Morgunblaðið - 29.01.1982, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982
25
Flugleiðir fluttu
liðlega 541 þús.
farþega í fyrra
ÁKIi) 1981 fluttu flugvélar Klugleiða
rúmlega 507 þúsund farþegr í áætlun-
arflugi. I»ar ad auki tæplega 34 þúsund
farþega í leiguflugi. Farþegum fjölgaði
á leiðum milli íslands og Kvrópu, en
fækkaói í innanlandsflugi og á Nord-
urAtlantshafsleiðum. Vöruflutningar
jukust í millilandaflugi en dróust hins
vegar saman í innanlandsflugi. Auk-
ning varð á póstflutningum í milli-
landa- og innanlandsflugi.
Ólafsfjörður:
Alvarlegt
ástand
að skapast
i hofmnni
< UafsfjorAur, 27. janúar.
ALVAKI.EGT ástand er að skap-
ast hér í höfninni. Virðist sandur
hafa borist í mynni hafnarinnar,
svo að skuttogararnir taka niðri
þegar þeir sigla um hafnarmynnið.
Þegar skuttogarinn Sigur-
björg var að koma úr sinni
fyrstu veiðiferð á árinu, um
klukkan 7 í morgun, tók hún
niðri en losnaði síðan aftur eftir
um eina klukkustund. Bliðskap-
arveður var og ekki er talið að
neinar skemmdir hafi orðið á
skipinu. Er talið mjög aðkall-
andi að dýpkunarskip verði
fengið hið fyrsta og hafnar-
mynnið dýpkað.
Atvinnuástand er að verða
hér eðlilegt en þetta er fyrsta
togaralöndunin síðan fyrir verk-
fall. Sigurbjörg var með 110
tonn og von er á hinum togurun-
um á næstu dögum.
— Jakoh
Milli landa voru árið 1981 fluttar
5.114 lestir af vörum og er aukningin
milli ára 2,3%. Innanlands voru
fluttar 2.418 lestir og er samdráttur-
inn þar 7,5%. Póstflutningar námu
1.210 lestum milli landa og var um
16% aukningu að ræða og póstflutn-
ingar innanlands námu 812 lestum,
sem er 6,1% aukning frá fyrra ári.
Haustið 1981 önnuðust Fluglelðir
viðamikla pílagrimaflutninga til og
frá Jeddah í Saudi Arabíu. Alls voru
fluttir 28 þúsund farþegar í tveimur
önnum flugsins. Þar að auki voru í
almennu leiguflugi fluttir 5.963 far-
þegar.
A árinu 1981 tóku Flugleiðir að sér
mörg leiguflug. Tvær flugvélar fé-
lagsins voru allt árið í verkefnum í
Líbýu. Tvær vélar voru í flugi fyrir
Air India og ein vél í innanlandsflugi
í Nígeríu. Þá voru tvær vélar án is-
lenzkra áhafna í Saudi-Arabíu og
eru flutningar með þeim vélum ekki
innifaldir í fyrrgreindum tölum.
Heildarflutningar Flugleiða á ár-
inu 1981 voru 541.282 farþegar, en
þar af voru fluttir 138.293 farþegar á
Norður-Atlantshafinu á móti
162.525 farþegum árið á undan og er
um 14,9% samdráttur í því flugi
milli ára. I Evrópuflugi voru fluttir
144.832 farþegar en 140.106 farþegar
árið áður og er þar um að ræða 3,4%
aukningu milli ára. Innanlands voru
fluttir 216.237 farþegar, en 221.861
farþegi árið á undan og er þar um
2,5% samdrátt að ræða. Þá flugu
7.957 farþegar á leiðum Air Bahama
yfir Atlantshaf.
Hópur herskólanema frá Noregi heimsækir Reykvíkinga og tekur þátt í samkomuherferð Hjálpræðishersins.
Rannveig María og Erlingur eru fremst til hægri.
Hjálpræðisherinn:
Herskólanemar frá Noregi
taka þátt í samkomuherferð
Foringjar og herskólanemar (ka-
dettar) frá Herskóla Hjálpræðis-
hersins í Osló koma til Reykjavík-
ur á fostudag. I hópnum eru tveir
Islendingar, sem nú stunda nám
við Herskólann, Rannveig María
Níelsdóttir og Erlingur Níelsson.
