Morgunblaðið - 29.01.1982, Qupperneq 32
Síminná QQfl/!)/3
afgreiðslunni er OOUOO
Jttorjíjtinblfi&iíi ^
ior0iití#iCaiíjiií)
J Sími á ritstjórn -j fl H flfl
ogskrifstofu: IU IUU
Jilorx)imi)Iaí>ií»
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1982
Stjórnarfrumvarp á Alþingi:
50% lækkun tolla
á heimilistækjum
Lidur í niðurfærslu vísitölu framfærslukostnaðar
STJÓRNARFRUMVARP til laga um breytingu á tollskrárlögum var lagt
fram á Alþingi í gærkvöldi. Felur frumvarpið í sér 50% lækkun tolla, úr H0%
í 40%, á rafmagnsheimilistækjum. Samþykkt frumvarpsins veldur allt ad 22
millj. króna tekjutapi fyrir ríkissjóð á ársgrundvelli, samkvæmt því sem segir
í greinargerð með frumvarpinu, en þaó er liður í boðuðum efnahagsaðgerð-
um ríkisstjórnarinnar.
Tollalækkanirnar eru liður í því
að ná vísitölu framfærslukostnað-
ar niður um 6% á fyrri hluta árs-
ins, eins og boðað er í skýrslu rík-
isstjórn'arinnar um aðgerðir í
efnahagsmálum, sem einnig var
lögð fram á Alþingi í gærkvöldi.
Hér er um að ræða 11 gerðir heim-
m
pósts
'o hækkun
& síma
SAMOONGURAÐHERRA hefur
samþykkt tillögu t.jaldskrár
nefndar um að heimila Pósti &
síma að ha-kka gjaldskrár sínar
frá og með 1. febrúar nk. um
l<>%-
Reiðni Pósts & síma hljóðaði
upp á 10% hækkun, sem fékkst
sem sagt.
ilistækja, þ.e. kæliskápa, frysti-
kistur, eldhúsviftur, uppþvottavél-
ar, þvóttavélar, þurrkara, strau-
vélar, ryksugur, viftur, hrærivélar
og brauðristar.
Frumvarp þetta er lagt fram í
neðri deild Alþingis, en ekki var
reiknað með í gærkvöldi að fleiri
frumvörp vegna efnahagsaðgerð-
anna sækju dagsins ljós fyrr en á
mánudag, enda þingfundir ekki
boðaðir fyrr en þá. Það er þó ljóst
að til breytinga þarf að koma á
verðlagslöggjöfinni og fjárlögum,
einnig þarf sérstök lög eða laga-
breytingu vegna áætlaðra skatta á
banka- og sparisjóði. Breytingar á
fjárlögum verða að fara í gegnum
sameinað þing, önnur frumvörp
verða væntanlega lögð fyrir neðri
deild, eins og framkomið frum-
varp til breytinga á tollskrárlög-
íslenzkum skipum bönn-
uð löndun í Færeyjum
ÍSLKNZK fiskiskip fá ekki lengur
að landa fiski í Færeyjum, cn síðast
landaði íslenzkt skip í Færeyjum
þann 18. október síðastliðinn.
Snemma í október var mörkuð sú
stefna af viðskiptaráðuneytinu, sjáv-
arútvegsráðuneytinu og Landssam-
bandi íslenzkra útvegsmanna, að
spornað yrði við siglingum íslenzkra
skipa með fisk til Færeyja.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenzkra út-
vegsmanna, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að ástæðan fyrir
þessu væri einfaldlega sú, að Fær-
eyingar stæðu í beinni samkeppni
við íslendinga á hinum ýmsu
mörkuðum, ekki sízt á saltfisk- og
freðfiskmörkuðunum. Kvað Krist-
ján öðru máli gegna með fersk-
fiskmarkað í Bretlandi og Þýzka-
landi, þar færi stór hluti þess afla
sem seldur væri ferskur til neyt-
enda.
Jóhanna Hauksdóttir, fulltrúi
hjá LÍÚ sagði, þegar Morgunblað-
ið ræddi við hana, að alls hefðu
íslenzk skip landað 75 sinnum í
Færeyjum á síðasta ári og aflinn
verið 8.090 lestir. Verðmæti aflans
var 32.935.551 d.kr. Þess má geta
að árið 1980 lönduðu íslenzk skip
alls 23 sinnum í Færeyjum.
