Morgunblaðið - 29.01.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982 2 3
Prófkjör sjálMæðismanna
á Akranesi
Á morgun, laugardag, og á sunnudag, fer fram sameiginlegt prófkjör allra stjórnmálaflokka vegna bæjarstjórnarkosninganna á Akranesi í vor. Kjörstaóur er
í Idnskólahúsinu vid Skólabraut og er kjörstaður opinn á morgun, laugardag, kl. 10—16 og sunnudag kl. 10—16. Kosningin fer þannig fram, að kjósandi
krossar við listabókstaf þess flokks, sem hann styður og síðan er merkt með tölustafinum 1 fyrir framan nafn þess frambjóðanda, sem kjósandi óskar að skipi
1. sæti lista, með tölustafnum 2 fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem kjósandi óskar að skipi 2. sæti listans, o.s.frv.
Kjósendur eru beðnir að athuga að merkja þarf við minnst þrjú nöfn, en þess skal getið, að sjálfstæðisfélögin á Akranesi óska eftir því, að þeir sem hyggjast
styðja D-listann merki við fleiri en þrjá. Atkvæðakassar eru fjórir á kjörstað, einn fyrir hvern flokk.
Hér fer á eftir kynning á frambjóðendum sjálfstæðismanna í prófkjörinu.
Benedikt
Jónmundsson,
útibússtjóri, er 37 ára að aldri. Hann er kvæntur
Mattheu Sturlaugsdóttur og eiga þau tvær dætur.
Hann hefur um alllangt skeið verið virkur þátttak-
andi í starfi Sjálfstæðisflokksins. Var formaður
Sjálfstæðisfélags Akraness, á nú sæti í stjórn full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna og í kjördæmisráði og
er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í félagsmálaráði
Akraness.
Cuðjón
Guðmundsson,
skrifstofustjóri,
er 39 ára að aldri.
Hann er kvæntur
Guðnýju Ólafs-
dóttur. Hann hef-
ur starfað mikið á
vegum Sjálfstæð-
isflokksins, var
formaður full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akranesi 1981, átti
sæti í kjördæmisráði og í kjörnefnd flokksins í Vest-
urlandskjördæmi vegna kosninga til Alþingis. Guð-
jón Guðmundsson var bæjarfulltrúi árið 1974—1978,
varamaður í bæjarstjórn 1970—1974 og aftur frá
1978. Hann hefur starfað mikið að félagsmálum, átt
sæti í knattspyrnuráði Akraness og situr í stjórn
Bridgesambands íslands.
Guðjón
hórðarson,
rafvirki, er 26 ára að aldri. Hann er kvæntur Bjarn-
eyju Jóhannesdóttur og eiga þau þrjá syni. Guðjón
Þórðarson hefur starfað mikið að félagsmálum og á
sæti í kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins í Vestur-
landskjördæmi. Hann var formaður Þórs FUS og er
nú í stjórn félagsins. Hann hefur leikið með 1. deild-
arliði IA um árabil.
Guðrún L.
Víkingsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, er 34 ára. Hún er gift Viðari
Vésteinssyni, framkvæmdastjóra, og eiga þau þrjú
börn.
Hörður
Pálsson,
bakarameistari, er 48 ára að aldri. Hann er kvæntur
Ingu Sigurðardóttur og eiga þau fjögur börn. Hörður
hefur lengi starfað innan raða sjálfstæðismanna og
var formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á
Akranesi frá 1970—1980. Hörður Pálsson hefur átt
sæti í bæjarstjórn frá vori 1974.
Kagnheiður
Ólafsdóttir,
húsmóðir, er 39
ára. Hún er gift
Sölva Pálssyni,
skipstjóra, og eiga þau fjögur börn. Hún hefur unnið
mikið að félagsmálum, svo sem í kvenfélögum og
deildum SVFI. Hún var um skeið varamaður í
hreppsnefnd í Tálknafirði og var fulltrúi V-Barð-
strendinga í þjóðhátíðarnefnd Vestfirðinga 1974.
Ragnheiður Ólafsdóttir er nú formaður sjálfstæðis-
félagsins Bárunnar og varaformaður fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna á Akranesi.
skrifstofumaður, er 30 ára að aldri. Hún er gift Jóni
Sigurðssyni, bifreiðastjóra, og eiga þau þrjú börn.
Hún hefur starfað talsvert innan Sjálfstæðisflokks-
ins, átt sæti í stjórn Þórs FUS, og starfað í nefndum
á vegum Sjálfstæðisflokksins.
framkvæmdastjóri, er 56 ára. Hann er kvæntur Ingi-
björgu Ólafsdóttur og eiga þau þrjú börn. Valdimar
Indriðason hefur starfað mikið á vegum Sjálfstæðis-
flokksins og átt sæti í bæjarstjórn Akraness frá
1962 og verið forseti bæjarstjórnar frá 1977.
l’órður
Björgvinsson, ^
vélvirki, er 29 ára. Hann er kvæntur Karólínu Sigfríð
Stefánsdóttur og eiga þau tvo syni. Hann hefur
starfað innan Sjálfstæðisflokksins um nokkurra ára
skeið og er nú í varastjórn félags ungra sjálfstæð-
ismanna á Akranesi. Þórður hefur verið formaður
æskulýðsnefndar Akraness síðasta kjörtímabil.