I frétt frá Hjálpræðishernum
segir að hópurinn muni fara víða
um borgina m.a. á vinnustaði, á
sjúkrahús og elliheimili auk þess
sem haldnar verða útisamkomur
í miðbænum. Þá verða samkom-
ur á hverju kvöldi í Herkast-
alanum fram til sunnudags-
kvölds 7. febrúar. Sunnudagana
31. jan. og 7. febr. verða einnig
samkomur í Herkastalanum
fyrir hádegi. Barnasamkomur
verða í Hólabrekkuskóla laug-
ardagana 30. jan. og 6. febr. kl.
14 og sunnudagaskóli verður í
hersalnum og barnasamkomur
þar dagana 1. til 5. febr.
Á sama tíma og hluti nemenda
við Herskólann kemur hingað til
lands fara aðrir hópar í heim-
sóknir m.a. til Danmerkur og
taka einnig þátt í herferðum í
Noregi.
Meðalafli Kaldbaks 21,9 lest-
ir á veiðidag á síðasta ári
Fótbrotnaði
M ADl'K fótbrolnaði þegar vörulyftari
valt við llerjólfsgötu í Hafnarfirði á
þriðjudag.
Maðurinn ók suður Herjólfsgötu,
niður brekku en lyftarinn hélt beint
af augum þegar ökumaðurinn hugð-
ist beygja og valt fram af kantinum
og niður í tjörn. Virtist sem stýri
lyftarans hefði farið úr sambandi.
Vörulyftarinn stórskemmdist við
atvikið.
MEÐALAFLI Akureyrartogarans
Kaldbaks var 21,9 tonn á dag á síð-
asta ári og er það 1,4 tonn meira en
árið áður. Kins og komið hefur fram
þá var Kaldhakur aflahæsti togari
landsins á síðastliðnu ári með 6004
tonn, og var aflaverðmætið 20 millj-
ónir króna og meðalverð á kíló kr.
3,33.
I skýrslu Útgerðarfélags Ak-
ureyringa kemur fram, að út-
haldsdagar togara fyrirtækjs-
ins, fimm að tölu, voru 1753 á
síðasta ári á móti 1679 dögum
sem íslensk tónlist er leikin. Ég man
eftir slíkum tónleikum á Isafirði
fyrir einum sjö árum. Það var flutt
tónlist eftir mig, Hjálmar H. Ragn-
arsson og Jakob Hallgrímsson. Það
var troðfullt hús og allt efnið leikið
tvisvar, áður en yfir lauk.
Ég held að fólk sé hætt að líta á
okkur sem eins alvarlega og upp-
hafna og áður var. Fólk er kannski
hætt að setja sig í stellingar gagn-
vart nútímatónlist. Einu sinni mátti
til dæmis alls ekki hlæja á tónleik-
um, þótt eitthvað skemmtilegt gerð-
ist. En þáð er um að gera. Nú segir
fólk iðulega að það skilji ekkert í
þessu, en hafi skemmt sér konung-
lega. Það hefur hlaupið mikill vöxtur
i tónlistarlíf hér á landi siðustu árin,
eins og reyndar hvers kyns menning-
arstarfsemi. Það er mun meira flutt
af íslenskri tónlist en áður var. Þetta
hefur gerst á undanförnum u.þ.b. tíu
árum.
Þetta stafar m.a. af því hve við
eigum mikið af góðum hljóðfæraleik-
urum sem komið hafa heim frá námi
á þessu tímabili. Þeir hafa líka iðu-
lega haft frumkvæði að því að ný
verk séu samin."
Heyri heyrnir
— Sérðu eitthvað ákveðið fyrir þér
þegar þú semur? 1
„Nei, að jafnaði geri ég það ekki,
nema þá að um sviðsverk sé að ræða,
eins og balletttónlist. En ég sé yfir-,
leitt ekki miklar sýnir í sambandi við
þetta. Það má frekar segja að ég
heyri heyrnir. Ég hef gaman af því
þegar fólk segist sjá eitthvað fyrir
sér þegar það hlustar á tónverk sem
ég hef samið. Það sér yfirleitt alls
ekki allt það sama og hreint ekki það
sem mér kann að hafa dottið í hug
sjálfum.
Nei, ég á mér engar sérstakar
fyrirmyndir í tónlistarsköpun. Nema
þá góða músík frá öllum öldum. Mús-
ík sem lifir. Vond tónlist gleymist
yfirleitt.
Ég spila ekki mjög mikið sjálfur og
það er kannski skrýtið, en ég hef
skrifað minna fyrir flautu, en flest
önnur hljóðfæri, þótt hún sé mitt
hljóðfæri. Við spilum að vísu stund-
um kammermúsík kennararnir, en ég
vona alla vega að nemendur mínir
æfi sig meira en ég. Núna tekur við
hjá mér kennsla fram á vorið og ætli
ég reyni ekki að ljúka við eitthvað af
því sem ég hef verið að vinna að.