VII) KAMBSVEG 3 í Reykjavík býr Ingþór Sigur
hjörnsNon, málarameistari. Morgunblaðið fregnaði að
hann væri í þann veginn að senda marga kassa af
klæðnaði ýmiskonar til þurfandi fólks í Póllandi og
bankaði uppá hjá honum um kvöldmatarleytið í gær:
— Það var ágætt að þið skylduð taka uppá því að
koma, sagði Ingþór. Því hér var kona nokkur sem
lét á sér skilja, að þetta væri eintómt gamalt drasl,
sem ég væri að senda. En eins og þið getið sjálfir
gengið úr skugga um, þá er þessi fatnaður nær allur
nýr og með verðmiðum úr verslunum. Fatnaðurinn
er að mestu það sem gekk af á flóamarkaði hjá
okkur í stúkunni Framtíðin í Reykjavík, fyrir
nokkrum árum. Ég býst við að hér séu á þriðja
hundrað peysur í kössunum, ullarnærfatnaður, káp-
ur, skótau o.s.frv., og þó það sé nú ekki allt eftir
nýjustu tísku! Ég hef pakkað niður í eina 20 kassa
og er hver kassinn um 20 kg, semsé 400 kg að þyngd.
Nú vantar bara fjárframlög í flutningskostnað-
inn. Þeir sem gefa fé til flutningsins fá sig skráða
sem gefendur á kassana — en Goodtemplarareglan
mun borga undir þá, ef engin berast framlögin og
kassarnir eru sendir í nafni IOGT. Ég vona bara að
þetta fari sem fyrst til þurfandi fólksins í Póllandi
og er glaður yfir því að geta komið að einhverju
gagni, þó lítið sé. Tilefnið? Það var grein Friðriks
Sigurbjörnssonar í Mbl. fyrir skömmu, þar sem
hann greindi frá því framtaki sænskra manna að
senda fatnað og matvæli til barnalæknis nokkurs í
Lodz í Póllandi, sem hefur 300 börn á sínum snær-
um. Sænska póstþjónustan hefur afnumið sendir.g-
argjald á pökkum til Póllands og það þyrfti að
gerast hér á landi. Ég bendi öllum á að lesa grein
Friðriks í Mbl. 21. janúar sl., en heimilisfang barna-
læknisins er þetta:
Renata Rimler, 91-437 — Lodz — Julianow, Ul.
Cisowa 4, Pólland.
Og við skildum við Ingþór kófsveittan að ganga
frá kössunum.
Friðjón hórðarson dómsmálaráðherra:
„Pakkinn“ veldur vonbrigðum
þeirra sem vilja taka sterkar á
Ríkisstjórnin verður að skerða verðbætur um 8—10%, sagði Friðrik Sophusson
Búvöruverð
lækkar um
helgina
BI'VÖRUVERI) mun lækka um
þessa helgi, að því er Ragnar
Arnalds fjármálaráðherra skýrði
frá í útvarpsumræðum í gær
kvöldi, vegna aukinna niður-
greiðslna. Ráðherrann sagði bú-
vöruverðið mundu hækka á ný 1.
marz nk., þó ekki jafn mikið og
orðið hefði að óhreyttu, þar sem
niðurgreiðsiur yrðu auknar þá
einnig.
Fjármálaráðherra sagði
einnig, að eftirlit yrði hert með
ferðalögum til útlanda á kostn-
að ríkisins. Sagði hann slíkt
eftirlit ekki hafa verið full-
nægjandi til þessa.
I R/EDU, sem athygli vakti í útvarps-
umræðunum í gærkvöldi, sagði Friðjón
Þórðarson dómsmálaráðherra, að þeg-
ar efnahagspakki ríkisstjórnarinnar
væri veginn og metinn, mundi hann
ekki valda ótta eins og stundum gerð-
ist, þegar efnahagsráðstafanir kæmu
fram, heldur vonbrigðum hjá þcim sem
vildu taka sterkar á. Ráðherrann sagði
ennfremur, að ríkisstjórninni hefði
vegnað sæmilega það sem af væri,
margt hefði mátt betur fara og margt
væri ógert, en hvað tekur við, ef ríkis-
stjórnin fer frá, spurði ráðherrann.
