Morgunblaðið - 29.01.1982, Síða 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982
Landnám Eiríks rauða 1000 ára:
Grænlandskynning
í Norræna húsinu
Á ÞESSU ári halda Grænlendingar hátíð til minningar um að 1.000 ár eru nú
liðin síðan Eiríkur rauði og forunautar hans námu land á suðvesturhluta
landsins. í því tilefni verða hátíðahöld á Grænlandi dagana 2. til 9. ágúst.
Hér á landi verður einnig ýmislegt gert til að minnast landnáms Eiríks rauða
og verður meðal annars staðið að kynningu á Grænlandi í Norræna húsinu,
sem hefst laugardaginn 30. þessa mánaðar.
Að þessari kynningu standa Stuttar kvikmyndir verða einn-
áhugasamtök, en aðild hins opin- ig sýndar á kvöldum þessum og í
bera er enn óákveðin. Þar sem hér
er um áhugamannasamtök að
ræða hefur reynzt nauðsynlegt að
selja aðgang að kynningunni að
frátekinni opnun hennar.
Er dagskráin til febrúarloka á
þessa leið:
30. jan.
Opnun kl. 16:00.
Forseti Islands, Vigdís Finn-
bogadóttir, flytur ávarp. Henrik
Lund, bæjarstjóri í Julianeháb,
flytur fyrirlestur um Grænlend-
inga í dag.
4. febr.
bókasafni verður sýning á bókum
um grænlensk málefni.
Þeir aðilar, sem standa að fram-
kvæmdum í tilefni 1000 ára hátíð-
arinnar, eru: Alþýðuleikhúsið,
Arbæjarsafn, Félag dönskukenn-
ara, Grænlandsvinafélagið, Menn-
ingar- og fræðslusamband alþýðu,
Námsflokkar Reykjavíkur, Nor-
ræna félagið og Norræna húsið.
Aðgangskort að allri dag-
skránni: 100 kr. Aðgangur hvert
kvöld: 10 kr. Aðgangur að loka-
dagskrá með Rasmus Lybert: 30
kr.
Grænlenzkar konur við skinnasaum í tjaldi. M vndin er tekin 1979.
Rannsóknin á Tass-fréttinni tekur nýja stefnu:
Agarkov snýr ekki aftur
Nýi forstjórinn veit ekkert um málið
ALEXANDER Agarkov, forstöðumaður Novosti eða APN-
fréttastofunnar sovésku hér á landi, hefur látið af störfum.
Ad vísu hefur Agarkov verið fjarverandi frá 9. ágúst 1981,
þegar hann hélt í sumarleyfi til Sovétríkjanna. Skömmu síðar
taldi Haukur Már Haraldsson, blaðafulltrúi ASI, Agarkov
hafa sent ranga frétt héðan í nafni Tass. Tók sendiráð Sovét-
ríkjanna í Reykjavík að sér að komast til botns í málinu en
allt fram í október var því borið við, að rannsóknin strandaði
á því, að Agarkov væri í sumarleyfi.
Trofimov, blaðafulltrúa, að líklega
yrði ekki frekar af þessu máli að
frétta fyrr en í kringum 20. septem-
ber, um þær mundir sneri Alexander
Agarkov úr sumarfríi sínu til
Moskvu.
22. október 1981 er sagt frá því í
frétt í Mbl., að daginn áður hafi
blaðið rætt við Viktor Trofimov,
blaðafulltrúa, og hefði hann sagt
Agarkov enn í fríi. Ekki tókst að ná í
Trofimov í gær.
Undirbúningur hafinn
að 323 íbúðum á fé-
Kl. 20:30.
Dr. Kristján Eldjárn flytur
minningar frá sumardvöl á Græn-
landi 1937, og segir frá uppgreftri
miðaldaminja í Vestribyggð.
12. febr.
Kl. 20:30.
Prófessor, dr. Rolf Kjellström
frá Svíþjóð fjallar um giftingar-
siðieskimóa.
17. febr.
