Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982 25 KR-ingar náðu að sigra HK á síðustu stundu — Haukur Geirmundsson skoraöi sigurmark KR-inga 10 sekúndum fyrir leikslok KR-INGAR sigruðu lið HK í hörkuspennandi og jöfnum leik í 1. deild á iaugardag med 21 marki gegn 20. í hálfleik var stadan 11 mörk gegn 9 fyrirl ið HK. Það var ekki fyrr en á lokamínútum leiksins sem leikmönnum KR tókst að skora sigurmarkið og ná sér þar með í tvö stig. Hið unga lið HK barðist vel í leiknum og jafntefli hefði verið sanngjörn úrslit. HK betri í fyrri hálfleik Lið HK var mun betra en lið KR í fyrri hálfleiknum. Og hafði liðið alltaf forystuna. Leikmönnum KR gekk afar illar að finna réttan takt í leik sinn og komust þeir aldrei verulega í gang í fyrri hálf- leik. Framan af síðari hálfleiknum hafði lið HK svo nokkra yfirburði í leiknum og réði raunar lofum og lögum á vellinum. HK breytti stöðunni í 15—11 sér í hag. En þá voru búnar 38 mínútur af leiknum. En þá loks tóku leikmenn KR rækilega við sér. Og skoruðu þeir nú fimm mörk í röð á aðeins sjö mínútna löngum leikkafla. HK tókst ekki að skora neitt mark á þessum tíma. KR-liðið náði því forystu, 16—15, í fyrsta skipti í leiknum. Næstu mínútur voru mjög jafnar og ekki mátti á milli sjá hvort liðið virtist ætla að hafa það. HK komst aftur yfir, 17—16, og svo var jafnt á öllum tölum upp í 20—20. Þá var rétt rúm mínúta til leiksloka. KR-ingar höfðu bolt- ann og eftir að hafa margreynt að komast í gegn um vörn HK tókst HK—KR 20:21 hornamanninum snjalla, Hauki Geirmundssyni loks að brjótast í gegn og skora sigurmark KR þeg- ar aðeins 10 sekúndur voru eftir af leiknum. Mark Hauks úr horninu var mjög fallegt. Ekki tókst HK-mönnum að nýta þær fáu sekúndur sem eftir voru af leiknum og jafna metin. Liðin: Bestu menn KR voru þeir bræður Alfreð og Gunnar Gíslasynir, léku vel bæði í sókn og vörn. Hjá HK átti Einar Þorvarðarson góðan leik í markinu. Varði Einar 13 skot og auk þess tvö vítaköst. Þá átti Ragnar Olafsson góðan leik. Mörk HK: Ragnar Ólafsson 7, 3v., Hörður Sigurðsson 5, lv., Hallvarður Sig- urðsson 3, Kristinn Ólafsson 3, og Gunnar Eiríksson 2. • Einar Þorvarðarson átti mjög góðan leik í marki HK gegn KR. Mörk KR: Alfreð Gíslason 8, lv, Haukur Geirmunsson 6, 2v, Gunnar Gísla- son 3, Haukur Ottesen 2, Friðrik Þorbjörnsson 1 og Björn Péturs- son 1 víti. Þrívegis var leikmönnum HK vikið af velli, en aðeins einn KR-ingur fékk að hvíla sig í 2. mín. HK fékk 4 vítaköst og heppn- uðust öll þeirra. KR fékk 6 víti en tvö þeirra mistókust. — ÞR. • Björgvin Björgvinsson var drjúgur í leiknum gegn Þrótti, en mistök hans í lok leiksins voru þó afdrifarík. • Sigurður Sveinsson skoraöi átta mörk meö mikl um þrumuskotum. Staðan í 1. deild STAOAN í 1. deild islandsmótsins í hand knattleik eftir leiki helgarinnar er sem hér segir: KA — FH 23—30 Víkingur — Valur HK — KR Fram — Þróttur Víkingur 13 FH 13 Þróttur 13 KR 13 Valur 13 HK 13 Fram 13 KA 13 15—14 20—21 21—22 11 0 2 299—224 22 10 