Friðjón l'órðarson sagði, að ráðstaf-
anir ríkisstjórnarinnar bæru keim af
úrra-ðum til skamms tíma og þær væru
studdar í trausti þess, að þær væru
áfangi á réttri leið. Vonir um jafn stór
skref og tekin voru í fyrra hafa hrugð-
izt, sagði ráðherrann og sagði að horfið
hefði verið að því ráði að stytta næsta
áfanga. Dómsmálaráðherra sagði, að
markmið ríkisstjórnarinnar um 35%
vcrðbólgu og 30% verðbólguhraða
mundu ekki nást átakalaust. Betur má
ef duga skal, sagði ráðherrann. Friðjón
l'órðarson sagði ennfremur, að þegar í
stað yrði að hefjast handa um úrræði í
efnahagsmálum til frambúðar. /Eði
vcrðbólgan upp á ný, er vá fyrir dyrum,
sagði dómsmáiaráðherra.
Friðrik Sophusson, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði í út-
varpsumræðum, að ríkisstjórnin
yrði að skerða verðbætur á laun um
8—10% síðari hluta ársins, ef hún
ætlaði að koma verðbólguhraðanum
í 30% þá. Þingmaðurinn sagði, að
ríkisstjórnin hefði ekkert svigrúm
til þess að greiða vísitöluna niður
frekar, nema ný skattheimta kæmi
til.
1 ræðu Friðriks Sophussonar kom
einnig fram, að niðurgreiðslur hefðu
að undanförnu verið notaðar til þess
að lækka laun um 5%, en þau mundu
verða lækkuð um 11% með hinum
auknu niðurgreiðslum.
í umræðunum sagði Ólafur G.
Einarsson, formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins, að kokvídd
Framsóknarflokksins væri með ólík-
indum. „Ennþá renna þeir niður,
sem ekkert sé, öllum fyrri yfirlýsing-
um um hinar nauðsynlegu aðgerðir í
efnahagsmálum."
Gunnar Thoroddsen, forsætisráð-
herra, sagði í umræðunum, að mik-
ilvægasti þáttur yfirlýsingar ríkis-
stjórnarinnar væri viðræður við
fulltrúa launþega og vinnuveitenda
um nýtt viðmiðunarkerfi í stað vísi-
tölukerfisins.
Steingrímur Hermannsson sjávar-
útvegsráðherra sagði, að ekki yrði
hjá því komizt að sjómenn fengju
tryggingu fyrir fiskverðshækkunum
með sama hætti og launþegar fyrir
launahækkunum og raunar ætti það
við um útgerðina líka.
* r
Asmundur Stefánsson, forseti ASI:
„Erum með kröfu um bætta
vísitölu - en ekki skerta“
í ÁÆTLUN ríkisstjórnarinnar um
ráóstafanir í efnahagsmálum, segir,
að ríkisstjórnin muni nú þegar hefja
viðraður við samtök launafólks og
aðra hagsmunaaðila um viðmiðun-
arkerfi, sem gæti komið í stað nú-
vcrandi vísitölukerfis.
í samtali við Morgunblaðið segir
Þorsteinn Pálsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambandsins,
að eina leiðin til að ná þessu
markmiði sé að samningarnir í vor
verði endurnýjaðir án nokkurra
grunnkaupshækkana. Hann segir
ennfremur, að eigi að ná því
markmiði að hraði verðbólgu á síð-
ari hluta ársins verði 30% sé nauð-
synlegt, að lækka verðbætur á laun
1. september og 1. desember um
4—5% í hvort skipti, til viðbótar
þeirri skerðingu, sem nú er sam-
kvæmt samningum.
Ásmundur Stefánsson, forseti
Alþýðusambandsins, segir um
áætlanir ríkisstjórnarinnar, að í
baráttunni við verðbólguna sé það
grundvallaratriði, að vísitölukerfið
sé traust þannig að menn séu að
fjalla um raunstærðir. Hann segir
ennfremur, að það megi ekki
gleyma því, að 15. maí séu samn-
ingar lausir og ASÍ hafi ekki verið
með kröfur um skerta vísitölu.
Þvert á móti hafi það verið með
kröfur um bætta vísitölu.
Ríkisstjórnin er einnig með
hugmyndir um að leggja skatta á
banka og sparisjóði. Jónas Haralz
bankastjóri segir, að bankarnir
hafi borgað háa skatta allt frá ár-
inu 1956, auk þess sem þeir greiði
landsútsvar. Þá segir hann, að ef
um frekari skattgreiðslur bank-
anna verði að ræða, megi skatt-
greiðslur með engu móti verða til
þess að rýra eiginfjárstöðu þeirra.
Sjá bls. 15.