Kl. 20:30.
Dr. Björn Þorsteinsson: Saga
Grænlendinga.
25. febr.
Kl. 20:30.
Steindór Steindórsson frá Hlöð-
um: Náttúra Grænlands.
I lok hvers þáttar mun Bene-
dikta Þorsteinsson kynna og
kenna nokkur orð í grænlensku.
Bjarni Jakobsson
Sjálfkjörið
í stjórn Iðju
SJÁLFKJÖRIÐ var í stjórn og trún-
aðarmannaráð Iðju, félags verk-
smiðjufólks, fyrir starfsárið 1982.
Formaður er Bjarni Jakobsson,
varaformaður Guðmundur Þ. Jóns-
son, ritari Guðbjörn Jensson, gjald-
keri Jóhann Guðbjartsson, með-
stjórnendur Guðmundur Guðni Guð-
mundsson, Sigríður Skarphéðins-
dóttir og Ásdís Guðmundsdóttir.
Varamenn í stjórn eru Hannes
Olafsson, Áslaug Magnúsdóttir og
Helga Jörundsdóttir.
Eftirmaður Agarkovs sem
forstöðumaður APN er Evgení Barb-
ukho. í samtali við Morgunblaðið í
gær sgðist hann hafa tekið við for-
stöðu APN af Agarkov 14. janúar sl.
Hann staðfesti, að Agarkov hefði
aldrei komið úr sumarleyfinu, hins
vegar væri kona hans veik og þess
vegna gæti hann ekki haldið hér
áfram störfum. Barbukho talar ís-
lensku, enda sagðist hann hafa verið
forstöðumaður APN á íslandi 1977
til 1979, áður en Agarkov kom. Barb-
ukho sagðist hafa verið svo önnum
kafinn síðan hann kom hingað til
lands, að sér hefði ekki gefist tóm til
að kynna sér „Tass-málið“ og yfir-
lýsingar Hauks Más Haraldssonar,
hann vissi ekkert um það mál.
Alexander Agarkov fór héðan í
sumarleyfi í Sovétríkjunum 9. ágúst
1981. Hinn 12. ágúst, á meðan Svav-
ar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, var í opinberri heim-
sókn í Moskvu, birtist um það frétt á
forsíðu Prövdu, að út hefði komið á
íslensku skýrsla Leonid Brezhnevs,
leiðtoga sovéskra kommúnista, til
26. þings Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna. Daginn eftir, 13. ágúst,
birtist sama frétt í málgagni Sovét-
stjórnarinnar, Isvestíu. Var fréttin
dagsett í Reykjavík 11. ágúst og höfð
eftir fréttaritara Tass. Var í frétt-
inni vitnað til Hauks Más Haralds-
sonar, blaðafulltrúa Alþýðusam-
bands íslands og formanns „Islensku
friðarnefndarinnar", sem auk þess
vinnur í hjáverkum fyrir Novosti.
Sagði í frétt Tass, að Haukur Már
hefði lýst fögnuði yfir því, að um-
rædd skýrsla væri komin út á ís-
lensku og fór hann lofsamlegum orð-
um um Sovétríkin og kommúnista-
flokk landsins.
Morgunblaðið skýrði frá fréttinni
í Prövdu og Isvestíu hinn 18. ágúst.
Daginn eftir birtist yfirlýsing hér í
blaðinu frá Hauki Má Haraldssyni,
þar sem hann sagði, að frétt Tass
væri uppspuni, enginn Tass-maður
hefði rætt við sig.
Við svo búið sneri Morgunblaðið
sér til Viktors Trofimovs, blaða-
fulltrúa sovéska sendiráðsins í
Reykjavík, sem staðfesti, að Agark-
ov sendi Tass stundum fréttir frá
Islandi, þótt ekki væri hann starfs-
maður fréttastofunnar. Trofimov
sagði sendiráðið ekki vita um samtöl
Agarkov við Hauk Má Haraldsson og
æskilegt væri að ná tali af Agarkov
til að fá það á hreint hvað þeim fór á
milli. I frétt, sem Morgunblaðið birti
um þetta mál 20. ágúst, sagði Trof-
imov, blaðafulltrúi sendiráðsins, að
það hefði ekki tekist að ná sambandi
við Agarkov út af þessu máli, af því
að hann dveldist á sumarleyfisstað
fyrir utan Moskvu.
