Morgunblaðið - 29.01.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982
rýmt um stundarsakir, ekki aöeins í Pól-
landi, heldur einnig í Sovétríkjunum aö lok-
um.
Fyrst um sinn held ég aö áhrifin veröi
sáralítil og jafnvel allmikill fögnuöur i
Sovétríkjunum þar sem Samstaða hefur
verið brotin á bak aftur og pólska tilraunin
kæfö. Yfirleitt hafa venjulegir íbúar Sovét-
ríkjanna, en einkum þó venjulegir Rússar,
mjög litla samúö með því sem hefur verið
aö gerast í Póllandi. Ég held aö þaö hafi
verið útbreidd skoöun aö Pólverjar heföu
þaö býsna gott, aö þeir væru vanþakklátir,
aö Vesturveldin væru kannski aö draga þá
á tálar og þeir ættu skiliö að fá á baukinn.
Sé lengra horft fram á viö tel ég hins
vegar aö vandamálin sem pólska kommún-
istakerfiö hefur komizt í — árangursleysi,
þverrandi þrek, aukið tilgangsleysi, hvorki
ótti né ógnarstjórn, þrýstingur frá upplýst-
ari verkalýösstétt um aukið tjáningarfrelsi
— muni einnig gera vart viö sig í Sovétríkj-
unum. Hér er að verki, eins og þú veizt,
sögulegur tímamismunur og ég veit ekki
hvort hann verður einn áratugur eöa tveir
áratugir, en það sem hefur gerzt í Póllandi
gæti hæglega verið aö gerast í Eystra-
saltslýöveldunum, í vissum hlutum Vestur-
Ukraínu, kannski í þeim hlutum Sovétríkj-
anna, þar sem þriðja kynslóð verkalýðs-
stéttarinnar er komin til sögunnar og er
dálítið pólitískari i eðli sínu. Þaö er í sjálfu
sér ekki nóg til þess aö úr veröi stjórnmála-
kreppa eins og Pólverjar hafa gengið í
gegnum. En eftir einn áratug eöa tvo gæti
þetta veriö oröiö býsna útbreitt fyrirbæri.
■
■ En hefur þessi stjórn efni á því aö
vera smásálarleg og auvirðileg vegna sam-
skiptanna viö Bandaríkin? Viö skulum taka
þá 27 milljaröa dollara sem Pólverjar-
skulda Vesturlöndum. Tökum korninnflutn-
inginn sem Rússar hafa hafið á ný frá
Bandarikjunum: ekki aðeins Sovétríkin
heldur einnig Austur-Þýzkaland, Pólland
og Tékkóslóvakía flytja inn verulegt magn
af korni.
■
■ Vissulega tel ég aö ef Sovétríkin
mundu grípa til beinnar íhlutunar muni
Bandaríkjastjórn aftur koma á kornsölu-
banni — en meö einum mjög mikilvægum
mun frá því ég kom viö sögu. Ég held nefni-
lega að nú muni Ástralía, Kanada og Arg-
entína taka þátt. Argentína er kaþólskt
land þar sem heilmikil samúö er meö Pól-
verjum. Og þess vegna veröa Rússar mjög
aðþrengdir i matvælamálum.
Ég held aö aö sala á tæknibúnaði verði
stöðvuö. Ég stórefa að Bandarikjastjórn
haldi áfram aö veita bandarískum fyrir-
tækjum leyfi til aö flytja tæknibúnað til
Sovétríkjanna eöa aö leyfi veröi veitt þeim
fyrirtækjum, sem eru viöriöin jarögasleiösl-
una frá Austur- til Vestur-Evrópu. Ég gizka
á aö í þessu máli veröi gífurlegur þrýstingur
frá almenningi í nokkrum Vestur-Evrópu-
ríkjum á vestur-evrópskar ríkisstjórnir aö
gera slíkt hiö sama. Og ég tel aö verka-
lýðshreyfingin mundi hvað sem ööru líður
banna afgreiðslu varnings frá Sovétrikjun-
um og þjónustu viö sovézk skip og flugvél-
ar um allan heim.
■
■ Mundir þú mæla með því aö þessi
bönn yrðu látin ná til Póllands, einkum
kornsölubannið, svo og Austur-Þýzkalands
og Tékkóslóvakíu, sem fá mikiö af korni frá
Bandaríkjunum?
■
■ A þessu stigi mundi eg gera grein-
armun og draga mörkin viö efnahagsaö-
stoö viö pólsku ríkisstjórnina, sem ráöstaf-
ar sjálf, þar sem ég tel aö vegna sviksemi
hennar, bæöi stjórnmálalegrar og efna-
hagslegrar, eigi hún ekki slíka aöstoö skiliö
og viö þurfum ekki að láta hana líta út fyrir
aö vera uppspretta bættra skilyrða í efna-
hagsmálum innanlands. En ég mundi
hallast aö því aö leyft yröi aö haldiö yröi
áfram aöstoö frá einkagefendum til einka-
þiggjenda, eöa ef henni er dreift af einka-
aöilum eins og kirkjunni.
