Morgunblaðið - 29.01.1982, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982
„Hvernig ætla
stjórnvöld
að bæta okk-
ur tapið?“
Rætt við
Bjarna Bjarnason
skipstjóra á
Súlunni EA 300
„Ég tel a<l sjávarútvegsráAherra
hafi misst nióur um sig buxurnar,
|>egar hann ákvað ad allur loúnul'lot-
inn skildi halda áfram veidum, eftir
að lljálmar Vilhjálmsson riskifræð-
ingur kom úr sínum fvrsta leiðangri í
haust en þá mældist loðnustofninn
144 þúsund tonn. I»á voru sum skip-
in, sem hyrjuðu fyrst á veiðunum bú-
in að afla af aflakvóta sín-
um. I'egar þessi staða var Ijós hefði
átt að stöðva þau skip, sem mest
höfðu aflað, svo að aðrir sem búnir
voru að fá minna en helming kvótans
æltu kost á að fá það sama og hin
skipin," sagði Bjarni Bjarnason,
skipstjóri á Súlunni KA .300.
„Þegar ráðherra leyfði skipun-
um að halda áfram veiðunum, þá
lofaði hann því, að ef til þess kæmi
að þeir gætu ekki klárað að veiða
upp í kvóta sinn, þá yrði þeim hætt
það upp. Kn ég sé ekki hvernig á að
fara að því miðað við núverandi
ástand,“ sagði Bjarni.
Telur þú að óhætt hefði verið að
halda veiðunum áfram?
„É)i vil halda því fram að þær
tölur, sem komu út úr seinni leið-
angri Hjálmars Vilhjálmssonar
fyrir áramót þar sem loðnustofn-
inn mældist 350 þúsund tonn séu
ekkert marktækari en þær töiur,
sem komu út úr þessum síðasta
leiðangri sem gerði útslagið með
það að loðnuveiðunum yrði hætt.“
Hve mikið áttuð þið eftir að
veiða upp í kvótann ykkar?
„Við áttum eftir að veiða um 'h
af því sem okkur hafði verið út-
hlutað. Hvað þetta þýðir mikið
tjón fyrir útxerðina er varla hægt
að mæla í tölum, því það er svo
mikið.“
Hve lengi hefur skipið verið frá
veiðum?
„Við höfum verið í biðstöðu síð-
an 6. desember síðastliðinn er
okkur var skipað að hætta að
veiða.“
Hefur mannskapurinn tekið bið-
inni með þögn og þolinmæði?
„Það hefur tekið (íifurlega á alla
að búa við þessa óvissu, því það
skapar óörygKÍ að vita ekki hvaða
tekjur eru framundan og það er
líka erfitt að vera tekjulaus eða á
atvinnuleysisbótum, sem engar
eru.
Síðastliðið haust vorum við á
togveiðum, sem voru rýrar. En við
vissum ekki annaö en við ættum
okkar loðnukvóta í sjónum upp á
12.400 tonn og litum því lífið björt-
um augum. Þegar við vorum búnir
að veiða 8.100 tonn af loðnu vorum
við reknir heim. Síðan líða um
tveir mánuðir, og allur mann-
skapurinn bíður. Fyrir mig sem
skipstjóra, hefur það verið hræði-
legt að sitja við símann og fá upp-
hringingar frá mínum mönnum og
geta ekkert sagt eða gert nema
bíða eftir grænu ljósi og fá svo
rautt ljós,“ sagði Bjarni Bjarnason
skipstjóri.
„Lftið að
marka mæling-
ar fiski-
fræðinganna“
— segir Guðjón
Pálsson skip-
stjóri á Gull-
bergi VE 252
„Menn eru ekkert hressir að fá
svona hremmingu, ætli aflaverdmæt-
in, sem við verðum af séu ekki um
það bil tvær milljónir. Þetta er stór
skellur, sem við vitum ekki hvort við
fáum bættan,“ sagði Guðjón l’áls-
son, skipstjóri á Gullbergi VE 252.
„Nei, ég vil taka það skýrt fram,
að ég tel þessar mælingar fiski-
fræðinganna mjög óáreiðanlegar.
Þeir hafa engin mælitæki sem
hægt er að tre.vsta á hundrað pró-
sent. Þeir setja bara upp eitthvert
reiknilíkan, sem enginn veit hvort
hefur við raunveruleikann að
styðjast eða ekki. Sem dæmi um
þetta, þá kváðust fiskifræðingar
hafa mælt loðnustofninn 144 þús-
und tonn í september síðastliðn-
um. Síðan hafa verið veidd 200
þúsund tonn. Mælingar, sem gerð-
ar voru á loðnustofninum nú í
janúar, sýna svo að loðnustofninn
er 150 þúsund tonn, svo allir sjá
hve mikið er að marka þessar mæl-
ingar, ég segi að niðurstöður fiski-
fræðinganna séu hrein ágiskun."
Hvað er framundan hjá Gull-
berginu?
„Það er möguleiki að skipið fari
annað hvort á net eða á troll. En
slíkt kostar auknar fjárfestingu,“
sagði Guðjón Pálsson skipstjóri.
„Ekki hægt að
stöðva flotann
með öðrum
hætti
en gert var“
— segir Ólafur
Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar
á Neskaupstað,
sem gerir út skip-
in Börk og Beiti
„ÉG EK sammála stjórnvöldum um
það að eðlilegt hafi verið að halda
áfram veiðunum í haust og tel að
fyrst þurfti að stöðva flotann á annað
borð þá hafi ekki verið hægt að gera
það öðruvísi," sagði Ólafur Gunn-
arsson framkvæmdastjóri Síldar
vinnslunnar á Neskaupstað, sem ger-
ir út Börk NK og Beiti NK.
