Morgunblaðið - 29.01.1982, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982
VERTÍÐARSTEMMNING Mikil atvinna er nú á Suðurnesjum, eftir að fólk hafði verið
þar atvinnulaust um hríð vejjna verkfalls sjómanna. í Grindavík er nú unnið fram á kvöld á degi hverjum, en
Raj>nar Axelsson tók þessa mynd í fiskverkunarstöð Hóps hf. nú í vikunni, er verið var að vinna afla úr
l»orsteini G’K.
Steindórsstöðvarmálið:
Lögbanni frestað
BORGARFOGETAEMBÆTTIÐ í Reykjavík ákvað í gær að fresta því að
taka fyrir lögbannskröfu samgönguráðuneytisins á rekstur Bifreiðastöðvar
Steindórs sf.
Var lögmönnum kaupenda og
seljenda stöðvarinnar gefinn viku
frestur til að skila gögnum sínum
varðandi málið og verður lög-
bannskrafan tekin fyrir að nýju
hjá embættinu að frestinum liðn-
um.
Að sögn eigenda bifreiðastöðv-
arinnar eru þeir mjög óánægðir
með gang mála og hafa nú hafið
undirskriftasöfnum meðal al-
mennings til stuðnings málstað
sínum og hyggjast leggja undir-
skriftirnar fyrir samgönguráð-
herra, Steingrím Hermannsson, í
upphafi næstu viku.
Um 6-7% tap á Iðnaðar-
deild Sambandsins 1981
Ullariðnaðurinn nú rekinn með 4-5% tapi
„I>AÐ VAR tap á rekstri Iðnaðar
dcildarinnar á síðasta ári og það er
áætlað samkvæmt bráðabirgðatölum
6—7% af heildarveltu, sem var
230—240 milljónir króna,“ sagði
Sigurður Friðriksson, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs Iðnaðardeildar
Sambandsins á Akureyri, í samtali
við Mbl. I*að má því ætla að tap
fyrirtækisins á síðasta ári sé á bilinu
13,8—16,8 milljónir króna.
Lán Húsnæðisstofnunar hækka:
2~4 manna fjölskylda á nú
kost á 157 þúsund kr. láni
STJORN HUSNÆÐISSTOFNUNAR ríkisins hefur nú
ákvedið hámarks lánveitingar fyrir íbúðir og hús sem
verða fokheld á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Hámarks-
lán til 2-4 manna fjölskyldu verður nú 157 þúsund krón-
ur, en var 141 þúsund krónur.
Samkvæmt upplýsingum Sig-
urðar Guðmundssonar fram-
kvæmdastjóra Húsnæðisstofn-
unar ríkisins, þá er hámarkslán
einstaklings nú 123 þúsund krón-
ur, 2-4 manna fjölskyldu 157 þús-
und krónur, 5-6 manna fjöl-
skyldu 186 þúsund krónur og 7
manna fjölskyldu eða stærri 217
þúsund krónur.
Ennfremur hafa verið ákveðin
hámarkslán til þeirra, sem eru
að kaupa eldri íbúð. Þar er há-
markslán einstaklings 62 þúsund
krónur ef um fyrstu íbúð er að
Færeyingar veiddu 16.938 lestir
af bolfiski við ísland í fyrra, þar
af var þorskur 6.183 lestir. Þeir
höfðu heimild til að veiða samtals
17 þúsund lestir, þar af 6 þúsund
lestir af þorski. Norðmenn veiddu
2.372 lestir af bolfiski við ísland í
fyrra, en samkvæmt samningi
máttu þeir veiða 2 þúsund lestir.
Norðmenn veiddu í fyrra 576 lest-
ir af þorski við ísland. Leyfi til
Belgíumanna eru gefin til ákveð-
inna skipa og veiddu Belgarnir
3.882 lestir af bolfiski, en höfðu
heimild til að veiða 5 þúsund lest-
ræða, annars 31 þúsund krónur,
2-4 manna fjölskylda getur feng-
ið 79 þúsund krónur fyrir fyrstu
íbúð, en 39 þúsund krónur fyrir
aðra, 5-6 manna fjölskylda á kost
á 93 þúsund króna láni fyrir
fyrstu íbúð, en 46 þúsund krón-
um fyrir aðra og 7 manna fjöl-
skylda og stærri á kost á 109 þús-
und króna láni fyrir fyrstu íbúð
en 54 þúsund krónum ef um aðra
íbúð er að ræða.
Útlendingar veiddu
23 þúsund lestir af
bolfiski við ísland
Á SÍÐASTA ári veiddu útlendingar 23.192 lestir af bolfiski
hér við land, þar af 8.080 lestir af þorski. Færeyingar, Norð-
menn og Belgar hafa samninga um fiskveiðar í íslenzkri
lögsögu og hefur þeim ekki verið sagt upp, en slíkt þarf að
gera með sex mánaða fyrirvara, og má húast við svipuðum
afla útiendinga hér við land í ár.
Kosið um áfengis-
útsölu í Garðabæ
Á BÆJARSTJÓRNARFIJNDI í Garðabæ var í gærkvöldi samhljóða sam
þykkt tillaga um að leitað verði álits bæjarbúa við komandi bæjarstjórnar
kosningar, hvort vilji erfyrir hendi til að heimila áfengisútsölu í bænum.
