Morgunblaðið - 03.12.1981, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981
47
• Knattspyrnumaðurinn ungi Arnór Guðjohnssen leikur nú betur en nokkru
sinni fyrr. Hér er Arnór í leik með liði sínu Lokeren en hann er að verða einn
af máttarstólpum liðsins.
„Lið okkar er
óskrifað blað“
- segir Hilmar landsliðsþjálfari
„ÞESSI keppni í Portúgal verður
erfið, og ég vil engu spá um árangur
okkar liðs. Ég tel nefnilega að lands-
lið okkar sé alveg óskrifað blað. Það
verður bara að koma í Ijós hver
árangur okkar verður," sagði Hilm-
ar Björnsson, landsliðsþjálfari.
Hilmar sagði það vera nokkuð Ijóst
að Rússar væru með sterkasta liðið í
keppninni og ef að líkum lætur þá
verði liðin frá AusturEvrópu sterk
og erfið viðureignar. Hilmar sagði
íslenska liðið búa yfir ágætum leik-
mönnum með nokkra reynslu. En
eins og svo oft áður væri stóra
spurningin hvernig liðið næði saman
þegar á hólminn væri komið.
- ÞR.
Gunnar Snorra hefur tekiö
forystu í stigakeppninni
GUNNAR Snorrason UBK sigraði af
öryggi í Selfosshlaupinu um helgina,
og hefur hann þar með tekið afger
andi forystu í stigakeppni víða-
vangshlaupanna, því í þeim fjórum
hlaupum sem farið hafa fram, hefur
hann sigrað tvívegis, orðið einu sinni
í öðru sæti og einu sinni í þriðja.
Einar Sigurðsson UBK veitti
Gunnari harða keppni, en fáir
tóku nú þátt miðað við síðasta ár,
og Gunnar Páll Jóakimsson ÍR var
nýstiginn upp úr veiki og því ekki
framar en fjórði.
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir HSK
sigraði í kvennaflokki og Gunnar
Birgisson IR í drengjaflokki, en
þeir fjórmenningarnir sem þar
tóku þátt eru allt efnilegir hlaup-
arar. Úrslitin urðu annars sem
hér segir:
1. Gunnar Snorrason, UBK 37:19
2. Einar Sigurðsson, FH 37:32
3. Sighv. Dýri Guðm.ss. HVÍ 38:38
4. Gunnar P. Jóakimsson, ÍR 39:26
5. Ingvar Garðarsson, HSK 42:12
6. Jón Guðlaugsson, HSK 48:33
Konur:
1. Aðalbjörg Hafst.d., HSK 15:17
Drengir:
1. Gunnar Birgisson, ÍR 12:47
2. Már Mixa, ÍR 13:00
3. Gunnar Styrmisson, HSK 13:23
4. Bergur Pálsson, HSK 13:27
Hörkukeppni í
Kópavogshlaupi
HÖRKIJKEPPNI var í Kópavogs-
hlaupinu, sem fram fór meðan á
verkfalli bókagerðarmanna stóð og
ekki hefur verið hægt að segja frá
fyrr en nú. Þeir félagarnir úr ÍR,
Gunnar Páll Jóakimsson og Ágúst
Ásgeirsson, háðu með sér harða
keppni út allt hlaupið, og tókst hvor
ugum að slíta hinn af sér, en á loka-
metrunum seig þó Gunnar fram úr
og sigraði í hlaupinu annað árið í
röð. Góð þátttaka var annars í hlaup-
inu og hart barist um hvert sæti.
Úrslitin urðu annars sem hér segir:
Karlar:
1. Gunnar Páll Jóakimsson, ÍR 26:23,3
2. Ágúst Ásgeirsson, ÍR 26:23,9
3. Gunnar Snorrason, UBK 26:44,8
4. Sighvatur Dýri Guðmundss., HVÍ 27:38,5
5. Einar Sigurðsson, UBK :!7:49,1
6. Sigfús Jónsson, ÍR 27:51,1
7. Lúðvík Björgvinsson, UBK 28:03,3
8. Leiknir Jónsson, Á 28:24,9
9. Guðmundur Sigurðsson, UMSE 28:29,7
10. Erling Aðalsteinsson, KR 28:50,4
11. Sigurður Haraldsson, FH 28:54,7
12. Jóhann Sveinsson, UBK 29:02,4
13. Ágúst Gunnarsson, UBK 29:30,6
14. Guðmundur Gíslason, Á 29:40,7
15. Stefán Friðgeirsson, ÍR 29:48,7
16. Gunnar Kristjánsson, Á 30:28,6
17. Árni Kristjánsson, Á 30:38,8
18. Guðmundur Ólafsson, ÍR 30:46,7
19. Sigurjón Andrésson, ÍR 30:56,8
Konur:
1. Ragnheiður Ólafsdóttir, FH 13:00,5
2. Hrönn Guðmundsdóttir, UBK 13:45,9
Arnór vekur athygli
KNATTSPYRNUMAÐURINN ungi Arnór Guðjohnssen hefur vakið mikla
athygli í leikjum sínum að undanfórnu með liði sínu Lokeren. Að sögn
belgískra blaða er Arnór orðinn einn af máttarstólpum Lokeren og lykilmað-
urinn í allflestum leikkerfum liðsins. Þá hefur Arnór bæði skorað mikið af
mörkum og lagt upp falleg mörk fyrir félaga sína.
