Morgunblaðið - 29.01.1982, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982
I.KNK Köppi'n, badmintondroltning-
in og tannlæknirinn danski, var í
gær kjörinn íþróttamadur Norður-
landa, en í hverjum janúar hóa for
menn norrænu íþróttafréttamanna-
samtakanna sig saman og ganga frá
kjöri þessu. I»eir Ingimar Stenmark
og Björn Borg hafa einokað nafnbót
þessa síðustu fimm árin. t>eir sem til
greina koma sem íþróttamenn N’orð-
urlanda eru íþróttamenn hvers lands
fyrir sig, en auk Lene Köppen komu
„Gaman að vera fyrsta kon-
an sem nær þessu kjöri“
„ÉG ER yfir mig ánægð með kjör
ið, þetta er mikill heiður fyrir mig
og mun efla mig í íþróttinni,“
sagði Lene Köppen, nýkjörinn
íþróttamaður Norðurlanda
1980—-’81 í samtali við fréttamann
Morgunblaðsins í Kaupmanna-
höfn í gær, en þar fór kjörið fram.
Köppen er fædd og uppalinn í
Kaupmannahöfn og starfar þar
sem tannlæknir. Hún þurfti að fá
frí á tannlæknastofunni til þess að
mæta í matarhóf þar sem greint
var frá kjörinu, en veglegan bikar
mun hún fá á Opna danska meist-
aramótinu*sem fram fer innan tíð-
ar. Köppen hélt áfram:
„Kg hef alveg sérstaklega
gaman af því að vera fyrsta kon-
an sem nær þessu kjöri. Þá er
það einnig gott fyrir Danmörku
og danskt íþróttalíf." Lene, sem
hóf að ieika badminton 13 ára
gömul, var spurð hvernig hún
háttaði æfingum sínum, þ.e.a.s.
hver væri lykillinn að velgengn-
inni. „Ég æfi tvisvar á dag, 5—6
daga í viku. Ég hef engan þjálf-
ara, heldur keppi einungis við
eiginmann minn. Ég tel ekki rétt
að vera með of marga leiðbein-
endur, það ruglar mann bara. En
ég vil undirstrika, að badminton
er ekki annað en tómstundagam-
an mitt. Ég er lærður tannlækn-
ir og vinn fullt starf sem slíkur."
Nú er badminton hátt skrifað
á Norðurlöndum, en þó virðast
Asíulöndin eiga marga frábæra
badmintonmenn og jafnvel betri
en finnast á Norðurlöndunum.
Hver er skýringin á þessu? „Það
er alveg jafn mikið af hæfileika-
fólki á Norðurlöndum og hjá
okkur hefur fóik sömu mögu-
leika á því að ná jafn langt. Én
Indónesíubúar og Kínverjar æfa
íþróttina öðru vísi en við. Þeir
eru miklu kerfisbundnari í æf-
ingum sínum, líta ekki á þetta
sem tómstundagaman og
skemmtun. Þar liggur munurinn
að mínu áliti."
þf-/gg'
til greina Jón Páll Sigmarsson,
kraftlyftingamaður frá íslandi, Tom
Lund, knattspyrnumaður frá Noregi,
Ingimar Stenmark, skíðamaður frá
Svíþjóð og Hekki Mikola, skíða-
skotfimigarpur frá Finnlandi, en
hann er heimsmeistari í 20 kfló-
metra skíðaskotfimi.
Lene Köppen er ekki bara fyrsti
Daninn í háa herrans tíð sem
hreppir titil þennan, hún er fyrsta
konan sem verður fyrir valinu all-
ar götur síðan kjör þetta fór fyrst
fram, árið 1962. Lene hefur um
langt skeið verð einhver besta
badmintonkona sem um getur,
hún hefur 25 Norðurlandatitla í
safninu, hefur verið heimsmeist-
ari bæði í einliða- og tvíliðaleik,
Evrópumeistari, auk þess sem hún
hefur verið í úrslitum Al-
England-keppninnar sex af síð-
ustu sjö árum. Hún er jafnframt
eina konan sem sigrað hefur hina
frábæru Ai Ling frá Kína, en það
átti sér stað á opna danska meist-
aramótinu síðasta.
