Morgunblaðið - 29.01.1982, Síða 17
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982
17
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ftitstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Gu'ömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alsiræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 100 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 6 kr. eintakið.
„Það vinnur aldrei
neinn sitt dauðastríð“
Dagblaðið Tíminn birti leiðara á dögunum undir yfir-
skriftinni: „Bráðabirgðaúrræði eru betri en engin úr-
ræði“. Sá afsökunartónn, sem þessi yfirskrift bergmálar, er
rauði þráðurinn í skýrslu ríkisstjórnarinnar um „aðgerðir" í
efnahagsmálum, „þorrabakkanum", eins og þingmenn nefna
samsetninginn. Þegar farið er ofan í saumana á skýrslu
ríkisstjórnarinnar verður fátt eftir, sem hægt er að festa
hönd á, annað en það, að greiða niður vísitöluvörur, einkum
búvöru, til að lækka verðbótagreiðslur á almenn laun. í sama
skyni er stefnt í einhverja tollalækkun á vísitöluvörum.
Tekjumissi og útgjaldaauka vegna þessara ráðstafana verður
að hluta til mætt með niðurskurði ríkisútgjalda, og að hluta
til með aukinni skattheimtu, m.a. afgreiðslugjaldi á aðra
tollflokka en þá er snerta vísitöluvörur.
Niðurgreiðsla á vísitöluvörum er hvorki ný né frumleg
efnahagsráðstöfun. Tilgangur hennar nú er að framlengja
lífsvíxil ríkisstjórnarinnar tvö næstu verðlagstímabil, hvort
sem það markmið næst nú eða ekki. Áður en Alþýðubanda-
lagið tók að sér aðalhlutverkið í vísitölusirkusnum hét þessi
aðgerð í þess munni að skattleggja almenning til að greiða
niður launaverðbætur hans (!) — og taldist til hinna „gömlu
íhaldsúrræða", eins og það hét á máli Þjóðviljans. Nú þegar
ráðherrar Alþýðubandalagsins eru gjörendurnir heitir
verknaðurinn að sjálfsögðu einhverju fínna og snurfusaðra
nafni.
Það var ekki fjölskrúðugt um að litast á þorrabakka ríkis-
stjórnarinnar, sem hún lagði fram til þjóðmálaumræðunnar
í gær. Umbúðirnar vóru hinsvegar litskrúðugar — og tæpt
var á ýmislegu, með svo óljósu orðalagi að fáum er gefið, sem
áhugi almennings stendur til. — Það var ýjað að nýjum
vísitölugrundvelli, en fyrirheitið nær ekki til annars en að
„stofna til viðræðna við samtök launafólks og aðra hags-
munaaðila atvinnulífsins um viðmiðunarkerfi". — Það var
engin ákveðin hugmynd eða tillaga fram sett, sem samstaða
er um í ríkisstjórn. — Þá er látið að því liggja að draga eigi
úr opinberum afskiptum af verðmyndunarkerfinu og verð-
gæzla eigi að koma í stað verðlagsákvæða. Til þessara mála
verður ekki tekin endanleg afstaða fyrr en þau verða lögð
fullbúin fyrir Alþingi, en reynslan af ríkisstjórninni lofar
ekki stóru.
„Ríkisstjórnin mun taka til sérstakrar athugunar vanda
þeirra," stendur þar, „sem í fyrsta sinn kaupa eða byggja
eigið íbúðarhúsnæði." Burtséð frá „sérstakri athugun" má
spyrja, hvern veg hinar „sérstöku efndir" ríkisstjórnarinnar
hafi verið. Byggingarsjóður hefur verið rændur aðaltekju-
stofni sínum, „launaskatti", sem nú rennur óskiptur í ríkis-
hítina. Lán til íbúðabyggjenda vóru 1100 færri 1981 en 1979,
tveim árum áður. Ráðstöfunarfé Byggingarsjóðs ríkisins og
Byggingarsjóðs verkamanna 1982 er ekki meira en það að
enn stefnir í 700 íbúða fækkun hjá almenna byggingarkerf-
inu 1982 (miðað við fyrra ár) en 150 íbúða fjölgun verka-
mannabústaða. Nettófækkun íbúðalána á yfirstandandi ári
verður sem sé 55Ö, til viðbótar við áður tilgreinda 1100 íbúða
fækkun frá 1979. Það er því meira en tímabært að lofa bót og
betrun, þó efndirnar liggi sjálfsagt ekki á lausu, frekar en
fyrri daginn.
Efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar á sl. ári þóttu ekki
risháar, enda stöndum við nú nánast í sömu sporum hvað
verðlagsútlit áhrærir og fyrir ári. Myntbreytingin, sem átti
að verða undanfari samræmdra aðgerða í efnahagsmálum og
úthýsa verðbólguþönkum almennings, er nú feimnismál, í
skjóli samanskroppinnar nýkrónu. „Stöðugt gengi“, sem var
enn ein skrautfjöðrin, liggur og einhversstaðar í rúmgóðri
glatkistu ríkisstjórnarinnar.
Sjálfur kjarni „þorrabakkans": hækkun skatta hér til að
mæta lækkun skatta þar — og það meginatriði, að nota
skattpeninga almennings til að greiða niður laun hans um
gamalkunnan vísitöluleik, er rýrara innihald en jafnvel
raunsæjustu menn á ríkisstjórnina bjuggust við. Hinsvegar
er hér sami tvískinnungur á ferð og hefur verið fylgifiskur
þessarar ríkisstjórnar, og þá ekki sízt Alþýðubandalagsins,
allar götur frá stofnun hennar.
Ríkisstjórnin hefur í raun gefizt upp í „heilögu stríði" sínu
við verðbólguna og lýtur að sífellt lakari bráðabirgðalausn-
um. Það stríð, sem hún heyr nú af hvað mestu kappi, er
almennt kallað „pólitískt dauðastríð" hennar — „og það
vinnur aldrei neinn sitt dauðastríð".
Dozier-málið:
„Guð veit að ég er
feginn að sjá þiga
- sagði Dozier þegar hann hitti Mcfadden, yfirboðara sinn og æðsta mann NATO í SuðurEvrópu
Yicenza, Ítalíu, 2H. janúar. Al*.
„HANN leit bara vel út með allt
þetta skegg, en nú er hann aftur
sjálfum sér líkur,“ sagði George
Mcfadden, hershöfðingi, æðsti
maður Bandaríkjahers á Ítalíu, á
blaðamannafundi, sem efnt var til
í dag í tilefni af frelsun undir
manns hans og næstráðanda,
James L. Dozier, sem hafði verið í
„Bænum
okkar hef-
ur verið
svarað“
- sagði Reagan þegar
hann var vakinn með frétt-
unum um björgun Doziers
Washington, 28. janúar. Al*.
„BÆNUM okkar hefur verið svarað.
Mig skortir orð til að tjá þakklæti mitt
öllum þeim, sem stuðlað hafa að frelsi
og lífgjöf Doziers,“ sagði Ronald
Reagan, Bandaríkjaforseti, eftir að
hann hafði verið vakinn árla í morgun,
þriðjudag, með þeim fréttum, að Jam-
es L. Dozier, hershöfðingi, væri heill á
húfi og laus úr höndum Rauðu her
deildanna.
Háttsettur embættismaður í
Hvíta húsinu sagði í dag, að þeim
hefðu borist þær fréttir frá Ítalíu í
gær, miðvikudag, að-„ef til vill væri
að rofa til í Dozier-málinu", en þá
hefðu flestir verið búnir að missa
alla von um að Dozier fyndist á lífi.
