Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982 Akureyri: Eining styrkir Sól- borg, Sjálfsbjörg og Hjálparsveit skáta Á AÐALFUNDI Verkalýðsfélagsins Einingar á Akureyri 7. marz síðast lidinn var samþykkt að styrkja eftir talda aðila. Sólborg vegna verndaða vinnu- staðarins við Hrísalund kr. 40.000, Sjálfsbjörg vegna Kndurhæfingar stöðvarinnar kr. 15.000, Hjálparsveit skáta vegna fjarskiptabúnaðar kr. 5.000. Ennfremur var samþykkt í til- efni af ári aldraðra að veita styrk úr sjúkrasjóði félagsins kr. 15.000 til ákveðins verkefnis fyrir aldr- aða á árinu 1982. Stjórninni var falið að kanna það síðar, til hvaða verkefnis fénu verður best varið. Félagar í Einingu eru nú 3.415, 2.157 konur og 1.258 kariar. Rekstrarafgangur félagsins í heild hjá öllum sjóðum var kr. 1.519.530.- Vegna góðrar afkomu sjúkrasjóðs samþykkti fundurinn auknar greiðslur úr sjóðnum til félagsmanna og að heimilt sé að veita félagsmönnum styrk vegna sjúkranudds, enda sé sú meðferð samkv. læknisráði. Á síðasta ári greiddi sjúkrasjóður bætur til fé- lagsmanna að upphæð samtals kr. 874.966,- Þá var samþykkt tillaga um að Eining gerist hluthafi í Iðnþróun- arfélagi Eyjafjarðarbyggða, ef það verður að veruleika og að því til- skyldu að almenn þátttaka verði meðal sveitarfélaga um stofnun þess. Upphæð hlutafjár verður ákveðin í framhaldi af niðurstöð- um sveitarfélaganna, á almennum félagsfundi í Einingu síðar. Samþykkt var einnig að leggja kr. 75.000 af tekjuafgangi félags- sjóðs í Byggingarsjóð félagsins. Sýning á búnaði smíðastofu FÉLAG íslenskra smíðakennara efnir til námsstefnu um stöðu og framtíð handmenntakennslu (smíði) innan grunnskólans 12. og 13. mars 1982 í Kennaraháskóla íslands. í tengslum við námsstefnuna verður opin sýning á búnaði í smíðastofu. Að sýningunni standa Námsgagnastofnun og Félag íslenskra smíðakennara og verður hún á sýningarsvæði Námsgagnastofnunar að Laugavegi 166. Sýningin stendur út vikuna. Síðdegisblað- ið komið út NÝTT blað, Síðdegisblaðið, hefur séð dagsins Ijós. Hér er ekki um að ræða blaðið, sem nokkrir alþýðu- flokksmenn ætluðu að koma á lagg- irnar, heldur standa Sóleyjarsam- tökin að útgáfunni. Guttormur Sigurðsson, einn út- gefenda, sagði að blaðið yrði fyrst um sinn vikublað. Síðar væri meiningin að gefa blaðið út tvisv- ar í viku og síðan daglega þegar samtökin hefðu bolmagn til. Ingólfur seldi í Cuxhaven SÍÐlíTOGARlNN Ingólfur frá Garði seldi 103,9 lestir af karfa í ('uxhaven í gærmorgun fyrir 875,7 þúsund krónur og var meðalverð á kíló krónur 8,45. Ekki er reiknað með að mörg skip selji erlendis á næstu dögum, en þó mun Vestmannaeyjatogar- inn Klakkur selja í Grimsby á fimmtudag. Reiknað er með góðu verði fyrir þorsk í Englandi á næstunni, bæði vegna illsku veð- urs í Norðursjó að undanförnu og eins hefur afli skipa í Norðursjó og Eystrasalti verið tregur þegar gefið hefur. Mikið af þeim þorski sem nú er veiddur í Eystrasalti er seldur á brezka markaðnum. Tvö innbrot í Breiðholti TVÖ innbrot voru framin í Breið- holti um helgina. í öðru tilvikinu var á laugardagskvöld tilkynnt um innbrot í mannlaust íbúðarhús við Teigasel 3 og stolið þaðan pen- ingum. Lögreglan hafði hendur í hári fjögurra pilta sem grunaðir voru um verknaðinn. Hitt innbrot- ið var í Fellahelli í fyrradag og var þaðan stolið 50 kartonum af sígar- ettum. Ný deild hjá Mál- freyjusamtökunum Málfreyjusamtökin efndu fyrir nokkru til kynningarfundar að Hótel Borg. í frétt frá samtökun- um segir að hann hafi verið fjöl- sóttur og margar konur hafi sýnt samtökunum áhuga. Stofnfundur nýrrar deildar verður í dag, 16. mars, kl. 20:30 í litla salnum í húsakynnum Domus Medica. \ - ★★★★★★★ ★★★★★★★ ★★★★★★★ ★ ★ ★ ★★★★★★★ ★★★★★★★ ★★★★★★★ ★ ★ ★ (★★★★★★★★★ r★★ ★★★★★★★ r★★★★★★★★★ ★★★★★★ ★★★★★★★ ★★★★★★★★★★★★★★ ★★★★★★★★★★★★★★ ★★★ ★★★ ★★★ *★★★★★★★ ★★★ *★★★★★★★ ★★★ ★★★ ★★★ ★★★ ★★★ ★★★ ★★★ ★★★★★★★ ★★★ ★★★★★★★ ★★★ ★★★★★★ ★★★ • ★ ★ ★ • ★ ★ ★ ★ r ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ r r ★ ★ ★ ★ r ★ ★ ★ ★ r ★ ★ ★ r ★ ★ ★ ★ r ★ ★ ★ ★ r ★ ★ ★ ★ DODGE ARIES Nú er tíminn til aö eignast þennan margfalda verölaunabíl. Eigum aðeins örfá eintök af Dodge Aries 1981 til ráöstöfunar strax, bæöi 2ja, 4ra og station-geröir. lituð framrúða framhjóladrif de luxe frágangur Helsti búnaður: 4 cyl. vél, 2600 cc, 100 hestöfl sjálfskipting vökvastýri aflhemlar Verö frá ca. kr. 223.712 gengi 9.3.82. miðaö við 1. verölaun: „Bíll ársins í Bandaríkjunum 1981.“ fóVökull hf. Ármúla 36 Simi: 84366

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.