— þf'/gg-
Lene Koppen á sigurstundu.
Guðrún rauf 15 metra múrinn
GUÐRÚN Ingólfsdóttir, frjáls-
íþróttakonan sterka, setti nýtt og
glæsilegt íslandsmet í kúluvarpi
kvenna á innanfélagsmóti KR í
fyrrakvöld. Guðrún varð þar fyrst ís-
lenskra kvenna til þess að varpa kúl-
unni yfir 15 metra, en lengst fauk
kúlan 15,06 metra.
Gamla metið átti Guðrún sjálf,
en það var raunar alls ekkert
gamalt, því það eru aðeins nokkrir
dagar síðan Guðrún setti það,
14,61. Guðrún bætti metið því
mjög verulega. Næstbesta kast
hennar í fyrrakvöld var 14,59 m,
en eftir metkastið fylgdi hugur
varla verki vegna unnins afreks og
síðustu köstin voru öll ógild.
Kunnugir telja, að nýir skór, sem
Guðrún hefur keppt í að undan-
förnu, hafi hjálpað henni geysi-
lega mikið, auk þess sem hún er
sjálf í betri æfingu en nokkru
sinni fyrr.
Danski tannlæknirinn kjörinn
íþróttamaður Norðurlanda
Trimmaðstaða á Akureyri mjög góð
Ahugi almennings á íþróltaiðkun
hefur aukisl mjög mikið hin síðari
ár.
Iþróltasamband Islands telur eðli-
legl að íþróttir fyrir almenning teng-
ist starfsemi hreyflngarinnar og hef-
ur því tekið almannaíþróttir inn á
sína stefnuskrá. Hefur ÍSÍ falið hin-
um einstöku sérsamböndum fram-
kvæmd þessara mála, þar sem því
verður við komið, hverju í sinni
grein.
Leitast verður við að fá sem
flesta til að stunda íþróttir, hvern
eftir sinni getu og er þetta gert í
þeirri tiú að hæfileg hreyfing og
áre.vnsla sé líkamanum nauðsyn-
leg og holl. Einu orði, hefur þessi
þáttur íþrótta verið kallaður
TRIMM.
Skíðasamband íslands er fyrsta
sérsambandið innan ÍSÍ sem hefur
tekið trimm inn í sína starfsemi.
Skipuð hefur 3ja manna
trimm-nefnd SKÍ, einskonar
landsnefnd, sem hefursíðan stuðl-
að að stofnun trimm-nefnda víðs
vegar um landið, gefið út reglur
um skíða-trimm og látið útbúa
merki og auglýsingar fyrir trimm
o.s.frv. Nefnd þessi cr á Akureyri. í
henni eru Hermann Sigtryggsson,
Magnús Kristinsson og Stefán Jón-
asson.
Auk framangreindra verkefna
vinnur nefndin nú að þátttöku ís-
lands í norrænni fjölskyldu-
landskeppni á skíðum 1983 og nor-
rænni skólalandskeppni á skíðum
1985. I vetur á að koma á
„trimmdegi“ um allt land, en þann
dag verða auglýstar fjöldagöngur
og trimmað þar sem því verður við
komið.