í frétt, sem birtist hér í blaðinu 4.
september, segir, að sovéska sendi-
ráðið hafi ekki lokið rannsókn sinni
á fullyrðingu Hauks Más Haralds-
sonar um rangfærslurnar hjá Tass.
Jafnframt er það haft eftir Viktor
lagslegum
SÍÐAN lög um Hú.snæðisstofnun
ríkisins tóku gildi hafa vcrið sam-
þykktir lánasamningar er taka til
279 verkamannabústaða og leigu-
íhúða sveitarfélaga. íbúðir þessar
eru í 28 sveitarfélögum. Á árinu
1980 voru framkvæmdir hafnar við
74 þessara íbúða, en framkvæmdir
við 205 þeirra hófust 1981. Af þess-
um 279 íhúðum eru 252 verka-
mannabústaðir, en 27 leiguíbúðir
sveitarfélaga.
Auk framangreindra 279 íbúða,
sem gerðir hafa verið lánssamn-
ingar um, hefur húsnæðismála-
Nýr matsölustaöur:
Gódborgarinn
opnar á Hagamel
NVK matsölustaður verður opnaður í
Reykjavík á morgun, laugardag. Það
er Birgir Viðar Halldórsson sem
opnar „Góðborgarann", að Hagamel
67, í húsna'ði því sem áður hýsti veit-
ingahúsið Vesturslóð. Birgir hefur
keypt staðinn, og breytt honum, og
opnar hann nú eftir ýmsar breytingar.
„Fyrsta verk okkar var að skipta
um nafn, og leggja vínveitingarnar
niður,“ sagði Birgir, er blaðamaður
spurði hann um nýja staðinn. „Við
höfum valið staðnum nafnið Góð-
borgarinn, og vonumst til að nafnið
muni gefa nokkra vísbendingu um
hvað hér verður á boðstólum. Þetta
verður eins konar skyndibitastað-
ur, seldir fiskborgarar, kjúklingar,
roast-beef-borgarar og fleira. Hið
síðastnefnda er nýmæli hér á landi,
þar sem roast-beef er selt í ham-
borgarabrauði, með sérstakri sósu.
Þá verða hér að sjálfsögðu seld sal-
öt og annað er hverjum rétti til-
heyrir.“
Að sögn Birgis Viðars gefst gest-
um kostur á að snæða máltíð sína á
staðnum óski þeir þess, og einnig
getur fólk tekið réttina með sér út,
allt eftir óskum hvers og eins.
Fjölsóttir og
vel heppnað-
ir fundir
- segir framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokks-
ins um atvinnumála-
fundi sjálfstæðismanna
„PESSIR fundir hafa gengið
vel, víðast verið mjög vel
sóttir og fjörugar umræður
hafa orðið eftir ræður frum-
mælenda," sagði Kjartan
Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, í
samtali við blaðamann
Morgunblaðsins, en Kjartan
var spurður hvernig funda-
herferð sjálfstæðismanna um
atvinnumál gengi.
Að sögn Kjartans hefur
veður þó sett strik í reikn-
inginn á nokkrum stöðum,
þar sem fella varð niður
fundi eina helgi, en þeir
fundir verða nú á næstunni,
og þá auglýstir sérstaklega.