1 2 323—295 21 9 0 4 285—262 18 8 1 4 281—271 17 6 0 7 263—254 12 2 1 10 236—266 5 2 1 10 258—313 5 2 0 11 242—302 4 Síðasta umferðin verður þrungin spennu, FH og Víkingur mætast í Hafnar- firöi og að Varmá eigast við HK og Fram. Þá eigast við KR og KA og Valur mætir Þrótti. Síðasta umferöin: Úrslitaleikurinn fer fram á laugardaginn Nll ER aðeins ein umferð eftir í íslandsmót- inu í handknaltleik. Úrslitaleikur mótsins verður á milii Fll og Víkings. Leikur liðanna fer fram í íþróttahúsinu í Hafnarftrði næst- komandi laugardag og hefst kl. 14.45. Þar má búast við spennandi leik. En það er ekki á hverjum degi sem um hreinan úrslitaleik er að ræða í Islandsmótunuir. í knattleikjum. Næsti leikur í 1. deild verður hinsvegar á miðvikudagskvöldið kl. 20.00 í Laugardals- höll, þá leika Valur og Þróttur kl. 20.00. Oruggur sigur Hauka gegn Þór HAUKAR sigruðu Þór í 2. deildinni á sunnudagskvöldið 24—18. Með þessum sigri losuðu Haukar sig úr allri fallhættu en fáum datt í hug í upphafi mótsins að þetta ágæta lið úr Hafnarfirðinum ætti eftir að lenda í slíkri stöðu. Slakt gengi lið- anna sem í fyrra féllu úr 1. deildinni, Fylkis og Hauka, hefur vissulega vakið nokkra furðu handboltaáhuga- fólks, en þetta má kalla táknrænt fyrir hina mjög svo slöku 2. deild í vetur. Leikur Þórs og Hauka var mikill átakaleikur. Haukar náðu í upp- hafi góðu forskoti og skoruðu Þór- arar aðeins tvö mörk fyrstu 20 mín. leiksins. Staðan í hálfleik var 12—7 fyrir Hauka og virtist stefna í stórsigur Hafnfirðinga. Þórarar komu mjög ákveðnir til leiks í síð- ari hálfleik og brugða á það ráð að taka tvo leikmenn Hauka úr um- ferð í einu. Við þetta riðlaðist leik- ur Hauka allur og Þór saxaði jafnt og þétt á forskot Hauka og þegar 10 mín. voru eftir af leiknum var munurinn aðeins eitt mark 17—18. En hér náðu Haukar að koma lagi á leik sinn og þeir gerðu út um leikinn á síðustu mín. hans með skynsamlegum leik og sigruðu 24-18. Ingimar Haraldsson var besti maður Hauka í leiknum og Gunn- ar Einarsson varði mjög vel í leiknum, alls 16 skot og þar af tvö víti. Hjá Þórurum var Böðvar Bergþórsson bestur en annars var liðið mjög jafnt. Mörk Þórs: Herbert Þorleifsson 5 (3v), Böðvar Bergþórsson 3, And- rés Bridde 3, Páll Scheving 3, Þór Valtýsson 2, Karl Jónsson 1, Ing- ólfur Ingólfsson 1. Mörk Hauka: Sigurgeir Mart- einsson 7 (4v), Ingimar Haralds- son 5, Árni Sverrisson 3, Lárus Karl Ingason 3, Jón Hauksson 3 (lv), Þórir Gíslason 2, Guðmundur Haraldsson 1. — hkj. Mistök á síóustu sekúndunum voru Fram-liðinu dýrkeypt — Páll Ólafsson skoraöi sigurmark Þróttar 10 sekúndum fyrir leikslok Lokasprettur Fram gegn Þrótti í 1. deildarleik liðanna á laugardaginn færði Fram næstum annað stigið í leiknum. Meira að segja næstum því bæði stigin. Þegar síðari hálfleikur var tæplega hálfnaður var staðan 20—14 fyrir Þrótti, en eins og oft áður er þetta annars prýðilega lið hefur náð yfirburðaforystu, þá var slakað á fram úr hófi. Framarar gengu á lagið og fylltust eldmóði