Reagan forseti talaði í morgun,
aðeins nokkrum stundum eftir
björgunina, við Dozier í síma, en áð-
ur hafði hann talað við forseta ít-
alíu, Alessandro Pertini. Ekkert
hefur verið látið uppi um efni sím-
talanna.
Joseph Luns, aðalritari Atlants-
hafsbandalagsins, lét í dag í ljós
fögnuð sinn með björgun Doziers og
talsmaður Vatikansins lýsti yfir
„létti og ánægju" með lyktir máls-
ins.
42 daga á valdi Rauðu herdeild-
anna.
Macfadden var spurður að því á
blaðamannafundinum hver hefðu
verið viðbrögð Doziers þegar þeir
hittust og sagði hann, að Dozier
hefði verið eins og hann átti að
sér. „Sama vingjarnlega brosið,
sama hlýja handtakið og hann
sagði: „Guð veit, að ég er feginn
að sjá þig.““ Að því búnu bað
hann um að fá að komast til rak-
arans til að losa sig við alskeggið.
Bandaríkjamenn í Nato-her-
stöðinni í Vicenza táruðust og
féllust í faðma þegar þeir heyrðu
fréttirnar um frelsun Doziers og
Ronald Reagan, Bandaríkjafor-
seti átti nokkurra mínútna símtal
við hann í dag.
Mcfadden sagði, að Dozier hefði
horast í fangavistinni, en virtist
þó vera við ágæta heilsu og ekkert
benti til, að hann hefði verið
pyntaður. „ítalir mega vera stolt-
ir af þessum sigri,“ sagði hann og
I bar mikið lof á vinnubrögð úr-
valssveitanna við leitina og björg-
un Doziers.
Sérstakar úrvalssvcitir, sem hafa það verkefni að berjast gegn hryðujverkamönnum, sjást hér við leit að Dozier á
bændabýli í héraðinu Valpolicella, skammt frá Veróna. Leitin að hershöfðingjanum er sú umfangsmesta sem fram hefur
farið á Italíu. Al’-símamynd.
Mennirnir sem björguðu Dozier:
Úrvalssveit sem lætur sér
ekkert fyrir brjósti brenna
Tadúa, Ílalíu, 2S. janúar. Al’.
LOGREGLUMENNIRNIR tíu, sem í
rauðabýtið í morgun frelsuðu banda-
ríska hershöfðingjann James L. Dozi-
er, tilheyra úrvalssveit, sem komið var
á fót til höfuðs hryðjuverkamönnum
eftir að Rauðu herdeildirnar höfðu
rænt og myrt Aldo Moro, fyrrum for
sætisráðherra.
Við störf sín eru þessir menn að
jafnaði klæddir hermannabúningi í
felulitum, með gasgrímu fyrir and-
liti og vel vopnum búnir. Þeir eru
frábærar skyttur og hafa fengið
þjálfun í að meðhöndla alls konar
vopn, m.a. í meðferð eldvörpu, sem
þeir munu ekki hika við að beita ef
þörf er á. Þeir heyra undir innan-
ríkisráðuneytið og er stjórnað af
sérstöku öryggisráði, sem á Ítalíu
gengur undir skammstöfuninni
Nocs, en ekki er vitað hve margir
þeir eru eða hvar höfuðstöðvarnar
eru niðurkomnar.
Á Italíu eru aðrar áhlaupssveitir,
sem beitt er gegn hryðjuverka-
mönnum, en það eru herlögreglu-
mennirnir eða carabinieri eins og
þeir kallast. „Leðurhausarnir" eru
þeir einnig nefndir vegna þess hve
harðir þeir þykja í horn að taka og
sem dæmi um það má nefna áras
sem þeir gerðu á fangelsi nokkurt í
desember 1980 þegar vinstrisinnað-
ir hryðjuverkamenn höfðu efnt til
uppreisnar þar. Þeir létu sig síga
niður á þakið úr þyrlum og brutu
sér síðan leið í gegnum hóp 70
fanga, sem vopnaðir voru hnífum og
heimatilbúnum sprengjum, og
leystu úr haldi 18 fangaverði án
þess að verða fyrir nokkrum meiðsl-
um sjálfir, sem orð var á gerandi.