„Að öðru leyti hefur þetta
gengið vel,“ sagði Kjartan,
„ég get nefnt sem dæmi, að
um áttatíu manns sóttu
fundinn á Akureyri, og fjöl-
margir tóku þátt í umræð-
um, og einnig var fundurinn
í Hafnarfirði mjög vel sótt-
ur, eins og raunar allir
fundirnir fram til þessa.“
grundvelli
stjórn á liðnu ári heimilað 20
sveitarfélögum undirbúning að
byggingu 323 íbúða. Gera má ráð
fyrir að framkvæmdir hefjist við
verulegan hluta þessara íbúða á
árinu 1982. Þá hafa ennfremur
borist frumumsóknir um 232 íbúð-
ir frá 13 sveitarfélögum. Hafa þær
umsóknir enga afgreiðslu fengið,
fyrst og fremst vegna skorts á
nauðsynlegum gögnum og upplýs-
ingum. Ofangreindar upplýsingar
koma fram í fréttatilkynningu frá
Húsnæðismálastofnun ríkisins.
Segir ennfremur að útborguð
lán úr Byggingarsjóði verka-
manna á árinu 1981 hafi orðið kr.
107.584.700.- Samþykktar lánveit-
ingar úr Byggingarsjóði verka-
manna á síðastliðnu ári námu
samtals kr. 191.497.371.-, þar af
voru kr. 138.487.499,- veittar til
samtals 336 íbúða í nýjum verka-
mannabústöðum og leiguíbúðum
sveitarfélaga og kr. 44.009.872.-
vegna endursölu 176 eldri íbúða í
14 sveitarfélögum. Fóru samþykkt
lán til nýrra íbúða til 30 sveitarfé-
laga. t ______
„Private Benjamin“
í Austurbæjarbíói
AIJSTURB/EJARBÍÓ hefur nýlega
hafið sýningar á nýrri bandarískri
gamanmynd, „Private Benjamin",
með Goldie llavvn í aðalhlutverki.
Myndin fjallar um 28 ára gamla
konu, Judy Benjamin, sem gengur
í herinn í leit að sjálfri sér. Judy
hefur verið alin upp af ríkum for-
eldrum með dekri og eftirlæti.
Hún á að baki tvö hjónabönd. Hið
f.vrra endaði með skilnaði en eftir
skyndilegt andlát seinna manns
síns, sem var virðulegur lögfræð-
ingur, ákveður Judy að ganga í
herinn og „finna“ sjálfa sig.
Það gengur þó ekki átakalaust,
og lendir hún von bráðar í ýmsum
undarlegum kringumstæðum.
Athugasemd frá Bifreiðastöð Steindórs sf.:
Orðlausir yfir ósvífni
samgönguráðherra
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá eigendum
Bifreiðastöðvar Steindórs sf.:
Við erum orðlausir yfir ósvifni
samgönguráðherra, það er með
ólíkindum að þrátt fyrir að ráðu-
neytið hafi innan sinna vébanda
þrjá lögfræðinga og þar af einn
hæstaréttarlögmann, skuli sam-
gönguráðherra fá Jón Þorsteins-
son, lögmann Bifreiðastjórafé-
lagsins Frama, til að reka hina
siðlausu lögbannsbeiðni sína.
Hvaðan ætlar Steingrímur Her-
mannsson að fá fé til þess að setja
tryggingu fyrir lögbanni nema frá
almenningi? Hvers vegna er lagt
slíkt ofurkapp á að stöðva bifreið-
ir Steindórs sf. án þess að fyrir
liggi niðurstaða dómstóla? Ekki
eru það hagsmunir almennings,
sem knýja á um lögbann. Það er
augljóst að hér er Steingrímur
Hermannsson að láta undan
þrýstingi og er að reka mál fyrir
Bifreiðastjórafélagið Frama.
Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneytis-
stjóri, sagði í blaðaviðtali, að ekki
væri ákveðið hvort Bifreiðastjóra-
félagið Frami eða ráðuneytið færi
fram á lögbann. Nú er komið í ljós
að það er ráðuneytið, sem fer fram
á lögbannið, en starfsmaður Bif-
reiðastjórafélagsins Frama, Jón
Þorsteinsson, rekur það. Það hlýt-
ur að vera algjört einsdæmi að
ráðherra misnoti valdaaðstöðu
sína á þennan hátt.