiðir skilur, þökkum
við Sigurði góðan félagsskap og
vináttu sem aldrei bar skugga á.
Systkinum og öðrum aðstand-
endum sendum við okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Samstarfsmenn hjá Vegagerð ríkisins
ATIIYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast hlaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem hirtast á í
miðvikudagsblaði. að berast i
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi. Þess skal einnig getið,
af marggefnu tilefni. að frum-
ort ljóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasið-
um Morgunblaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu línubili.
Seinustu árin bjuggu þau í
Reykjavík.
Björgúlfur og Þórunn dvöldust í
Austurlöndum frá árinu 1915 og
fram til 1926, en þá flytja þau al-
komin til íslands. Það er frá því
ári, sem vinátta okkar Tótu byrj-
ar. Eg var þá að ganga í Mennta-
skólann og fór heim til þeirra á
hverjum degi til þess að lesa undir
skólann. Mér eru þessi ár minn-
isstæð og eftir því sem árin liðu
styrktist vináttan milli mín og
þessara sæmdarhjóna og henni
lýkur ekki, þótt þau séu nú bæði
horfin sjónum í bili. Minningu
þeirra varðveiti ég, orna mér við
hana, þegar leiði sækir að mér.
Mér eru árin, sem ég átti vináttu
þeirra Þórunnar og Björgúlfs,
minnisstæður kapítuli í lífinu.
Þórunn og Björgúlfur eignuðust
fimm börn: Sigrúnu sem giftist
Sigfúsi Hauki Guðmundssyni,
flugvallarstjóra og eru þau bæði
látin, Egil, kvæntan Þórdísi
Tryggvadóttur, listmálara, Ásu,
verzlunarmann í Reykjavík, Þór-
unni, gifta Hregp'iði Stefánssyni,
arkitekt, og Olaf, tannlækni,
kvæntan Bergljótu Guðmunds-
dóttur Ólafs.
Um leið og ég kveð Tótu, en svo
nefndi ég alltaf Þórunni móður-
systur mína, votta ég þeim öllum
innilega samúð.
Þórunn Benediktsdóttir var
dóttir dr. phil. Benedikts S. Þórar-
inssonar, kaupmanns í Reykjavík
og fyrri konu hans, Sólrúnar Ei-
ríksdóttur frá Svínafelli í Nesjum.
Sólrún lézt 1901. Þórunn lifði
lengst af fyrri konu-börnum Bene-
dikts. Hin voru Þyri Helga, kaup-
kona í Reykjavík, dáin 26. júní
1966, Þórdís Todda, gift Jóni
Kristjánssyni, prófessor, þau lét-
ust bæði úr spænsku veikinni 9. og
12. nóvember 1918, Solon, sem
lengst dvaldist í Bandaríkjunum,
en var fluttur heim og lézt hér 12.
desember 1971. Síðari kona Bene-
dikts var Hansína Eiríksdóttir frá
Karlskála og er einn sonur þeirra
á lífi, Eiríkur, sem lengst hefur
starfað í sendiráði íslands í Lond-
on. Hin voru Sigríður, gift Óskari
Norðmann og eru þau bæði látin.
Sigríður lézt 12. september 1976,
en Óskar 20. ágúst 1971, og Þórar-
inn, giftur Maríu Ágústsdóttur
Bjarnason. Þórarinn lézt 2. októ-
ber 1961.
Látiö okkur leiöbeina yöur
um val á FENNER drifbún-
aÖÍ Vald. Poulsen
Suöurlandsbraut 10
Sími 86499
FENNER
reimar og reimskífur
LADA KðOCANADA
Munið aö varahlutaþjónusta okkar er í sérflokki. Það var
staöfest í könnun Verölagsstofnunar.
Verð ca. kr.
77.500.-
Bifreiðar \ LamlininaOarvélar hí.
Suéiirlaiid>liraiil 14 • I1i‘>kja\ik - Sími
Kristján B.G. Jónsson