Kannski spilum við eitthvað í vor
fyrir vestan, kannski ekki. Og fyrir
utan tónlistina leitast ég við aö sinna
öðrum áhugamálum eitthvað, að
stunda leikhús, lesa bækur og búa til
góðan mat. Meira kemst ég nú tæp-
ast yfir.“ — SIB
árið 1980. Heildarafli togaranna
á árinu 1981 varð 24.946,7 lestir,
og hafði aukist um tæpar 1900
lestir frá árinu 1980 er hann var
22.480,6 lestir. Veiðidagar síð-
asta árs voru 1391 á móti 1305
og afli a veiðidag 17,9 tonn á
móti 17,2 tonnum árið 1980.
Heildarandvirði afla togaranna
var 82,2 milljónir króna en var
52,3 milljónir árið 1980. Árið
1980 var meðalverð á kíló kr.
2,33 en á síðasta ári kr. 3,30.
Sá togari Útgerðarfélags Ak-
ureyringa sem kom næst á eftir
Kaldbak hvað aflamagn snertir
á árinu 1981 var Harðbakur með
5409 lestir, síðan kom Svalbakur
með 5294 lestir, þá Sléttbakur
með 4864 lestir og loks Sólbakur
með 3372 lestir.
Útgerðarfélag Akureyringa
framleiddi 236.139 kassa af
frystum fiski á árinu, eða 5839
lestir, en árið 1980 nam freð-
fiskframleiðslan 6003 lestum,
þannig að hún hefur dregist
saman á milli ára. Skreiðar-
framleiðslan jókst úr 636 lestum
í 740 lestir og saltfiskframleiðsl-
an úr 687 lestum í 865 lestir. Þá
voru framleidd 60 tonn af hert-
um þorskhausum á árinu, en ár-
ið áður var framleiðslan 21 tonn.
Fulltrúi páfa á Norður-
löndum heimsækir Island
FULLTRUI páfa á Norðurlöndum og
sendiherra Yatikansins á Islandi og
Finnlandi, erkibiskup Luigi Bellotti,
er væntanlegur hingað til lands á
laugardag og dvelst hér fram á
fimmtudag.
Bellotti er nýlega tekinn við
embætti, en hann hefur aðsetur í
Kaupmannahöfn. Á sunnudag
messar hann í Landakotskirkju
ásamt Henrik Frehen, biskupi, og
hittir síðan söfnuð kaþólskra í
Landakotsskóla. Meðan Bellotti
dvelur hér á landi hittir hann for-
seta íslands og ýmsa áhrifamenn.
Kristján Benediktsson:
Tel eðlilegt að núverandi meiri-
hlutaflokkar haldi samstarfi sínu
„ÞAÐ SEM kom mér helst á óvart í
þessu prófkjöri var að það tóku ekki
þátt í því svo margir gamlir flokks-
bundnir Framsóknarmenn, heldur
haútist margt nýtt fólk í flokkinn,“
sagði Kristján Benediktsson, borgar-
stjórnarfulltrúi Framsóknarflokksins,
í samtali við Mbl. er hann var inntur
eftir áliti hans á prófkjöri Framsókn-
arflokksins í Keykjavík, sem haldið
var um síðustu helgi.
Aðspurður hvort hann teldi það
pólitískt áfall fyrir sig að fá ekki
yfir 50 prósent atkvæða í 1. sæti og
hljóta þannig ekki bindandi kosn-
ingu svaraði Kristján, að hann teldi
það ekki. Sagði hann að heildar-
atkvæðamagnið, sem hann hafi
hlotið, hafi verið um 76 prósent og
að það væru litlir möguleikar á að
ná yfir 50 prósent atkvæða í 1. sa'ti
með því fyrirkomulagi sem gilti við
þetta prófkjör, enda var hlutfall
mitt í 1. sæti svipað og fyrir fjórum
árurn. „Séu lagðar saman atkvæða-
tölur mínar í fyrsta og öðru sæti, þá
eru þær yfir 50 prósent atkvæða,“
sagði Kristján.
Kristján sagöi, þegar hann var
spurður að því hvort hann héldi að
það hefði dregið frá sér atkva'ði í
prófkjörinu, að hann lét þau orð
falla á framboðsfundi að hann teldi
eðlilegt að núverandi meirihluta-
flokkar í borgarstjórn héldu áfram
samstarfi sínu, að hann ætti ekki
von á því að svo hafi verið.