Á Akureyri hefur ávallt verið
mikill áhugi fyrir skíðaíþróttinni
og þá sérstaklega varð þetta al-
menningsíþrótt eftir að aðstaða
batnaði í Hlíðarfjalli með skíða-
hóteli, lyftum og troðara. í fjall-
inu er hægt að stunda alhliða
skíðaíþróttir, en best er aðstaðan
þar fyrir alpagreinar. Nú á síðustu
árum hefur áhugi á skíðagöngu
aukist mjög mikið og þá sérstak-
lega eftir að upplýst göngubraut
kom í Kjarnaskóg. Sú þraut er um
2,2 km á lengd. Þar verður leitast
við að hafa ávallt troðna braut
með göngusporum, en jafnramt er
farið að huga að öðrum stöðum í
bæjarlandinu þar sem hægt er að
hafa troðnar brautir s.s. á golf-
vellinum og svæðinu umhverfis
nýja Bjarg Sjálfsbjargar í Gler-
árhverfi. Stofnuð hefur verið
skíðatrimmnefnd á Akureyri þar
sem fulltrúar frá útivistarsvæðinu
í Kjarna, íþróttahreyfingunni,
Skíðastöðum, skátum o.fl. eiga
fulltrúa. Fyrsta verkefni þessarar
nefndar er að bjóða almenningi upp
á leiðsögn í meðferð gönguútbúnað-
ar og gönguáburðar. Fer leiðsögn
þessi fram í Kjarna nk. sunnudag kl.
2—4. Síðan er gert ráð fyrir að leið-
beint verði tvö kvöld í viku í Kjarna
fyrir almenning, næstu vikurnar. Þá
mun þessi nefnd sjá um skíða-
trimmdaginn á Akureyri í vetur
og undirbúa þátttöku Akureyr-
inga í norrænu fjölskyldukeppn-
inni á skíðum næsta vetur.
Trimmnefnd Skíðasambands ís-
lands hefur látið útbúa bækling og
merki í sambandi við skíða-
trimmið og fást þessi gögn hjá
trimmnefndinni, skógarverðinum
í Kjarna og á skrifstofu æskulýðs-
og íþróttaráðs, Ráðhústorgi 23.
I skíðatrimmnefnd Akureyrar
eru Þröstur Guðjónsson, Þor-
steinn Pétursson, Ivar Sigmunds-
son, Hallgrímur Indriðason, Jón
Orn Sæmundsson og Nína Þórð-
ardóttir.
Á blaðamannafundi á Akureyri
komu svo eftirfarandi sjónarmið og
atriði fram:
Hallgrímur Indriðason: „í
Kjarnaskógi eru upplýstar skíða-
göngubrautir alla daga, sem gefur
til skíðaiðkana. Það er ótrúlega
góð aðsókn í trimmbrautina allt
árið því hún er opin á sumrin og
þar er mjög gott að hlaupa. Fjöldi
skíðagöngumanna hjá okkur hefur
farið fram úr öllum vonum og það
er greinilegt að þessar upplýstu
brautir laða fólk mikið að. Hug-
myndir eru uppi um að í framtíð-
inni verði troðin braut og hægt
verði að ganga upp úr Kjarnaskógi
og upp á Súlumýrar: Það yrði
„góð“ dagsferð, um 15 km göngu-
leið þar sem hægt væri að stoppa í
tveimur skálum á leiðinni, í nýja
skálanum sem skátarnir hafa
komið upp fyrir ofan Kjarna og
Fájkafelli, gamli skátaskálinn."
ívar Sigmundsson forstöðumað-
ur Skíðastaða: „í fjallinu eru
troðnar göngubrautir um hverja
helgi, um 7—8 km hringur. Hring-
urinn er yfirleitt troðinn á laug-
ardags- og sunnudagsmorgnum.
Nokkuð margar svigbrautir eru
upplýstar hjá okkur á kvöldin. Á
þriðjudögum og fimmtudögum
verður opið til kl. 10 á kvöldin en
aðra daga til kl. 7. Það er mín
skoðun að mun betra sé að vera í
upplýstri aðstöðu á kvöldin heldur
en í dagsbirtu á þessum árstíma."
Þorsteinn Pétursson: „Nú á
sunnudaginn verður fólki leiðbeint
í Kjarnaskógi að bera áburð á
gönguskíði. Meiningin er að þetta
verði síðan gert á þriðjudags- og
fimmtudagskvöldum kl. 8—9.30 í
vetur á sama stað. Þá hefur komið
upp sú hugmynd að skíðatrimm-
nefnd Akureyrar sendi kveðju til
nærliggjandi byggðarlaga, t.d.