James L. Dozier, banda-
ríski hershöfðinginn, sem
ítalska lögreglan frelsaði í
gær úr klóm Rauðu her
deildanna í áhlaupi eftir að
hann hafði verið á valdi
hryðjuverkamannanna í 42
daga, fær það orð að hann
sé maður staðfastur, æðru-
laus og gæddur siðferðis-
þreki. Sannur hermaður,
segja þeir sem til þekkja,
sem hefur helgað herþjón-
ustu allt sitt líf.
Jamcs L. Dozier
Dozier æðrulaus
og staðfastur
- segja þeir sem bezt þekkja til
Dozier, sem hefur verið æðsti
yfirmaður bandaríska herliðsins
á Ítalíu undanfarið ár, var rænt
frá heimili sínu í Veróna hinn
17. desember sl. Enn sem komið
er hafa blaðamenn ekki fengið
að hafa tal af hinum frelsaða
hershöfðingja, en fulltrúi banda-
ríska sendiráðsins í Róm segir
hann vera við beztu heilsu, enda
þótt hann sé þreyttur og ekki al-
veg í jafnvægi. ítalska frétta-
stofan Ansa hefur skýrt frá því
að hershöfðinginn hafi verið
frelsaður í áhlaupi lögreglunnar
á svokallað „alþýðufangelsi" í
Padúa, sem er um 30 kílómetra
vestur af Feneyjum.
Herstöðin í Veróna, þar sem
Dozier hefur haft bækistöð, er
hluti af varnarneti NATO á ít-
alíu. Þar hefur Dozier stjórnað
herdeild, sem á að geta gegnt
sérstökum verkefnum ef á þarf
að halda, en deildin hefur á að
skipa eldflaugum, ítölskum
Alpa-sveitum og venjulegum
herafla.
Joan Townsend, systir Dozi-
ers, er menntaskólakennari í
Houston í Texas. Daginn eftir að
honum var rænt sagði hún í við-
tali við fréttamann að andstað-
an, sem bróðir hennar mun hafa
veitt mannræningjunum, væri
dæmigerð fyrir hann. „Bróðir
minn er afar fastur fyrir —
sannfæringarkraftur hans er
með eindæmum. Hann er allt
annað en veiklundaður", sagði
hún. Gilbert Sullivan, skólabróð-
ir Doziers, segir að í sinum huga
sé hann „einn af þessum gegn-
um-amerísku strákum. Salla-
rólegur. Aldrei með neitt gaspur.
Öllum féll vel við hann.“
Dozier útskrifaðist frá her-
skólanum í West Point og hann á
að baki meira en aldarfjórðungs
feril í hernum. Hann hefur verið
sæmdur mörgum heiðursmerkj-
um fyrir hugprýði og skyldu-
rækni. Hann barðist með fót-
gönguliði í Víetnam, en síðar
gegndi hann herþjónustu í
V-Þýzkalandi, auk þess sem
hann hefur verið yfirmaður
herdeilda á ýmsum stöðum í
Bandaríkjunum. Auk þeirrar
menntunar, sem hann hlaut í
herskóla, lauk hann verkfræði-
prófi frá Arizona-háskóla.
Fjórir liðsmenn Rauðu her-
deildanna rændu Dozier en við
það tækifæri var hann barinn í
höfuðið með byssuskefti er hann
veitti mótþróa.
Dozier er kvæntur og á tvö
uppkomin börn. Kona hans kom
hvað eftir annað fram í ítalska
sjónvarpinu og bað um að maður
hennar yrði látinn laus, en einu
svör Rauðu herdeildanna við
þeirri málaleitan voru illskeytt-
ar orðsendingar ásamt ljós-
myndum af Dozier. Síðasta orð-
sendingin kom sl. mánudag. Á
myndinni sem fylgdi var Dozier
kominn með grátt skegg, en í
baksýn voru fimm stjörnur
Rauðu herdeildanna.
