Morgunblaðið - 23.01.1982, Qupperneq 1
40SÍÐUR OGLESBÓK
17. tbl. 69. árg.
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Félag-
ar í IRA
teknir
Kuffalo, 22. janúar. Al\
TVEIR félagar í írska lýð-
veldishernum (IRA) voru
teknir fastir er þeir reyndu
að komast inn í Bandaríkin á
fölskum forsendum í morg-
un.
írarnir eru Owen Carron
þingmaður, sem kosinn var á
þing í Bretlandi eftir andlát
Bobby Sands, hryðjuverka-
mannsins sem svelti sig í hel í
Maze-fangelsinu, og Danny
Morrison.
Carron og Morrison voru
gripnir hvor á sínum staðnum.
Þeir voru á leið til Bandaríkj-
anna til að vera viðstaddir
árshátíð bandarískra samtaka
sem liðsinnt hafa IRA með fjár-
gjöfum.
Tveir Kanadamenn voru
teknir með Carron og Morrison,
en þeir óku bifreiðum þeim sem
írarnir tveir reyndu að komast
á til Bandaríkjanna frá Kan-
ada.
Ian Paisley, leiðtogi írskra
mótmælenda, sagði í dag að
handtaka Carrons og Morrisons
væri auglýsingabrella af hálfu
IRA.
íbúar í borginni Krosno í Póllandi fylgjast með þegar losaður er farmur
af hjálpargögnum frá Rauða krossinum í Finnlandi. Fjórir finnskir flutn-
ingavagnar fluttu sex þúsund matvæiapakka, 12 þúsund pör af stígvélum
og lyf sem ætluð voru íbúum á flóðasvæðunum í Plock. sfmanynd-AP.
Bretland:
Stórminnkað
fylgi kosninga-
bandalagsins
London, 22. janúar. Al\
FYLGI kosningabandalags Jafnaðarmannaflokksins og
Frjálslynda flokksins meðal brezkra kjósenda hefur hrapað
frá því í desember, samkvæmt skoðanakönnun sem Gallup-
stofnunin framkvæmdi fyrir Daily Telegraph og birt var í dag.
Samkvæmt könnuninni nýtur
kosningabandalagið nú fylgis
39,5 af hundraði kjósenda, mið-
að við 50,5 af hundraði í des-
ember. Þá naut Jafnaðarmanna-
flokkurinn fylgis 36 af hundraði
kjósenda, en Frjálslyndiflokkur-
inn 14,5 af hundraði. Nú er fylgi
Jafnaðarmannaflokksins 26,5 af
hundraði og fylgi Frjálslynda
flokksins 13 af hundraði.
Miðað við nýju könnunina
nýtur Verkamannaflokkurinn
fylgis 29,5 af hundraði kjósenda
og íhaldsflokkurinn fylgis 27,5
af hundraði. í desember var
fylgi Verkamannaflokksins
23,5% og fylgi íhaldsflokksins
23% og hefur það ekki verið
minna. Samkvæmt janúarkönn-
uninni hefur persónufylgi Mar-
grétar Thatcher forsætisráð-
herra rokið upp frá því i des-
ember, eða úr 25 prósentum í 32
prósent.
Talið er að ágreiningur Jafn-
aðarmannaflokksins og Frjáls-
lynda flokksins um hvernig
skipta skuli kjördæmum milli
flokkanna sé helzta ástæðan
fyrir fylgishruni bandalagsins
frá því í desember. Ágreiningur-
inn komst upp á yfirborðið í
byrjun mánaðarins, en nú vinna
leiðtogar flokkanna að því að
setja niður þennan ágreining.
Félagar í Samstöðu
fangelsaðir daglega
Yarsjá, Yínarhorg, 22. janúar. Al\
AÐ MINNSTA kosti fjórir félagar í
Samstöðu hlutu fangelsisdóma í dag
fyrir að skipuleggja verkröll eftir að
herlögum var lýst yfir í Póllandi, og
líður vart sá dagur að ekki hljóti einn
eða fleiri félagar í óháðu verkalýðs-
samtökunum dóma af þessj tagi.
Dómstóll í Varsjá dæmdi þá Jerzy
Kaniewski og Arkadiusz Czerwiski í
þriggja og þriggja og hálfs árs fangelsi
fyrir að stofna til verkfalla í llrsus-
dráttarvélaverksmiðjunni, og félagi
þeirra hlaut skilorðsbundinn tveggja
ára dóm. Samskonar dóma hlutu
Andrzej Sluzalec og Witold Jank-
owski-Burczyk í Katowice.