eft- Fram—Þróttur 21:22 ir þvi sem betur gekk. Á sama tíma gekk Þrótti illa að hysja sig upp. Þegar fimm mínútur voru til leiks- Elnkunnagjðfln Lið FH: Lið Víkings: LIÐ KR: Lið Víkings: Haraldur Ragnarsson 5 Kristján Sigmundsson 8 Brynjar Kvaran 6 Kristján Sigmundsson 8 Gunnlaugur Gunnlaugsson 5 Ellert Vigfússon 7 Gísli Felix 5 Þorbergur Aðalsteinsson 8 Hans Guðmundsson 5 Hilmar Sigurgíslason 6 Jóhannes Stefánsson 6 Páll Björgvinsson 7 Kristján Arason 8 Ólafur Jónsson 7 Ólafur Lárusson 5 Steinar Birgisson 7 Pálmi Jónsson 4 Guðmundur Guðmundsson 7 Ragnar Hermannsson 5 Árni Indriðason 7 Valgarður Valgarðsson 4 Sigurður Gunnarsson 6 Friðrik Þorbjörnsson 4 Guðmundur Guðmundsson 6 Sæmundur Stefánsson 5 Páll Björgvinsson 7 Gunnar Gíslason 7 Ólafur Jónsson 6 Guðmundur Magnússon 3 Óskar Þorsteinsson 7 Alfreð Gíslason 7 Oskar Þorsteinsson 6 Sveinn Bragason 5 Árni Indriðason 7 Haukur Ottesen 6 Heimir Karlsson 6 Finnur Árnason 4 Þorbergur Aðalsteinsson 8 Haukur Gcirmundsson 7 Hilmar Sigurgíslason 6 Heimir Karlsson 7 Steinar Birgisson 7 LIÐ HK: Lið Vals: Lið Fram: Lið KA: Kin.tr Þorvarðarson 7 Jón Gunnarsson 8 Sigurður Þórarinsson 7 Magnús Gauti 6 Magnús Guðfinnsson 5 Brynjar Harðarson 7 Björgvin Björgvinsson 5 Þorleifur Ananíasson 6 Gunnar Eiríksson 5 Jón Pétur Jónsson 6 Dagur Jónasson 6 Jóhann Einarsson 5 Kristinn Ólafsson 6 Þorbjörn Guðmundsson 5 Egill Jóhanncsson 4 Magnús Birgisson 5 Ragnar Olafsson 8 Þorbjörn Jensson 6 Jón Árni Rúnarsson 4 Guðmundur lúrusson 4 Bergsveinn Þórarinsson 6 Geir Sveinsson 6 Hannes Leifsson 6 Guðmundur Guðmundsson 4 Sigurbergur Sigsteinsson 4 Jakob Sigurðsson 6 Hermann Björnsson 6 Sigurður Sigurðsson 4 Hallvarður Sigurðsson 6 Gunnar Lúðvíksson 5 Björn Eiríksson 6 Friðjón Jónsson 7 Hörður Srgurðsson 6 Friðrik Guðmundsson 5 Hinrik Olafsson 4 Erlingur Kristjánsson 7 Aðalsteinn Jóhannsson 4 1 Lið Þróttar: Ólafur Benediktsson Sigurður Ragnarsson Ólafur H. Jónsson Páll Ólafsson Sigurður Sveinsson Jens Jensson Gunnar Gunnarsson Lárus Lárusson Einar Sveinsson Magnús Margeirsson Lið Fratn: Sigurður Þórarinsson Jón Árni Rúnarsson Hannes Leifsson Björgvin Björgvinsson Egill Jóhannesson Ilagur Jónasson Hinrik Olafsson Hermann Björnsson loka hafði Fram jafnað, 20—20 og þá loks skoraði Þróttur 21. markið og hafði liðið þá ekki skorað mark í 14 mínútur. En Hannes Leifsson jafnaði fyrir Fram er rúmar 3 m ín- útur voru til leiksloka og Fram fékk knöttinn síðustu mínútuna þrátt fyrir að liðið missti mann út af og léki einum færri. En hinum leik- reynda Björgvin Björgvinssyni urðu þá á mistök, hnoðaði með knöttinn inn í hornið og missti hann þar frem- ur klaufalega. 