Morgunblaðið - 29.01.1982, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982
Árni Grétar Finnsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði:
Pólitískur úrskurður
ekki hlutlaus niðurstaða
Bráðabirgðayfirlit sýnir örðuga afkomu Bæjarútgerðarinnar fyrir árið 1981
„HÉR ER um pólitískan úrskurð að ræða, en ekki hlutlausa niðurstöðu. I*að
kemur út af fyrir sig ekkert á óvart og var engin ástæða til þess að búast við,
að félagsmálaráðherra, sem einnig er formaður Alþýðubandalagsins, kvæði
upp öðru vísi úrskurð," sagði Árni Grétar Finnsson, bæjarfulltrúi í Hafnar
firði, í tilefni af afgreiðslu félagsmálaráðherra, Svavars Gestssonar, á beiðni
bæjarfulltrúa í Hafnarfirði um að athugaðar yrðu fjárreiður Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar. Úrskurður ráðherrans var á þá lund, að ekki væri ástæða til
slíkrar úttektar.
Árni Grétar sagði einnig: „Úr-
skurðurinn var nánast ekkert
rökstuddur og ekki tekið á þeim
málum sem þangað voru kærð,
þannig að þau liggja óleyst eftir
sem áður. Það má búast við að
meira og minna af þessu komi á
dagskrá bæjarstjórnar á ný við
meðferð á reikningum Bæjarút-
gerðarinnar fyrir árið 1981 þar
sem mörgaf þessum atriðum voru
óuppgerð um áramótin 1980 og
1981.
Það er mjög bagalegt í okkar
stjórnarfari, að ekki skuli vera
hægt að leita til hlutlausra og
óháðra dómsvalda til að skera úr
slíkum málum sem þessu, því úr-
skurðir félagsmálaráðuneytisins í
gegnum árin hafa yfirleitt verið
mjög vilhallir. Mála þeirra, sem ég
þekki héðan úr Hafnarfirði og
þangað hafa verið kærð, hefur
ráðherra yfirleitt tekið afstöðu til
í samræmi við afstöðu flokks-
manna hans sem eru í bæjar-
stjórn, og svo er enn. Það er nauð-
syn að fá óháð dómsvald, hvort
sem það yrði sérstakur dómstóll
eða t.d. Hæstiréttur sem áfrýja
mætti til.“
Þá sagði Árni Grétar, að á síð-
asta hæjarstjórnarfundi í Hafnar-
firði hefði verið lagt fram bráða-
birgðayfirlit yfir afkomu Bæjar-
útgerðar Hafnarfjarðar á árinu
1981 og hefði það verið að tillögu
þriggja bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins. Um yfirlitið sagði hann:
„Samkvæmt því er afkoma Bæjar-
útgerðarinnar mjög örðug. Tap á
útgerðinni og togaranum Júní er
samtals rúmar 8 milljónir króna.
Heildarskuldir hafa aukist um
rúmar 40 milljónir kr., úr 87,5
millj. í 127,7 millj. kr. Á sama
tíma er rétt að taka það fram, að
aukning á fiskbirgðum er 5,5
milljónir. Skammtímaskuldir, það
eru skuldir, sem annað hvort eru
gjaldfallnar eða þarf að greiða á
árinu, eru 76 milljónir króna og
hafa þær aukist um rúmlega 50%
á árinu. Þessar tölur sýna, að það
má búast við að bæjarsjóður þurfi
að hlaupa undir bagga í enn ríkari
mæli með þessum rekstri. Þá kem-
ur útkoman á óvart þar sem búið
er að halda því fram megnið af
árinu, eða alveg fram í nóvember,
að afkoma fyrirtækisins sé mjög
góð.“
Árni sagði í lokin: „Þessi mál öll
hljóta að koma til umfjöllunar á
næstunni því deilan hefur fyrst og
fremst snúist um það, að við höf-
um viljað fá málið upplýst og
frágengið, en um það hefur okkur
verið synjað. Fyrir okkur hefur
ekki vakað að ná okkur niðri á
einum eða neinum, heldur fyrst og
fremst að fá upplýsingar og upp-
lýsa málið. Þetta varðar bæjarbúa
alla og ef bæjarsjóður þarf að
leggja stórfé til slíks rekstrar, sem
hann hefur orðið að gera, og verð-
ur sýnilega að gera áfram, þá er
lágmarksforsenda að bæjarfull-
trúar fái allar upplýsingar við-
víkjandi rekstri fyrirtækisins og
hvernig málum er þar háttað.“
Fundur sjómanna
á stóru togurunum
0
INNLENT
SJÖM ANNAKÉI.AG Reykjavíkur
hefur boðað sjómenn á stóru skut-
togurunum til fundar að Lindargötu
9 klukkan 16 í dag. Kætt verður um
stöðuna í samningamálunum, en upp
úr viðræðum við útvegsmenn slitn-
aði á sáttafundi á þriðjudag. Sátta-
scmjari hefur ekki boðað deiluaðila
til nýs fundar, en klukkan 13.30 í
dag hefur sáttanefndin verið boðuð
til fundar um málið.