Kirkjuleiðtogar í Póllandi hvöttu
til þess í dag, að látnar verði lausar
þúsundir manna er stungið var í
fangelsi eftir að herlöggengu í gildi,
og verður það inntakið í boðskap
pólskra presta við messur á sunnu-
dag. í tilkynningu Josefs Glemp
erkibiskups sagði að þessar aðgerðir
herstjórnarinnar hefðu einvörðungu
orðið til þess að ala á hatri og
hefndarhug þjóðarinnar. Hermt er,
að stöðugt meiri reiði geri vart við
sig vegna fangelsunarinnar og gefið
hefur verið í skyn að þegar hafi
komið til mótmæla vegna fyrirhug-
aðra verðhækkana á nauðsynjavör-
um 1. febrúar næstkomandi, þeim
mestu í sögu Póllands.
Aðstoðarinnanríkisráðherra Pól-
lands sagði í dag, að af um 5.500
Pólverjum, sem hnepptir hefðu ver-
ið í varðhald eftir 13. desember,
sætu 4.900 enn í haldi. Yfirvöld við-
urkenndu aðeins að hafa fangelsað
rúmlega fimm þúsund manns, en
aðrar heimildir hermdu að tugir
þúsunda Pólverja hefðu verið fang-
elsaðir.
Ráðherrann sagði að rúmlega 13
þúsund manns hefðu verið kallaðir
til yfirheyrslna og var á orðum hans
að skilja, að yfirvöld hefðu áhyggjur
af hugsanlegri mótspyrnu og starf-
semi Samstöðu, sem nú er skipulögð
neðanjarðar.
Félagar í Samstöðu segja yfirvöld
hafa gert upptækar prentsmiðjur
sem notaðar voru til að prenta neð-
anjarðarblöð og flugrit, en samt sé
gefið út neðanjarðarfréttablað í
nokkrum stórum verksmiðjum.
Ellefu félagar í Samstöðu báðu
um hæli sem pólitiskir flóttamenn í
Bandaríkjunum í dag og var þeim
veitt atvinnuleyfi þegar í stað.
Jaruzelski hershöfðingi heldur
ræðu í pólska þinginu á mánudag, í
fyrsta sinn frá því herlög gengu í
gildi. Talsmaður hans sagði þingið
væntanlega staðfesta herlögin, þau
gætu ekki gert á þeim breytingar
eða numið þau úr gildi, það gæti
ríkisráðið eitt gert.
Á fundi miðstjórnar pólska
kommúnistaflokksins var hvatt til
hreinsunar í röðum pólskra kvik-
myndagerðarmanna, nauðsynlegt
væri að yfirbuga andstæðinga
kommúnismans í þeirra röðum.
Þegar hefur verið gerð aðför að
Andrzej Wajda, einum fremsta
kvikmyndastjórnanda landsins, og
búist við að fleiri fylgi i kjölfarið.
„Erum á
leið í
jörðina“
U ashinglon, 22. janúar. Al\
ADEINS er ófundið lík eins
barns er fórst med Boeing
737-þotu Air Florida í Wash-
ington í síAustu viku, og hefur
tekist að bera kennsl á lík
þeirra er fundist hafa, en alls
fórust 74 með þotunni og fjórir
vegfarendur á brúnni á Pot-
omac-ánni, sem þotan skall á.
Þotan skall á brúna á 14.
stræti og hafnaði í Potomac-
ánni 13 sekúndum eftir flug-
tak frá National-flugvelli.
Björgunarmenn fundu svörtu
kassana með hljóðritunum og
tæknilegum upplýsingum um
flug þotunnar á þriðjudag, en
neitað hefur verið að skýra frá
hvað komið hefur í ljós við
rannsókn á þeim.
Blaðið Orlando Sentinel í
Florida hafði þó í dag eftir
heimildarmanni sínum að það
síðasta sem heyrðist á segul-
bandsupptöku af samræðum
flugmanna, var að annar
þeirra hrópaði upp yfir sig:
„Lækkaðu nef flugvélarinnar
... Við erum á leið í jörðina."
Svíþjóð:
Friðarsinni fær sex
mánuði fyrir niósnir
Stokkhólmi, 22. janúar. Al\
Nýsjálondingurinn Owen Wilkes
sem starfaði fyrir friðarrannsókn-
arstofnun í Stokkhólmi (SIPRI), hef-
ur verið dæmdur í sex mánaða fang-
elsi fyrir njósnastarfsemi.
Að sögn embættismanna verður
Wilkes gert að hypja sig úr landi
þegar hann hefur afplánað refs-
ingu sína. Talsmaður Wilkes sagði
að dómnum yrði áfrýjað.
Wilkes hlaut samsvarandi dóm í
Osló í fyrra fyrir njósnastarfsemi
í Noregi. Áfrýjaði hann úrskurðin-
um til hæstaréttar en tekur mál
hans fyrir í febrúar.
Wilkes var fundinn sekur um að
hafa viðað að sér upplýsingum um
leynileg hernaðarmannvirki á
austurströnd í Svíþjóðar. Stofnun-
in, sem hann starfaði hjá, SIPRI,
nýtur framlags sænsku ríkis-
stjórnarinnar og sendir frá sér rit
um vígbúnað og skyld málefni.
Owen Wilkes — Sex mánaða fang-
elsi fyrir njósnastarfsemi.