Rauðu herdeildirnar:
Baráttan gegn NATO
að verða aðalmálið
Rém, 2S. janúar. Al*.
BANDARÍSKI hershöfðinginn James L. Dozier er fyrsti útlendingurinn, sem
lendir í klónum á Rauðu herdeildunum á Italíu, en þær hafa nú í heilan áratug
staðið í styrjöld við ítalskt samfélag með mannránum, sprengjutilræðumog
morðum. Til þessa hafa þcssir borgarskæruliðar, sem hafa að einkcnnismerki
fimmarma stjörnu og orðin „fyrir kommúnismann“, beint glæpaverkunum að
löndum sínum og takmarkað kröfur sínar við innlend málefni, en á því virðist
nú vera orðin nokkur breyting.
Að áliti yfirvalda á Italíu og ann-
arra sérfræðinga hafa Rauðu her-
deildirnar nú ákveðið að snúa sér að
alþjóðlegum málum og einkum að
baráttunni gegn Atlantshafsbanda-
laginu. Þess eru líka farin að sjást
ýmis merki, að hryðjuverkamennirn-
ir fái stuðning frá róttækum ríkis-
stjórnum og kommúnistaríkjum
Austur-Evrópu.
I yfirlýsingu frá Rauðu herdeildun-
um, sem fannst í Mílanó þegar tiu
hryðjuverkamenn voru handteknir
þar á dögunum, sagði, að Dozier væri
„hinn raunverulegi yfirmaður “land-
hers Nato í Suður-Evrópu og bæri
þess vegna ábyrgð á „áætlunum um
hernám Evrópu“.
Italía er hernaðarlega mjög mikil-
væg vegna legu sinnar, eins konar
hlið að Austurlöndum nær og Afríku,
og þar hefur 6. flotinn bandaríski sitt
aðalaðsetur. í yfirlýsingu frá Fern-
ando Imposimato, háttsettum dóm-
ara í Rómaborg, sem á undanförnum
árum hefur rannsakað starfsemi
Rauðu herdeildanna, segir, að sannað
sé með framburði þeirra, sem gengið
hafi lögreglunni á hönd, að Sovét-
menn, Líbýumenn og Austur-
Evrópuríkin hafi fjármagnað glæpa-
samtökin og séð þeim fyrir vopnum
og í því ljósi beri að skoða baráttu
samtakanna gegn Nato.
ítalska lögreglan telur, að Rauðu
herdeildirnar hafi á að skipa 600
mönnum en nú eru í fangelsum á ít-
alíu um 3000 hryðjuverkamenn.
„Það var dásamlegt
að heyra í honum
U
Frankfurt, 2H. janúar. Al*.
JUDITH Dozier, eiginkona James L.
Doziers, hershöfðingja, sagði í dag í
Krankfurt í VesturÞýskalandi, ad hún
hefði talað við mann sinn í síma og að
það hefði verið „dásamlegt að heyra í
honum“.
Judith, eiginkona Doziers, hefur
- sagði Judith Dozier, eiginkona James L.
Doziers, þegar hún hafði rætt við hann í síma
dvalið í Frankfurt síðustu tíu dagana
ásamt fjölskyldu sinni og vinum en
hélt strax í morgun til Italíu til fund-
ar við mann sinn. Áður en hún fór las
hún upp þakkarávarp til allra þeirra,
sem „minnst hafa manns míns í bæn-
um sínum og stuðlað með því að frelsi
hans“. Hún var svo klökk og hrærð,
að dóttir hennar, Cheryl, varð að
styðja hana, en hún er liðsforingi í
bandaríska flughernum með aðsetur í
Vestur-Þýskalandi. Með þeim var
einnig sonur þeirra Dozier-hjónanna,
Scott.