I Rússar hafa nýlega staöiö fyrir
meiriháttar herferö og höföaö til evrópskra
tilfinninga í kjarnorkumálinu. Fyrir stuttu
sýndu þeir mikilvægan, táknrænan velvilja
þegar þeir slepptu tengdadóttur Andrei
Sakharovs til að korha í veg fyrir aö hann
svelti sig í hel. Kemur þetta heim og saman
viö þaö sem viröist hafa gerzt í Póllandi?
■
■ Eg býst viö að á yfirborðinu komi
þetta ekki heim og saman, en þessi mál eru
ólíks eölis og munur er á mikilvægi þeirra.
Engu aö síður held ég aö þú vekir athygli á
mjög mikilvægu atriöi. Ef horft er lengra
fram í tímann er hugsanlegt aö viö getum
staöið andspænis þeirri nokkuö mótsagna-
L
11
kenndu þróun, aö almenningsálitið í
Vestur-Evrópu fyllist fyrst reiöi, sætti sig
siðan við ástandiö og komist svo aö þeirri
niðurstöðu aö þetta sanni aöeins aö
sovézk áhrif séu yfirgnæfandi og að nokk-
urs konar aðlögun aö „raunveruleikanum"
sé nauðsynleg. Þess vegna er svo mikil-
vægt aö viö höfum nú mjög náið samráö
við bandamenn okkar í Evrópu um ákveðin
og sameiginleg viöbrögð.
SP:
Segöu okkur frá mati þínu á því
hvernig þetta muni líklega þróast.
ZB: Með hliðsjón af víðtækri, óvirkri and-
spyrnu og reiði umheimsins og í Ijósi þeirr-
ar hættu, sem getur skapazt, tel ég aö
pólska stjórnin geti enn rætt við æösta
yfirmann pólsku kirkjunnar og Lech Wal-
esa og samstarfsmenn hans um eitthvert
samkomulag, sem geri ráö fyrir aö
umbótaþróuninni veröi haldiö áfram, jafn-
vel innan ramma aúkins valds rikisstjórnar-
innar. Þetta er enn hugsanlegt, en þaö er
aö myndast óbrúanleg og botnlaus gjá —
tíminn er óðum aö renna út, tilfinningar
manna eru í miklu uppnámi og þaö er verið
aö drepa fólk.
i
1
i
Ef þessi gjá veröur raunverulega
óbrúanleg þá held ég aö ríkisstjórninni
muni reynast mjög örðugt að ná tökum á
ástandinu, einkum ef hún stendur fast viö
þá tilraun sína aö hernema sitt eigið land
meö her sínum gegn vilja þjóöarinnar. Og í
því tilfelli aukast möguleikarnir á sovézkri
ihlutun og þaö veldur síöan mjög alvarleg-
um vanda í samskiptum austurs og vesturs
í hjarta Evrópu.
SP:
Veita skuldir Pólverja Vesturveld-
unum áhrifavald, eöa er því öfugt fariö?
Mér hefur alltaf fundizt að þegar
fariö er að veita lán upp fyrir visst mark
glati lánardrottinn áhrifavaldi sínu og
skuldunauturinn fái það í staöinn. Ef ég
væri hluthafi einhverra hinna stóru banka í
Bandaríkjunum eða Vestur-Evrópu —
einkum í Þýzkalandi sem tók þátt í veitingu
einhverra þeirra 75 til 85 milljarða dollara
lána sem hafa fariö til austantjaldsland-
anna á síðari árum — mundi ég vilja draga
yfirmenn þessara banka til ábyrgðar.
Nú held ég aö aö þaö eina sem þessir
bankar hugsi um séu þessi lán og þeir
óttist aö skuldirnar veröi ekki greiddar.
SP:
11 16 mánuöi hefur fólk haft áhyggj-
ur af því aö Pólland veröi aö stórbáli í sjálfu
hjarta Evrópu og þróunin nálgist þaö stig
aö risaveldin geti staðið frammi fyrir þeim
árekstrum sem margir hafa óttazt.
Ég held ekki aó þessu sé þannig
farið. Ég held aö hömlurnar á risaveldunum
séu mjög sterkar og áhrifamiklar. Hins veg-
ar virðist mér það sem er að gerast í Pól-
landi fela í sér mjög beina ógnun viö þá
hægu og stööugu breytingu, sem hefur
orðiö til batnaðar í samskiptum austurs og
vesturs, og ýmsir hafa unnið aö í einlægni
og hefur veriö mjög góö fyrir jafnvægi í
heiminum, friöinn og mannkynið, svo aö ég
mundi telja slíkt sögulegan harmleik, en
ekki neista kjarnorkuragnaraka.