20 sekúndur eftir og Páll Ólafsson brunaði upp og skor aði sigurmarkið, 22—21 fyrir Þrótt. Leikmenn Fram og margir áhorfenda heimtuðu aukakast á Þrótt er Björgvin lét taka knött- inn af sér, en frá sjónarhóli undir- ritaðs var ekkert að dómgæslu Karls Jóhannssonar og Björns Kristjánssonar að finna. Eðlilegt að leikmönnum sárni svona mót- læti, en leiðinlegt er þeir láta dómara gjalda þess. Annars er fátt um gang leiksins að segja, Þróttur hafði forystu upp í 5—3, en Fram tókst að jafna í 5—5. Voru síðan allar jafnteflistölur upp í 9—9 og var varnarleikur beggja hræðilegur, en sóknarleik- ur Þróttar þrátt fyrir jafnræðið í markaskoruninni mun skemmti- legri á að horfa. Sem sagt 9—9, en síðustu mínúturnar nýttu Þróttar- ar betur og höfðu þriggja marka forystu er blásið var til leikhlés 13-10. Framarar byrjuðu síðari hálf- leikinn afar vel og Björgvin skor- aði tvö gullfalleg mörk af línunni, staðan því 13—12 fyrir Þrótt. En Þróttarar tóku sig þá saman í andlitinu og sýndu brot af því sem þeir best geta, breyttu stöðunni á tiltölulega skömmum tíma í 20—14. Sigurinn virtist í höfn, en var það aldeilis ekki, en loka- sprettinum höfum við þegar lýst. Þetta var ekki góður leikur ef á heildina er litið, varnarleikur beggja liða slakur, en sóknarleik- urinn ekki spennandi þrátt fyrir það, frekar mikið um einstaklings- framtak og hnoð, einkum þó hjá Fram sem lék mjög áferðarslæm- an handknattleik. Þróttarar léku lengst af talsvert langt undir getu, en menn eru farnir að hreinlega vænta þess þegar þeir mæta liðum sem þeir teljast sigurstranglegri gegn. Sigurður Sveinsson byrjaði mjög kröftuglega, skoraði fjögur fyrstu mörk Þróttar með miklum þrumukrafti, en hann dalaði er á leið. En Þróttarliðið var jafnt og það var styrkur liðsins. Egill Jó- hannesson komst mjög vel frá leiknum fyrir hönd Fram, Hannes var einnig atkvæðamikill svo og Björgvin, þó svo að mistök hans undir lokin kostuðu Fram stig. Mörk Fram: Egill Jóhannesson og Hannes Leifsson 6 hvor, Björgvin Björgvinsson 4, Jón Árni Rúnarsson 2, Dagur Jónasson, Hinrik Ólafsson og Hermann Björnsson eitt hver. Mörk Þróttar: Sigurður Sveins- son 8, 3 víti, Páll Ólafsson 5, Jens Jensson 3, Ólafur H. Jónsson 2, Gunnar Gunnarsson 2, Lárus Lár- usson og Einar Sveinsson eitt hvor. Víti í súginn: Dagur Jónasson brenndi einu af. Brottrekstrar: Hermann Björnsson Fram og Páll Ólafsson Þrótti í 2 mínútur hvor. Dómarar: Björn Kristjánsson og Karl Jóhannsson. -gR- • Víkingarnir Árni Indriðaaon og Steinar Birg- isson reyna aö stöðva Friðrik Guömundsson Val, sem gerir sig líklegan að senda knöttinn á línuna til Geirs Sveinssonar sem er við öllu bú- inn. Ljósm. Guðjón. Mikil barátta er Víkingar sigruðu Val NÚ ER ljóst að Víkingar og FH munu leika hreinan úrslitaleik í íslandsmótinu í handknattleik. Liðin sigruðu í leikjum sínum um helgina. FH sigraði KA með yfir- burðum og Víkingar unnu nauman sigur á liði Vals 15—14. Víkingar hefðu mátt tapa leiknum gegn Val og það hefði ekki breytt neinu um að leikurinn gegn FH er sá sem úrslitum ræður í mótinu að þessu sinni. Sterkar varnir Leikur Víkinga og Vals ein- kenndist fyrst og fremst af átök- um. Varnarleikur liðanna var sterkur og var þar leikið af kröft- um. Sóknarleikur liðanna var hinsvegar ekki eins beittur og of sjaldan brá fyrir léttleika og skemmtilegum leikfléttum. Þegar 