„Ég tel þó að til greina hefði
komið að stöðva þá, sem þegar
höfðu veitt upp í næstum allan
sinn kvóta og leyfa hinum, sem
minna höfðu aflað að halda
áfram.“
Ert þú ef til vill sáttur við þessa
ráðstöfun stjórnvalda að stöðva nú
ioðnuveiðarnar?
„Menn greinir á um þetta mál.
En ég tel ekki rétt, að þeir sem
aldrei koma út á miðin sjálfir eigi
að vera að tjá sig um þessa hluti.
Ég tel þó aðalatriðið að ioðnu-
stofninn sé varðveittur, svo að
hann geti tekiö við þeirri ásókn
sem í hann er. Því það er ekki lítið
í húfi fyrir þennan stóra flota og
loðnuverksmiðjurnar."
Telur þú að þeim skipum, sem
ekki tókst að afla upp í kvótann
beri einhvers konar bætur?
„Já, það geri ég, annað hvort
verður það að gerast með meiri
veiði seinna eða með öðrum hætti."
Hve mikið voruð þið búnir að
veiða upp í kvóta þessara tveggja
skipa, þegar þið urðuð að hætta?
„Við höfðum fengið úthlutað
sameiginlega fyrir þessi tvö skip
tæplega 32 þúsund tonnum og átt-
um eftir að veiða um 3—4 þúsund
tonn á hvert skip.“
Hvað er svo framundan hjá
Berki og Beiti?
„Við erum í hálfgerðu reiðuleysi
með þessi tvö stóru skip, en við
vorum nýbúnir að kaupa annað
þeirra. En það skiptir miklu máli,
að fiskveiðisjóður og byggðarsjóð-
ur geri útgérðarmönnum það kleift
að breyta þessum skipum, svo þau
komist á togveiðar og þannig nýta
þau skip, sem fyrir eru í landinu í
stað þess að kaupa ný,“ sagði Ólaf-
ur Gunnarsson framkvæmdastjóri.
„Þrjár og
hálf milljón
tapast í afla-
verðmætum"
— segir Hrólfur
Gunnarsson skip-
stjóri á Jupiter
„Stöðvun loðnuveiðanna var geysi-
legt áfall en við vorum búnir að veiða
10.500 tonn af 165.000 tonnum, sem
við höfðum fengið úthlutað, sagði
Hrólfur Gunnarsson, skipstjóri á
Júpiter.
„Þessi úrskurður kom mér þó ekki
á óvart, því að þau þrjú ár sem loðnu-
stofninn hefur verið mældur hefur
stofninn sjaldan mælst meira en 150
þúsund tonn í janúar. Ég vil halda
því fram að mælingar á þessum árs-
tíma séu lítt marktækar.
Telur þú að stjórnvöld hefðu get-
að tekið öðruvísi á þessum m ál-
um?
„Ég tel að þeir hefðu átt að taka
jafnt af kvótanum á öllum skipun-
um eða um 20%, en nú kemur
loðnuveiðibannið niður á tiltölu-
lega fáum skipum. Ég tel einnig að
þeir hefðu getað leyft skipunum,
sem minnst höfðu veitt, að veiða
70—100 þúsund tonn í viðbót og
klára þannig kvótann sem þeim
hafði verið úthlutað."
Getur þú mælt það fjárhagslega
tjón, sem þið teljið ykkur hafa orð-
ið fyrir?
„Það er erfitt en ætli það sé ekki
þrjár og hálf milijón króna, sem
tapast hafa í aflaverðmætum."
Hvað er svo framundan?
„Það er allt óráðið. Fjárhagur-
inn er ekki traustur en úthaldið á
Júpiter var á síðasta ári 131 dagur.
Horfur svona amennt tel ég
slæmar, ef það á að stytta loðnu-
veiðarnar ennþá meira en þegar er
orðið," sagði Hrólfur Gunnarsson,
skipstjóri.
„Vildum biða
þangað til
loðnan kæmi
nær Iandi“
Rætt við Jóhann
Antoníusson, sem
gerir út skipin
Hilmi SU 171 og
Hilmi II SU 177
„OKKUR var úthlulad ákveðnum
loðnukvóta í haust og því var lofað
að þetta aflamagn yrði ekki skert. í
trausti þess vorum við ekkert að
flýta okkur á togveiðunum. Við vild-
um frekar bíða þangað til loðnan
væri komin nær landi og tilkostnað-
ur við að afla hennar því orðinn
minni, sagði Jóhann Antoníusson,
sem gerir út skipin Hilmi SU 171 og
Hilmi II SU 177.
Getur þú mælt það fjárhagslega
tjón, sem þið hafið orðið fyrir við
þessa skerðingu? \
„Við fengum úthlutað 16.500
tonnum og vorum búnir að veiða
1.200 tonn og áttum því eftir að
veiða um 4.500 tonn. Verðmæti
þessa afla er 2.207.000,00 krónur og
útgerðin verður af þessum pening-
um. Við erum einnig búnir að tapa
miklum tíma, sem annars hefði
getað nýst til veiða, en skipin hafa
verið bundin síðan 10. desember."
Hvað hyggist þið nú fyrir?
„Ég reikna með að skipin fari
aftur á togveiðar, en hvað útgerð-
armennina varðar, þá eru fyrir-
hugaðar viðræður innan LIÚ um
stöðuna í þessum málum, í næstu
viku, þar sem rætt verður um
hvernig hægt að bæta það fjár-
hagslega tjón, sem bæði skipshafn-
ir og útgerð hefur orðið fyrir vegna
skerðingar á loðnukvótanum, sagði
Jóhann Antoníusson, útgerðar-
maður.