Við þetta tækifæri flutti Judith
blaðamönnum sérstakar þakkir og
hrósaði þeim fyrir tillitssemina, sem
þeir hefðu sýnt sér og börnum henn-
ar. Þeir hefðu hlíft henni við
óskemmtilegum myndatökum og ekki
reynt að spyrja hana spurninga, sem
hún hefði verið ófær um að svara eins
og á stóð.
Judith Dozier, eiginkona bandaríska
hershöfðingjans Jantes L. Dozier, sem
leystur var úr haldi Rauðu herdeild-
anna í gærmorgun. Hér sést hún í fylgd
tveggja lögreglumanna 18. desember
sl„ daginn eftir að manni hennar var
rænt.
AP'simaimnd.
Líkfundur eftir 14 mánaða leit
Jörgensen
Jörgensen og van
Agt vilja ekki vera
í Póllandsþætti
Van Agt
Ungur Hollending
ur kemur á óvart
( amt-rino, 2H. janúar. Al*.
LÍK Jeannette Dorothy May, fyrrver
andi ciginkonu milljónamæringsins
JOSEF Lipperheide, 76 ára gamall
vesturþýskur iðnrekandi, sem rænt
var 5. janúar sl., segir í bréfi, sem
barst inn á ritstjórnarskrifstofur
daghlaðs í horginni San Sebastian í
dag, að hann sé „óþolinmóður og leið-
ur“ og biður hann fjölskyldu sína að
gera allt hvað hún geti til að verða við
kröfum mannræningjanna.
ETA, samtök baskneskra aðskiln-
aðarsinna, segjast hafa rænt Lipp-
erheide og að sögn hafa þau krafist
Evelyn Rotchild, fannst í skógi
skammt frá borginni Camerino; fjórt-
án mánuðum eftir að konan hvarf
10 milljóna dollara i lausnargjald
fyrir hann. Bréfið, sem barst dag-
blaðinu fannst í símaklefa í borg-
inni eftir að vísað hafði verið á það,
en ásamt því var mynd af Lipper-
heide og hélt hann á daghlaði frá 19.
þ.m. til sannindamerkis um að hann
væri á lífi.
Josef Lipperheide er af þýsku
bergi brotinn en hann settist að á-
Spáni á þriðja áratug þessarar ald-
ar og hefur alla tíð síðan verið mjög
umsvifamikill atvinnurekandi.
ásamt túlki. Lögreglan sagði, að kon-
urnar hefðu líklega frosið í hel þegar
óveður gerði á svæðinu fyrir 14 mán-
uðum.
Þó vildi lögreglan ekki útiloka
aðrar ástæður að baki láti kvenn-
anna. Skammt frá líkunum fund-
ust töskur þeirra, vegabréf, pen-
ingar og skartgripir. Eiginmaður
May, Stephen May, kom til Camer-
ino í dag til að bera kennsl á líkið,
en lögregluyfirvöld segja að aðeins
sé um formsatriði að ræða.
Mikil leit var gerð að konunum
og þótti hvarf þeirra hið dular-
fyllsta. „Þær kunna að hafa frosið í
hel ... villidýr kunna að hafa ráð-
ist á þær, eða einhver myrt þær.
Við undanskiljum ekkert," sagði
talsmaður lögreglunnar í Camer-
ino. Jeannette May var fertug.
Ilaajj, 2H. janúar. Al*.
ANDRIES van Agt, forsætisráðherra
Hollands, sagði í dag, að hann ætlaði
ekki að taka þátt í bandaríska sjónvarps-
þættinum „Megi l'ólland vera l’ólland",
sem fyrirhugað er að sýna f Bandaríkjun-
um og VesturEvrópu 31. janúar nk. og er
í því efni á sama báti og Anker Jörgen-
sen, forsætisráðherra I)ana. Forsætis-
ráðherrar og aðrir frammámenn margra
vestrænna þjóða auk Japana og Ástrala
munu flytja ávarp í þættinum, þ.á m. dr.
Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra
Islands.
I bréfi til hollenska þingsins sagði
van Agt, sem er úr flokki kristilegra
demókrata, að hann viidi ekki að vax-
andi deilur um þennan þátt sköðuðu
„einhuga fordæmingu hoilensku þjóð-
arinnar á hinum alvarlegu mannrétt-
indabrotum í Póllandi“. I hollenskum
dagblöðum hefur verið sagt frá
ágreiningi innan stjórnarinnar um
hugsanlega þátttöku van Agts í sjón-
varpsþættinum en nú þegar hafa
oddvitar 12 ríkisstjórna á Vesturlönd-
um ákveðið að koma fram i honum.
Hermt er, að utanríkisráðherra
stjórnarinnar, Max van der Stoel, sem
er úr Verkamannaflokknum, sé mjög
andvígur þættinum og aðrir vinstri-
sinnaðir þingmenn útmála hann sem
áróðursbragð þar sem í engu sé þar
getið sams konar mannréttindabrota í
Suður-Ameríku og Tyrklandi.
Forsetaskrifstofan franska til-
kynnti í dag, að Mitterrand forseti
myndi flytja ávarp í þættinum „Megi
Pólland vera Pólland“, en þeir, sem
þegar höfðu ákveðið þátttöku sína eru
þessir: Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseti, Helmut Schmidt, kanslari
Vestur-Þýskalands, forsætisráðherr-
arnir Margaret Thatcher, Bretlandi,
Giovanni Spadolini, Ítalíu, Leopoldo
Caivo-Sotelo, Spáni, Joao Pinto-
Balsamo, Portúgal, Pierre Trudeau,
Kanada, Malcolm Fraser, Ástralíu,
Zenko Suzuki, Japan, Wilfried Matens,
Belgíu, Kaare Willoch, Noregi, Pierre
Werner, Luxembourg, og Gunnar
Thoroddsen, íslandi.
UNGUK hollenskur skákmaður, van der
Wiel, hefur komið mjög á óvart á Wijk
aan Zee-skákmótinu í Hollandi. Van der
Wiel, sem er 22 ára gamall og alþjóðlegur
meistari, hefur forustu í mótinu að lokn-
um II umferðum ásamt sovéska stór
meistaranum Yuri Balashov. í 11. umferð
vann van der Wiel bandaríska stórmeist-
arann Christiansen.
Önnur úrslit í 11. umferð urðu:
Ree Holiandi — Nikolic Júg. xk— xk
Sosonko Hollandi — Hort Tékk. Vi — 'h
Hubner V-Þýsk. — Nunn Engl. biðskák
Kavalek USA — Chandler N-Sjál.biðsk.
Balashov Sovét — Tal Sovét xk — 'k
Sunye Brazilíu — Timman Holl.biðskák
Staðan er nú:
I. -2. Van der Wiel, Balashov 7
3. Nunn, 6Ú2 + biðskák
4. Hort, 6 'k
5. -7. Tal, Nikolic, Sosonko 6
8. Hiibner, 5xk + biðskák
9. Ree, 5xk
10. Kavalek, 5 + biðskák
II. Timman, 3'^ + biðskák
12. Christiansen, 3'/2
13. -14. Sunye, Chandler 3 + biðskák.
Jóhanni Hjartarsyni hefur ekki
vegnað vel og hefur hann nú tapað
tveimur skákum í röð í B-flokki. 1 7.
umferð tapaði hann fyrir Davies, Eng-
landi. Scheeren, Hollandi, er efstur í
B-flokki með 5 vinninga. Jóhann Hjart-
arson er í 9. sæti með 2'i vinning.
Spánn:
Bréf frá gísl á valdi ETA
San Sohastian, Spáni, 2H. janúar. Al*.