í tillögunni felst ekki afstaða
bæjarfulltrúa til áfengisútsölu, að
sögn Jóns Gauta Jónssonar bæjar-
stjóra. Segir í greinargerð með til-
lögunni, að þar sem frágangur
hönnunar væntanlegs miðbæj-
arsvæðis sé á lokastigi, sé rétt að
kanna vilja íbúanna til síkrar út-
sölu. Áfengisútsala verður ekki
sett upp í bæjarfélaginu nema að
fyrir liggi meirihlutavilji bæj-
arbúa og er það samkvæmt laga-
ákvæðum. Þar sem áfengisútsala
krefst sérstakrar aðstöðu telja
bæjarfulltrúar rétt að láta kanna
vilja íbúanna um leið og kosið
verður til bæjarstjórnar á kom-
andi vori.
Sigurður Friðriksson sagði
ennfremur, að um þessar mundir
væri tapið á ullariðnaðinum í
kringum 4—5%.
„Þessi gengisfelling um daginn
kemur okkur að hluta til góða, það
er við fáum hærra verð fyrir
okkar vöru, en hins vegar hækka
aðföng líka. Þá hækka erlend lán,
sem eru að mestu leyti í dollurum
á móti. Til viðbótar þessu hækka
laun eins og lög gera ráð fyrir 1.
marz nk. Fyrir okkur er því um að
gera, að nýta tímann fram að því
vel í útflutningi," sagði Sigurður
ennfremur.
Það kom fram í samhandi við
skinnaiðnaðinn, að þar væru
ákveðin ský á lofti, sem væru Pól-
land. „Það er allt í óvissu með
Pólland, hvort yfir höfuð verður
eitthvað flutt þangað á næstunni.
Ef landið lokast þýðir það ein-
faldlega, að framboð á næstunni
eykst, sem þýðir áfram lækkun á
verði skinnavarnings," sagði Sig-
urður Friðriksson.
Dráttar-
vextir lækka
RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt til
við Seðlabankann, að dráltarvextir
verði lækkaðir úr 6i% á ári í 4H% á
ári. Þetta kom fram í ræðu
Steingríms Hermannssonar, sjáv-
arútvegsráðherra, í útvarpsumræð-
um í gærkvöldi. Dráttarvextir eru
nú 4,5% á mánuði. Með þessari
breytingu verða þeir 4% á mánuði.
Svavar Gestsson um Helguvíkurmálið:
Ókunnugt um að rannsókn-
ir skeri úr um staðarval
„Stend ekki í deilum við félagsmálaráðherra
í fjölmiðlum“ — segir utanríkisráðherra
Albert Guðmundsson:
Minnisvarði um reykvíska
sjómenn og verkamenn
AI.BKRT Guðmundsson, borgarfulltrúi, flutti tillögu í borgarráði þriðjudaginn
26. janúar síðastliðinn, sem er svohljóðandi:
„I framhaldi af samþykkt hafn-
arstjórnar frá 8. apríl 1976 og
borgarstjórnar frá 6. maí 1976, þar
sem tillaga frá mér um að reisa
minnismerki í Reykjavík um
reykvíska sjómenn og verkamenn
var samþvkkt, samþykkir borgar-
ráð nú, að fela borgarverkfræðingi
að hafa forystu um framkvæmd
þessa máls þannig, að á 200 ára
afmæli Reykjavíkurborgar 1986
verði minnisvarðinn afhjúpaður
eða tekinn í notkun, ef um bygg-
ingu verður að ræða.“
„MÉR ER kunnugt um, að það hafa farið fram einhverjar
rannsóknir, en ekki að þær skeri úr um þetta atriði, það er
staðarval í Helguvík. l>á er í Helguvíkurtillögunum einnig
gert ráð fyrir geymum á vellinum, það er daggeymum. I»á
hefur ekki verið heimiluð staðsetning á geymunum þarna,“
sagði Svavar Gestsson félagsmálaráðherra, er Mbl. bar undir
hann yfirlýsingu Ólafs Jóhannessonar um að allar jarðvegs-
rannsóknir sýni að meiri hætta sé fólgin í staðsctningu olíu-
geyma innan vallargirðingarinnar en við Helguvík.
Svavar sagði einnig, að hann
væri enn fylgjandi tillögum þeim
sem kenndar hafa verið við Olíufé-
lagið, þ.e. að geymarnir verði inn-
an vallargirðingarinnar. í tilefni
af ummælum hans um að ekki
hefði verið veitt heimild til stað-
setningar geymanna við Helguvík
var hann spurður, hvort hann
myndi beita áhrifum sínum sem
æðsti yfirmaður sklpulagsmála til
að slík heimild verði ekki veitt.
Hann svaraði: „Ég hef ekki í hót-
unum við meðráðherra mína í
Morgunblaðinu. — Ég mun stuðla
að því að þetta vandamál Suður-
nesjabúa verði leyst, en ég sé ekki
að lausnin felist í því að geymarn-
ir verði við Helguvík."
Mbl. spurði Ólaf Jóhannesson
utanríkisráðherra nánar um þær
jarðvegsrannsóknir sem hann
sagði styðja staðarval hans við
Helguvík og hvort hann vildi tjá
sig nánar um málið: „Ég stend
ekki í deilum við félagsmála-
ráðherra í fjölmiðlum," svaraði
hann, og vildi engu við það bæta.