Morgunblaðið - 29.01.1982, Side 13
13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982
Alþjóðakönnun á lífs-
hlaupi og læsi:
Island í
efsta sæti
ALÞJÓÐAKÖNNUN hefur farið
fram á lífshlaupi og læsi hjá öllum
þjóðum heims. Þrennt er það, sem
kannað var, þ.e. lífslíkur eins árs
harna, hve lágur ungbarnadauði er
miðað við 1000 fæðingar og hve læsi
er almenn.
Af öllum þjóðum heims kemur
ísland bezt út ásamt Svíþjóð, en
þessi lönd fá 98 stig hvort af 100
mögulegum. Fast á eftir fylgja
Danmörk, Holland, Noregur og
Japan með 97 stig, Frakkland og
Sviss með 96 stig, og þá koma
Finnland, Kanada, Bandaríkin og
Ástralía með 95 stig hvert.
Neðst Evrópulanda er Tyrkland
(ef rétt er að telja það til Evrópu-
landa) með 60 stig, og næst neðst
Portúgal með 80 stig. Ef litið er
víðar kemur í ljós að neðstu lönd
heims eru Afghanistan, Angola og
Guinea Bissau með aðeins 14 stig,
Niger með 16, Mali með 18, „Al-
þýðulýðveldið“ Guinea 20, og
Eþíópía, Mauritanía og Mið-
Afríkulýðveldið með 21 stig.
Upplýsingar þessar eru teknar
úr árbókinni „The World Almanac
and Book of Facts 1982", en útgef-
endur árbókarinnar eru Newspap-
er Enterprise Association, Inc. í
New York.
Ikarus-vagnarnir í
notkun öðru hvoru
megin við helgina
IKAKPS-strætisvagnar SVR verða
teknir í notkun öðru hvoru megin við
helgina. Kiríkur Ásgeirsson, forstjóri
Strætisvagna Reykjavíkur, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að vagn-
arnir, sem eru þrír, yrðu teknir í
notkun samtímis, en ekki væri enn
vitað hvort það gæti orðið fyrir helgi.
Eiríkur sagði ennfremur, að ákveð-
ið væri að reyna vagnana á öllum
leiðum strætisvagnanna, þannig að
hver vagn þjónaði hverri leið í
skamman tíma til að byrja með.
Vitni óskast
KLUKKAN 07.45 á þriðjudag hugð-
ist ökumaður Ford Escort bifreiðar
aka fram úr vínrauðum SAAB 99
skammt fyrir sunnan Ásgarð í
Garðabæ. Þegar ökumaðurinn hugð-
ist aka framúr sveigði ökumaður
SAAB-bifreiðarinnar af hægri yfir á
vinstri akrein og í veg fyrir Escort-
bifreiðina. Ökumaðurinn varð því að
sveigja upp á umferðareyju, en öku-
maður SAAB-bifreiðarinnar hélt
áfram för sinni eins og ekkert hefði í
skorist.
Ökumaður SAAB-bifreiðarinnar
er vinsamlega beðinn að gefa sig
fram við Rannsóknarlögregluna i
Hafnarfirði.
Leiðrétting:
Japanskir bflar
í þremur af fjór-
um efstu sætunum
SÚ MISRITUN slæddist inn í frétt
blaðsins um mest innfluttu bílana
á síðasta ári, að sagt var að tveir
af þremur söluhæstu bílunum
væru japanskrar gerðar, Mazda og
Toyota. í stað Toyota átti að
standa Mitsubishi, en hins vegar
var Toyota í fjórða sæti yfir sölu-
hæstu bílana hér á landi 1981. Það
voru því japanskir bílar í þremur
af fjórum efstu sætunum. Biðst
blaöið velvirðingar á þessari mis-
ritun.
Gæði
Blandaður
súrmatur
í fötu m/mysu
iSÚRMAlj
2^Tíf
lunpa
BAGGAR
(Lundabaggi - Sviðasulta -
Hrútspungar- Bringur)
AÐEINS
(Surt
hvalsrengi
1 lítrafata m/mysu
Nettó innihald ca. 700 gr.
2 lítrafata
Nettó innihald ca. 1,3 kg
Blandaður
súrmatur í bakka
(Lundabaggi — Sviðasulta — Hrútspungar
Bringur — Lifrapylsa — Slátur).
Fatan
,___,—S Kokkarnir//' >4i
okkar kynna í dag og ö
gefa aó smakka
Súrmat og
Sanitas pilsner
Hreinsuð svið
Ný sviðasulta
Hákarl
Marineruð síld
Síldarrúllur
Kryddsíld
Harðfiskur
Nýreykt
hangikjöt
Soðið hangikjöt
ísneiðum Dr.ka. i
5stk. ípoka pr k9 68.50 87.00
Unghænur pr k9 39.50 52.00
Egg pr “a 39.80 52.00
Opið til
kl. 7 í kvöld
og til hádegis
á laugardag
Mandarínurprk9 19.80 26.00
Nautahakk 1. fl. 79.50 102.70
AUSTURSTRÆTI 17
STARMÝRI 2