10 mínútur voru liðnar af fyrri hálfleik höfðu Valsmenn tekið for- ystuna í leiknum, 3—1. En á 17. mínútu höfðu Víkingar jafnað metin og staðan var 3—3. Valsmenn höfðu frumkvæðið lengst af í fyrri hálfleiknum en náðu aldrei afgerandi forystu í leiknum. Undir lok fyrri hálfleiks- ins náðu Víkingar að jafna leik- inn, 8—8, og komast einu marki yfir svo til í sömu mund og flautað var til leikhlés. Mikiii barningur í síðari hálfleiknum Allur síðari hálfleikur ein-, kenndist af miklum barningi beggja liða. Víkingar skoruðu sitt fyrsta mark í hálfleiknum þegar níu mínútur voru búnar af honum. Þegar síðari hálfleikur var hálfn- aður var staðan 11—9. Víkingar höfðu gert tvö mörk en Valsmenn Víkingur:Valur 15:14 eitt. Það sýnir vel að sóknarleikur liðanna var ekki upp á marga fiska. Þrátt fyrir að vörn beggja liða svo og markvarsla hafi verið góð. Valsmenn jöfnuðu leikinn 11—11. Víkingar voru fyrri til að skora og voru mun ákveðnari í öll- um leik sínum í síðari hálfleik. Valsmenn léku varnarleikinn vel en sóknarleikur liðsins var með ólíkindum ráðleysislegur. Valsmönnum tókst þó að jafna metin 13—13 á 55. mínútu íeiks- ins. En Víkingar skoruðu næstu tvö mörk og staðan var 15—13. Þegar ein mínúta, fjörtíu og fimm sekúndur voru eftir af leiknum minnka Valsmenn muninn niður í eitt mark. Næsta sókn Víkinga rann út í sandinn. Valsmenn voru því með boltann þegar tæp mínúta var til leiksloka. En þeim tókst ekki að jafna metin. Sigur Víkinga var sanngjarn. Þeir voru betra lið- ið á vellinum þrátt fyrir það að leikmenn sýndu engan stórleik. Styrkleiki Víkingsliðsins liggur í því hversu jafnt liðið er. I þessum leik var varnarleikur liðsins svo og markvarsla Kristjáns mjög góð. Þorbergur var atkvæðamikill í sókninni að venju en flest mörk sín skoraði hann eftir einstakl- ingsframtak sitt. Leikmenn Vals börðust vel í leiknum. Varnarleikur liðsins var sterkur en sóknarleikurinn fálm- kenndur. Þorbjörn Jensson átti góðan leik í vörninni en Brynjar Harðarson kom einna skást út í sóknarleiknum. Jón varði vel í marki Vsls í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1. deild. Víkingur — Valur 15—14 (9-8) MÖRK VÍKINGS: Þorbergur 8, Páll 3, Hilmar 2, Óskar 1, Guð- mundur 1. MÖRK VALS: Brynjar 6, 3v, Theó- dór 3, Jón Pétur 1, Geir 1, Jakob 1, Friðrik 1, Þorbjörn G. 1. BROTTREKSTUR AF VELLI: Árni, Steinar og Guðmundur í Víkingi fengu að hvíla í 2. mín. Brynjar og Þorbjörn Jensson fóru útaf hjá Val í 2. mín. hvor. — ÞR. Sveit SR sigraði í boðgöngunni Sveit Skíðafélags Reykjavíkur sigraði á Reykjavíkurmótinu í 3x10 km boð- göngu sem fram fór í Bláfjöllum um helgina. Fékk sveitin samanlagðan tíma 101,18 mínútur. Sveit Frara hafnaði í öðru sæti á 121,17 og sveit llrannar varð þriðja á 122,38. Sigursveitina skipuðu þeir Halldór Matthíasson, sem gekk á 33,36 mínút- um, Garðar Sigurðsson sem fékk tímann 35,37 mínútur og Ingólfur Jónsson sem gekk spottann á 32,05 mínútum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.