Ólafsfjarðar og Húsavíkur og að
sjálfsögðu verður farið með kveðj-
una gangandi á skíðum. „Þeir lifa
lengur sem ganga á skíðum," sagði
Þorsteinn ( og var það hugmynd
hans að fyrirsögn).
Magnús Kristinsson (í lands-
nefnd): „Landsnefndin mun reyna
að drífa upp trimmnefndir sem
víðast á landinu en þær eru þegar
komnar í gang á allmörgum stöð-
um. Hér á Akureyri munum við
reyna að fá sem allra flesta til að
vera með, með því að koma upp
aðstöðu sem víðast í bænum. Það
er t.d. mjög vinsælt að ganga á
skíðum á golfvellinum. Þar er
sléttara en víðast annars staðar
og því mjög heppilegur staður
fyrir byrjendur. Þar stendur til að
troða brautir. Þá erum við með
hugmyndir í sambandi við nýjan
stað, í kringum nýja Sjálfsbjarg-
arhúsið Bjarg í Glerárhverfi.
Magnús Olafsson sjúkraþjálfari
(Sjálfsbjörg): „Við höfum mögu-
leika á að gera 1 km langa hálf-
upplýsta göngubraut í kringum
húsið og einnig er heppilegt að
menn gætu hitað upp á gönguskíð-
um fyrir utan og komið síðan inn á
eftir í líkamsræktartækin. í sam-
bandi við þessi líkamsræktartæki
langar mig að leiðrétta þann mis-
skilning að þau séu einungis fyrir
fatlað fólk, það sem er hér hjá
Sjálfsbjörg. Það er algjör mis-
skilningur að svo sé, þau eru frjáls
almenningi líka. í sambandi við
gönguskíðin vil ég hvetja fólk til
að vera með, og benda því á að
byrja rólega, sérstaklega ef fólk
byrjar þegar það er farið að eld-
ast. En það er ekki okkar markmið
að ná aðeins til fullorðna fólksins
heldur til barnanna líka. Þetta er
tilvalið sport fyrir alla fjölskyld-
una.“
Hermann Sigtryggsson: „Ég held
ég megi segja að hér á Akureyri sé
mjög góð aðstaða fyrir trimmara.
Það hefur sýnt sig, að þegar fólk
fær tæki og aðstöðu þá er það
strax komið af stað. í sambandi
við framtíðina eru til ótal hug-
myndir, t.d. að hafa hverfakeppni
á gönguskíðum, einnig skóla-
keppni í bænum o.fl.“
— SH.
• Guðrún er sterk um þessar
mundir.
íþróttir
í kvöld:
Körfuknattleikur
Einn leikur fer fram í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í kvöld. Valur
og Fram eigast við í íþróttahúsi
Hagaskólans og hefst leikurinn
klukkan 20.00. Eftir hið sögulega
tap gegn IR í síðustu umferð er Ijóst,
að Fram má alls ekki tapa þessum
leik. Valsmenn eiga litla möguleika
á því að blanda sér í toppslaginn úr
því sem komið er og leika því án alls
álags. Kannski án áhuga að auki.
Víst er a.m.k. að Framarar munu
beita sér og leika fast til sigurs, því
enn á liðið möguleika á að ná
UMFN að stigum.
Handknattleikur
Einn leikur er í 2. deild í kvöld,
Haukar og UBK mætast í Hafnar
flrði og hefst leikurinn klukkan
20.00. Leikurinn hefur einkum þýð-
ingu fyrir Hauka, sem keppa við
Þór, Stjörnuna og ÍR um sæti sem
losna í I. deild í vor.
Blak
Einn leikur fer fram í 1. deild
kvenna, ÍS og KA eigast við í
íþróttahúsi Háskóla íslands. Leikur
inn hefst klukkan 21.00.
J