Morgunblaðið - 16.03.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1982
5
íslenzkur gjald-
þrotaréttur
- ný bók eftir Stefán Má Stefánsson, prófessor
Hið íslcnzka bókmenntafélag hef-
ur gefið út bókina íslenzkur gjald-
þrotaréttur eftir Stefán Má Stef-
ánsson, prófessor. Bókin, sem er 373
blaðsíður að stærð, fjallar um gjald-
þrotarétt hér á landi, einkum með
tilliti til skýringa á nýjum lögum,
sem tóku gildi 1. janúar 1979. Aftast
í bókinni er nákvæm efnis- og heim-
ildaskrá, auk orðaskrár, dómaskrár
og lagaskrár. En fremst er efnisyfir
lit og formáli höfundar.
í formála Stefáns Más segir, að
fyrrnefnd lög séu að talsverðu
leyti afrakstur af endurskoðun
gjaldþrotaréttar sem fræðimenn
hafa unnið að á Norðurlöndum á
undanförnum árum. „Umrædd
gjaldþrotalög fela í sér veruleg
frávik frá gjaldþrotaskiptalögum
þeim sem áður giltu. Bók þessari
er ætlað það hlutverk að veita
fræðslu um nýju gjaldþrotalögin
og bæta þannig úr þeirri þörf, sem
fyrir liggur í því efni.“
Bók þessi er að sjálfsögðu eink-
um ætluð lögfræðingum og laga-
nemum, en höfundur hennar, Stef-
án Már Stefánsson, er prófessor í
réttarfari við lagadeild Háskóla
íslands.
Framboðslisti
Framsóknar ákveðinn:
Kristján, Gerdur,
Sigrún og Jósteinn
skipa efstu sætin
FRAMBOÐSLISTI Framsóknar
flokksins fyrir borgarsljórnarkosn-
ingarnar í maí í vor var samþykktur
samhljóða á fjölmennum fundi fulF
trúaráðs Framsóknarfélaganna í
Reykjavík í gærkvöldi. Aðeins ein
tillaga kom fram á fundinum og tólf
efstu sæti listans skipa eftirtalin:
1. Kristján Benediktsson, 2.
Gerður Steinþórsdóttir, 3. Sigrún
Magnúsdóttir, 4. Jósteinn Krist-
jánsson, 5. Sveinn G. Jónsson, 6.
Auður Þórhallsdóttir, 7. Jónas
Guðmundsson, 8. Aslaug Brynj-
ólfsdóttir, 9. Pétur Sturluson, 10.
Glísabet Hauksdóttir, 11. Gunnar
Baldvinsson, 12. Þorlákur Ein-
arsson.
Þrjú þeirra, sem tóku þátt í
prófkjöri Framsóknarflokksins,
höfnuðu sæti á listanum, þau
Valdimar Kr. Jónsson, Páll R.
Magnússon og Björk Jónsdóttir.
Hins vegar er sú breyting gerð á
listanum frá úrslitum prófkjörs-
ins, að Sigrún Magnúsdóttir og
Jósteinn Kristjánsson skipta á
sætum. A fundinum urðu nokkrar
umræður um prófkjörsreglur
flokksins.
Kaup á stærri
Akraborg könnuð
IITGERDARFÉLAG Akraborgarinn-
ar, sem siglir milli Keykjavíkur og
Akraness, hefur síðustu mánuði leit-
að að öðru skipi og stærra er leyst
gæti Akraborgina af hólmi. Hefur
útgerðin nú augastað á ákveðnu
skipi og mun bráðlega verða Ijóst
hvort af kaupum getur orðið, en for
ráðamenn útgerðarinnar vildu sem
minnst um málið ræða að svo
stöddu.
Brýn þörf er talin á að fá stærra
skip í stað Akraborgarinnar sem
einnig er tekin að eldast. Tekur
hún 43 tila, en hægt er að nota
skip er gæti tekið allt að 70 bíla,
en hafnaraðstaðan á Akranesi
leyfir ekki stærra skip. Málið mun
enn á frumstigi og því ekki ljóst
fyrr en eftir nokkrar vikur hve-
nær ný Akraborg gæti hugsanlega
komið til landsins.
■
TILKYNNING
UM KORRUGAL-AL
Þar sem Töggur hf. hefur nú tekið við sölu-
umboði á framleiðsluvörum frá Gránges Alu-
minium í Svíþjóð tilkynnist eftirfarandi:
Töggur hf. hefur á boðstólum hinar viður-
kenndu Korrugal álplötur á þök og veggi frá
Korrugal Gránges. Jafnan verður kappkostað
að veita viðskiptavinum okkar faglega ráð-
gjöf og upplysingar um efnið og uppsetningu
þess.
Við biðjum væntanlega viðskiptavini og
aðra þá sem áhuga hafa, að snúa sér til
sölumanna okkar til frekari upplýsinga.
TÖGGURHF.
BYGGINGAVÖRUDEILD
Bfldshöfða 16
Sími 81530
Helsingör/Marienlyst Palæ, íbúöarhótel.
íbúöarhótel í sérflokki. Studíó-íbúöir meö eldhúskrók og baöherbergi. Fagurt umhverfi viö eina bestu baöströnd Danmerkur. Á Marienlyst er
góöur veitingastaður, bar, spilavíti og innisundlaug. Góöur 18 holu golfvöllur skammt frá hótelinu og stutt í góöa tennisvelli. Hestaleiga.
Brottfarir: 4. og 18. júní, 2., 16., og 30. júlí og 18. ágúst.
Verö frá 4.675,00.
Sumarhús viö eina bestu baöströnd Danmerkur: Verö frá kr. 3.835,00.
Innifaliö í ofanskráðu veröi: Flugfargjald, flutningur til og frá flugvelli, rúmföt, handklæöi og viskastykki.
Barnaafsláttur 2ja— 11 ára kr. 1.500,00. Börn yngri en 2ja ára greiöa kr. 800,00.
Austurstræti 17, Reykjavík,
símar 20100 — 26611.
Kaupvangsstræti 4,
Akureyri. Sími 96-22911.