verölækkun
á B 90, B-900 og B 1900
tölvukerfunum frá
Stjórnendur fyrirtækja og stofnana, tölvuráðgjafar.
Kynnið ykkur þetta tilboð.
Pað munar um minna.
Sölumenn okkar og sérfræðingar veita allar upplýsingar
um B 90, B 900 og B 1900.
2/ ¥
||
m
Qi t-
/
E0 w >0
acohf
Laugavegi 168
105 Reykjavík
Sími 27333
n j
roí: i
, i ) . ' | ; !■ 1 i I ’ II ■ : ■' 1 I i
H • ss i» . • í r.&I i jlí i
Fundur um kjaramál beitn-
ingamanna á nokkrum stöðum á
Suðurnesjum hefur ekki verið
haldinn í rúma viku og er engin
hreyfing á því máli.
Fundi um loðnu-
veiðar frestað
FYRIRHUGAÐ var að halda fund í
Reykjavík í byrjun febrúar í ís-
lenzk-norsku fiskveiðinefndinni og
átti að fjalla um loðnuveiðar Islend-
inga og Norðmanna úr íslenzka
loðnustofninum í sumar og næsta
vetur. Þessum fundi hefur nú verið
frestað um mánuð og eru ástæður
frestunarinnar einkum tvær. I fyrsta
lagi fara fiskifræðingar á næstunni í
rannsóknaleiðangur til mælinga á
útbreiðslu og magni ungloðnu, en sá
árgangur verður uppistaðan í veið-
inni á fyrrnefndu tímabili. Þá verða
kosningar í Grænlandi á næstunni
um afstöðu Grænlendinga til Efna-
hagsbandalagsins, en mikið af loðnu
hefur undanfarin sumur og haust
verið Grænlandsmegin miðlínu milli
íslands og Grænlands.
*
Ikveikja í Félags-
málastofnun
í FYRKINÓTT var brotist inn á
skrifstofur Félagsmálastofnunar í
Vonarstræti 4 og borinn eldur að
ýmsu lauslegu dóti á skrifstofu á 1.
hæð. Slökkviliðið var kallað út kl.
7.15 og logaði lítilsháttar á 1. hæð,
en reyk lagði frá skrifstofunni út á
stigaganginn og upp eftir húsinu
þegar á vettvang var komið.
Slökkviliðið beitti reykblásara
og gekk síðan greiðlega að slökkva
eldinn. Skemmdir urðu óveru-
legar. Svo virðist sem engu hafi
verið stolið, en skemmdarvargur-
inn komst inn með því, að brjóta
rúðu í útihurð. Hann „sprayaði“ á
veggi ýmis ónefni á Félagsmála-
stofnun. Síðdegis í gær hafði eng-
inn verið handtekinn vegna þessa
máls.
Jafnt hjá Guðmundi
ÍSRAELINN Kagan bauð Guðmundi
Sigurjónssyni jafntefli í biðskák þeirra
úr 2. uml'erð 8-manna úrslitakeppni á
sva'ðamótinu í Kanders. Staðan í úr-
slitakcppninni er nú:
1. Mure.v, ísrael 2'k.
2.-3. Iaibron, V-Þýzkalandi,
Karlsson, Svíþjóð 2.
4.-5. Gríinfeld, ísrael,
Tiller, Noregi 1 'k.
6.-7. Guðmundur Sigurjónsson,
Borik, V-Þýzkalandi 1.
8. Kagan, ísrael, 'k.
A morgun teflir Guðmundur við
Rorik iig heftir kvárt.