í síðustu tveimur leikjum Lok- um í sjónvarpinu í V-Þýskalandi.
eren í Evrópukeppninni á móti
Saloniki og Kaiserlautern lék
Arnór meistaralega, og fór hróður
hans þá víða. Meðal annars hefur
verið sýnt mikið úr þessum leikj-
Það hefur orðið til þess að hin
ýmsu lið hafa Arnór nú í sigtinu.
En eins og skýrt hefur verið frá
rennur samningur Arnórs við
Lokeren út í lok keppnistímabils-
Snjóleysi hamlar
heimsbikarkeppninni
Heimsbikarkeppnin í skíðaíþrótt-
um fer að hefjast, en strax er komið
babb í bátinn. Risasvig kvenna sem
fram átti að fara í Limone Piemonte
á Italíu á mánudaginn verður að
fresta vegna þess að ekkert er farið
að snjóa að gagni í ítölsku Ölpunum.
Stórsvig kvenna sem halda átti í
nágrannabænum Pila þar næsta
sunnudag þarf einnig að öllum lík-
indum að færa til af sömu ástæðum.
Fyrsti liður heimsbikarkeppninnar
fer þó fram í Val D’Iser í Frakklandi
á föstudaginn en þar er komin snjó-
iol og því fer keppnin þar að öllum
líkindum fram samkvæmt áætlun.
Jafntef li á
ARSENAL og Liverpool skildu jöfn í
16. liða úrslitum ensku deildarbik-
arkeppninnar í knattspyrnu, leikið
var á Highbury í Lundúnum. Ekkert
mark var skorað í leiknum og var
það einkum Bruce Grobbelaar að
þakka, en hann stendur eins og
kunnugt er í marki Liverpool. Arsen-
al sótti nær látlaust í leiknum og
Liverpool lék auk þess með aðeins
10 leikmönnum allt frá 40. mínútu,
er Ray Kennedy var rekinn af leik-
velli fyrir Ijótt brot. Liðin verða því
að reyna með sér að nýju.
Þá fóru fram í fyrrakvöld 3 leik-
ins. Arnór mun því vera undir
smásjánni það sem eftir er af
keppnistímabilinu. Hér að neðan
má sjá umsögn úr einu belgísku
blaði um leik Lokeren og eins og
sjá má fær Arnór hæstu einkunn
eða þrjá. Stjörnur eins og Lato og
Larsen fá aðeins 1.
- ÞR.
TOESCHOUWERS: 5.000.
SCHEIDSRECHTER: Peeters.
DOELPUNTEN; 14’ Mom-
Imens (1—0); 80’ Larsen (2-0).
■ • LOKEREN: Hoogenboom (2),
llngels (2), Dobias (1), De Schrij-
Iver (2), Verheyen (1), Somers (2)
IMommens (2), Van Cauter (1),
jGudjohnson (3), Lato (1), Larsen
í Knatlspyrna 1
Highbury
ir í 3. umferð sömu keppni, auka-
leikir vegna jafntefla. Úrslit urðu
þessi:
West Ham — WBA 0—1
Watford — QPR 4—1
Wigan — Aston Villa 1—2
West Ham sótti nær látlaust
gegn WBA, en framherjar liðsins
voru lánlitlir. Rétt fyrir leikslok
skoraði síðan Cirel Regis sigur-
mark WBA eftir varnarmistök hjá
WH. Paul Allen og Ally Brown
voru reknir út af í leiknym fyrir
slagsmál.
Fer George Best
til Middlesbrough?
ÞAÐ ER með George Best eins og
Mohammad Ali, þeir eru alltaf í
fréttunum, og almenningur veltir
fyrir sér hvað þeir muni taka sér
næst fyrir hendur. George Best er
sem kunnugt er einn mesti knatt-
spyrnumaður allra tíma, en er kom-
inn yfir toppinn og leikur nú í
bandarísku knattspyrnunni með San
Jose Earthquakes. En hann þykir þó
enn afar snjall framherji og enska 1.
deildar félagið Middlesbrough er nú
á höttunum eftir karlinum. Bobby
Murdoch, framkvæmdastjóri Boro
staðfesti í gær, að hann stæði í
samningaviðræðum við Jarðskjálft-
ana og Best sjálfan. Helsta vopn
Murdochs er að benda Best á að
hafi hann hug á að leika í loka-
keppni HM fyrir hönd Norður
írlands næsta sumar, þurfi hann að
sýna fram á hæfni sína í hinni hörðu
ensku deildarkeppni.
Ekki er vitað hverjar verða
lyktir þessa máls, en eigi alls fyrir
löngu þótti ekkert líklegra en að
Best gengi til liðs við sit.t gamla
félag Manchester Utd. Viðræður
fóru fram, en ekkert varð úr.
Hann hefur lýst yfir áhuga sínum
að komast til Spánar með Norð-
ur-írum næsta sumar, en svo óút-
reiknanlegur hefur kappinn þótt,
að ógerningur er að vita hvaða
stefnu málin kunna að taka.
)
' t
• Hér áður fyrr snérist allt líf Best um hið Ijúfa líf. En
nú hefur heldur betur orðið breyting á. Nú er hann hinn
heimakæri fjölskyldufaðir. En á myndinni hér að ofan
má sjá Best ásamt konu sinni og syni.
L